Þjóðviljinn - 04.09.1960, Page 10
Sj9) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 4. september 1960
Viennarakjör 1
Framhald ^í 7, síðu
Sumir eru þegar farnir úr
stárfi, aðrir um það bil að
fara og flest er þetta ungt
fólk sem á auðvelt með að
aðlaga sig öðrum störfum. Er
því hætt við léjegum endur-
heimtum á því. Aðrir hvorki
vilja né geta skipt um starf.
Þeirra er og verður baráttan
fyrir bættum kjörum kennara
fyrst og fremst.
iKennarar! Latum ekki
þögn og sinnuleysi um hags-
munamál okkar er mest á ríð-
ur verða eftirmæli okkar. Eg
skora því á kennara og aðra
er veitt gætu málefnum
þeirra lið að láta til sín heyra
á opinberum vettvangi. Eg
skora á kennara er hefja
kennslu nú í september að
balda fundi og gera ályktan-
ir og samþykktir í kjaramál-
um sínum er sendar verða
blöðum og útvarpi og öðrum
•aðilum er þau snerta. Einnig
skora ég á stjórnir hinna
ýmsu kennarasamtaka i land-
inu að senda á sömu staði og
til sömu aðila fyrri samþykkt-
ir sínar í kjaramálum. Það er
krafa og réttur kennara til
stjórnar S.I.B. að hún geri
þeim nú þegar grein fyrir
því hvað hafi verið gert und-
anfarið til að fá bætt kjör og
aukin réttindi kennara og
bvort nokkrar horfur séu á
að þær tilraunir muni bera
raunhæfan árangur í bráð. Ef
svo er ekki að hún athugi
■hvort ekki sé tímabært að
kalla saman aukafulltrúaþing
í Keykjavik nú í septem'ber
með frjálsum aðgangi allra
kennara.
Foreldrar, er koma til með
að eiga 'börn í skólum er
horfur eru á að verði ekki
starfhæfir eða vanhaldnir
vegna kennaraskorts, og
raunar öll þjóðin á kröfu á
að valdhafarnir geri þegar
grein fyrir þvi hvort þeir
aetli að leysa vandamálið og
þá hvenær og hvernig. Kenn-
araskorturinn verður ekki
ieystur með ráðningu rétt-
indalauss fólks til kennslu
heldur er lausn hans með
því aðeins torvelduð, auk
þess sem kennarastéttinni
og kennslumálunum er með
því stefnt í voða. Kenn-
araskorturinn verður ekki
leystur með innflutningi er-
lends fólks eins og stundum
hefur verið gripið til í svip-
uðum tilfellum af augljósum
ástæðum. Hann verður ekki
heldur Jeystur með hæfilegu
atvinnuleysi í öðnlm stéttum.
Það er aðeins ein raunhæf og
fær leið til lausnar kennara
skortinum en það er gagnger
endurbót á launum, aðbúnaði
og réttindum kennara og því
fyrr sem sú leið er farin því
betra fyrir alla aðila.
Um borð í b/v Fylki á
Grænlandsmiðum í lok
ágústmánaðar.
Ingi Bergmann.
• Kaupið og leslð
ÞJÓÐVILJANN
Afgreiðslusíminn er
17500.
50% verðlækkun
á barnapeysum á 1—5 ára.
og þrjónaþilsum (plís'etiuð)/ á
Austurstræti 12.
íer frá Reykjavík miðvikudaginn 7. þ.m. til
Vestmannaeyja,
Isafjarðar,
Sauðárkróks,
Siglufjarðar,
Akureyrar,
Húsavíkur.
Vörumóttaka á þriðjudag.
H. F, EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
OLIVETTI Multisumma 22
er afar hraðgeng mar.gföld-
unarvél, sem margfahl-
ar á afar einfaldan og’
skemmtilegan hátt. Allar
tölurnar eru ritaðar á
pappírinn og þannig er
fljótlegt að bera saman.
Vér erum sannfærðir um að þér gerið beztu kaup-
in er þér kaupið MULTISUMMA 22 því sú vél
hefur svo marga kosti fram yfir aðrar vélar hér
á markaðnuin. — Verðið er aðeins kr. 16.600.00
Fjölskyldubætur frá 1/41960
Eins og tveggja barna fjölskyldur sem fengu rétt
til fjölskyldubóta frá 1. apníl s.l. en hafa enn ekki
sótt um þær, eru hvattar til að gera það sem fyrs.t.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
□ I i v e 11 i
Einkaiunboðsmeim
i
SAUMAST0FAN
opnuð aftur.
HENNY OTTÓSON, Langholtsvegi 139.
Sími 3-42-50 — (Símaviðtalstími frá kl. 12 til 2.)
G. HELGASON & MELSTED h.f.
Hafnarstrætí 19 — Sími 11644.
Auglýsið í Þjóðviljanuin
12 gerðir af CATERPILLAR bátavélum
Reigistered Trade Mark
50 til 600 hö
Fyrir utan hinar frægu hæggengu
bátavélar, framleiða CATER-
PILLAR .verksmiðjurnar nú
hraðgengar og fyrirferðalitlar
vélar, heppilegar í báta 15 til
25 tonn.
Vélarnar eru 50. 80, 100 eða 150 hö. fjórgengar, ferskvatnskældar með óbeinni eldsneytisinnspýtingu
og forbrunaholi, sem tryggir að vélin getur gengið í hægagangi um langan tíma, án þess að sóta sig
og tekið svo við fullu álagi, hvenær sem á þarf að halda. Hægt er að búa vélina með fastri skrúfu og
olíustýrðum gír eins og sýnt er á myndinnþ eða skiptiskrúfu.
Þér stundið veiðar en ekki viðgerðir með CATERPILLAR í bátnum.
Kynnið yður kosti Caterpillar
Heildverzlunin HEKLA h.f., Hverfisgötu 103. — Simi 1-12-75.