Þjóðviljinn - 16.10.1960, Side 6
8)"
ÞJÓÐVfbJ-INN
: Smmudmgtir - H5.' okrtóber- 19S&'
sc
tzt:
Útíeíandi: BameinlnKarflokkur «lÞ#Bu - Sóaialiataflokkurinn. -
Ritstjórar: Magnús Kiartansson (áb.), Maanfis Torfl Olafsson. Bla-
arBur GuBmundsson. — Préttarltstlórar: ívar H. Jónsson. Jón
Biamasor. — Auglýslneastjórl: GuBeelr Maenússon. — Rltstjórn.
afertdSsla auelísinear. prentsmlSJa: SkólavfirBustle 10. — Biml
17-009 (t linur). - ÁskréftarverB kr. 40 A mán. - Lausasfiluv. kr. 3.00.
PrentsmlBJa ÞJóBvllJans.
•- — ,.'v;
|| Gjaldþrot viðreisnarinnar |
-rp
gg U'ftir viðreisnarfrumvörpin höfðu verið lögð íiri
^ fyrir Alþingi í vor ikom 1 ljós að reikningar gj?
hinna visu sérfræðinga stóðust engan veginn. :=£
Við rannsókn reyndust þeir hafa misreiknað sig £2
um meira en 100 milljónir króna, hreinlega týnt
þeirri upphæð niður í talnaflóði sínu. Eftir mik- W
32 ið fum og fát, yfirheyrslur og rekistefnu, greip
stjórnin til þess bragðs að bæta úr hneykslinu
með því að leggja nýjan skatt ofan á gengis-
Ep lækkunina, 8,8% söluskatt af innfluttum vörum,
voru tekjur af Konum áætlaðar nær 200
og
milljónir króna á ári. Jafnframt var því lofað
ihátíðlega að þessi skattur skyldi aðeins vera í
gildi árið 1960; í árslok myndi lokið við að vega
upp reikningsskekkju hagfræðinga, og yrði
skatturinn þá örugglega felldur niður.
C'kattheimta þessi varð ekki aðeins skýrt dæmi
^ um það hvert mark var takandi á öllu
guminu um nákvæmni og vandvirkni hag-
fræðinganna, heldur leiddi hún einnig til þess
að allir aðrir útreikningar þeirra urðu að vit-
leysu, einnig þeir sem kunna að hafa verið nærri
lagi í upphafi. Þessi aukaskattur hafði það í för
með sér að verðlag hækkaði mun meira en áætl-
að hafði verið, og telur ríkisstjórnin sjálf áhrif-
in nema þremur vísitölustigum. Af því leiddi
aftur að útreikningarnir um kjaraskerðinguna
urðu enn fráleitari en ráð var fyrir gert í upp-
hafi, og hefur vísitölunni verið hagrætt æ ofan
í æ af þeim sökum.
TV/faður skyldi því ætla að ríkisstjórninni hefði
verið mikið í mun að fella þennan stórfellda
reikningsskekkjuskatt niður í árslok, eins og
hátíðlega hafði verið lofað. En í fjárlagafrum-
varpinu nýja, sem lagt var fram í þingbyrjun,
var loforðið svikið, og fylgir brigðmælunum svo-
hljóðandi stuna í greinargerðinni: „Eigi verður
hjá því komizt til þess að tryggja hallalausan
rekstur á árinu 1961 að 8% bráðabirgðasöluskatt-
urinn af innfluttum vörum verði í gildi árið
1961“. Ríkisstjórnin kemst þannig ekki hjá því
að svíkja loforð sín, því annars verður stórfelld-
ur halli á ríkissjóði. Ekki var hægt að fá öllu
skýrari viðurkenningu á gjaldþroti viðreisnar-
innar frá stjórnarliðinu sjálfu.
rxjt
ua
Jjhi þessi svik eru aðeins í samræmi við aðra
reynslu af gengislækkuninni og áhrifum
hennar. Kjaraskerðing ,,vísitölufjölskyldunnar“
er þegar orðin tvöfalt meiri en heitið var í upp-
hafi, og bera þó allar aðrar fjölskyldur mun
skarðari hlut. ísóknin í hina vestrænu kreppu-
markaði hefur leitt yfir íslendinga verðhrun
sem sjálfur viðskiptamálaráðherrann metur á
300 milljónir króna. Hagur útgerðarinnar — sem
sérstaklega átti þó að bjarga — er verri en
nokkru sinni fyrr, þannig að einn öflugasti út-
gerðarmaður landsins hefur lýst yfir því í
Morgunblaðinu að hann sé kominn á barm gjald-
þrotsins. Einu mennirnir sem fagna eru heild-
salar, fjármálabraskarar og milliliðir á borð við
Gunnar Guðjónsson skipamiðlara, þann sem fékk
„sex handa sér“ um árið af hverjum saltfisk-
pakka sem til Ítalíu fór og hælist nú um í Morg-
unblaðinu yfir því að lifa nýia gullöld og
gleðitíð. — m.
iít
PJC.
mu
rrr5
B
Byggðin er að , baki. Fyrir
3-4 mínútum beygðum , v ð úr
fjörunni inn í svejtina. Á und-
an okkur skcikkaði þópur af
Kinum landsfrsegu Vestfjarða-
rollum, vambghdar sem
gotþorskur, aldar upp í
garði nágrannans. Loks sigr-
aði túnlöngunin sauðþráann
og þær smeygðu sér gegnum
girðingu ,inn á næsta túnbiett.
Gengnar kynslóðir hafa hlað-
ið hundruð metra af forkunn-
arfögrum grjótgörðum kring-
um túnin. Nútíminn hsfur
krækt upp gaddavír fyrir ut-
an þú. En hér er „menning-
in“ ekki komin það langt
ennþá að afmá þessi gömlu
snilldarverk með aðstoð jarð-
ýtu. Ofan túna tekur h’.íðin
við, móar, urðir, mosar, skrið-
ur. Vafalaust er merktur bíl-
vegur hér á nýja vegakort-
inu, og víst er hér ýmist
ruddur vegur eða lagður, en
hnullungar og ísahjarbjörg
ríkja; þessi vegur hefur vart
kynnzt malarlúku síðasta ár-
ið. Auðséð að fátt muni kjós-
enda handan heiðar. Til hvers
ætti líka að vera að malbera
vegi ef vonlaust -er að reikna
rúmtak malarhlassanna í at-
kvæðum!
Loks erum við í háskarð-
inu. En þótt ljúft sé undan-
haldið má hvergi fara nema
fetið. Hér vestra heilsar
Hannibal upp á kunnugar
slóðir. Hann þekkir ekki að-
eins nesjanúpana og miðin,
heldur kemur á daginn að
hann hefur þrammað yfir
hverja heiði og skarð, horft
yfir goðorð sitt af Snjófríð
og jafnvel Koltus mun hon-
um ekki öllu ókunnur. Það
opnast dalur; grösugur dalur,
með bröttum hamrahlíðum.
Sjór fyrir framan. Það ber
stórt flutningask'p nokkuð
yfir sjávarbakkana, Þetta er
engin innfjarðapollur heldur
sjálft úthafið. Til vinstri niðri
í lágdalnum grænar skákir og
lág, vallgróin veggjabrot. Hér
stóðu Meirahraun, Kropps-
staðir og M'nnahraun í eina
tíð. Á landakorti leiðréttu
1934 eru sýndir 8 bæir í þess-
um dal. Nú sjáum við aðeins
þrjá. Við höldum út hlíðiná.
Neðan vegar fleklrr á túni.
Hús fast við veginn. Þótt
múrhúðuTi sé mjög nýleg er
það eitthvað einmanalegt.
Það kemur líka á claginn að
„viðreisnin ‘ s.l. vor orkaði
þann'g á bcndann að hann
flýði sem skjctast. 'Eftir
standa hús, gúðingar og
sléttur, garðr l’um og gam-
alám að leik. Litiu utar ann-
að tún, nýr græhn fe'dur frá
hlíðarrctum t,'1 ár og út á
sjávarbakka. Hér hefur ein-
hverntíma verið tekið til
hendi. Úti við sjóinn hvítt
hús, það stendur á hól og ber
hátt. Iiinumeg'n í víkinni.
annar bær.
Niðri á sléttunni ekur Ská’a
víkurbcndi rússajéppa fyrir
sláttuvél. hann er að s’á
seinni sláttinn. Jónas Hall-
dórsson heitir hann. Hér mun
ekki siður að ’.áta gesti lengi
bíða hressingar, og brátt er-
um við setztir inn í hvíta hús-
ið úti við sjóinn. Bakk'nn er
hár, vítt útsýni yfir víkina
fyrir neðan, milli yfir 509 m
hárra núpa. Á leið í bæinn
berst landhelgin í tal. Við
spyrjum hvort bóndi vilji
semja um tilfærslu landhelg-
innar.
— Seraj* ujtu lamlhelgioa!
Nei! ViS höfum ekfeert við
Breta að tala um landhelgfna.
Svarið kemur eins og köld
•haglhríðarstroka.
Jónas bóndi Magnússon í
Skálavík er kunnur um Vest-
firði — og viðar. Á sínum
tíma hafði hann „Útvarp
Skálavík“ — í sambandi við
Keflavík. Nei, ekki að mis-
skilja þetta, það eru fleiri
Keflavíkur á landinu en þessi
á Suðurnesjum! Víða hafði
ég hitt fólk hér vestra er
kvaðst sakna „Skálavíkurút-
varpsins“, og færi það nú í
tal við bónda.
— Já, svarar hann. Við
höfðum talstöð hér í 10 ár og
það þótti mörgum sjómönn-
um gott að geta fengið veður-
lýsingu héðan. Eftir að Óskar
Aðalsteinn gerðist vitavörður
í Keflavík — næstu vík —
töluðum við oft saman í tal-
stöðvunum og höfðum út-
varpsdagskrá sem tók við þeg
ar Ríkisútvarpið hætti á
kvöldin. Lásum m.a. sögur.
Óskar Aðalsteinn las þær
stundum og lék um leið.
— Það virðast margir hafa
hlustað á þetta útvarp ykkar.
— Já, það kannast marg-
ir við Skálavík síðan. Einu
sinni þegar ég kom til Bol-
ungavíkur var mér sagt frá
Sunnudagur 16. október 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (7 '
S'kálavíkurhjón, synir þeirra og dótturdóttir. Talið frá vinstri: Sigríður Magnúsdóttir,
Crylfi, Jónas Halldórsson, Sigriður Jóna 4ra ára og Halldór.
eftir að hann kom.
— Var ekki símaleysið erf-
iðast í sambandi við veikinöi ?■
-— Nei, við þurftum ekki að
ná í lækni, — hér eru engar
pestir, nema kvef ef maður
fer niður í Bolungavík, — því
hér sækir maður skemmtanir
að fá eitthvað til að ala börn-
in upp við annað en götuna.
Og við munum aldrei iðrast
þ.ess að flytja hingað.
Svo ræðum við um erfið-
leikana þegar þau komu hing-
að ung hjón, ein með böm.
— Fyrsta vorið var annar
— Eg sé ekki betur en það
eigi að drepa okkur með dýr-
tíð- Eg minnkaði áburðar-
skammtinn s.l. vor þannig að
ég keypti fyrir sömu upphæð
og áður, en það þýddi að ég
fékk miklu minni áburð á
manni er hefði verið að
spyrja um mig og segðist
þekkja mig. Þegar til kom
kannaðist ég ekki við að hafa
séð manninn, en hann þakk-
aði fyrir síðast. Hann hafði
verið skipstjóri á síldarflutn-
ingabáti haustið sem Hval-
fjarðarsíldin veiddist og þá
fengið hjá mér upplýsing-
ar um veðurútlit og sjólag.
eins og annað fólk.
— Ert þú uppalinn hér í
Skálavík, og hefurðu kannski
alltaf verið hér?
— Nei, ég er fæddur í Bol-
ungavík og var sjómaður frá'
því um fermingu. Þegar ég
var 11-12 ára sat ég hjá í
Hörgsh’íð inni í Djúpi, en um
tvítugt var svo komið að ég
viMi helzt- hvergi vera nema
Skálavík veit móíi opnu útliafi, gengur inn milli hrikalegra
núpa, upp af henni grösugur dalur. Keflavík, ofurlítill bugur
inn í hamraströndina, sést einnig á kortinu.
Meðan talstöðin var hér
spurði fjöldi báta og skipa
um það. En nú höfum við
fengið síma.
— Var ekki mikil bót að
því að fá símann?
-— Jú, okkur fannst við
vera komin . nær kauptúninu
(Bolungavík handan heiðar)
a sjo.
— En hvernig stóð þá á því
að þú fórst að gerast bóndi
hér ?
— Þá var ég á götunni,
með krakka. Á kreppuár-
unum var alltof lítið að gera
við sjóinn. Bátarnir voru þá
líka of litlir. Og svo var gott
strákurinn okkar, þá 5 mán-
aða gamall, borinn í þvotta-
bala þegar farið var í mó-
grafirnar og hafður í tjaldi,
segir kona Jónasar, Sigríður
Magnúsdóttir. Á sumrin
geymdi ég hann milli þúfna
þegar ég var að raka.
— Þúfna? En hér er alít
slétt.
— Já, en þá var hér fullt
af þúfum.
— Já, bætir Jónas við.
Mýrarnar þar sem slétturnar
eru nú voru þá fúafen, sem
aldrei óx gras á. Tún’ð var
sandhóllinn sem bærinn stend-
ur á, og af því fengust 40
hestar af töðu. Útheysöflun
var því til að byrja með
frammi um allan dal. Fyrsta
árið fékk ég hey í hlöðu sem
tók 400 álnir. Annað eða
þriðja árið hér hafði ég 49
kindur, eina kú og kvígu. Það
var bústofninn.
— Hvenær fékkst.u fyrst
vélar til jarðvinnslu?
— Skurðgrafa kom hingað
fyrst 1953 eða 54.
— Og hvað er túnið nú orð-
ið stórt hjá þér?
— Það er orðið 12-13 hekt-
arar.
— Hvað geturðu haft
margt sauðfé hér?
— Eg vil ekki eiga að sjá
einn um fleira en 200 svo í
lagi sé.
— Stundarðu kannski sjó
líka?
— Já, við stunduðum sjó
áður, allt fram á s.l. ár.
— 'Hvernig er að búa núna ?
túnið. Hefði ég keypt sama
magn af áburði og árið áður
hefði það orðið 2000 kr dýr-
ara nú. Tíðin í sumar hefur
bjargað því að sæmilega
spratt.
Benzínlítirinn er nú 1 kr.
dýrari en í fyrra, og ég nota
jeppann til alls, en af því
hann heitir ekki dráttarvél fæ
ég enga niðurgreiðslu því
bókstafurinn skal blífa.
— Var ekki fjölmenni hér
í Skálavík áður fyrr?
— Jú, í byrjun 18. aldar
munu hafa verið hér um 200
manns og -fyrir síðustu alda-
mót voru 20-30 búendur hér
í víkinni. Þá áttu menn yf-
irleitt eina belju og 20—30
kindur og stunduðu sjó jafn-
framt. Þá komu stór erlend
flutningasldp hingað á vikina
til að sækja saltfisk.
— Útræði mik’ð?
— Já, útræði var hér mikið
og eru mörg örnefni þar að
lúlandi. Hér er t.d. Mýra-
mannabúð, vafalaust frá Mýr-
um í Dýrafirði. Á þeim tíma
þótti Skálavík kjarastaður.
Bátar hleyptu oft hingað inn
þegar þeir náðu ekki inn í
ísafjarðardjúp.
—; Hvað hafa verið marg-
ir bæir hér eftir aldamót síð-
ustu?
— Eftir aldamótin munu
hafa verið hér í víkinni um
14 búéndur. Meirahraun var
enn í byggð 1926. Það voru
mörg býli á hverjum bæ, og
nöfn sumra geymast enn.
Aratóftir, Jóhönnustykki og
Skemmubær eru allt mínjar E
um býK á Breiðabóli. Hér eru =
t.d. Blómsturvellir. Hjón að
nafni Ari og Lovísa fórust =
í snjóflóði hér 1910, hafa =
sennilega búið þar seiri nu'erú
Aratóftir.
'En það hafa aldrei verið =
nema 3 bæir hér síðan við =
kcxmum, — og bóndinn á =
Breiðabóli flutti burt s.l. vor. =
— En þið eruð ekkert að
hugsa um að flytja?
— Hér hefur okkur liðið
vel. En maður sér að það =
virðist meira peningaflóð ann- =
arsstaðar. Og það er svo =
undarlega margt sem bindur =
mann. Jafnvel kindurnar eru E
vinir okkar og þekkja mig
hvar sem er í haganum. =
— Og kýrnar koma heim
ef ég fer út og kalla á þær,
segir konan. =
— En hefur þér samt ekki =
fundizt einmanalegt hérna? =
— Nei, svarar hún og bros-
ir glaðlega að siíkri spurn- E
ingu. Mér hefur ekkert fimd-
izt einmanalegt hér, þótt
sumum konum hafi þótt und-
arlegt að ég skuli vilja vera =
hér — og ég hljóti því að =
vera eitthvað undarleg! Það E
er fallegt hérna á sumrin. Og E
hér hefur okkur lið'ð sér- E
staklega vel. E
Það er farið að bregða
birtu — og við þurfum að
hafa skímu yfir tröllaveginn
til baka. Jónas bóndi gengur
með okkur á veg út að bíln-
um. Þegar við erum að aka =
af stað snýr hann sér við og =
kallar á eftir okkur: =
— Segið þeim þarna fyrir E
sunnan að við hér á útkjálk- E
unum viljum ekki hafa neinn E
undanslátt í landhelgismálinu. E
Og enga samninga um land-
helgina við Breta. Samning-
ar væru svik. J.B.
imimiiiMiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiii
Ritstjóri: Gísli Ólafsson
Draumar eru lífsnauðsyn
Niðurstaðan af tilraunum
sem gerðar voru til að koma í
veg fyrir að menn dreymdi
benda til að ákveðinn „skammt-
ur“ af draumum á hverri
nóttu sé mönnum nauðsynleg-
ur.
Á undanförnum árum hafa
sálfræðingar komizt að raun
um að þegar mann dreymir
hreyfast augu hans eins og
hann væri að horfa á atburði
draumsins. Við athugun á
þessu haf a þeir . sannreynt að
fjögur eða fimm draumaskeið
eru algengust á hverri nóttu
o.g ná þau yfir 20% svefntím-
ans. Draumar eru miklu meiri
en menn höfðu áður haldið og
þeir eru óaðskiljanlegur hluti
svefnsins á hverri nóttu.
Tilraunir þessar gerði banda-
rískur sálfræðingur, E. Dement
að nafni, Við tilraunirnar not-
aði hann átta menn, sem
sváfu með rafsegulskaut á
höfðinu og hiá augunum til
þess að skrá heilabylgjur og
hreyfingar augnanna. í her-
bergi við hliðina sat maður og
fylgdist með þessum tækjum.
