Þjóðviljinn - 24.11.1961, Side 6

Þjóðviljinn - 24.11.1961, Side 6
plÓÐVILJINN Útgefandi: Samelnlngarflokkur alþýðu — , Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar: Magriús Kjartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. — Fréttaritstjórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. 'Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 50,00 á mán. - Lausasöluverð kr. 3.00. PrentsmiðJa Þjóðviljans h.f. Einstætt rit ÍY/Iargir lesendur Þjóðviljans eru gamlir og nýir vin- ir tímaritsins Réttar. Þó vantar mikið á, að allir eða flestir baupendur Þjóðviljans séu líka áskrifendur þessa gagnmerka tímarits, og þessi orð eru skrifuð til að minna lesendur blaðsins á, að það er ekki einungis skynsamleg ráðstöfun hvers sósíalista á Islandi að kynna sér það sem Réttur hefur að flytja, heldur er þar að jafnaði að finna greinar inplendar og erlendar, sem flestir hugsandi menn hefðu eitthvað til að sækja. jVfeðal íslenzkra tímarita á tuttugustu öld er Réttur um margt einstæður. Ekkert sambærilegt póli- tískt tímarit er til, enda þótt margar tilraunir hafi verið gerðar, einkum af Sjálfstæðisflokknum, til þess að koma tímariti á fót er túlkaði stefnu íslenzka aftur- haldsins og flytti „fræðlegar“ greinar til stuðnings aft- urhaldspólitík. Þau tímarit hafa þotið upp, og sum komið út í nokkur ár, ien öll veslazt upp af málefna- fátækt og algjöru áhugaleysi íslenzks fólks á tilveru þeirra. Réttur hefur hins vegar komið út allt frá 1916, fyrstu tíu árin sem málgagn frjálslyndra þingeyskra bænda og menntamanna, en frá 1926 með sósíalistíska stefnu, undir handleiðslu Einars Olgeirssonar. Grein-, ar Einars í Rétti eru orðnar margai1 og um f jölbreyti- leg efni, og mega heita rauður þráður árganga rits- ins og gefa því mest gildi, enda er þar að finna greinar og greinaflokka, sem margar hverjar eiga orðið sæti í stjórnmálasögu aldarinnar sem veigámikil . atriði í þjóðmáladeilum íslendinga. Gildi margra þessara greina Einars til mótunar á stefnu og Viðhorfum hinn- ar róttæku verkalýðshreyfingar á íslandi mun seint ofmetið, í þeim greinum og fleiri í Rétti hefur mikið áunnizt að aðhæfa sósíalistíska lífsskoðun íslenzkum þjóðfélagsveruleika, skilgreina og skýra viðfangsefni líðandi stundar sósíalistískum skilningi. Einmitt þess vegna hefur Réttur nú um áratugi verið ungum sósíal- istum á íslandi fræðslulind og hvatning að láta sér ekki nægja neitt utanaðlært, heldur heldur verði að beita þjóðfélagsfræðum sósíalismans sem leiðarvísi skapandi starfs og sjálfstæðrar hugsunar. ITtkoma Réttar hefur oft verið örðugleikum háð og fjárhagurinn þröngur eins-og verið hefur með öll ; málgögn verkalýðshreyfingarinnar. En þó segja megi að bláþræðir hafi orðið á útgáfunni, hefur þar aftur verið haldið af stað. Nú er hafin ný sókn með efldri útgáfu Réttar, og hafa nokkrir yngrí máfintamanna sósí- alista skipað sér um tímaritið til liðs við ritsíjórana Einar Olgeirsson og Ásgeir Blöndal 'Magnússon. Þess sér þegar merki á ritinu í meiri fjölbreytni í efnis- vali og meðferð. Tvö