Þjóðviljinn - 09.07.1960, Side 6

Þjóðviljinn - 09.07.1960, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 9. júlí 1960 to: írrttz^m ttnmn ummr y»U>* ‘ »***«»—imrH k IUÓÐVIUINN j Íjtgeíandl: Samelnlngarílokkur albýðu — Sóslallstaflokkurlnn. - ■ RltstJArar: Magnús Kjartansson (áb.). Magnús Torfl Olafsson, Blg- urður Quðmundsson. — Préttaritstlórar: Ivar H. Jónsson. Jón • Bjarnasor.. - Auglýsingastjórl: Ouðgeir Magnússon. - Ritstjóm. " afgreiðsla auglýsingar, orentsmlðja: Skólavörðustig 19. — Siml n 17-500 (5 línur). - Áskriftarverð kr. 45 & mán. - Lausasöluv. kr. 3.00. I, Prentsmlðja Þjóðvlljans. tzr Liðsauki íhaldsins ILfargur spyr um þessar mundir: Hvað er Al- þýðuflokkurinn? Er hann sá hópur manna sem ræður því að flokkurinn er að renna sam- an við svartasta íhaldið í landinu, taka upp íhaldsstefnu, setja þvingunarlög gegn verkalýðs- hreyfingunni, ráðast á verkfallsréttinn, afnema vísitöluuppbætur á kaup, veita flóði dýrtíðar- innar yfir alþýðuheimilin? Eða er það Alþýðu- flokkurinn þegar flokksmenn hans í forustu Al- þýðusambandsins og í stjórnum einstakra verka- lýðsfélaga mótmæla þessum aðgerðum formanns og ráðherra flokksins, Emils Jónssonar, og Guð- mundar í. Guðmundssonar og Gylfa Þ. Gíslason- ar? Og til hvers halda menn að þær þúsundir alþýðumanna, sem kusu Alþýðuflokkinn við síð- ustu kosningar, einmitt og sér í lagi til að verjast dýrtíðinni, til að vernda „stöðvunarstefn- una“, til að vernda málstað alþýðunnar, hafi ætlazt af þingmönnum sem verið var að senda á þing? f^essi flokkur, sem misyndismenn eins og Guð- mundur í. Guðmundsson og skoðanalausir karríeristar eins og Emil og Gylfi hafa gert að fótaþurrku afturhaldsins í landinu, mun hljóta sinn dóm næst þegar fólkið fær að dæma í kosn- ingum. Fyrrverandi kjósendur Alþýðuflokksins skilja þá yfirlýsingu leiðtoga Sjálfstæðisflokks- ins að nú sé auðveldara að framkvæma íhalds- stefnuna en þó Sjálfstæðisflokkurinn hefði feng- ið hreinan meirihluta á Alþingi. Það er von íhaldsins, að foringjaklíka Aiþýðuflokksins hafi enn þau tök á einhverjum hluta verkalýðshreyf- ingarinnar, að takist að lama hana í baráttunni fyrir bættum kjörum alþýðunnar og réttindum samtakanna. Sú von afturhaldsins mun ekki ræt- ast. Það sem heilbrigt er til af Alþýðuflokks- fólki í verkalýðshreyfingunni mun ekki láta hugsjónasnauða forystu draga sig niður í íhalds- fenið, heldur standa við hlið bræðra sinna og systra í hinni miklu baráttu alþýðunnar á ís- landi, í sókn til bjartrar framtíðar. -var tíðin að Alþýðuflokkurinn taldi sig nauðbeygðan að „draga“ ráðherra sinn út úr ríkisstjórn, sem setti þvingunarlög gegn verk- fallsmönnum. Að vísu flýtti hann sér að því strax á eftir að veita sömu stjórn skilyrðislaust hlutleysi og verja hana vantrausti þingsins. Nú er það Alþýðuflokkurinn sem gengur fram fyr- ir skjöldu til að setja þvingunarlög og banna verkfall, þó hann geri með því ráðherra flokks síns ómerka orða sinna, en einmitt þeir hafa hvað eftir annað svarið og sárt við lagt að ríkis- stjórnin muni engin afskipti hafa af vinnudeil- um og verkföllum- Nú er það Alþýðublaðið sem ver bessi bvingunarlög og árás á verkfallsréttinn eins oq slíkt væri sjálfsagður hlutur og flytur ásamt blöðum Vinnuveitendasambandsins dul- búna hótun um að