Þjóðviljinn - 15.07.1960, Side 9
r
Pöstudagur 15. júlí 1960
ÞJÓÐVILJINN — (9
Ritstjóri: Frímann Helgason
ilsnar Þorb jornsson á 10,4 í 100 m
ÞaS verður ekki langfc aS bíða eftir 4,50 lijá Valbirni, segja
íþrótifcasérfræðingar. Myndin er tekin þegar Valbjörn flaug
yfir rána á nýafstöðnu móti. (Ljósm Þorv. Öskarsson)
Meistaramót Reykjavíkur í
frjálsum iþróttum hélt áfram
á miðvikudaginn, og náðist
góður árangur í nokkrum grein-
um. Veður var fremur kalt og
hafði það að sjálfsögðu sín
áhrif á árangur í sumum grein.
um.
Árangur Hilmars Þorbjörns-
sonar á 100 m. var mjög góð-
ur og það sem betra var, að
meiðsli, sem hefur stundum háð
honum undanfarið lét ekkert
á sér bæra í hlaupinu og tók
Hilmar á eins og árangurinn
sýnir. Að vísu var svolítill
kaldi í bakið, sem hjálpaði.
Þrátt fyrir kuldann munaði
varla nema hárbreidd að Val-
b.iörn færi yfir 4,50 í stangar-
stökki, og ekki ólíklegt að hann
hefði farið það, ef hann hefði
bevgt sig betur yfir ránni. Vera
má líka síð þátttaka hans i 100
m. hlaupinu nokkru áður hafi
líka haft sin áhrif í stangar-
stökkinu. Virðist ekki langt að
bíða að hann fari yfir 4,50.
Getur svo farið að hann nái
þessum árangri í keppninni í
Oslo í næstu viku.
Það kom nokkuð á óvart að
Þórður B. Sigurðsson skyldi
ekki verða Reykjavikurmeistari
í sleggjukasti, en hann virtist
ekki vel fyrir kallaður í keppn-
inni átti of margar ógildar
Ilörður Haraldsson lætur nú
jn.jög: að sér kveða og hér er
mynd af lionuni er haun kcmur í
mark cftir 200 m hlaupið á M.R.
Að baki honum er Grétar Þor-
stcinsson. Á.
tilraunir, en Friðrik Guðmunds-
son tryggði sér þann titil.
Þó tíminn í 1500 m. hlaup-
inu væri ekki sérlega góður, var
keppnin milli Svavars Markús-
sonar og Guðmuridar Þorsteins-
sonar allskemmtileg. Til að
byrja með hafði Svavar forust-
una og síðar tók Guðmundur
við. En iþegar eftir voru að
marki um 350 m. tók Svavar
Ililmar hefur tryggt sér þátttöku
á OL eftir 100 m hlaupið á M.R.
sprett og ætlaði sýnilega að
,,hrista“ Guðmund af sér. En
Guðmundur tók líka sprett og
hélt mjög í við Svavar í þess-
um langa endaspretti, en á
síðustu beinu brautinni gaf
Guðmundur svolítið eftir og
kom röskum 2 sek. á eftir
Svavari í mark. Var það vel
af sér vikið, í keppni við svo
góðan mann sem Svavar er.
Af þeim 9 mönnum sem á
skrá voru í 400 m. hla-upinu
komu aðeins 3 til leiks, og
voru það Ármenningarnir:
Hörður Haraldsson, Þórir Þor-
steinsson og Grétar Þorsteins-
son, Hörður vann hlaupið leik-
andi en gaf óvenjulega eftir
í lok hlaupsins og mun sprett-
ur hans gegn kaldanum hafa
19 beztu í tug-
þraut fram að
deginum í dag
1) R. Johnson USA 8.683
(60)
2) Yang, Formosa 8.426
(60)
3) Kuznetsoff, Sov. 8.302
(59)
4) Edstrom, USA 8.176
(60)
5) Kutjenko Sov. 7.989
(58) -
6) Lauer Þýzkal. 7.955
(59)
7) Campell, USA 7.937
(56)
8) Mulkey, USA 7.654
(60)
9) Palu, Sov. 7.559 (58)
10) W. Meier, Þl. 7.388
(58)
m 4,50 m
verið of harður. Þórir kom
næstur í mark.
Kristján Eyjólfsson náði
betri árangri, en liann hefur
náð til þessa eða 14,13, og tók
hann sig upp nokkuð fyrir
aftan plankann. Mun stökkið
hafa verið um 14,29, sem hefði
meir en nægt í drengjamet.
Það fór svo að Hallgrímur
tryggði sér för til Oslo í fjögra-
landa keppnina þar, en úrslit
keppninnar í Reykjavíkur—
meistaramótinu átti að skera
úr hver færi. Sigraði Hall-
grímur með nokkrum yfirburð-
um, en næst kom Friðrik Guð-
mundsson.
í 110 m. grindahlaupinu var
keppnin milli Sigurðar Björns-
sonar og Guðjóns Guðmundss.
mjög hörð og mátti ekki á milli
sjá. Guðjón hafði heldur for-
ustu til að byrja með, en Sig-
urður vann á og kom
brjóstþykkt á undan í mark,
en báðir á sama tíma, 15,2.
Úrslit urðu þennan dag
Reykjavíkurmótsins sem hér
segir:
110 m. grindarhlaup.
1 Sigurður Björnsson KR 15,2
2 Guðjón Guðmundss. KR 15,2
100 m. hlaup.
1 Hilmar Þorbjörnss. Á 10,4
2 Valbjörn Þorláksson IR 11,0
3 Einar Frímannsson KR 11,1
1500 m. lilaup.
1 Svavar Markúss. KR 4,05,8
2 Guðmundur Þorsteinss. KA
4,07,9 (Gestur)
400 m. hlaup.
1 Hörður Haraldss. Á 50,5
2 Þórir Þorsteinss. Á 50,9
3 Grétar Þorsteinss. Á 51,2'
Stangarstökk.
1 Valbjörn Þorláksson 4,30
2 Heiðar Georgsson iR 4.101
3 Brynjar Jensson HSS 3.60
Þrístökk.
1 Vilhjálmur Einarss. ÍR 15,10
2 Kristján Eyjólfss. ÍR 14,13'
3 Ingvar Þorvaldss. KR 13.9S
Kringlukast.
1 Hallgrímur Jónss. Á 48,43
2 Friðrik Guðmundss. KR 46,85
3 Þorsteinn Löve ÍR 46.73
Sleggjukast.
1 Friðrik Guðmundss. KR 50,41
2 Þórður B. Sigurðss. KR 49,73
Hafnarf jörður í úrslitum 2. deildar
— Koma þeir, eða koma þeir
ekki? var spurning, sem áhorf-
endur að leik Reynis frá Sand-
gerði og Hafnarfjarðar spurðu
hverjir aðra er kl. var að verða
níu í fyrrakvöld. Ástæða efa-
semdanna er einhver deila
sem Sandgerðingar hafa lent í,
þar eð þeir vilja einungis leika
um helgar vegna vinnu sinnar.
Unnu Reyni í Sand-
gerði með 3 mörkum
gegn engu
Jú, þeir mættu til leiks. Á mín-
útunni niu óku nokkrir einkabíl-
ar inn á knattspyrnuvöll Ilafn-
i'irðinga og út úr þeim stukku
knattspyrnuklæddir Sandgerðing-
ar.
Léleg knattspyrna
Knattspyrnan, sem þessi tvö
II. deildarlið sýndu, var ekki
sérlega góð, Fyrst til að byrja
með, og raunar allur fyrri hálf-
leikurinn, var eins og tennis milli
liðanna, sem kýldu langar send-
ingar sín á milli! Eftir að Ragn-
ar fór í framlínuna lagaðist leik-
ur Hafnarfjarðar að miklum
mun. Fyrsta mark ÍBH var
skorað á 25. mín. af Henning
innherja, mjög efnilegum leik-
manni. Markið var skorað eftir
góða fyrirgjöf íýá hægri. Undir
hálfleikslokin áttu Haínfirðing-
ar nokkuð góð tækifæri á að
skora og tvisvar var bjargað á
marklínu Reynis.
Hafnarfjörður átti seinni
liálfleikinn
Seinni hálfleikurinn var að
mestu i höndunum á Hafnfirð-
ingum, sem skoruðu 2 mörk og
heíðu átt að skora fleiri. Á 27.
mín. mátti kenna klaufaskap um
er Bergþór skoraði ekki í mjög
góðu færi, en hann skaut yfir.
Á 30. mín. sýndi Ragnar vissu-
lega hvað í honum býr sem fram-
línumanni. Hann lék laglega á
vörn Reynis og' gaf vel fyrir til
Bergþórs bróður síns, sem ekki
þuríti annað en velta knettinum
inn í tómt markið. Stuttu síðar
átti miðherji Reynis gott færi á
að skora en brenndi af. Það var
eina færi Reynis í hálfleiknum.
Á 40. mínútu kom 3. markið hjá
Hafnarfirði. Henning innherji
lék upp með endamörkunum og
gaf þaðan á Bergþór, sem að
venju fylg'di eftir og þurfti nú
sem áður ekki mikið að hafa
fyrir að skora.
Sanngjörn úrslit
Eftir gangi leiksins eru úrslit-
in 3:0 alveg sanngjörn. 1 Ilafnar-
fjarðarliðinu eru hinir efnileg-
ustu leikmenn, og yfirleitt eru
Bandarísk stúlka
setti heimsmet í
290 m. hlaupi
1 síðustu viku setti banda-
ríska stúlkan Wilma frá
Tennessee nýtt heimsmet í 200
m. hlaupi á 22,9, og er þetta
0,3 sek. betri tími en met Ást-
rölsku stúlkunnar Betty Cuth-
bert, sem hún setti á OL i
Melbourne.
leikmenn liðsins búnir góðri
,.teknik“ og hraða, en þetta hafst
Sandgerðingarnir, að undanskild-
um þeim Gunnlaugi og Eiríki,
ekki. Beztir í Hafnarfjarðarliðimz
voru þeir Ragnar( eftir að hann
fór í framlínuna), Henning cg:
Gunnar Valdimarsson á vinstræ
kantinum. Þeir tveir síðastnefnclu.
eru báðir mjög ungir leikmenn.
Framhald á 10. síðu<
/ sfufiu máli
Sovétríkin unnu Júgóslavíu r
knattspyrnu i París í keppni unt
Evrópubikarinn. Leikurinn end-
aði 2—1 eftir framlengingu.
Floyd Patterson kemur til Sví-
þjóðar í ágúst og mun hann sýna.
listir sínar víða þar í landi.
Til marks um ágæti Rafers
Johnsons í tugþrautinni haia
sænsku blöðin bent á að hann
gæti orðið landsliðsmaður í Sví-
þjóð í hverri grein nema 1500 m.
hlaupi og hástökki. Eru Svíar þó-
ekki taldir neinir aukvisar i
frjálsum íþróttum.
Björn Andersen, setti nýtt
danskt met í stangarstökki í
Osló. Hann stökk 4,40 og fór yf-
ir í fyrstu atrennu. Hann min
fara á OL.
1 srn frá heinismeti. Á sunnu-
dag kepptu Pólverjar, A-Þjóð-
verjar og Ungverjar í frjálsum:
íþróttum í Rostock. Shmidt stökk
16.69 í þrístökki, aðeins . einum
sm írá heimsmetinu. Mjög g'óV
ur árang'ur náðist í mörgum
greinum, m.a. varð Sidlo 5. í.
spjóti með 74.86! og Iharos varð
að láta sér nægja 5. sætið í 5000:
m hlaupi á 13,59,8!
'3*