hefti eru komin af þessum ár- gangi, og annað nýkomið með rríerkum greinum eftir Einar og Björn Jónsson um verkfollin í sumar, og grein- um eftir Hjalta Kristgeirsson pg Árna H. Bergmann. Mætti telja líklegt t.d. áð grein Árna, „Skáldsögur og verkamenn" veki athýgli og umræður um skáldsagna- gerð hér á landi eins og henni ér riú komið. — í fáum orðum sagt: Tímaritið RéUur flytur í hverju hefti efni, sem ætla mætti að hver einasti lesandi Þjóðviljans teldi sig miklu skipta og mætti ekki án vera. Væri , ekki þess vert að sannreyna þá staðhæfingu? — s ' • •:•: •:•:•:■ ••■. :•. :•.•:■ ••■:•:•:•■ :•:•:• •:•: :••••■:•:•:■:• .•:•••: ••• ••••:•>:•:•::•:•.•.>:•:•: ni ■ Islenzkí sjónvarp -ekki soralegt hermannagaman | WM 'WM Kröfur gerSar Vorið 1951 bárust íslenzkum stjórnarvöldum óskir frá banda- ríska setuliðinu á Suðurnesjum um sérstaka útvarpsstarfsemi á vegum þess. Ekki var orðið við þessum óskum þegar í stað, enda 'óneitanlega steinn í götu, •þar sem íslenzk lög voru, en í þeim segir ótvírætt, að ríkis- stjórnin hafi- ein rétt til að reka útvarp á íslandi. Skal hún starfrækja útvarpsstöð í R- vík og reisa endurvarpsstöðvar annars staðar á landinu, en um orkuaukningu stöðvarinnar í Reykjavík og byggingu nýrra endurvarpsstöðva skal fara eft- ir ákvörðunum Alþingis hverju sinni. Það vafðist eitthvað fyrir rík- i-sstjórninni að verða við til- mælum setuliðsins og veita því formlega heimild til sjálfstæðr- ar útvarpsstarfsemi á Suður- nesjum. Setuliðið beið i nokkra mánuði, en í nóvember 1951 mun þolinmæði þess hafa brost- ið, því að þá hóf það eigin út- varpsrekstur í algeru heimild- arleysi, að því er bezt verður séð. Ekki hefur rikisstjórnin verið alls kostar ánægð með þessi málalok. í febrúar 1952 snýr menntamálaráðherra sér bréf- lega til útvarpsstjóra og felur honum að láta hernum í té formlegt „leyfi“ til útvarps- starfsemi. Ekki sýnist útvarps- stjóri hafa haft hraðan á um þessa framkvæmd, enda tiltækið af ýmsum álitið ólöglegt. Seint í marz fær útvarpsstjóri annað Hér er birt greinargerðin sem fylgir þings- ályktunartillögu Alfreðs Gíslasonar, Einars Oigeirssonar, Finnboga R. Valdimarssonar og Lúðvíks Jósepssonar um að Alþingi feli rík- lisstjórninni að afturkalia þegar í stað leyfi bréf frá sama ráðherra. Enn líður rúmur mánuður, og það er ekki fyrr en 1. maí 1952, að útvarpsstjóri gefur út leyfibréf. Mun það plagg síðan hafa hangið innrammað í húsakynn- um hersins á Keflavíkurflug.- velli. til sjónvarpsstarfsemi bandaríska hersins á Islandi. Jafnframt verði lialdið áfram at- hugunum þeim, sem Ríkisútvarpið hefur með höndum um möguleika á rekstri íslenzks sjónvarps. $ SkilyrÖi sniSgengin Með bréfi þessu veitti Ríkisr útvarpið setuliðinu leyfi til að starfrækja eigin útvarpsstöð („to operate their own broad- casting station") með vissum tilgreindum skilyrðum. Ef þau skilyrði eru ekki uppfyllt að dómi Ríkisútvarpsins, má aftur- kalla leyfið fyrirvaralaust, ella með eins mánaðar fyrirvara. 