Þjóðviljinn - 16.10.1960, Side 10
'ÍO) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 16. október 1960
Tómstundaiðja
“^öiriáðj kyöl3^TiéT^;T’,staÍ'fsetii|
jEskulýðsf-áðs I Rejikjavjíkuri fyrjr-
tímamllð 1 (jjítober—cteserrflíer 1500.
og verður tómstundaiðja á eftir-
tö.dum stöðum:
Tómstaindalieimilið að I.ind
argötu 50:
Ljósmyndaiðja: mánud., þriðju-
daga, miðvikudaga og fimmtu-
da.ga kl. 7.30.
Kvikmyndasýningar fyrir 11 ára
og yngri, laugardaga kl. 4.30
Frímerkjaklúbbar, miðvikudaga
11 ára og yngri ki. 5.30, og kl.
7.30 12 ára og eldri.
Taflklúbbar, þriðjudaga, 11 ára
og yngri kl. 4.30 og kl. 7.30 12
ára og eldri.
Smíðaföndur, þriðjudaga kl. 8.30
Bókband, þriðjudaga kl. 7.30
Flugmódelsmíði, fimmtudaga
kl. 7.30
Bast- og tágavinna, mánudaga
kl. 7.30
Bein- og hornavinna, mánu-
daga kl. 7.30
Filt- og perluvinna, mánudaga
kl. 7.30
iRadióvinna
Skemmti- og fræðslukvöid verða
vikulega fyrir þessa hópa.
Colfskálinn:
Bast- og tágavinna, mánudaga
kl. 7.30
Árniannsheimilið við Sigtún:
Bast- og ti igavinna, þriðjudaga
kl. 7.30
(Horn- og beinavinna, þriðju-
daga kl. 7.30
Taflklúbbur, þriðjudaga kl. 7.30
Frímerkjaklúbbur, þriðjudaga
kl. 7.30
Fræðslu- og skemmtikvöld
verða öðru hverju.
Melaskóli:
Bast- og tágavinna, miðviku-
daga kl. 7.30
'Horn- og beinavinna, miðviku-
daga kl. 7.30
Háagerðisskóli:
í samvinnu við sóknarnefnd Bú-
staðasóknar.
Ba.st- og tágavinna, mánudaga
kl. 7.30
Kvikmyndasýningar fyrir börn
Or heimi vísindanna
. Framhuld af 7. síðu.
Heimatálbúið stál
í Pólýteknisku stofnuninni í
Norðausturkína hefur verið
fundinn upp lítil, kolakyntur
ofn til framleiðslu á stáli. Hér
er raunverulega um byltingu í
stálframleiðslu að ræða, því
að stál er nú einungis framleitt
í stórum olíu- eða gaskyntum
ofnum, sem bræða 50 til 500
lestir í einu, en þessi litli ofn
bræðir aðeins 5 lestir.
Þó að þessi kínverski ofn
sé svipaður í lögun og venju-
legur stálbræðsluofn, er hann
miklu einfaldari að allri gerð
— raunar svo einfaldur að ó-
lærðir verkamenn hafa smíðað
þá og brætt í þeim.
Meginkostur þessa ofns er
sá, að hægt er að framleiða í
honum allt niður í tvær lest-
ir í einu; fjárfesting á hverja
lest stáls er einungis þriðjung-
ur á við það sem er í stórum
ofnum; kol eru notuð sem
eldsneyti og er því hægt að
nota ofnana víða í Kína.
Vegna þess hve ofninn er lítill
er hægt að tæma hann á fjög-
urra stunda fresti en í venju-
iegum stálbræðsluofni er
bræðslutíminn um tíu stundir.
Kínversk alþýða leggur mikla
áherzlu á að vera sjálfri sér
nóg á sem flestum sviðum, og
þess vegna mun þessi litli ofn
<hafa geysimikla þýðingu í at-
vinnulífi þjóðarinnar.
4íéV8áí';,*væHtls&íf¥£'a J' á!'Jiá(5Htíi‘YÍÍg-
‘Ílnij'fÍHþl. mSP " .
'Ipl« titBÍ ■•fcaotsjfsý'í-
V ogaskóli:
Tómstundakvöld viku'ega með
ýmsum verklegum greinum fyrir
nemendur skólans. Nánar aug-
lýst í skóla.num.
Miðbæjarskóli:
Leikbrúðugerð og teikniflokkur
verða á þriðjudögum og fimrntu-
dögum kl. 7.30 (innritun i þessa
ílokka verður þriðjudag kl. 7.30)
Víkingsheimilið:
Frímerkjaklúbbur, mánudaga
kl. 5.30
Kvikmyndasalur Austurbæjar-
barnaskólans:
Kvikmyndasýningár fyrir börn
verða, á sunnudögum kl. 3.30.
Nánari upplýsingar veittar i
skrifstofu /E.R. að Lindargötu 50
s'mi 15937 kl. 2 til 4 daglega.
Innritun verður á ofangreind-
um stöðum og tímum alia næstu
viku.
Starfsmenn Kr. Kristjánsson-
ar h,f. og Bílasmiðjunnar unnu
Hreyfilsmenn í knattspyrnuleik í
gær með 2:1 í góðum leik.
Þótt stjérnin ...
Framhald af 1. síðu.
inga um hin umdeildu 12 mílna
fiskveiðimörk íslend.inga er lok-
ið og málamiðlun virðist jafn
fjarlæg og fyrr. Vandamál það
sem blasti við sendinefndunum
báðum á fundunum í Reykjavík
í síðustu viku var auðsjáanlega
allt of stórt til þess að þær
réðu við það, ekki sízt þar sem
framtíð íhaldsstjórnar þeirrar
sem nú er við völd á íslandi er
í húfi... Á það var Iögð á-
herzla við mig í Reykjavík að
nauðsynlegt væri að finna skjóta
lausn á deilunni. Ný vinstri-
stjórn myndi krefjast þess að
íslendingar vísuðu Bandaríkja-
her úr landi og segðu sig úr
Atlanzhafsbandalaginu“.
