Þjóðviljinn - 07.10.1960, Síða 10

Þjóðviljinn - 07.10.1960, Síða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 7. október 1960 Minningarorð Framhald .af 7. síðu. nokkur^óf; EkiSfvBrn -fölskva haíði þó dregið yfir bjartsýni ungiingsáranna, enda kreppa í landi og fjárskortur tilfinn- anlegur. Kom okkur þá til liugar, að nokkur fjárvon kynni að felast í því að þýða Söguna af San Miehele, sem var mikil tizkubók í þá daga. ! Vegna meðmæla Freysteins Gunnarssonar skólastjóra, i sem séð hafði sýnishorn af þýðingunni, tókst ' ökkur að fá Pétur Halldórsson bóksala til þess að kosta þýðinguna og gefa bókina út. Varð þetta upphaf þess, sem næstu árin varð aðalstarf okkar beggja, og Karls raunar ævilangt að öðrum þræði. Þó ýmislegt væri bjástrað, sem til atvinnu horfði, um þessar mundir, var það ekki starfið sem setti svip sinn á þessa fjarlægu daga. Þrátt fyrir allt rísa þeir upp í minn- ingunni sem dagar hinnar áhyggjulausu gleði. Atvinna var sjaldan ríflegri en svo, að nægur tími vannst til þess að sinna þeim hugðar- efnum, sem mest voru aðkall- andi og nægilega fjarlæg önnum hversdagslífsins til þess að falla ekki beinlínis undir smáborgarlegar dyggð- ir. Einhvern vegin æxlaðist það svo, að hér söfnuðust saman nokkrir þeirra manna, sem helzt áttu vanda til að leggja leið sína til hliðar við alfaravegi, og minnist ég einkum Jóns Pálssonar frá Hlíð úr þeirra hópi. Það var fágæt unun að heyra hann lesa upp kvæði sitt um Grím í Skel eða valda kafla úr skáldsögu þeirri, sem hann hafði í smíðum síðustu ár æv- innar. Samkomustaðurinn var alls staðar og hvergi, oftast Skálinn, stundum Heitt og kalt eða líkhús franska spít- alans við Lindargötu, þar sem Magnús Á. Árnason listmálari bjó á þeim árum. Oft sátum við Karl heima í herbergi okkar á Öldugötu 5 og höfð- fþróttir Framhald af 9. síðu . Everton 7 1 3 28-19 15 Burnley 7 0 4 25-15 14 Blackburn Rov. 6 2 3 27-20 14 Wolverhampton 6 2 3 20-18 14 Manchester City 5 3 2 21-18 13 Fulham 6 1 4 22-28 13 Arsenal 5 1 5 16-11 11 Aston Villa 5 1 5 23-31 11 Birmingham 4 2 5 17-17 10 Chelsea 4 2 5 28-28 10 Leicester 4 2 5 20-20 10 Newsastle U. 5 0 6 25-28 10 West Ham 4 1 6 22-29 9 Preston 4 1 6 14-20 9 Cardiff City 3 2 6 12-21 8 West Bromwich 3 0 8 21-22 6 Manchester U. 2 2 6 17-22 6 Bolton 2 2 7 16-23 6 Nottingham For. 2 2 7 14-23 6 Blackpool 1 2 8 13-25 4 2. deild: Sheffield U. 9 1 2 25-10 19 Ipswich 7 3 1 28-15 17 Piymouth 7 1 3 23-12 15 Norwich City 6 3 2 17- 9 15 Southampton 6 2 3 30-22 14 V/etherham 5 2 4 14-10 12 Counthorpe 4 4 3 23-18 12 Middlesbrough 4 4 3 21-17 12 Liverpool 5 2 4 16-14 12 um Stein Steinar að gesti og háðum endalausar rökræður um fegurð og tilgang lífsins og vandamál samtiðarinnar. Niðurstaðan varð stundum í hæpnasta lagi, enda í sjálfu sér ekkert höfuðatriði. Og hér var það einn daginn, að Karli barst í hendur ensk þýðing á Kalevala-ljóðunum finnsku. Þau voru mikið um- ræðuefni í nokkra daga. Steinn orti fjölda af vísum um Váinámöinen og aðrar söguhetjur kvæðisins, en Karl hét að þýða ljóðin á ís- lenzku. Mun