Þjóðviljinn - 04.09.1960, Page 3
Sunmidagrur 4. september 1960 — ÞJÓÐVILJLNN — (3
Þangi breytt
í eínaríkt
ióðurmjöl
Allt frá-landnámsöld 'haía ís-
fendingar nýtt ýmiskonar sæ-
þörunga tií matár. Einnig hafa
þeir komið í góðar- þarfir til
beitar, sem skepnufóður,
þurrkaðir sem eldiviður og sem
áburður í garða.
Undanfarið hefur uns*ur
efnaverkfræðingur. Sigurður V.
Hallsson, starfsmaður á jarð-
hitadeild Raforkumálaskrifstof-
unnar, unnið að rannsóknum á
þara. Hann hefur s'ðan um
haustið 1958 unnið við undir-
búningsrannsóknir á þara-
vinnslu fyrir Eyrbekkinga og
Stokkseyringa. Staðarmenn
lögðu til beinamjölsverksmiðju,
sem stendur ónotuð 9 mánuði
ársins, og menn til að skera
þangið. flytja það og þurrka.
Gerðar voru tvær tilraunir sem
báðar tókust vel.
11. júní s.l. var hafizt handa
um framleiðslu i stórum stíl.
Fréttamönnum gafst tækifæri
á að fylgjast með þessum
.framkvæmdum nú í vikunni
undir leiðsögn Sigurðar V.
Hallssonar og Óskars Svein-
björnssonar, sem hefur haft
framkvæmdastjórn með hönd-
um.
Þegar fréttamenn gengu nið-
ur í fjöruna hiá Stokkseyri
stóðu þar tveir bílar í flæðar-
málinu. Var verið að lyfta
þanglnu á palla beirra. Heima-
menn fræddu okkur um vinnu-
tilhögun, sem skal rakin hér
í stuttu máli:
Skammt frá íjörunni liggja
mörg sker og á þeim vex m.a.
klóþang í ríkum mæli. Farið
er út á skerin á bát á fjöru
og er klóþangið skorið með
C
venjulegum hnífum og lagt á
netpoka. Eru skornir að meðal-
tali 40—45 pokar á dag. Þegar
íiæðir eru pokarnir dregnir í
land á litlum bát, en þeir fljóta
í sjónum, og þeir síðan hífðir
upp úr fjörunni og leyst frá
þeim og bangið rennur úr þ*eim
á bílpallinn. S'ðan aka bílarn-
ir með bangið í beinmjölsverk-
smiðju, sem er rúma 3 km. í
burtu. og þá hefst vinnsla
þangsins. Við vinnsluna rýrnar
þangið að sjálfsögðu, þannig að
3—4 kíló af íersku þangi gera
1 k§. af hangmjöli. Ekki þurfti
að gera neinar breytingar á
verksmiðjunni, aðeins bætt við
einum saxara, sem tilreiðir
þangið áður en það er þurrk-
að. Þangið endurnýjast að
fullu á 3t—4 árum, þannig að
ekki þarf ýkjastór svæði til að
sjá fyrir árlegum forða.
6—9 menn hafa að staðaldri
haít vinnu við að afia þangs-
ins og flytja bað og 4 menn
vinna í v.erkstniðjunni . við
framleiðslu mjölsins, og hefur
framleiðslan numið all’t að 4
tonnum á sólarhring og meir.
Söluverð er 3000 kr. á tonn-
ið.
Eini erlendi kostnaðurinn við
þessa framieiðslu er olían. sem
nemur um 10% af heildarkostn-
aði, hitt er allt vinnulaun.
Og hvaða gagn gerir sVo
þetta þangmjöi? Þangmjölið er
fyrst og fremst hugsað sem
fóðurbætir en ekki fóður. í
þangmjölinu eru yfir 60 írum-
efni ásamt fjölmörgum stein-
efnum og vaxtaraukandi efn-
um. sem hafa haft greinilega
bætandi áhrif á heilsu. af-
kvæmi, írjósemi og útlit
margra dýra en þangmjölið er
einkum gefið mjólkurkúm, fé,
svínum, hrossum og aliíugium
o.fl.
Líta má á sæþörunga sem
einskonar sjóefnaverksmiðjur,
því' úr jarðveginum skolast
allskyns málmar og steinefni,
í sjó fram sem sæþörungarnir
eiga auðvelt með að vinna úr.
í einni rúmeiningu af þangi er
mörg þús. sinnum meira magn
af ýmsum líffræðilega nauðsyn-
legum efnum enn í einni rúm-
einingu af sjó og því eigi
undarlegt að gildi þörunga,
sem íóðurbætis og áburðaí,
hafi verið rannsakað víða um
Óskar Svembjörnsson, framkvæmdastjóri (t.h.) og Sigurður
V. Hallsson, efnaverkfræðingur.
Hér er verið að lyfta poka af klóþangi á bíl. Utar sjást
pokarnir fljóta í sjónum.
heim.
Um 70 þúsund tonn af þang-
mjöli er framleitt samtals í
Noregi. Bretlandseyjum. Frakk-
landi og Kaliforníu. - .
Ekki er énn búið að tryggja
markað hér innanlands fyrir
þangmjölsframleiðslu þessa árs.
en íarið er að nota mjölið í
Eyjafirði og hér í nágrenni
Reykjavíkur og hefur gefizt
vel. Búizt er við að selja megi
um 1000 tonn af þangmjöli á
innlendum markaði (erlendur
markaður kemur vart til
greina), en það er um 3% af
núverandi sölu fóðurmjöls.
Hugsanlegt er að hefja þang-
vinnslu í Breiðafirði, en þar
eru skilyrði jafngóð og á
Stokkseyri. Þangvinnsla var
stunduð í Hveragerði fyrir
stríð og stóð í 2—3 ár, en sú
starfsemi lagðist niður af ýms-
um orsökum.
Sigurður og Óskar kváðust
báðir sannfærðir um að þang-
vinnslan kæmi til með að
borga sig og nægur markaður
fengist þegar fram í sækti. Er
í undirbúningi að stofna hluta-
félag í sambandi við þang-
mjölsvinnsiuna.
Það sem er sérstaklega at-
hyglisvert í sambandi við þetta
mál er hvernig undirbúningi
hefur verið hagað. Strax er
leitað álits tæknimenntaðs
manns og hann hefur síðan
undirbúning, gerir tillögur og
skipuleggur síðan verkið í
heild. Eftir nokkuð tímafreka
rannsóknarstarfsemi, en til-
tölulega kostnaðarlitla, liggur
málið ljóst fyrir og fram-
leiðsluplanið er lagt upp í
hendumar á þeim sem leggja
ti! fé og vinnukraft. Þarna
skapast vinna fyrir allmarga
menn, verksmiðja er fullnýtt,
og framleiðslan er þjóðhags-
lega mikils virði.
Þarna helzt í hendur þörf
sveitaríélagsins fyrir atvinnu,
útsjónarsemi og áræði ein-
staklingsins og kunnátta og á-
hugi hins sérmenntaða manns,
sem fær tækifæri á að sýna
hæfni sína í verki. — sj.
(lllllllllllllllllllll[|lllllll|||||||||||||||||||||||||||ll|l|||||||||||||IMIIIItlII|||Illlllllllllllllllllll|||Mli|SÍ||llllllllllllllllllllllllllllllllllllllll|||||||||||||||llllllllllll||||||||||||llllllillllI||||||ll||||lllIlllllllllllllll
Veðurhorfumar
Véðurstofan spáir hægviðri og
léttskýjuðu með köflum í dag.
Minnstur hiti í fyrrinótt var
-r 4 . stig. ,'
Nokkrar héraðsnefndir her
námsandst. á Snæfellsnesi
reiðarstjóri, Sth. Ingvar Ragn- j Bjarni Lárusson, verzlunar-
arsson, form. verkalýðsfél. Sth. | maður, Jenni R. Ólason, bókari.
Jón Brynjólfsson, " skrifstofu-1 Leifur Kr. Jóhannesson. Einar
maður, Stih Guðmundur Guð-1 Steinþórsson. Jáhann Rafns-
jónsson, bóndi, Saurum. Bjarg-' son, bókavörður. Haukur
mundur Jónsson, verkamaður. ■ Bjarnason.