Næsta dag segir Chanter í
nýju skeyti ,að hann bindi ekki
mik|lar vonir1 við nýjar viðj-
ræður: „Allt bendir til þess að
íslenzka ríkisstjórnin hafi gert
viðurkenningu á 12 milunum að
ófrávíkjanlegu skiiyrði og að
stjórnarandstaðan ýti fast á
eftir til þess að búa í haginn
fyrir enn frekari stækkun".
Skrítna skráargatið
Framhald af 4. siðu
til hjálpar, sem erfitt eiga um
lestrarnám. Það skal tekið
fram, að ég hef ekki reynslu
af bókinni sem kennslutæki,
en mé|’ sýnist við fljótan lest-
ur, að hún muni vera mjög
gagnleg sem slík. Ævintýri það,
sem hi'yi flytur, er einnig hið
skemmtilegasta.
Ég hef ekki þessi orð fleiri,
því að ýmsir vilja fremur lesa
fá orð en mörg, þegar mörgu
er að sinna.
Stefán Jónsson.
Sandur og
ámokstur
Fínn sandur fyrir steypu og
pússningu. Verð kr. 100.00
bílihlassið, efni og ámokstur.
Vinsamlega hringið í síma
7560 í Sandgerði.
Reykjavík, 14. 10. 1960.
Vegna .J»aígyjgleg^í. *yíjr f
gangs ■ ■ 'fnjinfíaÆM-bandssbjórnáap \
B.F.'Ö1.0'óg ágreihings um fé-
lagsmál, þá er ég ekki leng-
ur i stjórn Reykjavíkurdeild-
arinnar og óska eftir að nafn
mitt verði aldrei framar
bendlað við það félag og
stecnu þess.
Að endingu vil ég þakka
ölium sem ég hef haft sam-
skipti við sem deildarformað-
ur í B.F.Ö., sérstaklega dag-
blöðunum, umferðaryfirvöld-
unum og samtökum leigubíl-
stjóra og bíiklúbbunum fyrir
góða samvinnu við að reyna
að koma á umferðarmenn-
ingu.
Virðingarfyllst,
Ví.ggó Oddsson.
Nítján kjörnir
í stjórn V. í.
Aðalfundur Verzlunarráðs fs
lands hefur staðið yfir undan-
farna daga hér í Reykjavík.
Fyrsta fundardaginn voru birt
úrslit stjórnarkjörs. Stjórn
Verzlunarráðsins skipa nú: Birg-
ir Einarsson, ísleifur Jónsson,
Gunnar Ásgeirsson, Hans R.
Þórðarson, Kristján G. Gíslason,
Eggert Kristjánsson, Egill Gutt-
ormsson, Hilmar Fenger og
Gunnar Friðriksson, allir til-
nefndir af sérfræðingafélögum
VÍ, en kosnir af meðlimum utan
sérgreinafélaga eru: Gunnar
Guðjónsson, Þorvaldur Guð-
mundsson, Magnús Víglundsson,
Magnús J. Brynjólfsson, Othar
Ellingsen, Sveinn Guðmundsson,
Hallgrímur Fr. Hallgrímsson,
Tómas Björnsson, Sigurður Óli
ólafsson og Sturlaugur H. Böðv-
arsson.
Kyuning á verk-
um Vilhjálms frá
Skáholti í MR
Framtíðin félag nemenda við
Menntaskólann í Reykjavík,
efndi til bókmenntakynningar á
Verkum Vilhjálms skálds frá
Skáholti í fyrrakvöld, í Iþöku,
félagsheimili skólanemenda. Þar
flutti Helgi Sæmundsson rit-
stjóri erindi um skáldið og
verk þess, Ævar Kvaran rit-
böfundur las upp sjö ljóð Vil-
hjálms og iSigfús Halldórsson
lék og söng lög eftir sjálfan
sig við ljóð skáldsins. Að lo'k-
um las skáldið sjálft kvæði sitt:
Jesú Kristur og ég.
Slysavarnafélag-
inu berast gjafir
Nýlega barst Slysavarnafé-
lagi íslands gjöf að upphæð
10 þús. kr. frá hjónunum Unni
Erlendsdóttur og Guðmundi
Jóh. Kristjánssyni frá Vatns-
dal Rauðasanclshreppi, til minn-
ingar um son þeirra, Erlend,
sem drukknaði 13. júní sl. í
Patreksfirði, undan Vatnsdal,
22 ára gamall. Er þetta stofn-
framlagið í sjóð til minningar
um Erlend.
,Þá hefur frú Sigrún Árna-
dóttir, Garðskagavita, gefið
Slysavamafélaginu 2000 kr. til
minningar um bróður sinn, Pál
Árnason frá Þverá, Reykja-
hverfi, S-Þingeyjarsýslu.
Vinningur
Fokheld íbúS í
Stóragerði 8
að verðmæti kr. 180.000.00
Aukavinningur
5000.00 króna vöru-
úttekt fyrir næsta
númer fyrir ofan og
næsta númer fyrir
neðan vinningsnúmerið
íbúðin
er um 93 fermetrar
auk stigahúss, geymslu
og sameignar í þvotta-
húsi, reiðhjóla- og barna-
vagnageymslu, göngum
o.þ.h. í kjallara
íbúðin er með vatns-
geislahitalögn.
Dregið 23. desember.
Þjóðviljinn írestar ekki
happdrætti.
Miðinn kostar 20 krónur.