sú ætlun aldrei hafa horfið honum úr huga upp frá því, þótt dráttur yrði á, að hann hæfist handa, og það yrði síðasta verkið, sem hann lagði hönd að. En svo gerðist það undur eitt árið, að við vorum báð- ir komnir í atvinnu. Fór þá eins og gengur, að samfundir strjáluðust. Glöðum samveru- stundum var lokið, þótt jafn- an síðan vissum við til ferða hvors annars og héldum fornri vináttu okkar á milli. Meðan Karli ísfeld entist þrek og heilsa var hann manna glaðastur, orðheppinn og hrókur alls fagnaðar í kunningahópi, maður, sem kunni að segja frá mörgum tíðindum, sumum sönnum, en öðrum löguðum í hendi sér eins og gengur og gerist. Karl var marglyndur og nokkuð hverfull í skapi, meir fallinn til þess að fara léttum hönd- nm um viðfangsefni sín, en að takast á við þau af ýtrustu festu. Karl var hamhleypa til vinnu, þegar hann tók á því, en þótti gott að slá sér frá verki á milli. Aðalævistárf Karls voru þýðingar. Liggur eftir hann fjöldi bóka á því sviði, auk þess sem hann þýddi margt fyrir blöð þau, er hann vann við. Meðal höfunda þeirra, sem hann þýddi, má nefna auk margra annarra: Sher- t wood Anderson, 'Erskine Cald- well, Charles Dickens, Jaro- slav Hasek, Ernest Heming- way, Signrd Hoel, John Stein- beck, Sten Stolpe, Leo Tolstoj og Emile Zola. Sennilega er þýðingin á Ævintýri góða dátans Svejks í heimsstyrjöld- inni eftir Jaroslav Hasek kunnust meðal alls almenn- ings. Fyndni þýðandans, orð- gnótt og vald á kringilyrðum tungunnar féll vel að hinni myndauðugu og öfgakenndu en nokkuð brokkgengu frá- sögn hins tékkneska skálds. Karl átti það til í þýðingum sínum að slaka á taumhald- inu og' bregða á leik með skoplegu eða hátíðlegu orða- vali. Fór vel á þessu í sum- um þýðingum hans, eins og Góða dátanum og sögum Steinbecks, en miður í öðrum. Á yngri árum orkti Karl allmikið, enda átti hann skammt að sækja hagmælsk- una til móðurfrænda sinna, Sandsbræðra. Varla mun hann þó hafa dreymt um skálda- nafn á þeim árum. Visur hans og kvæði voru bundin augna- blikinu, skemmtilegu eða skoplegu atviki og gleymdust með því. Síðar á ævinni lagði hann nokkru meiri alvöru við ljóðagerð sína, og árið 1946 kom út lítil kvæðabók eftir hann, Svartar morgunfrúr. Bókin vakti víst ekki mikla athygli, og grunar mig, að .hún, hafi valdið höfundi sínum.. nokkrum vonbrigðum. Skömmu síðar en kvæða- bókin kom út hóf Karl að þýða á íslenzku hinn mikla finnska sögul jóðabálk Ivale- vala. Ég hygg að hann hafi gengið að því verki af mestri alúð cg alvöru. Kalevala var mest þeirra verkefna, sem hann tók sér fyrir hendur, vandasamast og kröfufrek- ast. Verkið var mikið og sótt- ist frekar seint í hjáverkum frá öðrum störfum. Fyrra bindi ljóðanna kom út fyrir þremur árum, þegar forseti Finnlands var hér á ferðinni, og hlaut það hinar beztu við- tökur. Þegar Karl andaðist átti hann aðeins eftir tæpar fjórar blaðsíður til þess að ljúka verkinu öllu. Karl ísfeld var fæddur á Sandi í Aðaldal 8. nóvember 1906 og var því ekki nema tæplega 54 ára, þegar hann lézt. Foreldrar hans voru Ás- laug Friðjónsdóttir, systir