Þjóðviljinn - 09.10.1960, Page 4

Þjóðviljinn - 09.10.1960, Page 4
4) •—• ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 9. olítóber 1969 Peningum skilað Eins og frá var skýrt í blað- inu í gær týndi gamall maður nýlega 2000 krónum í peningum ifyrir utan Útvegsbankann og bað rannsóknarlög'reglan finn- andann, að koma þeim tij skila, í gær bárust Morgunblaðinu 2000 krónurnar i lokuðu umslagi þannig að gamli maðurinn 'fær peningana sína aftur með skil- um, Köldu búðingarnir þurfa ekki suðu. Bragðgóðir. Handhægir. i Sandurog ámokstur ! Fínn sandur fyrir steypu og ! pússningn. Verð kr. 100.00 bílhlassið, efni og ámokstur. ! Vinsamlega (hringið í sima 7560 í Sandgerði. Leiðlr allra sem aetla að kaupa eða selja BlL llggja tll okkar. BlLASALAN Klapparstíg 37. I Trúlofunarhringir, Stein. hringir, Hálsmen, 14 og 18 kt. gull. Úrslit Gilfersmótsins eru að því leyti merkileg, að þetta er í fyrsta skipti síðan 1951, sem íslendingur lendir fyrir ofan Friðrik Ólafsson á skákmóti. Það væri að vísu goðgá að telja að viðburður þessi mark- aði þau tímamót, að Friðrik Ólafsson sé ekki lengur sterk- ,asti skákmaður okkar; það verður hann eflaust enn um hríð. En úrslit mótsins gefa þó ótvirætt til kynna að mjórra kunni að vera á mununum milli hans og næstbezta manns en almennt mun vera talið. Ber að fagna því, með því ,að hér er greinilega um að ræða framför Inga fremur en aftur- för Friðriks. Ingi tefldi af miklu öryggi á mótinu og sýnði sérstaklega mikla kunnáttu í endatöflum, vann meðal annars jöfn enda- töfl af sumum andstæðingum sínum. Hann tefldi einnig byrj- anir og miðtöfl a.f mikilli festu og einbeitni og ekki sízt af því sjálfstrausti, sem er nauð- synlegt tij að afkásta stórum hlutum. f stuttu máli sagt hef- ur Ingi mér vitanlega aldrei sýnt þá gripfimi á öllum svið- um skákarinnar sem á þessu móti. Má hann teljast vel að sigri sínum kominn og vill þátturinn ekki láta hjá líða að samíagna honum, Friðrik teíldi yfirleitt af nokkru minna öryggi en Ingi. Hann lenti gjarnan í tímaeklu sem er stöðugt ein af hans veiku hliðum. Yfirleitt var taflmennska Friðriks þó góð, og sumar skákir sínar vann ' hann snilldarvel, að vísu stundum gegn heldur veikri taflmennsku. Svipað má auð- vitað segja um sumar skákir Inga. Arinbjöm Guðmundsson kom mjög á óvart með því að ná þriðja sæti aðeins hálfum vinn- ingi fyrir neðan sjálfan stór- meistarann. Arinbjörn á sér alllangan skákféril, þótt ungur sé að ár- um, en fram.för hans hefur verið mjög misjgfn. Sterkasta hlið Arinbjamar er lipurð og kunnátta í stöðubaráttu, hann er lítill áhlaupamaður og get- ur þó einnig á þeim vettvangi brugðið sér í -;beíri fþkurnar, ef aðstæður eru góífaf. J&étta er langbezti árangur sem Ar- inbjöm hefur náð á skákborð- inu, Hinn erlendi gestur, Norður- landameistarinn Svein Johann- essen varð 4. með 7 vinninga sem kunnugt er. Miðað við hans háa titil þá kann sumum að finnast sú tala í lægsta lagi, en margs þer að gæta í því sambandi. T.d. hefur það án efa háð honum mikið, að þekkja ekki á keppinauta sína, svo sem íi \; r. , -j’ hættur og %iaht iM fetaðbfetríL reyrizlu. Reyndist Guðmundur góður fulltrúi hinnar eldri kynslóðar á mótinu. Fjórir hinna væntanlegu 01- ympíufara, þeir Gunnar Gunn- arssonar, Ólafur Magnússon, Guðmundur Lárusson og Kári Sólmundarson náðu ekki þeirri útkomu á þessu móti sem gefi góð fyrirheit um frammistöðu þeirra á Olympíumótinu. Hitt þarf ekki að efa að þeir hafa dregið sína Jærdóma af þessu móti og ættu því betur að geta áttað sig á hvar þeir standa, Drslit Giifersmófsins gerðu þeir Friðrik og Ingi t.d. Þá er hann hér einn síns liðs meðal framandi manna fram- andi þjóðar, meðan hinir tefla á heimavelli. En óþarft er að tína hér til afsakanir því Jo- hannessen þarfnast þeirra ekki. Frammistaða hans er góð, þótt hinir næðu enn