Þjóðviljinn - 18.05.1961, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.05.1961, Blaðsíða 7
iiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin ... ............................................................................. £Ö(il Ifiiít .81 ‘itr§iib: ---- Fimmtudagur 18 maí 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (7 imiimimimimiJimimiiiiiimmmmmmmmmmmii'immmimmmmmmmimimmmmmmmimmmmmi! „Útivist með Vilhjálmi vermir blóð í œðum” Tæplega helmingur kvennanna gekk á Iíaiiðbrók( en hinar gengu kringum brókina. Sam'band íslenzkra sam- vinnufé!aga hafur í annað skipti efnt til húsmæðraviku ur.dir leiðsögn og stjóm Olgu Ágústsdóttur, hús- mæðrafulltrúa. Húsmæðra- vikuna sóltu 44 konur frá 18 kaupfélögum viðsvegar að af landinu. Á föstudag var blaðamönnum boðið að Bifröst til að fylgjast með síðustu tímum húsmæðra- vikunnar. Lagt var af stað héðan E'nn daginn kcpptu konurnar í { rístökki undir stjórn Vil- hjálms Elnarssonar. úr Reykjavík um miójan dag og komið að Bifröst. í þann mund að hringt var til kvöldverðar, eftir á- nægjulega ferð með Jóni Árnþórssyni fulltrúa. Efiir kvöldverð gafst. okk- ur tækifæri til að spjalla við húsmæðumar yfir kaffi- bollunum og voru þær hver annarri ánægðari með ver- una að Bifröst og allan að- búnað. Þær voru allar sam- mála um, að þetta hefði verið dásamleg fræðslu- og hvíldarvika, og allar ósk- uðu þess, að sem flestum kynsystrum ^þeirra gæfist kostur á að dvelja þarna eina viku í jafngóðu yfir- læti. Þær höfðu ferðazt iim Borgarfjörð, lilýtt á messu í Reykholti og setið á- nægjulegt kaffiboð prest- hjónanna þar. 'Einnig heim- sóttu þær húsmæðraskól- ann að Varmalandi og sið- ast. en ekki sízt voru þær svo heppnar að eiga dag- legar útivistarstundir með Vilhjálmi Einarssyni. Ein kvennanna hafði orð á, hve gaman væri, að jafn þekkt- ur maður og Vilhjálmur skyldi vera svo yfirlætis- laus og ’blátt áfram — og að einmitt þeim á hús- mæðravikunni skyldi veitast sú ánægja að njóta tilsagn- ar hans í útivistartímunum. Frú Maria Theresa Rom- ero hélt fyrirlestur fyrir konurnar um heimilishætti á Spáni, Óli Valur Hansson fræddi þær um skrúðgarða og Guðmunúur Sveinsson, skólastjóii Samvinnuskól- ans hélt fyrirlestur um listir. Á föstudagskvöldið héldu konurnar kvöldvöku og skemmtu sjálfum sér og gestum með söng, kveðskap, upplestri, leikþætti og ræð- um fluttum í gamni cg al- vöru. Á kvöldvökunni vakti sérstaka athyglþ hve skag- firzku konurnar komu vel fyrir sig orði og voru hag- mæltar. Kvöldvökunni lauk með sameiginlegri kaffi- drykkju og var útbýtt á öll borð vísuhelming, sem við- staddir voru beðnir um að botna, veita átti verðlaun fyrir bezta botninn. Fyrri vísuhelmingurinn: „Útivist með Vilhjálmi vermir blóð í æðum. og bezti botninn: Skyld’ hún enda í algleymi upp á sigurhæðum.