Þjóðviljinn - 16.10.1960, Side 5
Surmudagur 16. október 1960 — ÞJÓÐVTLJINN — (5
Játar að hafa myrt 80 manns
í réttr.rhöldunum yfir fyrr-!
verandi fangabúðastjórum i
Sachsenhausen hefur einn hinna
þriggja ákærðu játað að hafa
myrt a.m.k. 80 sovézka stríðs-
fanga í febrúarmánuði árið
1944. Það er August HcJhn, að-
stoðarfangabúðastjóri sem gert
hefur þessa játningu.
Samtals voru a.m.k. 10.800
fangar myrtir 'í Sachsenhausen
vorið 1944, og áttu hinir þrír
á'kærðu, Höhn, Hempel og
Böhm, sem nú eru fyrir rétti
í Dússeldorf, einna mestan þátt
í þessum morðum.
Fjölmargir fyrrverandi fang-
ar frá Sovétríkjunum, Þýzka-
landi, Noregi, Hollandi, Pól-
landi og víðar hafa borið vitni
fyrir réttinum, og lýst morð-
4ukin verztun
fýsn og öllu atferli böðlanna
í Sachsenhausen.
Slík eru hreysin sem Frakkar ætla Serkjum innan þeirra fangagirðinga í Aisír þar sem
þeir að ei.gin sögn geyma 1.500.000 manns, eða um sjötta hluta þjóðarinnar.
HéffafélRsi frá AHr er hungr
og klæðlaust og kvtðir vetrinum
Veturinn nálgast og þúsundir flóttafólks frá Alsír
hugsar til kuldans með ótta og skelfingu. Þetta er sjö-
undi veturinn sem margt af þessu fólki lifir landflótta.
Þa5 er hungrað, klæðlaust og þjakað' á alla lund. Nauð-
syn á hjálp handa þessu fólki hefur aldrei verið brýnni mananum-
heldur en nú.
1
c:i
,,Rauði hálfmáninn," sem I
Arabalöndum annast sömu störf
og Rauði krossinn annarstaðar,
hefur sent út hjálparbeiðni
vegna flóttafólksins. Þar segir
Eisenhower
gaf Nixon
3 milljarða
Eisenhower Bandaríkjafor-
seti hefur látið Nixon, fram-
bjóðanda repúblikana við for-
eetakosningarnar í haust, í té
fé sem nemur rúmum 3 millj-
örðum ísl. króna úr einkasjóði
sínum. Fjárfúlgu þessa á Nix-
on að nota til að efla kosninga-
baráttu sína.
Margir aðrir milljónerar í
Bandaríkjunum hafa ausið fé
í kosningabarát'tu Nixons. Með-
ál þeirra sem eytt hafa 'í þetta
meir en sem svarar 100.000 ísl.
krónum eru Henry Luee, út-
gefandi ; blaðanna Time og
Life, Douglas Dillon aðstoðar-
utanríkisráðherra og fjórir
meðlimir Ford-fjölskyldunnar.
m.a.: ,,Við biðjum um þurrmjólk
handa bömunum sem árum sam-
an hafa lifað við sult og nær-
ingarskort. Foreldrar þeirra hafa
verið myrtir eða fallið í styrjöld-
inni í Alsír, og börnin reika for-
eldralaus og banhungruð um
flóttamannabúðirnar og mörg
þeirra deyja úr hungri og vos-
búð. Við biðjum stóriðnaðaraðil-
ana um tjöld, ullarsokka, mat-
vörur, klæði, hreinlætisvörur,
bætiefni og lyf.
Ef til vill förum við fram á of
mikið, því okkur berst lítil
hjálp“.
Alsírska þjóðin og Rauði hálf-
máninn hafa oft látið í ljós
undrun og vonbrigði vegna þess
hvað lítil hjálp berst frá vest-
urveldunum. Hjálparbeiðni hinna
nauðstöddu hefur fengið miklu
betri hljómgrunn meðal sósíal-
ísku þjóðanna.
Við megum ekki gleyma. . .
Hjálp til hins nauðstadda
flóttafólks er ekki stjórnmála-
legs eðlis, og hún ætti að geta
borizt frá öðrum velmegandi
löndum, eins og Alsírbúar og
Rauði hálfmáninn fara fram á.
Þeir vilja umfram allt binda
endi á það ástand að þurfa að
horfa upp á börnin sjúk, hungr-
uð, grátandi og köld.
tillög, hversu smá sem þau crv.,
eru vel þegin og þeim er te’.-ll
með þakklæti af Rauða hálf-
Veturinn gengur í garð með
nýjum þjáningum fyrir fólkið.
Veturinn er kaldur og harður,
sérstaklega í fjalllendi Norður-
Afríku. Þúsundir fólks hafa lát-
ið lífið á undanförnum árum á
þessum slóðum úr kulda og
hungri.
S.l. mánudag var undirrit-
aður í Moskvu stærsti verzlun-
arsamningur sem gerður hefur
verið milli Sovétríkjanna og
Italíu.
Samningurinn hljóðar upp
á verzlunarviðskipti sem nema
um 7.5 milljörðum 'isl. króna.