betri árangri, og hin athafnasama og frum- lega taflmennska hans vakti mikla athygli. Er hér greini- lega á ferðinni eitthvert mesta skákmannsefni, sem fram hef- ur komið á Norðurlöndum. Ingvar Ásmundsson tefldi yfirleitt af hörku mikilJi og fékk glæsilega vinninga og meðal annars fegurðarverð- laun fyrir skák sína gegn Jo- hannessen. Hins vegar sýndi hann ekki nægilegt öryggi til að komast í toppsætin, féll m. a. fyrir mönnum úr lægri grúppunni svo sem Ólafi Magn- ússyni og Guðmundi Lárussyni. En sem sagt, þegar á heilding er litið, þá sýndi hann einna mest tilþrif af öllum keppend- um. Guðmundur Ágústsson, sem varð jafn Ingvari tefldi yfirleitt af festu og vandvirkni, enda verður árangur hans að tejjast góður, þegar þess er gætt, að hann er orðinn fá- séður á skákmótum. Einkum reyndist Guðmundur hinum yngri meisturum skeinu- er þeir halda til keppni á er- lenda grund. Ungir framgjarn- ir menn sem þessir eiga að geta staðið undir nokkrum skakkaföllum, og ef þeir reyna á raunsæjan hátt að bæta úr orsökum þeirra, þá geta þeir vænzt betra gengis á næstu mótum. Benóný Benediktsson vann tvær fyrstu skákirnar, en hlaut síðan einn vimiing úr næstu 9 skákum. Þetta er auðvitað ekki glæsi- leg útkoma hjá gömlum Rússa- bana, en orsakir þessarar slæ- legu frammistöðu eru þættin- um ókunnar. Benóný sýndi á þessu móti ekki þá hugvits- semi og tilþrif sem stundum einkenna skákir hans. Jónas Þorvaldsson rak lest- ina með 2 vinninga. Sýndi hann minni keppnishörku nú en oft áður en reynsluleysi háir honum þó ennþá mest. Mótið fór vel íram og var allvel sótt af áhorfendum. Skákstjóri var Áki Pétursson, en mótsstjórar þeir Grétar Á. Sigurðsson og Guðjón Jóhanns- son. Hér fer á eftir ein af vinn- insskákum stórmeistarans á Gilfersmótinu; Rifsfj: Sveinn Brauðristar Byksugur Hrærivélar HOFUM OPNAÐ AFTUR eftir breytángar og iagfæringar á verzluninni Vér getum nú boðið úrval stærri og smærri heimilistækja, m.a. aí hinum heimsbekktu vörumerkjum Westinghouse og Frigidaire. Gerið svo vel, lítið inn og kynnið yður vörugæðin. Straujárn Dráttarvélar h.f. Haínarstræti 23. — Sími 18395. Hvítt: Friðrik Ólafsson Svart Benóný Benediktsson SPÁNSKUR LEIKUR 1. e4 e5, 2. Rf3 Rc6, 3. Bb5 a6, (Benóný gerir allmikið af því að dytta að gömlum byrj- unum með nýjungum, sem hon- um þykja betur hæfa kröfum nútímans en hinar eldri leiðir. í stað síðasta leiks síns hefur hann prófað leikina 3. — — Ra5 og 3. — — a5, en grípur nú aftur til hins klassiska leiks a6. Nýjung hans að þessu sinni kemur ekki fyrr en í næsta leik). 4. Ba4 Be7!? (Þessi og næstu leikir eru nýtt kerfi, sem Ben- óný er farinn að beita í spánsk- um leik). 5. 0—0 Bf6, 6. c3 b5, 7. Bb3 Rg - e7, 8. d4 0—0? (Nauðsýrí- legt var að halda í miðborðið með 8.-------d6. Nú fær Frið- rik yfirburðatafl). 9. dxe5 Rxe5, 10. Rxe5 Bxe5, 11. f4 Bd6, 12. Be3 (Hótar e5). 12. — — Rg6. (Ef til vill var 12.------Rc6 skárra. Nú getur Friðrik unnið peð eða skipta- mun). 13. Bd5 Hb8, (13.---------c6 14. Bxf7t), 1.4. e5 Be7, 15. Rd2 (Friðrik tímir ekki að láta annan biskup sinn fyrir hrók- inn á b8, sem hann gat unn- ið með Ba7. Heldur en að eyða leik í slíkt vinnur hann að því að styrkja stöðu sína). 15.------e6, 16. Bb3 d6, 17. exd6 Bxd6, 18. Re4 Be7, 19. f5 Dxdl. (Drottningakaupin veita Benóný ekki þann létti, sem hann kann að hafa vænzt). 20. Haxdl Re5, 21. Bf4 Bf6, 22. Hd6! (Friðrik léttir ekki að- sókninni. Benóný á enga vörn). 22. — — Rd7, 23. Rxf6ý gxf6, (23.-----Rxf6 yrði svar- að með 24. Hxf6 og síðan Bxb8). 24. Ilf3 íRe5, 25. Hg3f KhS. 26. ,f|*g6 ,jBd7, 27. Hxf7 gefjð. Lesendur geta dundað við að telja hótanir hvíts. Friðrik hefur notfaert sér snilldarlega, veika taflmennsku andstæðings síns. Kristinsson U ppþvottavélar Sjálfv. þvottavélar (laundromat)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.