1 dagskrá þessa útvarps skal ein- göngu fjalla um efni, er snertir setuliðið sjálft. Engan pólitísk- an áróður má hafa þaý í frammi, og skal fyllsta hlut- leysis gætt í öllum greinum. Auglýsingar og tilkynningar eru bannaðar í þessu útvarpi aðrar en þær, sem varða hern- aðaraðgerðir og öryggi setuliðs- ins. Höfuðskilyrðið fyrir leyfis- veitingunni er þó það, að hið erlenda útvarþ komi á engan hátt inn á áhugasvið og verk- svið Ríkisútvarpsins, — að það með öðrum orðum höfði ekki. til íslenzkra hlustenda. Þessu skilyrði hefur síður en svo verið fullnægt,1 og skiptir það þó meginmáli. Raunin hefur orðið sú, að hlustun íslehdinga á þetta erlenda herútvarp hef- ur aukizt stöðugt, án þess að íslenzk stjórnarvöld skipti sér ögn af. Þar sem Ríkisútvarpið reynir að vanda dagskrá sína og miða tónlistarval sitt við menningarlegt gildi, miðar ame- ríska stöðin sína dagskrá við frumstæðustu dægrastyttingu eina, svo sem hún kemst á lægsta stig. Það má því segja, að upphafleg viðleitni löggjaf- arvaldsins til þess, að tryggja menningarlegt hlutverk út- varpsmiðlunar í landiriu hafi beðið alvarlegt afhroð í þessu efni.. Lög .um sjónvarp eru engin til hér á landi. Þegar íslenzk sjónvarpsstarfsemi hefst, verð- ur hún án efa í nánum tengslum við útvarpið, enda margt sameiginlegt með þessum greinum. Það mun talið sjálf- sagt, að sjónyarpið verði deild í .Ríkisútvarpinu, og á þess veg- um hafa þegar farið fram nokkrar athuganir á möguleik- um sjónvarps hér. Því virðist réttmætt að líta svo á, að sjón- varpsstarfsemi hér á landi lúti stjórn Ríkisútvarpsins og menntamálaráðherra. Nýjar kröfur ' Árið 1955 gerðist það á sviði herstöðvamálsins, að 'Utanríkis- ráðherra með póst- ,og síma- málastj.óra sem millilið veitir bandaríska setuliðinu leyfi til sjónvarpsrekstrar á Keflavíkur- flugvelli; 1 iþað sinn virðist al- ■veg hafa verið gengið fram hjá Ríkisútvarpinu, að minnsta kosti kom málið aldrei fyrir út- varpsráð. Nú eru það nýir að- ilar íslenzkir, sem taka • það upp -á sitt eindæmi að uppfylla óskir hins erlenda hers. Út- varpsleyfið ■ 1952 gaf útvarps- stjóri að boði menntamálaráð- herra, en sjónvarpsleyfið 1955 var veitt af póst- og símamála- stjóra að undirlagi utanríkis- ráðherra. Mætti af þessu ætla, að útvarp og sjónvai-p væri af hérlendum stjórnarvöldum tal- ið hvort Öðru með öllu óskylt og að annað heyrði eðlilega undir menntamálaráðherra, en hitt undir utanríkisráðherra. Og nýjar vanefndir Þegar bandaríska sjónvarps- stöðin á Keflavíkurflugvelli kom fyrst til álita, munu henni hafa verið sett samsvarandi skilyrði og útvarpinu áður, þ.e. að send- ingar hennar næðu ekki inn á svið íslenzkrar viðtöku. Styrk- leiki hennar var takmarkaður og sendistefnu þannig hagað, að ekki næði til Reykjavíkur eða byggðarlaganna við innanverð- an Faxaflóa. Töldu margir, að ■meðan svo væri um búið, gilti^, í ráuninni ekki annað um sjón- varpið en t.d. kvikmyndahús eða aðrar skemmtistofnanir innan flugvallarins sjálfs. Brátt kom þó í ljós, að á á- kveðnúm stöðum í Reykjavík og nágrenni mátti sjá sjón- vafpssendingarnar, og þegar sölunefnd setuliðseigna fór að selja sjónvarpstæki; — og