Þjóðviljinn - 22.11.1960, Blaðsíða 5
iiiiiiiiimimiiiimiiiiiiiiimiiiimimmiiiimimimiiiiimiiiiniiiiiM
Þriðjudagur 22. nóvember 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Skofum bannað ú sjá
Enda þótt kviðiómur í Lon-
(lop hafi komizt að þeirri nið-
urstöðu að skáldsaga D. H.
Lawrence, • Elskhugi lafði
Cliatterleys, sé ekki ósiðsamleg
og því ekkert til fy.rirstöðu út-
gáfu bókarinnar, er talið að
bannað muni áfram að selja
hana í Skotlandi.
Skozkir lögfræðingar eru
þsirrar skoðunar að úrskurður
kviðdómsins í London gildi ekki
fyrir Skotland.
I síðustu viku bannaði
jskozka kirkjan sýningar á einu
I kunnasta leikriti heimsbók-
menntanna, Lysistrata, sem
gríska skáldið Aristofanes
samdi fyrir meira en 2.000 ár-
um. Lysistrata er gamanleikur
og segir frá því þegar konur
í Aþenu bundust samtökum um
að neita að eiga mök við eigin-
menn sína til að fá þá til að
hætta við að fara í stríð. Þeim
tókst bragð'ð. Ritskeðunar-
nefni skozku kirkjunnar litur
svo á að leikrit Aristofanesar
sé ósiðsamlegt.
Geimfarar þjálf-
aðir í átilegu
i eyðimork
Hverjir skyldu þetta vera?
Eftir útiitinu að dæma
gætu þeir verið hirðingjar
frá Sahara, en svo er þó
ckki. Þetta eru bandarísku
Iiermennirnir sjö sem valdir
hafa verið til þjálfunar und-
ir ferð út í geiminn. Þetta
annarlega útlit þeirra á
myndinni stafar af því að
liún var tekin eftir að þeir
höfðu loldð einu þjálfuuar-
prófinu. Þeir höfðu venð
skildir eftir einir síns liðs
í fjóra daga í eyðimörkinni
í Nevada í Bandaríkjunum
og áttu að bjarga sér þar
eins og bezt þeir gátu.
Þessa þolraun voru þeir
látnir ganga undir vegna
þess að búast má við að
geimskip það sem einhver
þeirra verður látinn fara
með komi niður á eyðimörk
einhvers staðar á jörðinni,
þótt ekld sé til þess ætlazt,
Bandaríkjamönnum hefur
enn ekki tekizt að búa til
stjórniæki í eldflau.gar sem
alveg má reiða sig á.
iiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
Patrice Lúmúmba, forsætis-
ráðherra Kongó hefur sent
forseta Allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna bréf með upp-
ástungu um að póiitíska krepp-
an í Kongó verði leyst með
frjálsri þjoðaratkvæðagre'ðslu.
í 1 j óða ra tk væðagre ið slunni
skuli skorið úr um það, hvert
vera slculi valdsvið forssta
landsins, og síðan skuli velja
forseta með beiniim kosuingum.
Með þessum hæ:;' fengi þjóóln
sjálf að velja •leiðtora sinn.
iieira en sexffu sinnum
Bandaríkin hafa enga þörf
fyrir fleiri kjarnorkuvopn en
þau eiga nú þegar ög gætú því
hætt framleiðslu þeirra.
Bandaríski vísindamaðurinn
og nóbelsverðlaunahafinn dr.
Linus Pauling skýrði blaða-
mönnum frá þessu í Rochester
í New Y;.rk ríki um síðustu
helgi. Hann ysagði að gera
mætti ráð fyrir að Bancaríkin
ættú nú þegar 20.000 kjarn-
orkusprengjur, sem hver um
sig hefði sprengimátt á borð
við eina milljón lesta af TNT
a. m. k.
Tvleð þrjú hundruð slíkum
sprengjum myndi vera liægt að
leggja Sovétríkin algerlega í
eyði og með þessum 20.000
sprengjum mætti þvi gereyða
þau 60 sinnum.
Dr. Pauling sagði að tilraun-
ir þær sem gerðar hafa verið
með kjamorkusprengjur hefðu
nú þegar eitrað andrúmsloftið
svo að það myndi hafa í för
| með sér arfgenga sjúkdóma og
i líkamsgalla „í þúsundir ára“.
INNHEIMTA i
LÖGFRÆt)l-SrÖT}F
maKMmmm&i*
Bækur Menn;*
FÉLAGSBÆKUR
Félaqsbækur Bókaútgáíu Menningarsjóðs og
Þjóðvinafélagsins eru komnar út. Félagsmenn í.
Reykjavík eru góðfúslega beðnir að vitja bóka
sinna í afgreiðsluna, Hverfisgötu 21.
Auk Andvara, Almanaks og bókar um Þýzka-
land, Austurríkí og Sviss í flokknum „Lönd og
lýðir (höf Einar Ásmundsson hrlm.), geta félags-
menn valið tvær af eftirtöldum bókum:
1. Hreindýr á íslandi. eftir Ólaf Þorvaldsson.
2. Mannleg náttúra, sögur eftir Guðmund
Gíslason Hagalín.
3. Sendibréí frá Sandströnd, skáldsaga eft-
ir Stefán lónsson.
4. A Blálandshæðum, ferðabók frá Afríku
eftir Martin Johnson.
5. lón Skálholtsrektor, ævisaga eftir Gunnar
M. Magnúss.
Árgjaldið er kr. 190.00 fyrir félagsbækurnar
óbundnar, kr. 280.00 í bandi.
AÐRAK tlTGÁFUBÆKUR
Bitsafn Theodoru Thoroddsen. Dr. Sigurður
Nordal gaf út. og ritar um skáldkonuna.
Útsöluverð kr. 225.00 í skinnlíki 280.00 í
skinnbandi.
Ævintýraleikir eftir Ragnheiði Jónsdóttur.
Myndir eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur.
Útsöluverð kr. 42.00 ób.( 58.00 í bandi.
Sélarsýn, kvæði Bjarna Gizurarsonar í Þing-
múla. Jón M. Samsonarson gaf út.
Útsöluverð kr. 75.00 í bandi.
♦ A
Hamskiptin, saga eftir Franz Kafka: Hannes
Pétursson þýddi.
Útsöluverð kr. 75.00 í bandi.
Félagsmenn fá þessar og eldri útgáfubækur
forlagsins með 20—25% afslætti.
Komið í afgreiðsluna, Hverfisgötu 21, og
gerið góð kaup.
Bókaútgáfa Menningarsjóð og Þjóðvinafélagsins.