Þjóðviljinn - 30.07.1960, Blaðsíða 1
Langardagur 30. júlí '1960 — 25. árgangur — 167. tölublað.
Nokkur hluti Faxaflóa opnaður í
átta vikur fyrir dragnótaveiðum
Lika svœði við Suðausfurland og PafreksfjarðarHói
Búið að velja
landsliðið
Landsliíið í knattspyrnu var
valið í gær, en landsleikurinn
við V-Þjóðverja fer fram á Laug
ardalsvellinum n.k. miðvikudag.
Liðið: Helgi Daníelsson, Rúnar
Guðmannsson, Kristinn Gunn-
laugsson, Sveinn Teitsson, Hörð-
ur Felixson, Guðjón Jóitssan,
Örn Stein-en, Sveinn Jónsson,
Þórólfur Beck, Guðmundur Csk-
arsson og Steingrímur Bjiirns-
son.
Varamenn: Heintir Guðjónsson,
Árni Njálsson, Ellert Schrarn,
Bergsteinn Magnússon og Baldur
Scheving.
Átökunum um dragnótaveiðar hér í Faxaflóa er lok-
iö þetta sumarið AtvinnumálaráÖuneytið hefur tekiö
þann kost aö reyna aö gera báöum til hæfis þeim sem
vilja dragnótaveiöar og andstæöingum slíkra veiöa meö
því aö leyfa veiðar í hluta flóans tvo næstu mánuöi.
Hætt er við að hvorugir
verði ánægðir með salómons-
dóm ráðuneytisins. Þeir, sem
hyggja á dragnótaveiðar vildu
fá opnað svæði miklu fyrr og
finnst veiðitíminn stuttur Auk
þess þykir þeim súrt í broti
að ýmis hentug dragnótasvæði
eru lokuð eftir sem áður. And-
stæðingar dragnótaveiða telja
misráðið að leyfa þær á nokkr-
um bletti,
Botninn Iokaður
Dragnótaveiðisvæðinu í Faxa-
flóa er hagað þannig að allur
botn flóans og firðirnir inn
úr honum eru lokaðir fyrir
veiðunum, sömuleiðis grunn-
sævið meðfram Reykjanesi.
Dragnótaveiðár eru ekki heim-
ila-r innan línu sem dregin er
frá Kirkjuhólsvita um mitt
Snæfellsnes í Þormóðsskersvita
út af Mýrum. Þessi lína lokar
króknum. Síðan heldur línan
áfram úr Þormóðsskeri í
Gróttuvita og lokar Borgar-
firði, Hvalfirði og Kollafirði.
Dragnótaveiðar eru hinsvegar
heimilaðar á Sviði, handfæra-
mið Reykjavíkurbáta við sex-
baujuna eru utan línunnar. Úr
Gróttuvita liggur línan svo í
Gerðistangavita utan við
Kálfatjörn og lokar Hafnar-
firðinum fyrir dragnótaveið-
um, en þar voru í fyrri daga
frábær rauðsprettumið. Úr
Gerðistangavita liggur línan
svo í punkt í Garðsjónum
rúmar þrjár mílur út af Garð-
s'kaga.
Svæðið frá Garðskaga að
Reykjanesi er algerlega lokað
fyrir dragnótaveiðum, er þar
eru afar eftirsótt dragnóta-
mið, Hafnarleirinn og Sand-
vikurnar.
Veiðileyfi til dragnótaveiða
á opna svæðinu í Faxaflóa fá
ekki aðrir bátar en þeir sem
gerðir hafa verið út í höfnum
við flóann innan Garðskaga.
Veiðitiminn verður frá 1. ág-
úst til 31. september.
í gær var einnig opnað
veiðisvæði sem einungis er ætl-
að austfjarðabátum. Það nær
Dragnótaieiðisvæðið í Faxaflóa talunarkast )af brotnu línunni
sem liggnr frá öndverðarnesi beint út af línunni sem af-
marliar 12 mílna í'iskveiðilögsöguna og aftur frá Kirkjuhóls-
vita iirn Þormóðsskersvita, Gróttuvita, Gerðistangavita og stað
norður af Garðsleaga út eins langt og fiskveiðilögsagan nær.
frá Papey að Ingólfshöfða.
