Þjóðviljinn - 13.01.1962, Side 4
Áramótin eru tími ærsla og
andvaraleysis. Þá kveikja
menn bál, sprengja púðurkerl-
ingar, Kínverja, rakettur og
hvað það heitir nú alltsaman
þetta drasl. Og þá reyna þeir
í útvarpinu að bregða svolítið
á leik og þá trommar Svavar
Gests yfir manni alla þá slag-
ara, er orðið hafa manni til
einna mests angurs á hinu út-
líðandi ári.
Minnfu á
daucSann
En áramótin eru einnig tími
hinna miklu reikningsskila. Þá
eru víxlar. afsagðir nokkrum
dögum áður en þeir falla, þá
er kallað eftir opinberum
gjöldum af meiri einbeitni en
nokkru sinni endranær, og þá
láta forsjármenn tímanlegs og
eilífs velfarnaðar ljós sitt
skína og segja okkur hvað við
eigum að gera og hvað við
eigum ógjört að láta á hinu
nýja ári, svo að okkur vegni
vel og verðum langlíf í land-
inu.
Já, langlíf í landinu. það er
nú víst helzt til ofmælt.'
Okkur var semsé alls ekki
heitið langlífi í landinu. Þrír,
eða réttara sagt tveir og hálf-
ur, af þeim andlegu leiðtog-
um, sem töluðu um áramótin,
minntu okkur á dauðann.
(Útvarpstjórinn er hálfur í
efninu, en hálfur í andan-
um). Ekki hinn kristilega og
skaplega dauða, sem allir geta
átt von á, heldur gereyðingu
heimsbyggðarinnar. Vilhjálm-
ur tók þetta reyndar ekki al-
varlega, fannst mér. En við
skulum kjóta því á frest um
sinn að ræða þessar dapur-
legu nýjárshugleiðingar, en
víkja aftur að því sem er létt-
ara á metunum.
FriSar-
boSskapur
Á gamlárskvöld flutti þá-
verandi forsætisráðherra
Bjarni Benediktsson boðskap
ríkisstjórnarinnar. Það var
sannkallaður friðarboðskapur
og var mikið logn og mikil
værð, næstum angurværð, um-
hverfis ráðherrann. Hann vildi
frið við alla menn, einkum þó
pólitíska andstæðinga, og
nefndi sem dæmi þess hvernig
ríkisstjórnin hefði rétt fram
höndina, jafnvel ibreitt út
faðminn móti tillögum stjórn-
arandstæðinga á Alþingi.
Engu skal um það spáð,
hvort raunverulegt háþrýsti-
svæði hefur myndazt utan um
ríkisstjórnina, eða hvort hún
muni vera stödd í djúpri lægð-
armiðju, og er þá hætta á að
lognið verði skammvinnt, þeg-
ar fárviðrin geysa allt í kring.
En við skulum samt vona hið
bezta.
Þegar maður er að bíða eft-
útvarpsannáll
VIKAN 31. DESEMBER 1961 XIL 6. JANtíAR 1962.
ir kosningafréttum í útvarp-
inu, þorir maður aldrei að
loka því þá á maður á hættu
að mis-sa af fréttum. sem koma
ávallt fyrirvaralaust. Stundum
finnst manni fréttirnar góðar,
stundum slæmar.
Manni var ekki ólíkt farið
á gamlárskvöld, meðan gam-
anmálin voru flutt. Maður
þorði ekki að loka fyrir hann
Svavar , af ótta við að missa
af einhverjum brandara. Og
það var með brandarana eins
og kosningafréttirnar: Stund-
um þótti manni þeir slæmir,
stundum hvorugt og stundum
dálítið góðir, og skal ekki
nánar út í það farið, en sem
heild var þetta allt dálítið
skárra en í fyrra.
Forsefinn
þakkar
Um Vilhjálm er eiginlega
ekkert nýtt að ségja, annað en
að nú hafði hann meðferðis
eldfjall, og skildist manni að
á því væri sjálf annálsbygg-
ingin reist að þessu sinm.
Sennilega er það öskjugosið
sem hefur upptendrað þessi
hugrenningatengsl. Ef nokkurs
staðar er réttur maður á rétt-
um stað, þá er það Vilhjálm-
ur í þessu áramótahlutverki.
Hann tengir árin bókstaflega
saman. Ef hann hætti þessu
starfi, myndi mönnum finnast
sem óbrúað bil yrði milli
hverra t.veggja ára, og ósýnt
hvernig mönnum tækist að
komast þar yfir, ef brú Vil-
hjáims yrði burtu kippt.
.Að liðnu hád.e.gi mánudags-
ins, nýjársdags, flutti forsetinn
boðskap sinn frá Bessastöðum.
Þetta var þakklátur maður,
sáttur við guð og menn og að
því er virtist ánægður með
hlutskipti sitt í lífinu. Hann
minntist þess, að hafa búið í
tíu ár á Bessastöðum. Hann
minntist. frumbýlingsáranna,
meðan allt var að komast í
fastar skorður og fá á sig
hefðbundið snið. En nú voru
þakkirnar til þjóðarinnar og
forsjónarinn.^r efstar í huga
forsetans. fyrir, að þessir að-
ilar hefðu leyft honum að
halda þennan stað svo lengi.