“ Botninn gerði frú Margrét Magnúsdóttir frá Nautshóli í Skagafirði. Á laugardagsmorgun voru síðustu fræðsluerir.ilin flutt og var dagskráin hafin með morgunsöng. Baldvin Þ. Kristjánsson talaði um tryggingamál, Vilhjálmur Einarsson fræddi þær um líkamsrækt og Helgi Sæm- undsson flutti fróðlegt er- indi um bókmenntir eftir ís- lenzka alþýðumenn og gerði hann lieizt að umtalsefni sínu bækur Magnúsar Björnssonar frá Syðra- Hóli. Síðdegis á laugardag var húsmæðravikunni slitið. At- höfnin hófst með því, að leikinn var kafli úr Caval- eria Rusticana, þá flutti Olga Ágústsdóttir hús- mæðrafulltrúi kveðjuávarp, Sigurlaug Sigurðardóttir lalaði fyrir hönd kvennanna á liúsmæðravikunni, og Er- lendur Einarsson forstjóri S.l.S. sleit húsmæðravik- unni. Sagði hami meðal annars: „að það þyrfti marga menn til að byggja hús —'en aðeins eina konu ■til að gera það að heimili, og að sizt sæti á karlmönn- Olga Ágústsdóttir, hús- mæðrafulltrúi S.l.S. flytur kveðjuávarp. um að gleyma að þakka húsmæðrunum fyrir allt, sem þær gerðu fyrir fjöl- skyldu e:na, la’ ri og þjcð. 'Ennfremur kvaðst hann viss um, — ,,að kona næði al- drei jafn langt í lífinu og maðurinn, því hún hefði aldrei neina eiginkonu sér við hlið“. Hvaða kona hef- ur fengið betri meðmæli? Því miður veittist mér ekki sú ánægja að fylgjast með konunum á húsmæðra- vikunni nema takmarkaðan tima en „glöggt er gests- augað“ og ekki gat farið fram hjá neinum, að hér var stigið spor í ré'tta átt, og grátlegt að ekki skuli fleiri húsmæður og konur um land allt eiga kost á slíkri fræðslu- og hvíldarviku. Þaraa var ekki verið að troða í þær fræðs’u um mat- arii’búning og þjónustu- brögð, heldur flutt fróðleg erindi um listir, bókmenntir, skrúðgarða og ýmis mál er alla varða. Sýndar voru kvikmyndir frá Olympíu- leikunum siðustu og farið í kynnisferðir um nágrenn- ið. Allt var gert til að fá konurnar til að gleyma amstri og áhyggjum heimi'- isins. Margar þeírra höfðu ekki setið á skólabekk í fjörutíu ár, og sumar ekki nema nokkrar vikur af æv- inni. Samband íslenzkra sam- vinnufélaga er eina stofn- unin hér á larrii, sem sýnt 'hefur viðleitni í þessa átt, þrátt fyrir mörg kvenfélög um allt land, og ýmis félög er segiast vinna að bættum hag kvenna, og þykjast viija standa fyrir hvíldarvikum fyrir mæður. Sum þessara félaga hafa haft þeita á stefnuskrá sinni yfir tutt- ugu ár og ekbert. orðið á- gengt, þrátt fyrir sn’kjuriag á hverju ári og jafnvel oft- ar, og einhver fulltrúi frá þeim vælir í Ríkisútvarpið og biður landsmenn að bregðast vel við, þegar blessuð börnin koma að bjóða merkin blöðin, bækurnar og hvað það nú er allt saman, og er sannarlega tinii til kominn að rannsaka starf- semi þessara félaga og al- menningur fái að vita, hvernig gjafafé hans er varið. Um allí land eru skólar, sem standa auðir marga mánuði á dri og nota mætti til að halaa eina eða fleiri húsmæðravikur með svip- uðu sniði og þær sem 'S.Í.S. hefur gengizt fyrir. Ekkert er auðveldara en fá fróða m'enn úr viðkomandi héraði til að flytja fræðsluerindi og með litlum tilkostnaði má fá frcðlegar skugga- myndir til að sýna og svo mætti lengi telja. Fjár til þessa er hægt að afla með ýmsu móti og ætti kvenfé- lögunum að vera bezt kunn- ugt um það. Úg vil enda þessa frásögn piína með því að óska Sam- bandi íslenzkra samvinnu- félaga til hamingju með brautryðjendastarf sitt og vona, að einhver verði til að feta í fótspor þess áður en langt um líður. Ðóra Skúiadóttir. 