Þjóðviljinn - 28.10.1961, Side 9
4) — ÓSKASTUNDIN
Laugardagur 28. október 1361 — 7. árgangur — 35. tölubla^j
Sagan um Sirkus-Pétur
Eftir Else Fischer-Bergmau
Fyi-sta ævintýri
Páturs
Pétur gekk og gekk,
yfir holt og hæðir. Síð-
ast var hann búinn að
slíta sokkunum sínum
upp t.'l agna. En hann
fann engan galdrakarl og
enga litla línudansmey.
Dag nokkurn, þegar
hann var ósköp þreyttur
og sorgbitinn kom hann
í ókunna borg og stað-
næmdist við búðar-
glugga, sem var fullur
af fallegum leikföngum.
Þar voru bangsar og
járnbrautarlestir, kubb-
:ar og brúður. Yfir glugg-
anum var skilti og á það
var letrað: Leikfangabúð.
„Ég ætla að fara
þarna inn,“ sagði Pétur
við sjálfan sig, og gekk
inn í búðina. Kaupmað-
.urinn stóð fyr:r innan
búðarborðið. Hann var
með svartan hatt, og
svart yfirskegg.
„Hvað get ég gert fyr-
ir þig, litli snáði?“ spurði
hann.
..Fyrirgefið. hr. kaup-
maður, en mig langar
bara t'l að skoða þessi
failegu leikföng,“ sagði
Pétur og horfði í kring-
um sig. Fyrst horfði hann
á tindátana og svo á
brúðurnar. (Því þó hann
væri strákur þótti hon-
um reglulega gaman að
brúðum). Þama var ein
brúða, sem var bæði
stærri og fallegri en all-
ar hinar. En hvað var
þetta, hún var í nákvæm-
lega eins kjól og hún
Milla, og hafði litla sól-
hlif í hendinni.
Þetta var Milla, orðin
að brúðu.
Pétur varð svo undr-
andi að hann varð að
setjast i stól meðan
hann var að jafna sig.
„Hvað kostar þessi
brúða?“ stamaði hann.
„Hún er ekki til sölu,
þessa brúðu á ég sjálf-
og brosti illskulega. Þá
sá Pétur að þetta var
galdrakarlinn sjálfur,
i
!
dulbúinn eins og kaup-
maður.
Galdrakarlinn settist
fyr'r innan búðarborðið,
tók stóra kassa og fór
að telja peninga. Hann
taldi og taldi, og stein-
gleymdi Pétri. Þá lædd-
ist Pétur á tánum til
Millu og togaði varlega í
kjólinn hennar. „Vakn-
aðu — vaknaðu Milla,“
hvíslaði hann eins lágt
og hann gat.
(Frambald).
Hosi á mýri-
snípuveiðum
Framhald af 3. síðu.
svona hátt.“
„Yðar tign verður að
fyrirgefa, en ég er nú
bara vespa,“ sagði sá
gulröndótti. Vespa er
fluga, sem ekki er til
hér á land', en við
þekkjum öll randaflugu
en hún er 1-ka gulrönd-
ótt.
„Hm. einmitt það,“
sagði Hosi, „þér veitir
ekki af að læra ein-
hverja mannasiði og þá
skal ég kenna þér.“
„Kærar þakkir“, svar-
aði vespan, „á ég ekki
að koma nær, svo það
verði auðveldara fyrir
yður að kenna mér
manr,asiðina?“ Svo flaug
hún upo á nefið á kett-
inum og stakk hann svo
fast í nefið, að hann
dauðkenndi til. Hosi
hoppaði upp.
(Framhald.)
HUNDUR
FÓR í
FERÐALAG
Það var einu sinni
kona, sem þurfti ,að
flytja til næstu borgar.
Hún ætlaði að taka með
sér allt sem hún átti, og
það var: legubekkur,
skápur, stóll, borð, mál-
verk, fe.rðataska og síð-
ast en ekki sízt, skozkur
hundur, stórættaður Qg
hátt hafinn - yfir venju-
lega almúgahunda.
Hún fór á járnbraut-
arstöðina og gaf fyrir-
skipun um að farangur-
inn yrði sóttur og engu
gleymt: legubekkur, skáp-
ur, borð, stóll, málverk.
ferðataska og fínn skozk-
ur hundur. Það kom
maður með flutningabil,
og flutti þetta allt á
járnbrautarstöðina, og
þar var það látið í far-
angursvagninn. Um leið
og hver hlutur var lát-
inn inn í vagninn var
hann skráður á lista:
legubekkur, skápur, stóll,
borð, málverk, ferða-
taska og stórættaður
skozkur hundur. Þegar
maðurinn hafði komð
þessu öllu vel fyrir fór
hann heim.