raun- ar algerlega ólöglega, án skráningar og án milligöngu Viðtækjaverzlunar ríkisins, — tók sjónvarpsnotendum. sérstak- • lega í Reykjavík, að fjölga ört. Samkvæmt talningu, sem Ríkis- útvarpið lét gera í einu hverfi bæjarins árið 1959, mun ekki ofætlað, að sjónvarpstæki séu nú á annað þúsund í Reykja- vík einni. Enda þótt viðtökuskilyrði sjónvarpssendinganna væru mjög slæm og drægju ekki til sín almenna athygli, var hér allt að einu kominn fram ann- ar þáttur, sem braut algerlega í bága við anda útvarpslaganna og þau skilyrði, sem starfsemi þessari vofu upphaflega sett. Hér var með öðrum orðum komin inn á íslenzkt menning- arsvæði sú starfsemi, sem af öllum er játað að sé áhrifa- mesta miðlunartæki . jarðar, jafnt til góðra sem mann- skemmandi áhirfa, og enn án þess, að íslenzk stjórnarvöld létu málið í einu eða neinu til sín taka. Það virðist illa sam- rýmast, að annars vegar reyni íslenzk stjórnarvöld að miða að menningarlegu uppeldi þjóð- arinnar með skólum og útvarpi, en láti hins vegar viðgangast hömlulaust erlenda starfsemi, sem rniðar nánast í öfuga átt. Ber þess og að gæta, að þeim mun áhrifameira er sjónvarn en útvarp, að erlent tungumál setur þvi litlar eða engar skorð- ur. Þótt mál þetta hefði staðið við sama og verið hefur síðan 1955, væri ærin ástæða til þess, að Alþingi íslendinga vaknaði . af værðinni, og .léti það alvar- lega til sín taka. En setuliðið lætur ekki standa við sama. heldur færir sig stöðugt úpp á skaftið. Á sl. vot’i komu fram óskir þess um stórfellda orku- aukningu sjónvarpsstöðvarinnar, og sem fyrr létu íslenzk stjórn- arvöld undan síga. Hefur ut- anríkisráðherra staðfest það á þingfundi nýlega, að póst- og símamálastjóri og útvarps- stjóri hefðu verið á einu máli um, að veita bæri leyfi til þess- arar orkuaukningar, og að ut- anríkisráðuneytið hefði ekkert haft við það að athuga. Enn er heimtaS Þegar nú ameríska sjónvarps- stöðin - hér fimmfaldar . orku sína, eins og húti hefur feng- ið leyfi til og heldur auk þess sínu striki í ótakmar kaðri sendistefnu, þá blasír úið í allri sinni nekt eitthvert viðsjálasta vandamál, sera að íslenzkri menningu hefur steðjað um langa hríð. Þegar er svo komið, að opinber veitingahús í Rvík hafa sjónvarpsskerma á veggj- um sínum, og má sjá í hendi, hvert stefnir með aukningu sjónvarpsorkunnar. Veitingahús kvöldsölustaðir, svonefndar sjoppur, munu keppast um að draga æskufólk til sín með því að hafa sjónvarpstæki uppi, og ibörn og unglingar á þúsundum heimila munu alast upp við þá andlegu fæðu, sem amerískar sjónvarpsstjórnir viðurkenna jafnvel sjálfar að sé und.r öllu lágmarki að menningargildi, með um 80% af glæfra- og glæpamyndum af soralegasta tagi. Ef þessu færi fram, köst- uðu íslendingar frá sér allri menningarlegri ábyrgð og stað- festu þjóðernislega uppgjöf sína. AflelSingar undan- haldsins Það er þannig langur vegur frá, að hér sé aðeins um tækni- legt atriði að ræða, svo sem mál þetta hefur verið túlkað á þingi. Málið snýst einfaldlega um það, hvort miða eigi menn- ingarlíf íslenzku