Þjóðviljinn - 13.09.1961, Blaðsíða 5
Margföld afbrot
þyngdu dómana
MOSKVA — Fyrir skömmu
voru fjórir menn dæmdir til
dauða i Alexandroff, um 100 km.
fyrir norðan Moskvu. Þeir höfðu
skipulagt og tekið þátt í árás á
lögregiustöð Alexandroff. Fimm
aðrir, þar á meðal ein kona, voru
dæmdir í 15 ára fangelsi hver.
Dómar þessir hafa vakið tals-
verða athygli, vegna þess að að-
cins er hægt að dæma fólk til
dauða í Sovétríkjunum fyrir
þyngstn afbrot.
Árásin á lögreglustöðina í Al-
exandroff var skipulögð af flokki
misyndismanna, sem hinir
dæmdu veittu forystu. Ætlun á-
rásarmannanna var að nema
brott fanga, sem lögreglan hafði
handtekið fyrir óspektir á al-
mannafæri.
Ástæðan til þess að dómarnir
yfir árásarforingjunum eru svo
þungir, er fortíð fjögurra höfuð-
sakborninganna. Einn þeirra,
Barbansjikoff, hefur fjórum sinn-
um áður fengið stranga refsidóma
fyrir ofbeldisverk, sem ein hefðu
nægt til að baka honum dauða-
refsingu. Annar, Sidoroff, hefur
þrisvar áður verið dæmdur fyr-
ir að stela eigum ríkisins og fleiri
glæpaverk. Sá þriðji, Savasjeff,
hefur áður fengið dóm fyrir hlut-
deild í morði. Ekki hafa hinsveg-
ar birzt fréttir hver fyrri glæpa-
vérk fjórða sakborningsins voru.
Sakbomingarnir 15, sem fengu
fangelsisdóma, hafa allir áður
hlotið dóma fyrir þjófnað og
margskonar önnur afbrot. Allt
þetta fólk hafði mjög komið við
sögu lögreglttnnar áður, og ekk-
erf;Iátið;-sér segjast við fangelsis-
vist og teetrunarhússvinnu. Eigi
að síður eru margir undrandi
yfir þessu.m hörðu dómum, og
benda margir á, að þeir séu í
mótsögn við alla þróun í hegn-
ingarloggjðf Sovétríkjanna. Höf-
ORA.N, ALSÍR 12/9 — Einn
Serki var drepinn þegar óeirðir
urðu í Oran í dag, annan daginn
1 röðí JÞ,að voru átök á milli
Serkja og Gyðinga og kveiktu
Gyðingar m. a. í fimm verzlun-
um Serkja-.-Um 2000 manns tóku
þátt í óspektunum þegar þær
stóðu sém ' hæst.
’UÁRÍS _ Í2/9 Franski sósíal-
demókratafVokkurinn tilkynnti í
'dag að hann myndi bera fram
vaniraust á stjórn Michel Debré.
uðsjónarmiðin í sovézkri hegning-
arlöggjöf er viðleitnin til að bæta
afbrotafólk með uppeldisáhrifum
og reyna að gera það að nýtum
þjóðfélagsþegnum. Aðrir benda á,
að með þessu hafi yfirvöldin
viljað sýna fram á, að forhertir
atvinnuglæpamenn geti ekki
endalaust syndgað upp á náðina
í trausti þess að þeim verði stöð-
ugt fyrirgefið vegna uppeldissjón-
armiðanna í refsilöggjöfinni.
Atvinnuglæpamenn
Skilorðsbundnir dómar eru
mjög algengir í Sovétríkjunum.
Fjöldi fangelsa hefur verið
lagður niður. Lögregluliðinu
hefur verið fækkað um meira en
helming á undanförnum órum,
og afbrotunum hefur að sama
skapi farið fækkandi.
En takmarkinu að útrýma
allri glæpahneigð hefur enn ekki
verið náð, þótt mikið hafi áunn-
izt. Að vísu eru til borgir og
stór svæði þar sem hvorki eru
til fangelsi né lögreglulið í
Sovétríkjunum vegna þess að
glæpum hefur alveg verið út-
rýmt. En jafnframt fækkun
glæpaverka og mildari refsilög-
gjafar, hafa einstaka forhertir
glæpamenn geng.ið á lagið og
gerzt stórtækir á afbrotasviðun-
um í skjóli fámennrar lögreglu
og mildari refsinga. Slíkt hefur
gerzt í Alexandroff.
Forsetaförin
Framhald af 3. siðu.
sömu rót. Milli hins íslenzka og
kanadíska er enginn árekstur,
og við vonum, að hinn íslenzki
arfur megi eiga nokkurn þátt í
að móta hina vaxandi menningu,
frið og farsæld í þessu mikla
framtíðar landi.“
í gær héldu forsetahjónin á-
fram för sinni til Ottawa og
tóku forsætisráðherra Kanada,
John Diefenbaker, og utanríkis-
ráðherra á móti forseta og fylgd-
arliði hans á flugvellinum kl.
