Þjóðviljinn - 28.11.1961, Side 4
Hermann Jónasson frá Þíngeyr-
um er einn hinna merkustu ís-
lendinga, sem gæddir hafa verid
dulrænum gáfum og bækur hans
„Draumar" og „Dulrúnir", sem
lengi hafa verið ófáanlegar, jafn-
framt meðal hins allra merkasta,
sem skrifað hefur verið af Is-
Iendingum um dulræn mál. í
bók þessari segir Hermann frá
dulrænni reynslu sinni og draum-
um, sem margir urðu landsfræg-
ir á sinni tíð.
Ýtarlegir kaflar fylgja bókinni
um allar helztu kcnningar sem
uppi eru um uppruna og eðli
drauma, kenningar tilraunasál-
fræðinnar, Freuds, Jung, guð-
spckinnar og dr. Helga Pjeturs.
Verð innb. kr. 215.00.
1 fvrsta sinn kemur nú út á
íslenzku bók, sem gerir í stuttu
máli grein fyrir því helzta í hin-
um umfangsmiklu og margbrotnu
fræðikenningum guðspekinnar
um þróun Iífsins og gerð manns
og heims. Ilér er yfirleitt ekki
u.m vísindalega sannaðar kenn-
ingar að ræða, heldur mcrkileg-
ar tilgátur sannreyndar af mörg-
um heimspekingum, dulvitring-
úm cg trúarlciðtogum, sem veita
svör, þar sem annars er cngin að
fá, og sýna á sannfærandi hátt
fram á tilgang og háleit stefnu-
mið, þar sem menn eygja annars
aðeins tilgangsleysi eða tilviljun.
Verð innb. kr. 135.00.
HLIElSE JÁLF.
<
HðneÉél fyrir byrjendur
í Ijásmyndun komin út
„Ljósmyndabókin” eítir Hjálmar R. Bárð-
arson með 265 myndum
Regnklæði.
j VOPNI selur öll regnklæSi
I á gamla verðinu fyrst um
sinn.
! Gúmmífatagerðin
VOPNI,
( Aðalstræti 16.
Setberg hefur gefið út fyrstu
íslenzku handbókina um ljós-
myndun. Hjálmar R. Bárðarson
hefur þýtt og staðfært bókina,
en fjöldi mynda er efninu til
skýringar.
Ljósmyndabókin er fyrst og
fremst rituð fyrir byrjendur og
þá, sem lítið hafa fengizt við
Ijósmyndun. Bókin fjallar um
ljósmyndun almennt og hún
krefst einskis útbúnaðar nema
þess sem hver áhugaljósmynd-
ari getur aflað sér. í bókinni er
sýnt á einfaldan hátt, i texta og
myndum, hvað átt er við með
orðunum; brennivídd, Ijósstyrk-
ieiki, ljósop, ljósmælir, hliðar-
sjónskekkja, samband milli ljós-
ops og lýsingartíma.
Hér er ekki aðeins sagt frá
því, hvernig taka skuii góðar
og skýrar ijósmyndir, heldur og
rætt um notkun leifturljósa,
framköllun, kópieringu, stækkun
og margt fleira.
Fyrri hluti bókarinnar sýnir í
myndum, hvernig ljósmýndavél-
in er gerð og hverju hlutverki
annar utbunaður gegnir, hvern-
ig er framkallað, kópíerað og
stækkað.
Síðari hlutinn segir frá því,
hvernig finna á verkefni til að
Ijósmynda, hvemig finna má
kosti þess og galla.' Þessi bók
skýrir frá þeim einstöku atrið-
um, sem hvert um sig þarf að
leysa vel til að árangurinn
verði góð mynd.
Hér er sagt frá ljósi og
skuggum, sólbliki á sjó, hlut á
hreyfingu, ljósgeislum yfir and-
liti. í bókinni eru 265 myndir.
Stíideníafélag
Reykjavíkur
heldur fullveldisfagnað í LlDÓ 30. nóv. n.k. og hefst hann
með borðhaldi kl. 19 síðdegis.
DAGSKRÁ:
Ræða: Torfi Hjartarson, tollstjóri.
Gamanmál: Árni Tryggvason annast flutning og stjórnar
þætti eftir Guðmund Sigurðsson.
Páll Isólfsson stjórnar almennum söng.
DANS.
Aðgöngumiðasala verður í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar í dag, þriðjudag kl. 4—6. Borð tekin frá á sama stað.
Tcmnlœkntngastofcm
er opin aftur á MIKLUBRAUT 48. Sami sími.
Sami viðtalstími.
JÓN SIGTRYGGSSON.
Jónas Árnason hefur ritað j
minningar gamais siómanns }
i
Jónas Árnason hefur skrifað
megt urh sió og sjómennsku
j'n'g'ri hofúndá,' en flest er það
um hans eisin rcynslu á fiski-
skipum. Nú er. komin út frásögn
sem hann héfur skráð eftir öldr-
j uðurn sjómanni í Hafnarfirði,
i Jóngeiri D. Eyrbekk.
