Þjóðviljinn - 23.10.1960, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 23.10.1960, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 23. október 1960 Frásögn frá Húsavík Karl 0. Runólfsson tónskáld FramhéJd af 7. síðu. að ná a.m.k. 20 sekl. af 67 ( gráðu heitu vatni. 1872 varð mikill jarðskjálfti á Húsavík og í nágrenni og gliðnaði þá jörðin í sundur ofan úr Húsa- víkurfjalli og í sjó fram. Rifan seig svo saman aftur, en á stöku stað eru enn' „augu“ í jarðs'korpunni og upp úr þeim leggur yl, því undir er heitt vatn. Húsvíkingar eiga ekkert fé- lagsheimili. Þeir eiga að vísu gamalt samkomuhús, en það er ekki til neinnar fyrirmynd- ar. Ráðamönnum bæjarins er Ijóst að byggja verður félags- heimili innan tíðar, en þeir hafa hugsað sem svo að láta skólann, sundlaugina og virkj- unarframkvæmdir sitja 'í fyr- irrúmi og einbeita sér síðan að byggingu glæsilegs félags- heimilis. Félagslíf á Húsavik ihefur alltaf staðið með blóma. Tveir kórar eru starfandi, leikfélag sýnir árlega (næsta verkefni lí'klega Elsku Rut), bridgesveit Húsvíkinga hefur náð gcðum árangri í mótum víða um land, en skákáhugi er ekki sérlega mikill. Aðstaða til íþróttaiðkana er nú ágæt eftir tilkomu sundlaugarinnar og íþróttahússins. Bæjarstjórnin er skipuð 2 scsíalistum, 2 framsóknar- mönnum, 2 alþýðuflokks- mönnum og 1 sjálfstæðis- manni. Núverandi bæjarstjóri er Áskell Einarsson,- en hann tó'k við starfi 1. maí 1958. sj. Skákþáttur Framhald af 4. síðu. (Nú strandar 41. Kh2 á 41. — — Hxf2| ! 42. Hxf2, Dxg3t; 43. Khl, Dxh3ý; 44. Kgl, Hg8f og mátar. Hvítur á því ekki um margt að velja.) 41. Dxe4. (Þetta leiðir einn- ig til skjótra leiksloka.) 41.------Dxli3; 42. Dxh4, Dxh4; 43. gxh4, Hg8ý; 44. Khl, Hf4. Og Jón gafst upp, enda mát óverjandi Framhald af 4. síðu hljómsveit, og mun alimargt af því tagi liggja eftir hann, þó fæst af því hafi verið gef- ið út og margt aldrei heyrzt cp'nbcrlega, enn sem komið er. Að öðru leyti hefur hann einnig unnið hið merkasta verk á þessu sviði, bæði með kennslustörfum og þjálfun lúðrasveita. Um það, sem eft- ir Karl l'ggur í tónskáldskap, verður ekki dæmt til fulln- ustu að svo stöddu, með því að það er, sem fyrr segir, að mestu óprentað. En um það, sem komið hefur fyrir al- menningseyru, er óhætt að segja, að það er allt athygl- isvert og sumt ágætt. Karl á það meira að segja til að láta frá sér fara hreinustu snilld- arhugmyndir. Þetta er að vísu stórt orð, en ég ætla, að „Maríuvers" úr tónlistinni við leikritið „Jón Arason", til dæmis að taka, réttlæti það. Kafl O. Runólfsson er sér- kennilegur í sínum tónskáld- skap, og þar kveður oft við dálítið hrjúfan og ramman tón. Þessi tónn sver sig ein- att í ætt við íslenzk þjóðlög og vikivakalög. Það er engin tilviljun, því að Karl hefur alla tíð haft sérstaklega mikl- Sigurveig Hjaltested — Snæbjörg Snæbjörnsdóttir Söngskemmtun í Gamla bíói miðvikudaginn 26. október, klukkan 7 