4.30 síðdegis, en í gærkvöld
hafði forsætisráðherrann boð
inni. í dag mun forseti og fylgd-
ar lið hans halda kyrru fyrir í
Ottawa, skoða borgina og heim-
sækja merka staði. f kvöld held-
ur forseti kvöldverðarboð að
Chateau Laurier þar sem hann
býr.
Bótagreiðslur
almannatrygginganna
■t /ji t - *•
•í' Gullbringu- og Kjósarsýslu fyrir 3. ársfjórðung fara
fram sem hér segir:
1 Seltjarnarneshreppi:
Föstudaginn 15. sept. kl. 1—4.30 e. h.
í þinghúsi hreppsins.
í Grindavíkurhreppi:
Mánudaginn 18. sept. kl. 10—12 f. h.
I Gerðahreppi:
Mánudaginn 18. sept. kl, 2—4 e. h.
f Miðneshreppi:
Firhmtudaginn 21. sept. kl. 2—4 e. h.
í Njarðvíkurhreppi:
Mánudaginn 18. sept. ld. 2—5 e. h. og fimmtudaginn 21.
sept. kl. 9—12 f. h. og 1—4 e. h.
Á öðrum stöðum fara greiðslur fram eins og venjulega.
‘ :Folk er áminnt um að vitja bóta sinna á tilgreindum
tíma og gera skil á ógreiddum þinggjöldum.
1 Sýsíúmaðurinn í Gullbr.- og Kjósarsýslu.
-..fí—t feé —g:-----------1---------------
FRETTABREF FRA SÞ
Fólksfjölgunin og
efnahagsþróunin
Danmörk og Sv'þjóð hafa
sent Sameinuðu þjóðunum bréf
þar sem lagt er til að vanda-
mál fólksfjölgunar og efnahags-
þróunar verði tekin fyrir á
næsta Allsherjarþingi. í athuga-
semd sem bréfinu fylgir segir
rneðal annars:
..Árleg fjölgun jarðarbúa nem-
ur 50 milljónum manna. sem
allir hafa rétt til viðhlítandi
lífskjara. Tveir þriðju hlutar
mannkynsins búa nú við kjör
sem ekki er hægt að kalla
mannsæmandi. Vandamál fólks-.
fjölgunarinnar er þvi Samein-
uðu þjóðunum og sérstofnunum
þeirra mjög nákomið. Sú vinna,
sem helguð er þessu vandamáli,
fær ennfremur aukna þýðingu
fyrir möguleikana á að tryggja
framtíðarjafnvægi milli fólks-
fjölgunar og efnahagsþróunar.“
„Heilbrigði mæðra og barna
ásamt menntunarskilyrðum æsk-
unnar hlýtur að sitja í fyrir-
rúmi í sambandi við fólksfjölg-
unarvandamálið, auk þess sem
hér er einnig um að ræða mann-
réttindi umræddra hópa. Það
hlýtur að vera ákjósanlegra að
hafa minni fjölda heilbrigðra,
vel alinna og menntaðra barna
heldur en meiri fjölda veiklaðra,
vannærðra og fákunnandi barna.
Ör fólksfjölgun getur haft í för
með sér efnahagslegt álag á
þjóðarheildina, en þegar öll
kurl koma til grafar eru það
einstakar fjölskyldur sem finna
fyrir þessu álagi og verða að
beraþað. Sérhver ráðstöfun, sem
rikisstjórn kann að gera til að
auðvelda takmörkun barneigna,
verður að miða að því að bæta
ástandið hjá einstökum fjöl-
skyldum og verður að skirskota
til ábyrgðartilfinningar þeirra.
Jafnvel þó ekki geti verið um
djúptækan mismun að ræða milli
hagsmuna þjóðarheildar og ein-
stakrar fjölskyldu, þá verður að
leggja a það áherzlu, að virða
ber rétt sérhverrar fjölskyldu
til að taka eigin ákvarðanir um
hvernig fullnægt skuli óskum
hennar, hugsjónum og ábyrgð“. . .
„Þróunin á vettvangi fólks-
íjölgunar í heiminum nú er orð-
in svo ískyggileg, að um hana
verður ekki aðeins fjallað með
rannsóknum lærðna manna. í
stórum hlutum heimsins er
vandamál fræðslunnar hjá ein-
stökum fjölskyldum að verða æ
þyngri byrði. Ríkisstjórnir Dan-
merkur og Svíþjóðar eru • þvi
sannfærðar um, að á dagskrá
Allsherjarþingsins beri að taka
upp- umræður í anda raunsæis
og umburðarlyndis um horfurn-
ar á því, að Sameinuðu þjóðirn-
ar geti tekið virkan þátt í við-
leitninni við að finna lausn á
þessu ískyggilega vandamáli,
sem snertir sambandið milli
fólksfiölgunar og efnahagsþró-
unar.“
Vandamál Palnstínu-
flótta^anna rannsak-
að af S.Þ.