En hann gleymdi bara
að loka vagninum.
Þá sá fíni skozki
hundurinn sér leik á
borði og hljóp leiðar
sinnar, burt frá farang-
ursvagn.'num, burt frá
brautarstöðinni og burt
frá konunni sem átti
hann.
Eftirlitsmaðurinn kom
til að gæta að hvort allt
væri í röð og reglu í
farangursvagninum. Lát-
um okkur sjá, sagði
hann, hér er legubekkur,
stóll, borð, skápur, mál-
verk, ferðataska og — og
hundur. Það stendur á
listanum að hér eigi að
vera hundur en hann
sést hvergi. Ég verð að
fara og reyna að finna
hann. Hann leitaði um
alla járnbrautarstöðina,
en fann engan hund. Allt
, í einu kom hann auga é
hund, sem var að hlaupa
^ á milli vagnanna. —
| Þarna er hann, sagði
j hann við sjálfan sig.
. Þessi hundur er að vísu
j ekki skozkur, og áreiðan—
Framhald á 2. siðu.
mannanna
Póstleggið óselda gula miða |
til happdrættisins, Þórsgötu I
1. Box 310.
Sendið þá strax alla pen- |
inga fyr>r selda miða.
Hald'ð eftir óseldum mið- |
um af öðrum litum (bláum, |
bleikum og grænum) til sölu ■
fyrir síðari drættina.
Biðjið skrifstofuna að j
senda ýkkut ' viðhótárttíiða |
fyrir seinni drættina, ef mið- :
ar eru uppseldir hjá ykkur. •
Eftir 1. nóvember verður i
krafizt greiðslu fyrir alla [
gula miða, sem útistandandi [
eru.
Ellefu leiklr í Reykjavík-
urmótinu um helgina
Reykjavíkurmótið i hand-
knattleik hektu-r—éfram i kvöld
og annað kvöld, og verður
upga fólkið meir á ferðinni í
kvöld, og þá sérstaklega ungu
stúlkurnar í öðrum flokki
kvenna, en þar koma fram 10
flokkar í 5 leikjum, og virðist
sem kvennaflokkarnir ættu
ekki að þurfa að kvíða fram-
tíðinni. Annars fara þessir
leikir fram í kvöld:
3. fl. karlá B
Ármann — Valur
2. fl. kvenna B.
KR — Víkingur
2. fl. kvenná B.
Fram — Ármann
2, fl. kvenna B.
Ármann Fram
2. fl. kvenna B.
Valur -— KR
2. fl. kvenna B.
Þróttur —- Víkingur
2. fl. karla A.
Ármann—1 Þróttur.
Verða jafirir leikir í
meistaraflokki karla?
Á morgun fara fram þrír
leikir í meistaraflokki karla, og
eru miklar líkur til þess að
flestir leikjanna verði jafnir
og tvísýnir. Fyrsti leikur'nn er
á milli Víkings og Þróttar.
Víkingar hafa ekki sýnt sig
enn í mótinu og þvi ekki fylli-
lega v'tað um getu þeirra. Gera
má ráð fyrir að Þróttur verði
harðari á stallinum en á móti
KR um daginn, og gæti þá
svo farið, að erfitt verði að
spá um úrslit.
Næsti le'kur verður svo tnilli
Ármanns os ÍR. El'tir leikjum
þessara félaga um daginn að
dæma, ætti ÍR að vinna með
nokkrum mun. Ilitt er svo ann-
að mál að satt að segja ættu
Ármenningar ekki að una við
leik eins og þe:'r sýndu þá og
koma fram með það sem þeir
geta, og takist þeim það, er
sigur ÍR ekki eins viss.
Síðasti leikurinn er m.'Uf
Vals og KR og getur har.ri
orðið jafn. Þó verður að gera
ráð fyrir að ICR vinni leik-
inn. Valur kom nokkuð á ó-
vart um daginn, og KR fékk
heldur auðveldan leik við
Þrótt, svo allt bend'r til að
þetta geti orðið tvísýnn leikur,
og skeri úr um það hvað lið*
in raunverulega geta.
Seldi 15 myndir
við opnunina
í gærkvöld opnaði Steinþór
Sigurðsson sýningu á málverkum
og þrykklitsmyndum í Lista-
mannaskálanum. Fjölmenni var
opnunina og var fólk almennfc
hrifið af málverkum Steinþcrs.
Fimmtán myndir seldust þegar í
gærkvöld. Þetta er í fyrsta sirm
sem Steinþór heldur sýningu héu
ritstjóri: Frímann Helgason
liaugardagur 28. október 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (g