Þjóðviljinn - 04.09.1960, Page 12
Veðurguðirnir hafa litið
okkur Reykvikinga sérstök-
um náðaraugum í sumar og
má segja, að síðan fyrstu
ctagana í júlí hafi hver dag-
ur verið öðrum betri, enda
er það viðkvæðið, þegar rætt
er um veðrið í sumar, að
elztu menn muni ekki aðra
eins blíðu, og þarf þá víst
ekki framar vitnanna við.
Fréttamaður frá Þjóðvilj-
anum snéri sér þó til veður-
farsdeildar Veðurstofunnar
til þess að fá úr því skorið
með beinhörðum tölum,
hvað hæft væri í því, að
annað eins sumar hefði ekki
komið langa lengi. Fyrir
svörum varð deildarstjórinn,
Adda Bára Sigfúsdóttir, og
leysti hún góðfúslega úr öll-
5 dagar
l til Þingvallafundar
★ Enn er fjár vant til undir-
búnings fundinum og eru þeir
sem hafa söfnunarlista áminnt-
ir um að gera skil þegar í stað.
Ennfremur eru þeir, sem heitið
hafa ákveðnum fjárhæðum,
beðnir að standa skii á þeim
sem fyrst.
Sunnudaginn 11. september
verður merkjasala í Reykjavík
og eru stuðningsménn Þing-
vallafundarins hvattir til að út-
vega börn til að selja merkin.
★ Skrifstofan í Mjóstræti 3
er opin allan daginn frá kl. 9
á morgnanna íram á kvöid. Sím-
ar: 23647 og 24701.
75 ára á morgun
Andrés Johnson, forngripa-
safnari, Áshúð í Hafnarfirði,
verður 75 ára á morgun,
mánudag. Andrés er löngu
landsþek'ktur forngripasafnari
og er úrval úr safni hans í
Ásbúðarsafni í Þjóðminjasafn-
inu.
um spurningum fréttamanns-
ins um veðurfarið í sumar,
sólskinið og allt það.
Síðan mpelingar hófust á
sólarfari hér í Reykjavík ár-
ið 1923, hafa aldrei komið
jafn sólrikir júlí- og ágúst-
mánuðir samanlagt og nú í
sumar, en sólskinsstundir í
þessum tveim mánuðum
voru alls 537. í júlí voru sól-
skinsstundirnar 259 og hafa
tvívegis áður komið sólrík-
ari júlímánuðir, árið 1939 og
1928. Ágúst var hins vegar
alger metmánuður að sól-
skinsstundafjölda, en þær
voru alls 278.
Úrkoma í þessum tveim
mánuðum var einnig mikið
innan við meðallag, einkum
í ágúst. I júlí voru 6 úrkomu-
dagar en eru í meðalári 15.
Þessa 6 daga rigndi hins
vegar býsna mikið, þannig
að mánaðarúrkoman varð
ekki langt undir meðallagi,
32,7 mm. á móti 51,0 mm.
Ágúst var aftur á móti til
mikilla muna þurrari en
venjulegt er. Úrkoma var
aðeins 2 daga mánaðarins (í
meðalári 18 dagar) og þá
rigndi 9,1 mm, en meðalúr-
koma í ágúst er 71,0 mm.
Síðan regnmælingar hófust
í Reykjavík árið 1920 hefur
aðeins komið einn ágústmán-
uður þurrari en þessi. Það
var ágúst 1956 en þá rigndi
4,4 mm. Á árunum 1885 til
1907 voru framkvæmdar
regiulegar regnmælingar í
Reykjavík og á því tímabili
komu tvívegis þurrari ágúst-
mánuðir en nú í sumar. Það
var árin 1903 og 1907. Komst
mánaðarúrkoman þá allt nið
ur í 0,4 mm.
Eins og að líkum lætur
um svo sólríka mánuði og
júlí og ágúst hafa þeir einnig
verið til muna hlýrri en í
meðalári, en hitasveiflur eru
annars að öllum iafnaði frem
ur litlar hér á landi, munar
sjaldnast meira en tveim
gráðum frá meðalhita mán-
aðar. í júlí var meðalhitinn
12,2 stig (meðaltal 11,3) og í
ágúst 11,2 (meðaltal 10,6).
Maí og júní voru einnig
hlýrri en í meðalári, sérstak-
lega maí. Þá var meðalhit-
inn 8,7 stig (meðaltal 6,3),
en í iúní var hann 10 0 stig
(meðaltal 9,6). Sumarið hef-
ur því í heild verið óvenju-
lega hlýlegt við okkur
Reykvíkinga. Heitasti dagur
sumarsins kom í maí og
páði hitinn þá 20,6 gráðum.