Sameinuðu bjóðirnar hafa fal-
ið sérstökum fulltrúa sínum að
fara til landánna víð austanvert
Miðjarðarhaf og athuga, hvaða
■raunhæfir möguleikar séu á þvi
að stuðla að lausn á vandamál-
um flóttamanna frá Palestínu.
Sáttanefnd S.Þ. fyrir Palestinu
hefur fengið dj. Joseph E. John-
son þetta hlutverk. í samráði við
ríkisstjórnir þeirra landa, sem
tekið hafa á móti flóttamönnum
frá Palestínu, og ríkisstjórn fsra-
els á hann að rannsaka málið
á grundvelli ályktunar sem Alls-
herjarþingið samþykkti í iapríl
s.l. og fyrri ályktana S.Þ. um
heimsendingu flóttamannanna
eða upptöku þeirra í þjóðfélögin
þar sem þeir hafa hlotið hæli,
og um skaðabótagreiðslur.
Dr. Johnson er forseti
Carnegie-stofnunarinnar, sem
hefur- aðalstöðvar í New York
og beitir sér fyrir betri alþjóð-
legum samskiptum. Hann tók
þátt í viðræðunum í Dumbarton
Oaks og San Francisco þegar
unnið var að Stofnskrá Samein-
uðu þjóðanna.
Skýrsla um Suð-
vestur-Afríku
Nefnd Allsherjarþingsins i'yr-
ir Suðvestur-Afríku hefur b rj-
að að semja skýrslu sína fyrir
þingið um ástandið á þessu um-
boðssvæði, sem nú er undir
stjórn Suður-Afríku.
Nefndin hefur fjallað um til-
lögu frá fulltrúa Uruguay, ]'ró-
fessor Enrique Rodriguez Fsbr-
egat, þess efnis að umboðsstjcrn-
in verði numin úr gildi, land-
svæðinu fengið siálfstæði og
Allsherjarþingið látið tiheína
fulltrúa þriggja aðildarríkia til
að undirbúa og halda almennar
kosningar á svæðinu innan iex
mánaða, og loks að sett verði á
laggirnar ríkisstjórn í ,.hinu
nýja sjálfstæða riki“ á árinu
1962.
Fulltrúi Indónesíu í nM-id-
inni, Karseno Sasmoio. hefur
lagt til sð Uegar í stað verði
sendar „hiá’oarsveitir S.Þ.“ tit
Suðvestur-Afríku ásamt l'jg-
gæzluHði S.Þ. „til að vernda
líf íbúanna“. Hann lagði áherzlu
á, að þessar tillögur væru i sam-
ræmi við óskir, sem fulltrúar í-
búanna báru fram við nefndina
þegar hún heimsótti Afríku ekki
alls fyrir löngu.
Önnur ti’laga hefur verið lögð
fram munnlega af fulltrúa Fil-
ippseyja. Victorio O. Carnio.
þess efnis að skýrsla nefndar-
innar til Allsherjarþingsins
fjalli ýtarlega um áhrif og ár-
angur af kynþáttastefnu stjórn-
arinnar í Suður-Afríku og færi
Allsherjarþinginu heim sanninn
um að bað sé lífsnauðsyn a5
gera skiótar ráðstafanir varð-
andi Suðvestur-Afríku.
Kviikf i ársi úkdómar
útbreiddari en nokkrií
sinni
SkákmétiS í
Framhald af 3. síðu.
Jafntefli gerðu Gligoric og Donn-
er, Keres og Darga, Matanovic og
Portisch. Geller og Najdorf, Frið-
rik cg Ivkoff. Biðskák varð hjá
Bertok og Pachmann.
Þriðja umferð: Bisguier vann
Keres, Trifonovic : Pachmann,
Geller Ivkoff ' tíg ' 'Tál •••Fri'ðrikí*
Jafntefli gcrðu’ Párma' og Glig-
oric„ Dortner.óög Fiéchér, -Darga>
og Petrosjanv'Germek ög UdovicJ
Portisch og Bertok. Najdold og
Matanovic biðskák.
Fjói'ða umferð: Fischer vann
Fi'iðrik, Najdorf Bertok og Ker-
es Germek. Jafntefli gerðu Dai'ga
og Gligoi'ic, Donner og Parma,
Petrosjan og Bisguier, Udovic og
Pachmann, Matanovic og Ivkoff,
Geller og Tal. Trifonovic og
Portisch biðskák.