ríkisstjórn Alþýðuflokksins og 'Sjálfstæðisflokksins hyggist annað hvort hræða verkalýðsfélögin frá kjarabaráttu eða að öðrum kosti verði haldið áfram á þeirri braut ; að afnema verkfallsréttinn. Og Alþýðuflokkur- ; inn á ekki þá afsökun að neinn annar íslenzkur ! alþýðufiokkur hafi hagað sér þannig. Sósíalista- i flokkurinn hefur aldrei léð máls á því að banna verkföll með löggjöf, ekkert slikt bann var sett ; í tíð vinstri stjórnarinnar. Það er Alþýðuflokkur- | inn sem hér er að stíga enn eitt skref á vegi ' smánar og íhaldsþjónustu, og á sér enga afsök- ; un. — s. tzu OJt ua Sykurinn er fyrir Kúbumenn það sem fiskurinn er fyrir íslendinga. Sykurreyrsekrur þekja mikinn hluta ræktaðs lands á þessari frjosömu eyju í Karíbahafi, og áratugum sam. an hefur sykur verið helzta út- flutningsvara Kúbumanna. Stærsti markaður þeirra hefur lengi verið í Bandaríkjunum. Bandaríkjamena hafa keypt um helming af sykurfram- leiðslu Kúbu. Lengi vel hefur Kúbusykurinn notið forgangs- réttar á bandarískum innflutn- ingsmarkaði, en nú hefur Bandaríkjastjórn shúið blaðinu við og skorið niður innflutn- ing á sykri frá þessu nágranna- ríki sínu. Ekki er farið dult með að þetta er gert í þeirri von að af hljótist efnahags- legt öngþveiti á Kúfcu, Ákvörð- un Eisenhowers forseta að nota heimildina sem þingið gaf honum til að takmarka inn- flutning á Kúbusvkri er opin- ská tilraun Bandaríkjastjórnar til að kollvarpa rikisstjcrn Kúbu með viðskiptastríði. C|ú var tíðin að bandarískur ^ forseti þurfti ekki mikið að aðhafast til að koma því til leiðar að ríkisstjórnin í Hav- ana, höfuðborg Kúbu, væri Bandaríkjunum auðsveip. Lengst af frá því 1898, þegar Kúbumenn vörpuðu af sér oki Spánverja, fram til 1934 sat bandarískur her á Kúbu og skipti sér af stjorn eyjarinnar þegar yfirboðurum hans sýnd- ist svo. Bandaríkjastjórn viður- kenndi nefnilega ekki sjálfstæði Kúbu fyrr en hún hafði tryggt sér rétt til að beita hervaldi hvenær sem henni þurfa þótti til að tryggja „lög og reglu“ á eynni. Þessum rétti afsöluðu Bandaríkin sér ekki fyrr en Franklin Roosevelt kom til valda. Rétturinn til hernaðarí- hlutunar á Kúbu var knúinn ifram til að tryggja hagsmuni bandarískra stóreignamanna og auðfélaga. Ekki var veldi Spán- verja fyrr hrundið en banda- rísk fyrirtæki tóku að sölsa •undir sig auðlindir Kúbu. Hinn alræmdi auðhringur United Fruit klófesti þar víðlendar plantekrur, önnur bandarísk fyrirtæki komu upp kvikfjár- rækt í stórum stíl, lögðu und- ir sig námur landsins, sykur- iðnaðinn, orkuframleiðsluna og þjónustu eins og símann. Svo var komið að loknum stjórnarferli Batista, hins síðasta og versta af mörgum Bandarikin segj viðskiptastrí grimmum og spilltum Banda- ríkjaleppum á veldisstóli í Hav. ana, að bandarísk stórfyrirtæki áttu þriðjung ræktaðs lands á eynni. Stórtoú þeirra náðu yfir allt að 125.000 hektara. Þar að auki áttu Bandaríkjamenn flestallar námur á eynni, raf- stöðvarnar, símann, ferða- mannahótelin, sykurvinnslu- stöðvamar, og síðast en ekki sízt tvær olíuhreinsunarstðvar af þrem, en Shell átti eina. Forgangsrétturinn til sykur- innflutnings í Bandaríkin átti að tryggja að ekki væri hrófl- að við þessari forréttindaað- stöðu bandarískra fyrirtækja í atvinnulífi á Kúbu, gera landið svo háð