Þjóðviljinn - 28.11.1961, Blaðsíða 12
1 ofviðrinu fyrir helgina urðu
allmiklar skemmdir á hafnar-
mannvirkjum norðan og norðan-
Jands og einnig í Bolungarvík.
Þjóðviljinn átti í gær tal við
Aðalstein ■ Júlíusson vita- og
hafnarmálastjóra óg innti hann
Jrétta af tjóninu. Sagði Aðal-
steinn, að enn væru skemmdir
ekki fullkannaðar, en þá væri
Ijóst, að þrátt fyrir mikið tjón
af völdum óveðursins, væru
skemmdirnar hvergi þess eðlis
að ekki væri tiltölulega auðvelt
að gera við þær. Um skemmdir
á einstökum stöðum gaf hann
eftirfarandi upplýsingar.
Austasti staður, sem vitað er
um skemmdir á, er Bakkafjörð-
ur. Þar brotnaði skjólveggur og
kafli af þekju á bryggju.
Á Þórshöfn skemmdist mjög
mikið fremstu 15 metrarnir af
garði, sem var f byggingu og því
ekki fullfrágenginn. Aðalsteinn
taldi þó að hann hefði átt að
standa af sér öll venjuleg veð-
ur. 1 su.mar var 'grafið framan
við garðinn og áttu þar að koma
ker. Kvað Aðalsteinn hætt- við
því, að rifið hefði úr garðinum
©g fyllt upp í þennan gröft.
Ekki er kunnugt um neinar
skemmdir á Raufarhöfn eða
Húsávík en við Eyjafjörð urðu
á nokkrum stöðum allmiklar
skemmdir.
Á Árskógssandi brotnaði
bryggja, en Aðalsteinn kvaðst
ekki hafa fengið nánari fréttir
þaðan.
Á Dalvík skemmdist nýr hafn-
argarður, sem ekki var búið að
ljúka við til fulls. Þetta var
grjótgarður og mun grjótið hafa
færzt til í sjávarganginum.
Á Ólafsfirði brotnaði bryggju-
partur og einnig var búizt við
því, að eitthvað af- möl og sandi
hefði borizt inn í höfnina. Um
það var þá ekki vitað til fulls.
Framhald á 5. síðu.
Félagsfundur
ÆFR
Næstkomandi miðvikudags-
kvöld kl. 9 efnir ÆFR tij félags-
lundar í félagsheimili sínu,
Tjarnargötu 20. Á dagskrá eru:
a) félagsmál, b) önnur mál. Fé-
lagar eru hvattir til að mæta
stundvslega.
Kosningar eru hafnar í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur og
bjóða starfandi sjómenn fram
B-lista til baráttu fyrir hags-
munamálum sínum sem liafa
verið hörmulega vanrækt af nú-
Jón Tímótheusson
verandi forustu sjómannafélags-
ins. Kosið er á skrifstofu félags-
ins kl. 3—6 daglega.
B-listi starfandi siómanna er
skipaður þessum mönnum:
Formaður: Jón Tímótheusson,
b.v. Víkingi.
Varaformaður; Gunnar Jóhanns-
son, m.s. Tröllafossi.
Ritari; Hreggviður Daníelsson
m.s. Vatnajökli.
Féhirðir: Hjálmar Helgason,
m.b. Þristi.
Varaféhirðir; Ingibergur Vil-
mundarson, m.s. Esju.
Meðstjórnendur: Sigurður Breið-
fjörð Þorsteinsson b.v. Hvalfelli,
Guðmundur Guðmundsson m.b.
Hermóði.
Varamenn; Dagur Halldórsson
m.b. Von, Gísli Guðmundsson
b.v. Víking, Brynjólfur Kristins-
son b.v. Hvalfelli.
Allir hafa bessir menn gert
Framhald á 4. síðu.
Alger samstaða BSRB um
almeima launahækkun
og um samningsrétt
Á þingi BSRB, sem haldið launahækkunar til handa opin-
var um síðustu helgi, rikti ein- berum starfsmönnum, þar sem
hugur um að krefjast almennrar verðhækkanir hafi vegið á móti
Flokksstjórnarfundi Sósíalista-
flokksins lauk ó sunnudagskvöld
Flökksstjórnarfundi Sósí-
alistáflokksins lauk um miö-
nætti aöfararnótt mánudags
eftir ýtarlegar og ánægju-
legar umræöur. Voru þá
samþykktar stjórnmáláá-
lyktun, ályktun um afstöð-
una til Efnahagsbandalags-
ins, ályktun um menningar-
mái og ávarp til íslendinga.
Veröa ályktanir þessar stö-
ar birtar hér í blaöinu.