Fimmta umferð: Fi'iðrik vann
Geller, Portisch Udovic, Keres
Pachmann, Petrosjan Gei'mek og
Gligoric Bisguier. Jafntefli gerðu
Ivkoff- og Bei'tok, Najdoi'f og
Trifonovic, Darga og Donner,
Parma og Fischer. Tal og Matan-
ovic biðskák.
Sjötta umféi'ð: Matanovic vann
Friðrik, Petrosjan Pach’rnann, Tal
Bertok, Keres Portich, Fischer
Geller og Gligoric Germek. Jafn-
tefli gei'ðu Trifonovic og Ivkoff,
Parma og Dai'ga, Udovic og
Najdorf. Biðskák vai'ð hjá Donn-
er og Bisguier.
Eftir þessar 6 umfei'ðir er stað-
an þessi: 1.—2. Fischer og Petr-
osjan 4‘4 vinning, 3. Gligoric 4,
4.—7. Tal, Najdorf,Trifonovic og
Bled
Keres 81 / og biðskák, 8. Dai'ga
3' -2, 9. Bisguier 3 og biðskák, 10.
Geller 3, 11. Donner 2Vz og bið-
skák, 12. Matanovic 2 og 3 bið-
skákir. 13.—14. Pai'rna og Port-
isch 2 og biðskák, 15.—16. Ivkoff
og Bertok 2, 17,—18. Friðrik og
Udovic 1J,'2, 19. Pachmann 1 og
‘bfðéMki-ög 20. Germek 1 vinn-
ftxg. Jh :
ÍUI i i'. - )ji Itr.r
Révðfirðinger
Framhald af 1. síðu.
Áhöfnin fékk tveggja daga fyrir-
vara að sigla skipinu til Reykja-
víkur og í gær kl. 5 átti Katrín
að sigla héðan frá Reykjavík til
Akraness ,.og er bá vonandi kom-
in í heimahöfn,“ sögðu sjómenn-
irnir biturlega.
| • ’•
Þurfa að leita sér atvinnu
anuars staðar
j — Við voi'um búnir að binda
j vonir okkar við þetta skip, sögðu
þeir Ölafur og Sigmar. Við för-
um auðvitað aftur á sjóinn, því
við höfum vei'ið sjómenn frá
bemæsku. En við verðum þá að
leita eitthvað annað. Við erum
fjölskyldumenn og það er ólíkt
ánægjulegra áö leggja upp afla í
heimahöfn og geta haft sam-
band við fjölskyldu sína.
Þeir Ólafur og Sigmar kváðust
hafa hi'ingt í Tímann og Morg-
unblaðið í sambandi við þessa
sölu skipsins, en hvorugt blaðið
hafði áhuga á að tala við þá,
hvað sem veldur.
,,The 1960 Animal Health
Yearbook“, sem kom út á veg-
um Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunar S.Þ. (FAO) 7. ágúst
s.l., flytur ýtarlega lýsingu á
kvikfjársjúkdómum i 136 lönd-
um og landsvæðum um gervall-
an heim. Segir þar að ástandið
sé alvarlegra en nokkru sinni
fyrr.
Árbókin, sem er 311 bls., er
að meginefni byggð á svörum
sem bqrizt hafa við sérstökum
spurningalistum ■ stofnunarinnar.
í bókinni eru skrár yfir kvik-
fjársiúkdóma í hverju landi eða
svæði, útbreiðslu sjúkdómanna
meðal hinna ýmsu dýrategunda
og yfir þær ráðstafanir sem
gerðar eru í hverju tilfelli.
Dr. W. Ross Cockrill, sem er
forstjóri þeirrar deildar FAO,
er fjallar um dýrasjúkdóma og’
varnir gegn þeim, segir: ,.Ár-
bókin ítrekar þá staðreynd, að
kvikfjársjúkdómar eru alvar-
legra vandamál en nokkru sinni
f.yrr. Þegar litið er á hin auknu
viðskipti með kvikfénað. kjöt og
kjötafurðir, hin hraðskreiðu sam-
göngutæki og stórauknu ferða-
lög landa á milli, þá stuðlar
þessi árbók að því að brýna
fyrir mönnum. þörfina á nánara
alþjóðasamstarfi um ráðstafan-
ir til eftirlits með kvikfjársjúk-
dómum. Þetta er mikilsvert bæðl
fyrir heilbrigði dýra og manna,
þar eð nokkrir dýrasjúkdómar-
svo sem hundaæði, miltisbruni
og kvikfjárberklar, geta lika
farið í fólk“.
(Ái'bókina er hægt að pa'ita
hjá Bókaverzlun Sigfúsar Ey«
mundssonar).
Miðvikudagur 13. september 1961 — ÞJÓÐVILJINN—