Þjóðviljinn - 05.12.1961, Síða 9
Eins og frá hefur verið sagt
í fréttum, fór Þórólfur Beck
til Skotlands á sl. hausti með
það fyrir augum að leika með
skozka félaginu St.. Mi.rren -sem
hér var á sl. sumri í boði Vals.
Forustumenn félagsins fengu
fljótt áhuga fyrir Þórólfi og
buðu honum til sín. Mun Þór-
ólíur hafa œtlað sér að kynn-
ast aðstseðum öllum, og því
lííi sem atvinnumaðurinn býr
við.
Um þessa ferð Þórólfs hafa
orðið töluverð blaðaskrif. Hér
í blaðinu hefur þó lítið verið
að því vikið, og meir beðið
ótekta hvað mundi upp koma
í þessu máli' Þórólfs. Ef til vill;
hefur þetta verið þögn kvíð-
ans fyrir því, að svo kynni að
fara, að við sem unnum góðri
knattspyrnu og sem skemmt-
um okkur konungíega, er góöir
menn sýna listir sínar, verðurn
að vera án Þórólfs í framtíð-
inni, fáum ekki að njóta þess
sem hann kann og hefur sýntl
okkur á liðnum árum, þótt ung-
ur sé.
Nú um helgfna hefur það
verið staðfest að þessi ótti var
ekki ástæðulaus; Þórólfur hef-
ur gert samning við St. Mirren
um að gerast atvinnumaður i
knattspyrnu, og er sagt að
samningurinn sé til tveggja
óra.
Þetta hefur það í för með
sér að við áhorfendur sjáum
hann ekki í liði KR, í úrvals-
liðum eða landsliðum naestu ár-
in, við fáum efcki að njóta þess
að horfa á bezta mann okkar
sýna listir sínar. Knattspyrna
okkar verður hér heima snauð-
ari en áður. Fyrir okkur verð
ur ekki eins gaman að horfa
á. Þetta er hið eigingjarna við-
horf okkar áhorfendanna til
missis Þórólfs.
® Freistandi fyrir unga
menn. ,
Hitt er svo annaö mál, sem
ajlir hljóta að skilja líka, að
það er freistandi fyrir ungan
mann að taka góðu tilboði um
atvinnumennsku í knattspyrnu.
Það liggur ekki á lausu að fá
með nafni sínu, undirs.krift
samnings, ef til vill nokkur
hundrað þúsund krónur, og
au.k þess mun meira kaup en
t.d. prentari fær (Þórólfur er
prentari að iðn). Að vísu er
atvinnumennska í knattspvrnu
nokkur binding og sá hina
sami verður að lifa o.g starfa,
eins og ,.eigandinn“ óskar.
Iívað sem annars má segja
um atvinnumennsku yfirleitt í
íþróttu.m, þá hlýtu.r það að
verða knattspyrnumönnum
nokkur örfun að ná sem lengst
í íþrótt sinni því að með þeim
samskiptum sem orðin eru
milli landa, hafa allir þá mögu-
leika að verða „séðir“ af
mönnum sem hafa alls staðar
augun opin fyrir góðum
mönnum.
Þessu_ hafa t.d. Svíar og
Danir orðið fyrir, en þaðan
hefur útflutn.ingur orðið mestur
frá Norðurlöndunum.
Þessi samningur sýnir líka
að meðal íslenzkra æskumanna
eru einstaklingar sem fyllilega
eru sambærilegir við efnivið
annarra landa, og þó má taka
tillit til þess að þar ytra eru
víðast möguleikarnir meiri til
að ná langt hvað snertir
kennslu og reynslu.
3 Með bclta í bandi.
Þeir sem voru stöðugir gest-
ir á íþróttaiællinum á Melun-
um fyrir svo sem 12—14 ár-
um minnast sennilega lítils
Ijcshærðs snáða sem var þar
öllum stundum, og sjaldan
mun hann hafa verið þar nema
knöttur væri með í förinni.
Stundum bar hann þetta leik-
fang sitt innilega undir hend-
inni. Oft mátti einnig sjá hann
með knö.ttinn bundinn f band-
spotta, þar sem snáðinn hélt
í annan endann og uffi leið
og hann gekk blakaði hann
við knettinum með fætinum,
hægri og vinstri í hverju
skrefi. Þetta var Þórólfur Beck.
Þannig urðu. þeir „dús“, hann
og knötturinn. Hver stund not-
uð. hvert skref.
Það var æfing og aftur æf-
ing. TUfinningin fyrir látum
knattarins var orðin samstilli
tilfinningum Þórólfs, og það
s’áum við raunar þegar þeir
hittast vinirnir á vellinum. Þá
er enau. líkara en að þeir séu
samvaxnir.
Þegar farið var að efna til
knattbrauta KSf, var það ekk-
ert óeðlilegt að það varð ein-’
mitt Þórölfur sem fyrstur náði
að leysa þrautir þær sem veittu
guUmerki sambandsins, þá í
þriðia flokki. Síðan hefur Þór-
ólfi stöðugt vaxið þroski og
kunnátta.
Annar atvinnumaðurinn
frá Islandi.
Þessi upprifjun um Þórólf
SP.ÆNSKAR
ný scnding
ný uppskeza
gæðaiiokkur
með knöttinn í bandinu, fær
mann til þess að renna hugan-
um enn lengra aftur í tímann
eða u.þ.b. 14 ár, er Þórólfur
var að slíta 8—10 ára skónutn.