þjóðarinnar við frumstæðustu dægrástytt- ingu útlendra hermanna í leið- inlegri bækistöð. Vilja flutn- ingsmenn þessarar tillögu ekki trúa því, fyrr en á er tekið, að Alþingi kasti frá sér í blindni því fjöreggi, sem menn- ing og tunga þjóðarinnar er, en það gerist, ef ekkert er um það hirt að veita viðnám -hinni þrá- látu ásókn ómenningarinnar frá herstöðinni á Keflavíkurflug- velli. T imi til viSnáms íslendingar mega ekki una því lengur að hafa í landi sínu sjónvarpsstöð, sem eys yfir þá soranum einum úr andlegu lífi stórþjóðar. Slíka sendistöð ber að áfmá, éh ekki að magria, eins og nú hefur verið leyft. Það er kominn tími til, að þjóðin veiti viðnám og taki að heimta á ný þau menningar- virki, sem hún á undangengn- um árum hefur verið að missa í hendur setuliðsins á Keflavík- urvelli. Eitt slíkt virki og það mikilvægt má endurheimta með afturköllun sjónvarpsleyfisins, eins og ráð ;er fyrir gert í þess- ari tillögu. íslenzkf sjónvarp Eins og kúnnugt er, hefur Ríkisútvarpið lítillega látið at- huga möguleika á því að koma á fót íslenzkri sjónvarpsstarf- semi, og þykir flutningsmönn- um þessarar tillögu eðlilegt, að þeirri athugun sé haldið áfram, enda þótt skoðanir manna á sjónvarpi yfirleitt séu mjög skiptar og þá ekki síður, hvort tímabært sé að stofna til þess hcr á landi nú. Menn kunna að deila um, hvort íslendingar geti staðið undir kostnaði af eigin sjónvarpi. en hitt ætti að vera ágreiningslaust, að betra sé að vera sjónvarpslaus en lúta að erlendu hp'-mannasjón- varpi. Tilhoð öskast í Chevrolet Station bifreið, árgerð 1955. Bifreiðin er til sýnis frá kl. 9 til 5 að Hagamel 4. VÉLASJÓÖUR RÍIvISINS. ... •••; - . ij ■ .s •' Símar 19204 og 22763. i HALLDOR HALLDÓRSSON arkitekt: Lán tll íbúðabygglngá i Noregi og á HÚSNÆÐIS- FJÁRMÁL 1 þriðja hluta grein- ar Halldórs Halldórsson- ar arkitekts er rætt um lánveitingar til íbúða- bygginga á íslandi og í Noregi. Þar kemur í ljós að opininber lán til nýrra íbúða eru um íjór- falt hærri en hér á landi, og lánskjör svo miklu vægari að fyrsta ársgreiðsla af láni í Noregi sem nemur 300. 000 íslenzkum krónum er nokkru lægri en fyrsta ársgreiðsla af 100.000 króna láni hér- lendis. HúsnœSis- kostnaSur Fjármagn er tæki tækjanna, eða aflvakinn, sem knýr tækni- vél nútímans. Almenn velmegun eða verulegar kjarabætur eru óhugsandi án þess að fjármagn- ið gegni iþjónustuhlutverki í þágu alþjóðar. Eins og áhrif fjármagns eru ákvarðandi um byggingarkostn- að eru þau þó margfalt meiri á húsnæðisgjöldin. Samanburður á meðferð húsnæðisfjármála á íslandi og í Noregi mundi skýra þetta vel. Hámarkslán frá Húsnæðismálastjórn ríkis- ins er 100.000,00 kr. Lánsupp- hæðin er oft innan við 20°/0 byggingarkostnaður, Hlutur fjármálanna í byggingarkostn- aðinum nær oft drjúgum stærri f járhæð en hámarkslánið. Fyrsta ársgreiðsla af hámarks- láni er um 11.000,00 kr., og er það meira fé en vísitölufjöl- skyldunni er ætlað til húsnæð- iskostnaðar. 