þeirra Sandsbræðra, og Niels Lilliendahl á Akureyri. Ólst Karl upp í skjóli móður- frænda sinna í Þingeyjar- sýslu, unz hann kom í Akur- eyrarskóla, en þaðan lauk hann s túdentsprófi vorið 1932. Hann nam um skeið norrænu við Háskóla íslan'is, en hvarf brátt frá námi og gerðist nokkru síðar blaða- maður við Alþýðublaðið. Um eitt skeið var hann ritstjóri Vinnunnar, tímarits, sem Al- þýðusamband Islands gaf út. Síðar vann liann að blaða- mennsku hjá Vísi og Vikunni. Haraldur Sigurðsson Bandarísk bygg- ingarHst, sýn- ing opnuð hér Bandarísk byggingarlist nefn- ist sýning hefur verið opnuð í húsakynnum Byggingaþjón- ustu Arlqitektaféljgs jíslands’j að Laugavegi 18A. Sýningin er liður í þeirri starf- semi byggingaþjónustunnar að kynna innlenda og erlenda húsa- gerð. Hingað er sýningin, sem er farandsýning, kominB fyrir atbeina uppplýsingaþjónustu Bandaríkjamanna. Hún er skipulögð af arkitektunum Pet- er Blake og Julian Neski fyrir American Institute of Arohit- ects. Myndskreytingarnar eru gerðar af Richard Erdoes. Sýningin vsrður opin dag- lega kl 1—6 síðd. nema laug- irdaga kl. 10—12 árdegis. Að sögn forráðamanna Bygg- ingaiþjónustu arkitekta er nú í undirbúringi að fá hingað til lands sýningar á danskri og finnskri byggingalist. Sóíasett, Sveínsóíar, Svefnbekkir. HNOTAN, húsgagnaverzlun, Þórsg. 1. Verzlun Sigurbjörns Kr ~ .w?«:•!-: - v^ú..-»xíi vo al arasonar Njálsgötu 1 opna í dap Vefnaðarvöruverzlun á horninu á Njálsgötu og Klapparstíg (áður Haíliða- búð). Verzlunin hefur á boðstclum mikið af vörum á gamla. verðinu og einnig milíið aí’ smávörum. Sérstök athygli skal vakin á nýkomnum stór- isefnum í hvítum og dröppuðum lit í breiddun- um 100 cm. — 125 cm. — 150 cm. — 155 cm. og 175 cm. verð aðeins frá kr. 57.95 m. dfig mun ávallt hafa á boðstólum góðar vörur á sanngjörnu verði og leg.gja kapp á góða þjóuustu. Vörur sendar gegn póstkröfu hvert á laiul sem er sími 16700. SIGUBBJÖRN KARASON. Auglýsing iim Sveinspróf. Sveinspróf í þeim iðngreinum sem löggildar eru, farst fram í okitóber og nóvember 1960. > Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að sækja um próf- töku fyrir þá nemendur sína sem lokið hafa náms- k. tíma. Umsóknir um próftöku sendist formanni víðkomandi m prófnefndar fyrir 15. þ.m., ásamt venjulegum gögnum og prófgjaldi. Reykjavík, 3. október 1960. Iðnfræðsluráð. Sendisveinn ÓSKAST STRAX Mars Trading Company, Klapparstíg 20 — Sími 1-73-73. Dömur athugið Þurrkhettan við hárþurrkuna sparar tima og erfiði er fyrir allar gerðir af hárþurrikum., Fæst nú þegar á eftirtöldum stöðum a Reykjavík: Ver/,1. S.Í.S. Austurstræli 10, Véla- & rafíækja- salan Bankastræti 10, Verzl. Hekla Austurstræti 14, Verzl. Ljós h.f. Laugavegi 20, Verzl. Regn- boginn Bankastræti 7, Verzl. Luktin Njálsgötu 87, Raforku Vesturgötu 2, Rakarastolu Péturs og Vals Skólavörðustíg 10. 1 HAFNARFIREI í VESTMANNAEYJU3® Stebbabúð Versl. Framlíðin Á AKUREYRI. Kaupíélag Eyíirðinga, Verksmiðjan Signa. Auglýsið í Þjóðviljanum

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.