M.a. selja Sovétmenn Itölum
12 millljónir lesta af olíu á
næstu fjórum árum. Á sama
tíma verða fluttar út 240.000
lestir af stálrörum og 50.000
lestir af gúmmí frá ítalíu til
Sovétríkjanna.
í júlímánuði urðu 34,117 um-
ferðarslys í Vestur-Þýzkalandi,
og biðu samtals 1426 manns
bana.
Þetta er rúmlega 15 prósent
hærri tala en á sama tíma
í fyrra. Bifreiðum 'hefur fjölg-
að um 10 prósent síðan í fyrra
í Vestur-Þýzkalandi.
ieanson tekinn
höniym í Swiss 1
—vísaðnrlandi
Franski háskólakennarinu
Francis Jeanson sem staðið
hefur fyrir leynifélagi því sem
aðstoðað hefur Serki í Frakk-
landi og franska menn sem
gerzt hafa liðhlaupar úr hern-
um fremur en bera vopn gegn
Serkjum var handtekinn í
Sviss í lok slðustu viku.
Franska lögreglan hefur leit-
að hans í marga mánuði og
hann var dæmdur af herrétti
í Par'is fyrir nokkrum dögum
í tíu ára fangelsi ásamt nokkr-
um samstarfsmönnum sínum.
Svissneska lögreglan vildi ekki
framselja hann frönskum
stjórnarvöldum, en vísaði >hon-
um úr landi. Hann fór til Tún-
is.
5060 verkamönn-
um sagt upp vinnu
Stjóm Chrysler-bílaverksmiðj-
anna í USA hefur sagt
5.000 starfsmönnum upp vinnu
frá og með 5. október n.k.
■Segja forráðamenn verk-
smiðjanna að allt of mikið sé
orðið til af óseldum Chrysler-
bifreiðum. Framleiðslu ,,módel
1961“ hefur verið hraðað,
segja forstjórarair, en komið
hefur I ljós að henni hefur
verið hraðað of mikið, og þess-
vegna sé verkamönnunum sagt
upp.
Verðlaunakvikmynd: ,Stjariian‘
Haustmót TaftféSags
Reykjavíkur
L
’hefst fimmtudaginn 20. þ.m. í Sjómannaskólanum.
Teflt verður í 11 flokkum. .
Innritun þátttakenda fer fram í dag frá kl. 2 og
þriðjudagskvöld frá kl. 8 í Grófinni 1.
STJÓRNIN.
Þýzk-búlgarska kvikmyndin
„Stjarnan“, sem fengið hefur
verðlaun í Cannes og víðar, er
talin einhver hin áhrifamesta og
bezt gerða kvikmynd sem gerð
hefur verið um eitt mesta harm-
söguatriði stríðsins: mannaveið-
arnar og morð á þúsundum af
i saklausu fólki. Kvikmyndin
greinir frá mannúð mitt í villi-
mennsku og mannúðarleysi Hitl-
erstímans. Þetta er sagan um
stuttan fund tveggja persóna.
Hún er gyðingastúlka og
kennslukona, flutt meðal ann-
ar.ra fanga frá Grikklandi til
útrýmingarfangabúðanna í Aus-
chwitz. IJann er þýzkur listmál-
ári í herþjónustu, og hugarfar
hans breytist vegna viðkynning-
ar við gyðingastújkuna. Hann
stelur lyfjum handa föngum og
föðurlandsvinum, og reynir að
bjarga föngunum frá þeim ör-
lögum sem þeim eru búin. —
reynir að hindra að þeir séu
fluttir á búpeningsvögnum,
merktum „Gyðingar — Pólland“,
í gegnum Evrópir til gaskleíahna
í Auschwitz.
•Nafn kvikmyndarinnar tákn-
ar bæði stjörnuna, sem gyðing-
arnir voru alltaf látnir bera á
brjóstinu, og þá vonar-
stjörnu er tendrast við fund
ungu stúlkunnar og fangavarð-
arins.
Kvikmyndin er framleidd af
austurþýzka kvikmyndafélaginu 1
DEFA í samvinnu við búlgarskt :
kvikmyndafélag í Sofia. Leik- j
stjóri er Konrad Wolf. Hann er
35 ára gamall sonur hins kunna
byltingarsinnaða rithöfundar,
Friedrich Wolf. Konrad Wolf
flúði frá Þýzkalandi ó Hitlers-
tímanum og dvaldi alllengi í
Sovétríkjunum. Hann gekk í
sovézka herinn og tók m.a. þátt
í orustunni um Berlin.
Krafizt að Dli
sé viðarkeflHt
Nefnd verkalýðsleiðtoga
skoraði í síðustu viku á
norsku ríkisstjórnina að
viðurkenna austurþýzka
alþýðulýðveldið, DDR, og
taka upp stjórnmálasam-
band við það. Að áskor-
uninni stóðu 78 verkalýðs-
leiðtögar úr 62 verkalýðs-
félögum. Sögðu þeir að
ekki væri lengur liægt að
loka augunum fyrir til-
veru hins austurþýzlia
lýðveldis, háþróaðs iðn-
aðarrikis með 17 milljónir
íbúa.
Búlgarska leikkonan Sasja Krusjarska og Jiirgin Frohriep sem
þýzki hermaðurinn. ,
*