1 Noregi er byggingu íbúðar* húsa hlíft við skattheimtu rík- isins. T.d. með því að vera undanþegin annars algengum 10°/0 söluskatti. Lánsupphæð - norska Húsbankans nemur allt að 77% byggingarkostnaðar, en í byggingarkostnaði þar erú innifalin lóðakaup og gatna- gjöld. Um eða yfir 20% láns- fjárins er vaxtalaust og með mjög vægum afborgunum, sem ekki hefjast fyrr en 10 árum eftir lántöku. Hinn hluti lán- anna er með 3% vöxtum. Af- borganatíminn er 75 ár fyrir timburhús og 100 ár fyrir steinhús. Fyrsta ársgreiðsla nemur urn 3%% af heildarláni. Norðmenn greiöa þannig held- ur minna af láni, sem í íslenzk- um krónum næmi 300.000.00 en Islendingar af sínu 100.000,00 kr. hámarksláni. Svo mikla á- herzlu leggja Norðmenn á fullnaðartryggingu fram- kvæmdafjár áður en verk hefst, að þeim er hjálpað, sem ekki eiga allt tilskilið eig- ið framlag með viðbótarláni hjá heimasparisjóði eða banka. Viðkomandi sveitar- eða bæjar- sjóðúr ábyrgist þau lán. Þessi viðbótarlán eru með venjuleg- um ibankavöxtum og afborgast á 10 árum. Húsbankinn veitir því aðeins lánsloforð, að fyrir liggi skynsamleg teikning með áætluðum byggingarko-stnaði og helzt byggingartilboði. Enginn má hefja framkvæmdir fyrr en Húsbankinn hefur samþykkt ■lántökuumsókn. Sá. ^sem ekki gætir þess, fyrirgérir lántöku- rétti sínum.'-í þessu er einnig falið aðhald þess opinbera. að ekki sé byggt meira en þörf krefur. Skyldu- sparnaSur Skyldusparnaður ungmenna er hið eina í húsnæðisfjármál- um, sem talizt gæti að við ís- lendingar hefðum fram yfir Norðmenn. Þeir munu nú hafa hug á að koma á skyldusparn- aði í einhverri mynd. Það hefur þegar sýnt sig, að' skyldusparnaðurinn getur orðið mikilvæg hjálp til heimilisstofn- unar. Eftir aðeins fjögra ára þátttöku er sparifé allmargra milli 15 og 20 þúsund kr. Eftir 10 ára sparnað gætu menn átt 50—60 þúsund kr. innistæðu óg hjónaefni samanlagt 80—100 þúsund kr. sparifé til afnota. við myndun heimilis. En það hafa nú þegar komið fram annmarkar á þessari ann- ars ágætu löggjöf. 1 fyrsta lagí er þátttaka í skyldusparnaðinum ekki nógu almenn. Markmið laganna er þó undirbúningur heimilisstofnunar. Þeir, sem ••' •7 skólaveginn ganga, eru sannar- lega eigi síður í þörf fyrir sparifjáreign, þegar að stofnun heimilis kemur. Undanþágu ætti aðeins að veita vegna iheilsuleysis og þeim, er larig- skólanám stunda, og kæmi þar til mála .að verðlauna heiðarlega stundað nám með skyldusparn-,,, aðastyrkjum til einstaklinga,, Skyldusparnaðarféð ætti aá‘ tengja fastar en er við heimil- ismyndun, t.d. að það væri efcki: frjálst til annara afnota fjtrpv en eftir þrítugsaldur. . ! öðru lagi, innheimta skyldu- spamaðarins hefur reynzt of kostnaðarsöm. . . í þriðja lagi verður skyldu-. spamaðarféð gagnsh'tið til af-. nota fyrir lánveitingár Byggíþg- arsjóðs ríkisins. Samkvæmt riýj- ustu upplýsingum mun inrilágt og útborgað skyldusparnaðarfé standast á að tveim árum liðn- um eða í síðasta lagi við árs- lok 1963. tim iUim iiam. IÍ fi g) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 24. nóvember 1961 Föstudagur 24. nóvember 1961 — ÞJÓÐVILJINN —

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.