Áður hefur verið skýrt frá
allmörgum héraðsnefndum, sem
hernámsandstæ.ðingar hafa
myndað á Snæfellsnesi. Hér
koma nokkrar nefndir til við-
bótar:
Staðarsveit, Snæfellsnessýslu:
Guðmundur Þorgrimsson, Stað.
’arstað. Séra Þorgrímur Sig-
urðsson, Staðarstað. Björg
Þorleifsdóttir, Hólkoti. Jcnas
Jónasson, bóndi, Neðra-Hóli.
Þórður Gíslason. Símon Sigur-
monsson.
Breiðuvíkurhreppur, Snæf.
Haraldur Jónsson, hreppstjóri
Gröf.. Karl Magnússon, oddviti,
Knörr. Valdimar Kristófersson,
bóndi, Skjaldartröð, Helga
Halldírsdcttir, húsfrú, Dag-
verðará. Hálfdán Hannibalsson
bóndi, Hnausum. Gunnlaugur
Hallgrimsson, Bárðarbúð. Ing-
ólfur Guðmundsson, fcóndi,
Litla-Kambi.
Neshreppur, Snæf.
Matthías Pétursson, kaupfé-
lagsstjóri. Skúli Alexanders-
son, oddviti. Friðþjófur Guð-
mundsson, bóndi, Rifi. Jón
Guðmundssonl, vélstjóri. Jör-
undur Þórðarson, bóndi, Ingj-
aldshcli. Guðmundur Gíslason,
verkamaður. Björgvin Alexand-
ersson, trésmiður.
Eyrarsveit, Snæfellsnessýslu.
Pétur Sigurðsson, verkstjóri,
Grcfarnesi. Elimar Tómasson,
skólastjóri. Júlíus Gestsson,
rafvirkjameistari. Sigurvin
Bergsson, verkamaður, Björn
Guðmundsson, trésmiður, Jó-
hann Ásmundsson, bóndi,
Kverná. Högni Guðjónsson,
sjcmaður.
Stykkishólmshreppur.
Jakob Jóhannsson, afgr.m.
Sth. Kristinn B. Giislason, bif-
Austfirðingar
Framhald af 1. síðu.
að taka höndum saman um að
koma í veg fyrir að slíkar
fyrirætlanir nái fram að ganga.
Jafnframt hefur verið skorað
á alla landsmenn að bindast
samtökum til varnar landhelg-
inni og gera með því stjóroar-
völdunum ljóst, að undanihald
í landhelgismálinu verði ekki
þolað.
Allir á einu máli
Sem fyrr segir fc.afa fylgj-
endur allra stjórnmálaflokka
tekið til máls á fundunum og
lýst eindreginni afstöðu sinni
gegn samningamakkinu við
Breta og undanslætti í land-
helgismálinu. .
Á einum fundinum lýsti Al-
þýðuflokksmaður yfir þvi að
hann hefði gagngert hringt i
Emil Jónsson sjávarútvegs-
málaráðherra og spurt hann
hvort ætlunin væri að veita
Bretum undanþágu i ístenzkri
landJhelgi. Emil hefði svarað að
slíkir samningar yrðu ekki
gerðir meðaix hann. sæti í ráð-
herrastóli. .
Ágætir fundir á Eskifirði
Hér í blaðinu hefur þegar
verið skýrt frá fundunum sem
haldnir voru á Seyðisfirði (mið-
vikudag) og Norðfirði (fimmtu-
dag) og getið ályktana sem
þar voru samþykktar.
| Fundurinn á Eskifirði í
fyrrakvöld var einnig ágætur.
Þar var einróma samþykkt á-
lyktun sama efnis og gerð var
á hinum fundunum. Voru
stuðningsmenn hennar margir
fvlgjendur Alþýðuflokks og
Siálfstæðisflokks. Auk fram-
sögumanns, Lúðvíks JÓse^s-
sonar, töluðu fjórir heimamenn.