Þá var hér annar ungur maður
sem oftast hafði knött með sér
hvert sem hann fór, og ef
strákahópur sást á túnbletti i
suðui-bænum, mátti ganga út
frá því sem vísu að þá var
hann þar. Þessi drengur var
Albert Guðmundsson. Um sitt-
hvað svipar þeim saman þess-
um ungu drengjum. Fyrst og^
fremst um ástina á leiknum og
knettinum. Þeir nota hvert
tækifæri til þess að ná valdi
yfir honum, geta tekið á móti
honum hvernig sem hann kem-
ur, geta sent hann frá sér
hvert sem þeir vilja með fá-
dæma nákvæmni. Þessari und-
irstöðu ná þeir báðir tveir á
unga aldri. Þegar þeir sem
ungir menn fara að leika í lið-
um fullorðinna, kemur það líka
fram að þeir hafa einnig hugs-
áð’ 'um það hvað knattspyrna í
raun og veru er. Þeir skynja
samleik þessara 11 manna,
hreyfingar þeirra, staðsetning-
ar, og það hjálpar þeim að
nýta þennan skilning að þeir
hafa leikni til þess að senda
knöttinn með nákvæmni á rétt-
an stað. __
Það er mjög erfitt að gera
samanburð á því hvor hafi
haft meiri leikni á þeim ár-
um, þar munar ekki miklu,
eða ekki svo að minnið greini
það.
Hinsvegar hafði Albert á
vissan hátt betri undirbfming
að því er snerti líkamsþjálfun,
því að hann stundaði harða
leikfimi á þessum árum og var
mjög góður leikfimismaður.
Það gaf honum undirstöðu sem
hann bj.ó lengi að.
Hinsvegar hefur maður það
■ á ^ilfinningunni, að Þórólfur
hafi ekki eytt eins miklúm
tíma í grunnþjálfun sína, að
hann hafi ekki verulégá tekið
á, hvað það snertir. Ástæðan
er einfaldlega sú að hann
þurfti svo miklu minna á sig
að leggja vegna leikni sinnar.
Hann hafði í fullu tré vicþ hina
ef hann aðeins beitti leikni
sinni og hinum næma skiln-
ingi á sjálfri knattspyrnunni.
í atvinnumennskunni er ekki
síður krafizt þols en leikni, og
er lögð mikil áherzla á þann
þátt þjálfunarinnar, og mun
Þórólfur hafa kynnzt því nokk-
uð þennan tíma. sem liðinn er.
Atvinnumennska og áhuga-
mennska í knattspyrnu er sitt
hvað. Atvinnumennskan er
harðari og ef svo mætti segja
■vægðarlausari. og gerir kröfu
til manna að þeir leggi sig
fram sem bezt þeir mega; ef
þeir standa sig ekki eru þeir
„settir út“ og þá lækkar gengi
þeirra. Þórólfur hefur þegar
tvö undirstöðuatriði mjög á
valdi sínu og það eru leiknin
og skilnlngurinn á s.iálfum
leiknum, og það er mikilvægt
Síðar kemu.r svo í ljós. hvort
honum falía þær kröfur sem
gerðar eru til atvinnumannsins,
hvort hann fellur inn í þann
anda sem þar ríkir, sem er
af allt öðrum toga en í áhuga-
mannaliðum.
Takist Þórólfi að falla inn t
þetta umhverfi er ekki að efa
að hann á eftir að vekja at-
hygli á íslandi og íþróttum
hér, og að hann verði góður
„ambassador11 fyrir æsku Is-
lands.
Hér er Þórólfi árnað heilla
með þennan áfanga á knatt-
spyrnuferli sínum, um leið og
til þess er hugsað með nokkr-
um trega að við skulum ekki
fá að sjá hann í leikjum með
KR, eða í landsliði á næst-
unni. Undir þetta hvorttveggja
munu allir taka, sem góðri
knattspyrnu unna af einlægni.
Frímann.
Úrslit kunn
í 3 flokkum
Lokaspretturinn er nú hafinn
í Reykjavíkurmótinu í hand-
knattleik en því lýkur um
næstu helgi. Orslit eru nú þeg-
ar kunn í þremur flokkum en
það^er í 3. fl. k. B-lið. Þar sigr-
að'i Ármann og einnig sigruðu
þeir í 2. fl. kv. A-lið. Víkingur
sigraði aftur á móti 2. fl. kv.
B-lið.
í 2. fl. k. B-lið verður að
fara fram aukaleikur á milli
Víkings og Fram þar sem bau
urðu jöfn að stigum því marka-
tala ræður aðeins í riðlum.
ÍR sigraði M
óvænt
Á sunnudagskvöld fóru fram
3 leikir í meistaraflokki og
urðu allir mjög jafnir og spenn-
andi. Mest kom á óvart sigur
ÍR yfir KR 11:10. Leikur Fram
og Víkings var lengst af tví-
sýnn, því að Fram tókst ekki
að ná forystu fyrr en um miðj-
an síðari hálfleik. Leiknum
lauk með 14:11 fyrir Fram.
Jafntefli varð á milli Vals og
Þróttai’, og náðu Þróttarar
bezta leik sínum í mótinu. Ur-
slit urðu 11:11.
Verður nánar sagt frá leikj-
um þessum á morgun.
Þriðjudagur 5. desember 1961
ÞJÓÐVILJINN