Bandaríkjunum að eng- in Kúbustjórn þyrði að hrófla við hinum erlendu stórfyrir- tækjum, vegna þess að hún vissi að vanþóknun Bandaríkj- anna gæti valdið ríkisgjald- þroti í Havana. Auk þess nutu bandarískir eigendur sykur- plantekra og hreinsunarstöðva mikils hluta af arðinum af sykursölunni til flBandaríkjanna. F^egar Fidel Castro kom til * valda fyrir hálfu öðru ári eftir áralangan skæru- hernað gegn hernum sem Bandaríkjastjórn hafði vopnað og þjálfað fyrir Batista ein- ræðisherra, var stefna toylting- arstjórnar hans ekki fast mót- uð nema í einu atriði. Sigur sinn átti hann að þakka stuðn- ingi guajiros, en svo nefnist örsnauð sveitaalþýða Kúbu. Eftir að hann hét því að skipta stórjörðum milli leiguliða og jarðnæðislausra landbúnaðar- verkamanna, studdu guajiros skæruliðana á hverju sem gekk. Við valdatöku Castros áttu 2500 stórjarðeigendur, inn. lendir og erlendir, helming ræktaðs lands á eynni. Sveita- alþýðan lifði í sárustu fá- tækt og eymd. Hálf millj- ón manna var að staðaldri atvinnulaus og 300.000 land- búnaðarverkamenn höfðu aðeins atvinnu um uppskemtímann á sykurplantekrunum. Meirihluti sveitafólksins var víða hvorki læs né skrifandi, heilbrigðis- þjónusta engin á stórum svæð- um, milljónir bjuggu í aum- ustu hreysum. Castro og félag- ar hans í byltingarhreyfing- t ípivyV * 4 Hús af þeirri gerð sem reist eru á nýju samvinnubúunum á Kúbu unni hétu því að ráða bót á þessu, veita hinum óbreytta Kúbumanni jafnt i sveit og toorg hlutdeild í afrakstri þess, frósama lands sem hann byggir. Eftir að byltingarst j órnin hafði fest sig i sessi með því að leysa upp atvinnuher Batista og reka handgengna menn hans úr valdastöðum um þvera og endilanga Kúbu, tók hún að efna loforð sín við sveitaalþýðuna. Lcg voru sett um hámarksstærð jarða og það sem framyfír var tekið af stórbúunum og fengið leiguliðum og landbún- aðarvérkamönnum í hendur. Ákveðið var að greiða fyr- ir landið með tuttugu ára rikisskuldabréfum á 4 Vfc % vöxtum. IStórjarðeigendur i hópi Kúbumanna þorðu hvorki að æmta né skræmta, því að þorri þjóðarinnar var á bandi byltingarstjómarinnar. Banda. rískir einstaklingar og fyrir- tæki sem misstu spón úr aski sínum hófu hinsvegar áróðurs- herferð, sem náð hefur hámarki í yfirlýsingu Eisenhowers um viðskiptastríð á hendur fyrstu ríkisstjórn á Kúbu sem sýnt hefur að henni er alvara að berjast fyrir hagsmunum hins snauða fjölda gegn fámennum hópi innlendra og erlendra stór. eignamanna. IFandaríkjastjórn stóð strax illur bifur af hreyfingu Castros, hún óttaðist að sams- konar alþýðuhreyfing og hann stjórnáði kvnni að breiðast út um Rómönsku Ameríku, og ákvað því að neita honum um vopn handa her sínum, enda þótt vitað væri að iBat- ista og menn hans hyggðu á innrás frá Dominikanska lýð- veldinu og Flórída. Þetta vopnasölubann olli fyrsta á- rekstrinum milli stjómar Cast- ros og Bandaríkjastjórnar. Bandaríkjastjórn hafði selt Batista vopn til að brytia nið- ur landa sína framundir lok borgarastyrjaldarinnar, en nú var Cast.ro neitað um vopn til að verjast leifunum af liði Bat- ista. Castro leitaði fyrir sér um vopnakaup í Evrópu. en Bandaríkjastjórn brá fæti fýrir hánn hvar sem hún mátti. Út- yfir tók þegar sprenging várð

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.