Fyrstu næturnar voru notaðar
til þess að finna hvernig sve.fn-
og draumförum hvers og eins
var háttað. Næstu nætur voru
tilraunamennirnir vaktir í
hvert skipti sem þá byrjaði að
dreyma, og' síðustu næturnar
fengu þeir að sofa í friði til
Svínaíéðri ausið npp einfrumungur, en mergðin
bætir upp smæðina svo að ýmsir vísindamenn telja að hér sé
um að ræða einhverja þýðingarmestu fóðurjurt og manneldis-
plöntu komandi tíma, þegar að því kemur að hraðvaxandi
mannkyn fer að eiga erfitt með að brauðfæða sig með gamla
laginu. Myndin er frá Kína, þar sem tekið er að nota þörunga
til svínafóðurs. Þörungarnir eru ræktaðir í vatnsþró og fleytt-
ir ofanaf.
að jafna sig. Sex tilrauna-
mannanna voru auk þess í
nokkrar nætur vaktir þegar
þá var ekki að drevma til þess
að fá úr því skorið hvort nið-
urstöður tilraunanna mætti
raunverulega rekja til þess að
mennirnir voru sviptir draum-
um.
Einn tilraunamannanna hæfti
eftir að hann hafði verið svTþt-
ur draumum i þriár nætur og
„bar við sýnilegum tylliá^tæð-
um“. Tveir heimtuðu að fá
að hætta eftir fjórar drcum-
lausar nætur, en féllust á'iPÖ
vera hvíldarnæturnar. Fiórir
þraukuðu í fimm draumlausar
næ’ur og einn í sjö.
Áhrif draumsviptingaT'ívnar
■levndu sér ekki: mennirnir
urðu kvíðafullir, vanstilltir og
áttu erfitt með að beita hugan-
um; hjá einum komst vanstill-
inff-i.n á alvarlegt stie. Fimm
urðu greinilega matlvstuff'ri.
Áhrifin hurfu u^dir eins og
mönnunum var leyft að sofa og
dreyma í friði. en Dement tel-
ur að draumsvipting um lengri
t,íma geti haft skaðíeg áhrif
á persónuleikann.
Því fleiri nætur sem menn-
irnir voru sviptir draumum,
því oftar varð að vek’-5 bá,
þ.e. draumar sóttu æ t'ðar á
þá. Hvíldarnæturnar á eftir
dreymdi Þá miklu meira en
áður en þeir voru sviftir
draumum, eins og þeir væ^u að
bæta sér upp draumamissinn.
Frauðplast við
sandgræðslu
Þýzkur verkfræðingur, H.
Baumann í Frankenthal, Pfalz,
hefur komið með þá hugmynd
að nota megi frauðplast við
græðslú eyðimerkursanda. —
Hann hafði tekið eftir því' að
afskorin blóm endast lengur
ef stilkurinn er látinn vera í
frauðplasti eg enr.fremur að
hægt er að rækta jurtir í
frauðplasti vættu í næringar-
vökva i stað moldar. Hárpíp-
urnar í frauðplastinu halda í
sér vatni, sem : sandauðn
mundi annars s.'ga niður í
dýpri jarðlög þar sem jurtirn-
ar ná ekki til þess Frauðplast-
lag á sandjörð mundi halda í
sér vatninu og varna þvi að
það sigi niður.
Með því að setja áburð, spor-
efni og jarðvegsbakteríur í
frauðplast telur Bauman að
hægt sé að skapa skilyrði fyrir
jurtagróður, og þegar gróður-
inn er farinn að gefá svolítinn
skugga. dregur úr uppgufun
úr járðveginum. Er frá líður
munu rætur jurtanna að sjálf-
sögðu eyðileggja frauðplastið,
en áður er von til þess að
myndazt hafi lag af glóður-
mold (humus) er nægja muni
gróðrinum áfram, ef komið er
í veg fyrir sandfok, .
Framhald á 10 síðu,