Þjóðviljinn - 30.07.1960, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 30. júlí 1960
Vistgjöld
r
1
og viöurgerningur
Hrafnistu
Með bréíi til okkar vist-
manna í Hrafnistu frá Full-
trúaráði sjómannadagsins 14.
júli sl. er okkur vistmönnum
tilkynnt að þeir vistmenn sem
greiði sjálfir mismun á vist-
gjaldi sínu og ellistyrk skuli
veittur afsláttur er nemi krón-
um 15,00 á dag.
í bréfi þessu taka þeir til
samanburðar Sólvang og Elli-
heimilið G.rund, en minnast
ekki á Reykjalund.
Ennfremur er tekið fram í
bréfi þessu að ekkert af vist-
gjöldum þessum gangi til að
greiða húsaleigu, eða bygging-
arkostnað. — Nú leyfi ég mér
að taka samanburð á mönnum,
sem reka þá atvinnu að selja
fæði í þessum bæ.
Þeir taka ellefu til tólf hundr-
uð krónur á mánuði fyrir fæði
og á þessu á fjölskylda þeirra
að lifa í fæði og klæði og greiða
húsaleigu, en við vistmenn í
Hrafnistu erum látnir greiða
kr. 75.00 á dag, eða krónur
2.250,00 i'yrir hverja 30 daga,
en auk þess tekur forstjórinn
kr. 15.00 á dag úr bæjarsjóði
fyrir þá af okkur, sem ekki
getum g'reitt mismuninn sjálf-
ir, og fær hann því þannig kr.
90,00 á dag, eða kr. 2.700,00 á
mánuði.
Þetta á að takast af þeim sem
eru veikastir og efnaminnstir,
ef þgir ekki geta -greitt mis-
muninn á eliilaunum sínum
og hinu rándýra fæði.
Þetta eru að mínu áliti sam-
skot frá þeim veikustu og
máttminnstu handa þeim sem'
meiri máttar eru.
Mér finnst þeir lítillátir að
þiggja þá ölmusu frá blásnauð-
um og veikum félögum sínum.
Þar sem forstjórinn hefur í
tvo mánuði tekið þennan mis-
mun frá bænum í aigjöru
heimildarleysi og við setið við
sama borð og notið sama fæðis
og þjónustu og þeir sem greiða
sjálfir mismuninn, krefjumsí
við þess að fé þetta verði taf-
endurgreitt til bæjar- varðandi hækkun á vistgjöld-
skora ég á ríkisstjórn um þá var það í upphafi sam-
arlaúst
ins, og
og bæjarráð, að taka málið til
athugunar og sjá um að þetta
verði endurgreitt. En vprði aft-
ur á móti haldið- fast við þessa
15.00 kr. hækkun, þá hljótum
við að krefjast þess að sitja
við annað borð og njóta betri
fæðu og' hlunninda.
í fj'rrnefr.du breíi getur Sjó-
mannadagsráð þess að rekstu.rs-
halli á heimilinu sé krónur
360 þúsund. Það er okkur vist-
mönnum iítt skiijanlegt, þar
sem við greiðum helmingi^
meira fyrir fæði okkar. en það
er selt á matsölum í bænum og
ekkert af vistgjaldinu fer í
húsaleigu.
Það er þó vitað að matsalar |
verða margir að kaupa efni til
matargerðar af smásölum, en i
Hrafnista kaupir allt í heild- i
^ölu.
Fæði í Hrafnistu er í með-
allagi og ekkert meira, síðan
ráðskonan var rekin.
Okkur vistmönnum er for-
vitni að vitá af hvaða skóla
kckkurinn hefur útskriíazt
þe'-s að h?.fa brytaréttindi.
Nú hofur verið gerður blett-
u.r vestan við heimilið sem mun
vera fjórar til fimm dagsláttur
og er hann hafður til sýnis þeg-
ar forsetann og aðra mikilshátt-
ar gesti ber að garði. en ekki
mun þess getið að bletturinn
mun hafa kostað fimm til sex
hundruð þúsund krónur.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Björn Gíslason
Hrafnistu
Ég sendi yður, herra ritstjóri,
bréfið frá Sjómannadagsráði og
bið yðu.r að gjöra svo vel að
birta það í blaði yðar. — B.G.
Bréf FuIItrúaráðs Sjómanna-
dagsins:
„Reykjavík, 14. júlí 1960.
Til vistmanna Hrafnistu.
Kæru vistmenn.
Sem svar við heiðruðu bréfi
þykkt að vistgjöld skyldu að
mestu leiti (syo) miðuð við út-
gjöld á heimilum sem rekin eru
af því opinbera eins og til dæm-
is Sólvangi í Hafnarfirði, raun-
in hefur þó orðið sú, að vist-
gjöldin í Hrafnistu hafa verið
um 10 krónum lægri á dag en
t.d. í Elliheimilinu Grund. Með
þeim vistmönnum, sem nú er
(svo) í Hrafnistu nemur 10.
kr lægri (svo) gjald á dag'
fyrir hvern vistmann 30 þúsund
krónum á mánuði eða um 360
þúsund krónum á ári, en það
er svipað þeim reksturshalla
sem orðið hefur á rekstri heim-
ilisíns.