Eins og skýrt var frá í síðasta
blaði var á laugardag rætt um
starfsáætlun flokksins og stjórn-
málaástandið og héldu þær um-
ræður enn áfram á sunnudag.
Auk þeirra sem áður hefur verið
getið í fréttum tóku til máls
Tryggvi Emilsson, Stefán ög-
mundsson, Guðmundur Jóhann-
esson, Einar Olgeirsson, Lúðvík
Jósepsson og Oddbergur Eiríkss.
Síðan var samþykkt starfsáætlun
Þriðjudagur 28. nóvember 1961
ÞJÓÐVILJINN
flokksins fyrir næstu tvö ár.
Þessu næst flutti Guðmundur
Vigfússon framsögu um bæjar-
stjórnarkosningarnar, og auk
hans tóku til máls um þann
dagskrárlið Ölafur Jónsson og
Einar Olgeirsson.
Þá flutti Sigfús Daðason fram-
sögu um menningarmál, en auk
hans tóku til máls Stefán ög-
mundsson, Gunnar Guttormsson,
Ásgeir Blöndal Magnússon,
Arnór Kristjánsson, Ásmundur
Sigurðsson, Sigurður Brynjólfs-
son, Jón Böðyarsson, Einar Ol-
geirsson, Kristján Andrésson,
Eysteinn Þorvaldsson og Gunnar
Benediktsson.
Einar Olgeirsson ræddi því
næst um alþjóðlegt samstarf
Sósíalistaflokksins, en aðrir
ræðumenn voru Eysteinn Þor-
valdsson, Sigurður Brynjólfsson,
Kristján Andrésson, Guðmundur
Jóhannesson, Steinþór Guð-
mundsson, Arnór Kristjánsson,
Eggert Þorbjarnarson og Finnur
Hjörleifsson.
Á sunnudagskvöld skiluðu
nefndir álitum, og skýrðu Sigfús
Daðason, Björn Jónsson, Einar
Olgeirs-son, Brynjólfur Bjarnason
og Lúðvík Jósepsson frá störfum
þeirra. Voru ályktanir flokks-
stjórnarfundarins síðan sam-
þykktar einróma.
Að lokum þakkaði Einar Ol-
geirsson flokksstjórnarmönnum
góð störf og gagnlegar umræður,
en fulltrúar risu úr sætum og
sungu alþjóðasöng verkalýðsins.
kauphækkununum frá í sumar.
Verður nánar skýrt frá tillög-
um um þessi efni síðar.
Annað aðalmál þingsins var
frumvarp til laga um samnings-
rétt opinberra starfsmanna, sem
fulltrúar BSRB í stjórnskipaðri
nefnd þeir Guðjón B Baldvins-
son og Eyjólfur Jónsson hafi lagt
fram um það efni. Er þetta mik-
ill lagabálkur, sem gerir ráð fyr-
ir samningsrétti opinberra
starfsmanna og verkiallsrétti,
sem er þó háður allmiklum tak-
mörkunum.
I byrjun umræðnanna gerðist
sá einstæði atburður, að flestir
Framhald á 4. síðu.
Brotizt inn, stol-
ið og eyðilagt
Um sl. helgi var framið inn-
brot á skrifstofu olíuhreinsunar-
stöðvarinnar að Sætúni 4 og
stolið þaðan 17 brúsum með
frostlegi og 300—400 krónum í
peningum. Auk þessa hafði þjóf-
urinn unnið mikið tjón á reikni-
og ritvélum í skrifstofunni með
því að fleygja þeim í gólfið
og stórskemma þær-
Frá hvalskurði í
Reykjavík í gœr
Allmiklar skemmdir á hafnar-
mannvirkjum á 7— 8 stöðum
1 gær tók ljósmyndari Þjóð-
viljans þessar myndir af tveim
hrefnum, sem Fiskhöllin fékk
sunnan úr Grindávík. Á þrí-
dálka myndinni ■ sést önnur
hrefnan í heilu lagi, en á tví-
dálka myndinni sést, þegar
verið er að skera hvalinn, en
hvalskurður er óvanalegt fyr-
irbrigði hér í Reykjavík.
Þjóðviljinn íékk þær upp-
lýsingar hjá St^ingrími í
Fiskhöllinni í gær, að hrefnur
þessar hefðu veiðzt í net í
Grindavíkursjó og voru iþær
þrjú til fjögur hundruð kíló
hvor. Ekki vissi Steingrímur,
hvaða bátur hefði veitt hrefn-
urnar, en hann fékk þær send-
ar með bíl sflfínanað. Hann
sagði að mjög óvanalegt væri
að fá hval á þessum tíma en
hann fengi stundum hnísur á
vorin. Ekki er hægt að nýta
nema kjötið af hrefnunum, en
það er aðeins lítill hluti af
skepnunni.