Um veðurfarið í maí er
annars það að segja, að
þrátt fyrir hlýindin var
snöggt um minna sólskin þá
en í meðalári og sama er að
segja um júní. Úrkoma í maí
var hins vegar í minna með-
allagi en júní var allur
ósköp vætusamur, eins og
menrf munu minnast. Það
rigndi 25 daga mánaðarins
(14 í meðalári) samtals 81,3
mm. Er það liðlega tvöfalt
inieðalúi*komumagn|: í slíku
árferði og verið hefur í sum-
ar, hlýviðri og regn að vor-
inu og sól og þurrki um
sláttinn, er gott undir bú og
hafa sunnlenzkir bændur
notið þess, þótt Reykvíking-
um komi það að litlu gagni
svo litlir búhöldar sem þeir
eru nú orðið og hafa víst
jafnan verið síðan Ingólf og
hans ai'fa leið. En sólina
kunnum við enn vel að
meta sem betur fer, þótt við.
notum hana fremur til þess
að baka sjálfa okkur en
breiskja hey.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIKIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIll
! Hafa öll 1
[ spjót úti í
E Þjóðviljinn skýrði frá E
— því á dögunum, að banda- =
= rískir hernámsliðar í E
= skátabúningum hefðu fært E
E sig mjög upp á skaftið í E
E sumar og aukið þátttöku E
s sína í mótum íslenzkra =
E skáta — í þeim tilgangi 5
E fyrst og fremst að komast =
E í kynni við skátastúlkurn- E
E ar. Þetta hefur minnt E
= ýmsa á þær aðferðir aðrar, =
5 sem bandarisku hermenn- E
E irnir hafa beitt. hér á und- —
E anförnum árum til að ná E
E kynnum íslenzkra stúlkna E
E — og nú hefui' teiknarinn =
5 dregið þessar myndir á ~
E blað af þessu tilefni. E
E Lengst til vinstri sést =
E „verndarinn“ í fullum her- E
= klæðum innan girðingar E
E og ekki ofsæll á svipinn. —
= Á næstu mynd er hann E
E kominn í borgarleg jakka- E
= föt — og út fyrir girðingu. E
E Þriðja myndin sýnir eina E
E aðferðina, sem hernámslið- =
E ar hafa be’tt til að kom- E
E ast út af vallarsvæðinu: að =
= búast sem lax- eða silungs- E
S veiðimaður og fá leyfi til S
E veiðiferða (í revnd E
E kvennaveifa auðvitað). E
2 Önnur aðferð vel nothæf Z
= að vetrarlagi: að búast til E
E skíðaferðar (en halda á E
E kvennafar), sbr. 4. mynd. E
E Loks er sú aðferð, sem E
E ,,verndararnir“ hafa beitt E
= í vaxandi mæli í sumar: E
E að ganga í skátafélagsskap- =
E inn og komast í hóp ís- E
= lenzkra ungmeyja á skáta- E
S mótum utan vallar. E
Þetta er rússneska stúlkan V. Krepkina, sem seí ti nýtt OL-
met, stökk 6,37 m í langstökki. Hér sést hún í sigurstökkinu.
Fundlr s Kópavogi, Vesf-
mannaeyjum og FÍuðum
í dag verða haldnir þrír fundir hernámsandstæðinga,
í Kópavogi, Vestmannaeyjum og aö Flúöum, Hruna-
mannahreppi.
Fundurinn í Kópavogi hefst
kl. 4 síðdegis í félagsheimilinu.
Málshef jendur verða Jóhannes
skáld úr Kötium, írú Sigríður
Eiríksdóttir og' Björn Guð-
mundsson forstjóri.
í Vestmannaeyjum hefst fund-
urinn kl. 2 síðd. í Hótel HB.
Framsögumenn verða Ási í Bæ,
Valborg Bentsdóttir skrifstofu-
stjóri oe' Trvggvi Emilsson vara-
formaður Dagsbrúnar.
Á i’undinUhl að - FlúöUih
Hrunamannahreppi eru fram-
sögumenn þeir Sigurfinnur Sig-
urðsson, Birtingaholti, Gunnar
Benediktsson rithöfundur Hvera-
gerði og sr. Rögnvaidur Finn-
bogason Mosfelli. Grímsnesi.
Á morgun, mánudag, verða
1 íundir í Grindavik og Sólgarði,
Saurbæjarhreppij Eyjafirðl.
Framhald á 2. síðu.
Úrslit í 800 m og
3000 m hindrun-
•mmmmmmmmmmmmmmmm^^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmn
arhlaupi
FRÁ OL í GÆR
Úrslit í 800 m hlaupi:
Snell N-Sjálandi 1:46,3
Moens, Belgíu 1:46.5
Kerr. Jamaica 1:47,1.
Úrslit í 3000 m hindrunar-
hlaupi: Krzyszkowiak Póllandi,
2. Sokoloíí Sovétríkjunum, 3.
Rzhistchin Sovétríkjunum.
Sólríkasta sumar er Veðurstofan man
þlÓÐVIUINN
Sunnudagur 4. september 1960 — 25. árgangur — 197. tbl.