Eins- og er þá hrökkva vist-
gjöldin ekki fyrir launagreiðsl-
um eða reksturskostnaði heim-
ilisins, ekkert af vistgjöldum
fer til að greiða húsaleigu eða
bygginga(,svo)kostnað heimilins
ef hagnaður yrði af rekstrinum
myndi hann undireins verða
notaður til að lækka vistgjöld-
in sem hagnaðinum nenii (svo)
Eins og stendur sjáum við
því ekki möguleika á að hafa
vistgjöldin almennt lægri en
þegar hefur verið ákveðið með
hliðsjón af vistg'jöldum í öðrum
heimilum. Aftur á móti er það
og hefur verið fastur ásetning*
ur Sjómannadagsráðsins að
,gera ykkur sjómönnum vistinai
á heimilinu sem ánægjulegastót.
og ódýrasta og í því trausti að'
hagnaður ve.rði af rekstrt Kvik*
myndahússins hefur stjórnirj
samþykkt að veita þeim sjó*-
mönnum 15 króna afslátt 3
dag er sjálfir greiða vistgjölci
sín, svo að hvað þá vistmenrt
snertir ætti engin hækkun á|-
vistgjöldum að koma til greina
og væntum við að þið verðið>
ánægðir með þann úrskurð.
Með beztu kveðjum og óskurn
ykkur til handa
F.h. stjómar Sjómannadagsráðs*
Fulltrúaráð Sjómannadagsins
í Reykjavík og Hafnarfirði
Henry A. Hálfdánssom".
Tífall öfiugri
Bandaríski flotinn hef„r tilkynnt að tveim flugskeytum af gerðinni
Polaris hafi verið skotið frá kafbátnum „George Washinton“, þar sem
hann var í kafi. Bandaríska herstjórnin leggur „ú megináherzlu á að fullkomna þessi flugskeyti.
Þau sem skotið var frá kafbátnumi drógu nokkuð á annað þús. kílómetra, en bandarískm eld-
flaugafræðingarnir telja sig geta endurbætt Polaris svo að skeytið dragi að lokum 4000 krn.
Burke aðmíráll, forseti herráðs bandaríska flotans, hefur skýrt frá því í viðtali við brezkæ
blaðið „Sunday Times“, að eyðingarmáttur vetnissprengjunnar sem Polaris-skejdin verða búin
sé tífalt meiri en kjarnorkusprengjunnar sem Bandaríkjamenn vörpuðu á japönsku borgina
Hiroshima fyrir fimmtán árum. Sú sprengja varð 120.000 manns að bana. (
Bingó-Hill
poka-gata
Maður nokkur hringdi í
1 póstinn, og bað hann um að
! minnast á lokun Háuhlíðar,
' en henni hefur nú verið lok-
' að við Hafnarfjarðarveg með
1 gulum steinum. Maðurinn
! kvaðst álíta að hér væri
1 jafnvel um umbun við íbúa
1 þessarar götu að ræða, en
eins og flestir vita eru íbú-
1 arnir ekki a.f verri endan-
1 um, þarna býr margt stór-
menna, enda er gatan oft
■ kölluð Bingó-hill, í gamni
' (og alvöru).
Þeir bifreiðastjorar s:m
1 leið eiga um götu þessr., og
■ koma úr Hlíðahverfinu, aka
götuna á enda, þar sem þeim
er ekki kunnugt um lokum
| hennar, enda ekkert skilti
sem segir þeim til um lok-
unina. Vegna þessara upp-
lýsinga mannsins hringdi
pósturinn í bæjarverkfræð-
ing, og það hann um uup-
lýsingar um þessa ráðstöfun.
Verkfræðingurinn gaf póst-
inum þær upplýsingar, að
í skipulagi væri ekki gert
ráð fyrir því að gata þessi
væri opin, hér væri um svo-
kallaða pokagötu að ræða
og væru fleiri slíkar götur
hér í hænum. Hinsvegar
kvað hann þessa götu hafa
verið opna vegna þess hve
nýbyggt væri þarna, en of
hættulegt væri að hafa hana
opna vegna staðsetningar
hennar.
;Sem sagt: Gatan er lokuð
í annan endann og því til-
gangslaust að aka hana,
nema eiga erindi til einhvers
,,Bingóhillarans“
Því er nú ver
sem betur fer
I Morgunblaðinu, 19. júlí,
er innrömmuð grein, fréttin
um flugslysið við Kastrup,
þar sem m.a. átta af beztu
knattspyrnumönnum Dana
fórust. Er í hinni innrömm-
uðu grein farið mörgum orð-
um um, hve sviplegt þetta
slys var, snjallir íþrótta-
menn í hlóma lífsins horfn-
ir af sjónarsviðinu, og sökn-
uði frærda vorra, Dana, er
lýst með hjartnæmum orð-
um. — En við hliðina á
þessari innrömmuðu frétta-
grein er önnur grein, sem
ber yfirskriftiua: ísland í
Róm. Þar er látið í það
skína á fremur ógeðslegan
hátt, að nefnt flugslys sé
hið mesta happ fyrir okkur
Islendinga, happ, sem geti
orðið til þess, að knatt-
spymumenþ okkar fái
að keppa á Olympíulekunum
í Róm, hvaða erindi sem
mönnum kann nú að finn-
ast þeir eiga þangað. Þeg-
ar maður les svona löguð
skrif, dettur manni í hug
vísan alkunna, sem endar
svo:
,,Þá er eins og hræfugls-
hljóð, hlakki í kistusmiðn-
um. B“.
Síðbúið bréf,
póstsins sbk
Eftirfarandi bréf er nokk-
uð síðbúið, en það er pósts-
ins sök og biður hann vel-
virðingar á mistökunum.
En hér er hréfið:
Þriðjudaginn 5. júlí sl.
er herliðið á Keflavíkurflug-
velli, bauð íslendingum til
veizlu.
Sjá myndina í Þjóðiviljan-
um af herliðinu, á fyrstu
slðu. Er ég sá myndina,
datt mér í hug:
Allt sig skrýðir íhaldið ,
undra búið feiti,
og hundurinn prýðir herliðið
hann er á næsta leiti.
Hundurinn er hyggið dýr,
og heill á mörgu sviði,
óæðri hann enda snýr
upp að setuliði.
H.H..S.