4 :md þjóðardýrgrípir Þjóð og Þótt allir íslendingar fagni því að sjálfsögðu, að nú virð- ast horfur á, að endurheimt hinna fornu handrita eigi ekki langt í land, er sá fögn- uður blandinn ugg hjá mörg- um. Menn spyrja sjálfa sig: Getum við búið handritunum það öryggi, að verjandi sé að flytja þau hingað heim? Eða eru við kannski að flytja þau heim til þess að láta eina kjamorkusprengju full- komna það verk, sem húsleka og vangeymslu liðinna alda, æðandi öldum Atlantshafsins og eldum Kaupmannahafnar ekki tókst að ljúka? Þetta eru eðlilegar spurn- ingar. Fáir staðir eru ófýsi- Jegri til geymslu menningar- fjársjóða en útvarðsstöð í kjarnorkustríði, en allt bend- ir til, að okkar landi sé nú ætlað það hlutverk. Og mönn- um koma þá helzt þau ráð í hug að geyma handritin úti á landi, þar sem tortímingar- hættan er minni eða að byggja nógu rammgerðar hvelfingar nógu langt niðri í jörðinni, ef geyma á þau í höfuðstaðnum. En? — Geymum við ekki þegar sístækkandi meirihluta þjóðarinnar einmitt á þessu svæði, við sunnanverðan Faxaflóa. Þar sem hættan er mest ? GejTnum við ekki þar flestar þaer stofnanir á sviði menningar-, atvinnu- og stjórnmála, sem gera okkur að sjálfstæðri menningar- þjóð? Á þá kannski að grafa það allt í jörðu? Eigum við að grafa fólkið við störf sín? Eigum við að grafa Alþingi og stjórnarráð, Háskólann og hæstarétt, Fiskifélag og Bún- aðarfélag? Af hverju var þá ekki t.d. bæjarsjúkrahúsið heldur grafið 15 hæðir ofan í jörðina en að byggja það 15 • hæðir upp í loftið? Eða er þjóð minna virði en þjóð- ardýrgripir? Þannig mætti halda áfram að spyrja < fjarstæðukenndra spurninga, vegna þess, að einmitt handritamálið, um- hugsunin um varðveizlu handritanna, varpar ljósi á hið fjarstæðukennda í að- stöðu þjóðarinnar sjálfrar. Ef okkur ber skylda til gagn- vart öldum og óbomum, gagnvart þjóðmenningu 'okk- ar og heimsmenningunni að varðveita 'hina forau menn- ingarfjársjóði, ef við fáum þá í hendur, ber okkur þá minni skylda til að varðveita þjóð- ina sjálfa? Er það ekki aug- ljóst, að handritin verða ekki annað en uppstoppaður geir- fugl eftir að sú þjóð, sem er lifandi tengiliður milli menn- ingarskeiðs handritanna og nút’mans, hefur verið þurrk- uð út, — tákn þess sem var en er ekki lengur? Ef við ætlum að rísa urd- ir því sam menningarþjóð að véita handritunum viðtöku, þá verðum við að búa þeim stað sem þeim er samboðinn í höfuðborginni sjálfri. Við verðum að koma á fót stofn- un, sem geri Reykjavík að slíkri miðstöð norrænna fræða, að til hennar verði lit- ið sem þess menntaseturs, eri heimurinn megi ekki missa. En þá er óhjákvæmilegt fyrir okkur að gera oklcur það- ljóst, að við höfum ekki efni. eða ástæður til að taka þátt í hernaðarbrölti, til að láta gera land okkar að framva'rð- stöð, sem stórveldi geti not- að að vild sinni í æðisgengnu valdatafli. 'Herseta og hand- rit eiga ekki saman á íslandi. Vel væri ef einmitt hugs- unin um handritin yrði til þess að opna þau augu sem áður voru lokuð, fyrir að- stöðu þjóðarinnar og þeim hættum, sem hún er ofurseld. Og ef það yrði til þess, að fleiri tækju höndum saman. um að víkja öllu hernaðar- brölti burt frá ströndum þessa lands, þá mætti segja með fullum rétti að handritini hefðu enn á ný bjargað þjóð- iuni frá glötun. Á. A*

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.