Þjóðviljinn - 24.11.1961, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.11.1961, Blaðsíða 1
Aukaþing BSRB hefst í dag Aukaþing Bandalags starís- manna ríkis og bæja verður sett í Hagaskólanum í dag kl. 5 síð- degis. Þingið mun fjalla um launamál og samningsrétt oþin- berra starfsmanna. 271. tölublað Föstuclagur 24. nóvember 1961 — 26. árgangur Þjóðvilfiim hefur örugga vitneskju um það að vesiurþýzk stjórnarvöld hafa ieitað fyrir sér um það að þau fái aðstöðu til herstöðva og heræfinga á fslandi. Hér er enn sem homið er aðeins um á- þreifingar að ræða, og heíur verið sérstafelega rætt við Guðmund í. Guðmundsson utanríklsráð- herra og nofefera valdamenn aðra. Hins vegar mun engín íormieg beiðni .hafa borizt enn, og óiífelegt að hún beríst nema Vesturþjóðverjar telji sig ör- íigga um jáfevæðar undirtefetir. Eins og kunnugt er hafa Vest- urþjóðverjar lagt á það mikla áherzlu undanfarin ár að koma sér ‘ upp herstöðvum í ýmsum Jöndum Vesturevrópu. Hafa þeir beitt þeirri röksemd að land þeirra sé svo þéttbýlt að hvergi sé aðstaða til umfangsmikilla heræfinga, sprenginga og til- rauna með ný morðtól. Hefur þeim þegar tekizt að fá nokkra aðstöðu fyrir hersveitir sínar m. a. í Portúgal, Frakklandi og Eng- landi; þeir • hafa haft mikinn augastað á Spáni en ekki treyst sér enn til umfangsmikilla fram- kvæmda þar af ótta við að al- menningálitinu fyndist samheng- ið við fasismann þá fullljóst, Að undanfðí'nu haf'a Vesturþjóðverj- ar beint athygli sinni sérstaklega að Norðut'löndum, komið hefur verið upp NATO-birgðastöð í Jctlandi og er hún eiginlega ætl- uð vesturþýzka flotanum, og nú er lagt' á það mikið kapp að Vesturþjóðverjar fái yfirstjórn NATO á Eystrasalti. Nú síðast hefur Strauss, hermálaráðherra Vesturþjóðverja, dvalizt í Noregi til að þreifa fyrir sér þar,í landi. UndirróSurs- sfarfsemi Þótt Vesturþjóðverjar hafí iengið aðstöðu víða í Vesturev- rópu telja þeir enn alltof þröngt um sig til meiriháttar heræfinga cg sprengjutilrauna. Þess vegna hafa vesturþýzkir herfræðingar beint athygli sinni að fslandi. Hér er strjálbýlt land og óunnið að vei;ulegu leyti; hér væri hægt að hafa æfingar með hin mikilvirk- ustu vopn.c Af bessum ástaeðum hafa ’ Vesturþjóðverjar aukið starfsömi sína hérlendis mjög verulega á undanförnum árum; sendiráð þeirra er eitt fjölmenn- asta sem hér er; lagt hefur ver- ið mikið kapp á að ná persónu- legum samböndum við ráðamenn j Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu- flokksins; meira að segja Aden- auer hefur látið svo lítið að hafa sérstakt samband við íslenzka j stjórnmálamenn; íslenzkum ráð- heri'um er æ ofan í ae boðið' til Vesturþýzkalands Og þar er ó- spai't spilað á hégómaskap manna eins og Gylfa Þ. Gislasonar og Gunnars Thoroddsens. Og nú er komiö að því að Vesturþjóðvei'jar vilji fá uþp- skeru af hinni diplómaiísku her- ferð sinni mcð stöðvum fyrir vesturþýzka herinn. Tvœr h!i$ar á sama máli Það er engin tilviljun að þetta mál kemur á dagski'á jafnframt því sem ái'óður er hafinn fyrir því að innlima fsland í Efnahags- bandalag Evrópu. Þarna er aðeins um að ræða tvær hliðar á yfir- ráðastefnu Vesturþjóðverja. Með Framhaid á 10. síðu. Vesturþýzkir hermcnn | vígahug á æfingu. Óttast um að vh. Skíði hafí íarizt með tveim mönnum Óttazt er nú, að dekkbáturinn Skíði HU 8 frá Skagaströnd hafi farizt á Húnaflóa í gær með tveim mönnum, bræðrunum Sveini og Hirti Hjartarsonum frá Skagaströnd. Eins og sagt var frá í blaðinu í gær fór Skíði, sem er 8 lesta dekkbátur, í róður frá Skaga- strönd kl. 4 í fyrramorgun. Var síðast haft samband við bátinn um klukkan hálf eitt í fyrradag. Þá var báturinn norður af Skallarifi. Hafði línan sitnað og voru þeir að leita að henni. Síðan hefur ekkert frá bátnum heyrzt. Er helzt óttazt, að hann hafi rekið upp á Skallarif, sem er mjög hættulegt sker, en versta veður var á þessum slóð- um í íyrradag, líklega ein 10 vindstig. Leit að bátnum var hafin stx'ax í fyri'inótt og leitaði varð- skipið Óðinn þá, en . veður var þá svo vont, að mjög óhægt var um leit. 1 gær var svo leitað með ströndinni allt hbrður á Skagatá og austur að Húnaós, en án nokkurs árangurs. Tóku Flokksstjórnarfundur Sósíalista- flokksins settur síðdegis í dag Flokkssfjórnarfundur Sam- einingarflokks alþýðu — Sós- íalisfaflokksins verður settur kl. 5 síðdegis í dag í Tjarn- argötu 20. Fundinn sækja um 50 fulltrúar víðvegar af land- inu, en gert er ráð fyrir að hann standi fram á sunnudag, Ijúki þann dag síðdegis. Aðalmál á dagskrá fundar- ins er stjórnmálaviðhorfið og hefur Einar Olgeirsson, for- máður flokksins, o. fl. fram- sögu. Þá verður rætt um starfsáætlun Sósíalistaflokks- ins, bæjarstjórnarkoáningar á komandi vori, menningannál, næsta flokksþing og önnur mál. Hjörtur Iljartarson þátt í leitinni menn frá Skaga- sti'önd, Blönduósi og af bæjum á Skaga. Veður var vont. í. gær, sagði fréttaritari Þjóðviljans. á Skagaströnd, hríð eg hvasst, ein 8 vindstig. Þá leituðu einnig tveir bátar frá Skagaströnd, Húni og Máni. Framh. á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.