Loks var Patreksf jarðarfló- \
inn frá Blakk að Kóp opnaður
fyrir dragnótaveiði, en Pat-
reksfjörður sjálfur og Tálkna-1
fjörður eru lokaðir. Veiðar á
þessu svæði eru ekki takmark- ^
aðar við báta af neinum sér-
stökum stöðum.
Þjóðviljinn sneri sér í gær
til Péturs Sigurðssonar, for-
stjóra Landhelgisgæzlunnar,
og spurði hann hvernig háttað
Framh. á 2. síðu
I gær fóru fram þingkosn-
ingar í Suður-Kóreu, þær fyrstu
sem þar hafa verið haldnar
síðan Syngman Rhee hrökklað-
ist frá völdum. Miklar róstur
urðu í mörgum borgum lands-
ins og þó einkum í þeim
stærstu, hafnarborginni Púzan
og höfuðborginni Seúl. 1 Seúl
særðust 40 lögreglumenn í
átökum við múg manns sem
réðst inn í eina kjördeildina
og hafði einn af frambjóðend-
um ,,Frjálslynda“ flokksins
(flokks Syngmans Rhee) á
brott með sér.
Þessi mynd var tekin í vörugeymslu lijá Tollstjóraskrifstof-
unni, en þangað var smyglvarningurinn fluttur. Á myndinni
sést einn kjóll, miðlu.gi smekklegur, og kassar sem innihéldu
plastvörur. Til að koma smyglgóssinu fyrir í geymslunni settu
tollverðirnir það allt í kassa. (Ljósm.: Þjóðviijinn).
Róstusamar
Kóreu-kosningar
Pósthús Bondaríkjahersins á
Keflavíkurvelli smyglmiðstöð
Smyglarahjónin laumuðu þar inn skóm 09 fatnaði að verðmæti
hundruð þúsunda króna á þrem mánuðum í vor
Pósthús Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli er notað
seny smyglmiðstöö. Smygliö þar er í svo stórum stíl aö
ein hjón gátu á þrem mánuöum smyglaö inn í pósti
varningi sem aö verömæti nemur hundruöum þúsunda
króna á útsöluveröi hér.
Þetta kemur í ljós í skýrslu
Gunnlaugs Briem, fulltrúa saka-
dómara, um rannsókn í máli
hjónanna á Barónsstíg 57, en
mikið magn af smygivarningi
fannst i íbúð þeirra eins og áð-
ur hefur verið skýrt frá. Eigin-
maðurinn er bandarískur her-
maður og konan íslenzk.
Skór fyrir 200 þúsund.
Rannsóknin hei'ur leitt í liós
að smyglað var inn á nai'ni
Bandaríkjamannsins i pósti-sem
fór um pósthúsið á Kefiavikur-
llugvelli miklu magni aí kven-
skóm og kveníatnaði. Mánuðina
apríl til júní i vor fengu hjónin
til dæmis á þennan hátt 281 par
af kven kóm á 1490.75 dollara
(57.036 ísl. króna) innkaupsverði.
Þessi varningur var ætlaður til
sölu hér, og má gera ráð fyrir
að útsöluverð hefði ekki orðið
undir 200.000 krónum. Auk þess
var smyglað inn ' kvenpeysum,
kjólum og öðrum fatnaði á þenn-
an hátt.
Til eigin þarfa!
Kaninn þykist ekkert hafa
vitað um verzlun konu sinnar
með smyglvarninginn, segist
hafa haldið að hún ætlaði þetta
281 par af skóm á eigin fætur.
Áfengi, riiðursuðuvörur, sæl-
gæti. tóbak og annan ótollaðan
varning af Kefiavíkurflugvelii
segjast hjónin hafa fengið þaðan
með leyl'i islenzkra yfirvalda og
ætlað til eigin þarfa. Þau hafi
verið að birgja sig upp, vegna
Framhald 4 10. siðu
131 par af smygluðu skónum er
nú komið í vörzlu Tollstjóra-
skrifstofunnar og hér sést lilutH
af þeim birgðum.