Á hinn bóginn finnst mér að
þjóðin megi vera jafnþakklát
forseta sínum og hann er
henni. Það er ómetanleg guðs-
gjöf, á þessum órólegu tímum,
að eiga forseta sem er svo ró-
legur í tíðinni, að hann lætur
það ógjört í sínum nýjársboð-
skap að hræða þjóð sína með
spádómum um yfirvofandi
eyðingu heimsbyggðarinnar,
svo semmjög.jei-komiðJUifttú.,,
Um kvöldið mun svo hafa
verið fluttur hinn raunveru-
legi annáll hins liðna árs, en
þeim lestri hlýddi ég ekki.
Hvar er nú
trúin?
Eins og áður er að vikið,
voru þeir séra Jakob og herra
Sigurbjörn mjög ábúðarfullir
og hálfgerður hregghams á
þeim, út af yfirvofandi tor-
tímingu mannskepnunnar. Vit-
anlega eru þeir ekki að dikta
þetta upp, heldur aðeins að
endurspegla þá yfirþyrmingu,
sem fallið hefur í þeirra hlut
af hinni vestrænu spennu.
En hvar er nú trúin? Getum
við ekki blátt áfram neitað að
trúa því. að slík ósköp muni
yfir okkur ganga? Og ef við
getum það ekki, getum við
þá ekki verið svo stórir í snið-
um. að láta það ógjört að fjasa
um hið ímyndaða endadæg-
ur? Það er mála sannast. að
þeir sem liggja fyrir dauðans
porti, horfandi fram á veg
allrar veraldar, eins og meist-
ari Jón orðar það. gera yfir-
leitt ekki mi.kið að því að tala
um dauðann. Hinir, sem á-
lengdar bíða og gera sér von
u.m gálgafrestinn, eru yfirleitt
f jölorðari.
Og auk alls þessa má svo
minna á það. að einhver hugg-
un ætti okkur að vera í því,
af áðurnefnd örlög bíða okkar,
að við erum þó alltént
að fórna okkur fyrir frelsið
og fyrir vestræna samvinnu,
og við getum minnzt þeirra
orða, er útvarpið okkar hafði
eftir einhverjum mektarmanni
kirkjunnar, gott ef það var
ekki sjálfur erkibiskupinn af
Kantaraborg. nú fyrir nokkr-
um árum, að það væri betra
að heimurinn færist í kjarn-
orkueldi en yrði kommúnism-
anum að bráð.
MórauSu
sokkarnir
Skulum við nú taka hinar
dapui'legu áramótahugleiðing-
ar andlegra leiðtoga út af
dagskrá um sinn og minnast
þess sem kerlingin sagði, þegar
hún kom heim frá að fylgja
bónda sínum til grafar:
Ég held að ég smeygi mér nú
úr svörtu sokkunum og í þá
mórauðu, því nú er sorgin bú-
in.
Og á þriðjudagskvöldið var
svo útvarpið aftur komið í
hversdagssokkana mórauðu.
Ásgeir Þorsteinsson verk-
fræðingur flutti erindi, sem
hann nefndi Tæknimenntun og
tilraunaskip.
Það verður að segja hverja
sögu eins og hún gengur.
Ef maður hlustar eingöngu
af samvizkusemi og skyldu-
rækni við sína, .annálsrifun,
hendir stundum það slys, að
maður sofnar. Svo fór í þetta
sinn. Eftir að ég hafði hlýtt á
ýmiskonar fróðleik og endur-
samningu á stundatöflum
skólanna nokkra Stund, sofn-
aði ég og vissi því miður
aldrei neitt um tilraunaskipið.
Lesfur Thors
Thor Vilhjálmsson las síðar
um kvöldið upp úr nýrri frum-
saminni bók. I-Ivort það voru
ferðasöguþættir, skáldskapur,
eða eitthvert sambland af
þessu tvennu, veit ég ekki. En
hvað sem þetta hefur átt að
heita, komu fram í því marg-
ir athyglisverðar myndir og
skarplegar athuganir.
Thor hefur mjög sérkenni-
legan lestrarhreim, sem minn-
ir á húslestrarlag. einkum
minnir það mig á lestrarlag
Elínar gömlu Halldórsdóttur,
ep , Ijúb^. jzar húsgangskona
norður á Ströndum um og eft-
ir síðustu aldamót og þótti
forkunnargóður píslarhug-
vekiulesari.
Kvöldvaka miðvikudagsins
hófst með Eyrbyggjulestri
Helga Hjörvar. Þá flutti
Snorri Sigfússon eri.ndi um
Magnús Einarsson. klerk frá
átjándu öld, að Tjörn í Svarf-
aðardal. Sá var sálmaskáld,
forspár, ákvæðaskáld og hald-
inn fjölkunnugur, auk þess
nokkuð ölkær. en að öllu hinn
ágætasti maður. Var erindi
þetta hið áheyrilegasta, en
helzt til miklum tíma eytt í
ættfærslur og niðjatal, og
hefði verið hægt að segja
fleiri sögur af klerki þessum,
ef ættfræðin hefði ei reynzt
svo tímafrek.