e.h. Aðgöngumiðar seldir ‘i 'Bókaverzlun Blöndal, Skóla- vörðustíg og Eymundsson, Vesturveri. Undirleikari: Ragnar Björnsson. /B 37o Æ/o/q: § t -j 4 1 $ /Q ■3.QS 73>i'<2.Jri7?e.rz7>\ 1 1 o dh ^50 Vinningur Fokheld íbúð í Stóragerði 8 að verðmæti kr. 180.000.00 Aukavinningur 5000.00 króna vöru- úttekt fyrir næsta númer fyrir ofan og næsta númer fyrir neðan vinningsnúmerið íbúðin er um 93 fermetrar auk stigahúss, geymslu og sameignar í þvotta- húsi, reiðhjóla- og barna- vagnageymslu, göngum o.þ.h. í kjallara íbúðin er með vatns- geislahitalögn. Dregið 23. desember. Þjóðviljinn frestar ekki happdrætti. Mioinn kostar 20 krónur. ar mætur á íslenzku þjóðlög- unum og sótt þangað holl og góð áhrif. Og hér er nú um að ræða eitt helzta einkennið á Karli Runólfssyni sem tón- ská'di: Hann er einatt ís- lenzkur í miklum hluta sinn- ar tónlistar. Hann er eitt þeirra tónskálda á landi hér, sem mestan þátt hafa átt í því að r.ækta hið íslenzka i tón- list vorri og leiða það til virð- ingar, og það mun jafnan verða talið • honum til gildis, þvi að á sliku ér- einmitt hin mesta nauðsyn nú, er innan- tóm erlend atóm- og elekttrón- músík virðist vera að ná vax- andi tökum á yngstu tón- skáldakynslóð vorri. Fyrir þetta munum vér jafnan verða Karli O. Runólfssyni þakklátir. B.F. Útvarpsdagskráin Framhald af 12. síðu. mæliserinda útvarpsins: Is- landslýsing. Dr.. Sigurður Þór- arinsson hefur skipulagt þenn- an erindaflokk. Framhaldsleikritið Anna Karenina, gert eftir hinni frægu skáldsögu Leós Tolstojs. Þýðandi er Áslaug Árnadóttir og leikstjóri Lárus Pálsson. Helga Valtýsdóttir leikur Önnu Kareninu. Utvarpssagan verður .„Lækn- irinn Lúkas“, ný söguleg skáld- saga eftir amerísku skáldkon- una Taylor Caldwell. Saga þessi hefur hlotið miklar vin- sældir erlendis. Frú Ragnheið- ur Hafstein flytur söguna þrisvar í viku, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 21.30. Þá má nefna kafla úr . óprentaðri ævisögu Jónasar Jónssonar bónda á Hrauni í Öxnadal, en Guðmundur S. Friðfinnsson rithöfundur hefur skráð hana og flytur. Nýir skemmtiþættir verða annað veifið og verður FIosi Ólafsson með hinn fyrsta. Eft- ir hátíðir kemur Svavar Gests með nýjan þátt. Loks má nefna samta'sþætti, sem Sigurður Benediktsson sér um -og þátt um heilbrigðismál, sem í undir- búningi er. Sljórnarkreppa í Ausurríki I gær baðst Julius Raab, for- sætisráðherra Austurríkis, Jausn- ar fyrir sig og ráðuneytið. For- seti landsins, Adolf Schárí, neit- aði að taka lausnarbeiðnina til greina. Raab er leiðtogi Þjóðarflokks- ins, sem er i samsteypustiórn með sósi’aldemókrötum. Flokk- arnir eru komnir í hár saman út aí hækkuðum ellilífeyri. Flokkarnir munu sennilega skríða sarnan í stjórn. Raab ; tók í gær aftur til við að reyna ; að sætta þá. Harn hefur verið kanslari í 7 ár. Trúlofunarhringir, Stein b-ingir, Hálsmen, 14 og 18 kt. gull. vv.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.