Bók þeirra Jónasar og ■ Jón-
geirs heitir Tekið í blökkina og
Setberg gefur hana út. Jóngeir
er ekki alinn upp í sjávarplássi,
heldur er hann Skagfirðingur,
og segir fyrst í bókinni frá upp-
vexti hans þar. Síðan kemur
írásögnin af sjómennsku hans,
bæði á vélbátum og togurum, en
Jóngeir er einn af gömlu tog-
arakörlunum. Hann skýrir frá
kjörum sjómanna. tvísýnum sjó-
ferðum og skipsfélögum. Koma
Jónas Arnason
þar ýmsir sérkennilegir menií
við sögu.
Þing B.S.R.B.
Framhald af 12. síðu
fulUrúar Starfsmannafélags
Reykjavíkurbæjar lögðu. fram yf-
irlýsingu um að þeir tækju .ekki
þátt í afgreiöslu málsins, og
jafnframt fylgdi hótun um að
félag þeirra segði sig úr banda-
laginu, en slíkar hótanir virðast
vera orðnar fastur liður í mál-
flutningi þeirra á bandalags-
þingum, svo að þær eru nú farn-
ar að verða máttlausari, enda
fór svo, að þeir hurfu frá þess-
ari afstöðu sinni og létu undan
samstilltum vilja allra annarra
fulltrúa um að afgreiða þetta
mikilvæga mál einróma og á-
greiningslau.st. Til þess að þeir
mættu betur una, var bætt við
sérákvæði um að starfsmanna-
félög bæjarstofnanna gætu verið
undanþegin þessum réttindum, ef
þau kysu að vera án samnings-
réttar.
Þingið lýsti yfir stuðningi við
meginstefni’. frumvarpsins um
samningsrétt og verður það
kynnt í c’lum bandalagsfélög-
unum og þeim gefinn kostur á
að skila ábendingum og athuga-
semdum . til sambandsstjórnar-
innar fyrir 10. janúar n.k. en
isíðann fól þingið stjórninni að
koma tillögunum á framfæri við
ríkisstjórnina og Alþingi. Jafn-
framt var kosin nefnd til að
endurskoða lög BSRB með til-
liti til þeirra riýju viðhorfa, sem
skapast mundu við samnings-
rétt samtakanna.
• Orðsending frá
Kvenfélagi
sósíalista
Við viljum minna félags-
konur °g aðra velunnara fé-
lagsins á að bazarinn verður
laugardaginn 2. des. kl. 3 e.h.
Gjörið svo vel og komið því
sem þið ætlið að gefa á baz-
arinn til nefndarinnar eða j
eftir kl. 8 á föstudagskvöld í
Tjarnargötu 20 (bakdyrameg-
in). — Bazarnefndin.
® Kvikmyndir um
akstur og umferð
Nokkrar stuttar umferðar-
kvikmyndir verða sýndar í
dag kl. 5 í Tjarnarkaffi. Það
er Félag íslenzkra bifreiða-
eigenda sem stendur fyrir
myndasýningunni og 'mynd-
irnar eru danskar, sænskar og
bandarískar. Myndir þessar
eru mjög athyglisverðar og
tímabærar bæði fyrir öku-
menn og aðra vegfarendur,
m.a. eru leiðbeiningar um
hvernig bezt sé að aka í
hálku og einnig er sérstök
mynd um gangandi vegfar-
endur. Öilum er heimill að-
gangur að kvikmyndasýning-
unni.
Sjómenniniir
Framhald af 12. síðu
sjómennsku að ævistarfi sínu og
eru þaulkunnugir málefnum og
kjörum sjómanna..
Listi stjórnarinnar í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur er eins
skipaður og í -fyrra að því und-
anskildu að Óli Bardal, eigandí
seglasaumastofunnar Ægis, kem-
ur í staðinn fyrir Kristján Guð-
mundsson háseta á Gullfossi.
Stjórnarlistinn virðist birta
stefnuskrá sína í Alþýðublaðinu
í fyrradag. Fjallar hún öll urra
Stalín og Krústjoff, og er þa5
ærin vísbending um áhuga þeirra
manna á kjörum og réttindum
íslenzkra siómanna. Hefði sjó-
mönnum þó þ«5tt nærtækam að
sjómannafélagsstjórnin hefði gert
einhverja grein fyrir þeim stór-
málum sem hún hefur vanrækt,
svo sem togarasamningunum,
kjarassmningum bátasjómanna
sem sigla með ísfisk, lífeyris-
sjóði fiskimanna o.s.frv. Og varla
er þess að vænta að þeir menn
sjáist oft í vesturhöfninni eða
hafi mikið eftirlif með togurun-
um sem að eigin sögn eru stadd-
ir austur á Volgubökkum og ætla
að vera þar.
Féll niður í bát
S.l. sunnudagsmorgun vildi
það sl.ys á Faxagarði, að bif-
reið bakkaði á mann með þeim
afleiðingum að hann féll út af
garðinum og niður í Guðmund
Þórðarson, er þar lá. Var þetta
allhátt fall og hlaut maðurinn
nokkur meiðsli. Var hann fluttur
í slysavarðstofuna.
30 KRÓNUR MIOINN
) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 28. nóvember 1961