Að síðustu flutti Bergsveinn
Skúlason fyrri hluta erindis ‘
um Höskuldsey á Breiðafirði,
og stóðst það rétt á endum,
að höfundur var kominn út í
ey þessa er lestrinum lauk,
svo margar lykkiur lagði
hnnn á leið sfna út bangað.
En h.lustandanum varð þó eng-
in ofraun að fylgja Bergsveini
alla bessa króka. bví hann er
skemmtilegur ferðafélagi.
Gervisamfal
Á fimmtudagskvöldið var
Austfirðingavaka, sem ég að
vísu heyrði ekki upphafið á,
en held samt að ekki hafi tek-
izt eins vel að þessu sinni
sem stundum áður. Það heyrði
ég fyrst af vöku þessari, að
einhver var að lýsa umhverfi
Loðmundarfjarðar, að því er
ég held. Mun þetta hafa verið
allvel unnið, því höfundur
fléttaði land og sögu saman
á mjög viðfelldan hátt.
Þá kom þáttur frá Eiða-
skóla, var sá frekar leiðinleg-
ur, enda byggður upp í sam-
talsformi, sem hlustandinn
finnur að er ekki ekta. Ein-
hver kemur og leggur ein-
hverja spurningu fyrir ein-
hvern. Sá sem spurður er
setur sig í stellingar og flytur
langa ræðu. Ef spyrjandinn
skyldi, svona undir lokin,
grípa framí fyrir ræðumanni,
þá er hlustandinn alveg bú-
inn að gleyma því að um sam-
tal hafi verið að ræða og
hrekkur við og finnst sem
spurningin komi eins og fjand-
inn úr sauðarleggnum.
Svona var þetta Eiðamanna-
samtal samansett.
Þá voru flutt ljóð og stök-
ur ertir Jóhannes frá Skjögra-
stöðum, austfirzkt alþýðuskáld
frá fyrri hluta þessarar ald-
ar. Þetta var gott og ósvikið
og sómdi sér vel í þessum
dagskrárlið.
Að síðustu flutti svo aust-
firzkur löggæzlumaður erindi
um skemmtanalíf austur þar,
athyglisvert — en átti þó varla
heima í þessum dagskrárlið.
Upprennandi fasistaleiðtogi
vestur í Bandaríkjum, var
einna efst á baugi á föstudags-
kvöldið, öldungadeildarmaður
og tilvonandi keppinautur nú-
verandi forseta um gistingu f
Hvíta húsinu; hefur hann það
sér meðal annars til ágætis,
að elska Biblíuna, hata komm-
únista, og að vera ekki sendi-
bréfsfær.
Beð/ð um
hœgfleyga
sfund
Eftir fréttir síðari, flutti
Stefán Jónsson fréttamaður
þáttinn um fiskinn. Reyndar
var þetta þó nokkurskonar
gabb, því Stefán dró upp úr
pússi sínum viðtöl frá liðnu
sumri, er hann hafði átt við
aldna Vestfirðinga, og hefur
Stefán fiskað vel þar vestra í
sumar.
Á laugardagskvöldið, þrett-
ándanum, var flutt leikrit eft-
ir Halldór Stefánsson. í dufts-
ins hlut. Þetta var óhugnan-
legt verk og einhver ömurleg-
asta mynd sem ég minnist úr
íslenzku þjóðlífi. En höfund-
ur missir ekki marks, og hann
skilst ekki við þetta umkomu-
lausa fólk fyrr en það er ann-
aðhvort dautt, eða heyrandinn
getur verið nokkur veginn
viss um hver muni verða
örlög hinna er eftir lifa.
Og til þess að kveðja jólin,
kom hin hraðfleyga stund
Jónasar, næstum eins og ut-
an dagskrár með miklum söng,
hlátrum og lófaskellum.
Hvenær fáum við, sem aldn-
ir erum, notalega, rólega, hæg-
fleyga stund, okkur til
skemmtunar og dægradvalar?
En þátturinn inni í þættin-
um, Á elleftu stund, er af allt
öðru sauðahúsi en þátturinn
sjálfur. Þessi hnyttni . þáttur
skilur svolítið eftir hjá hlust-
andanum og gefur tækifæri til
íhugunar og ályktana sérhverj-
um eftir þeíjrri gáfu, kímni
eða alvöru, sem honum hefur
verið af skaparanum gefin.
éffir SKÚLA GUÐJÓNSSON fró Ljotunnarstöðum
KNATTSPYRNU-
FÉLAGEÐ
FRAM
í Lídó á sunnudagskvöld (annað kvöld) — Sóíasett —
húsgögn — myndavél o. fl. úrvalsvinninga að verð-
mæti kr. 25.000300.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 7. — Stjórnandi:
Svavar Gests. — Dansað til klukkan 1.
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 13. janúar 1962