Þjóðviljinn - 31.01.1962, Side 11

Þjóðviljinn - 31.01.1962, Side 11
Francis Clifford : 35. dagur Þá hafði hann álitið sjálfan sig á krossgötum, andspænis erfið- ustu ávörðun ævi sinnar. En það var áður en Boog kom til skjalanna. Nú voru engar kross- götur, aðeins blindgata. Og eina vandamálið var byssan í bakið og nauðsyp þess. að , þrauka. Ekkert t?nnað , skipti,. rrjáli. Stjarna hrapaði ni(5ur fyrir hæðarbrún. Boog var enn byrj- aður að hrevta úr sér ónotum og Hayden beit í sig svarið sem komið var fram á varir hans. Rétt fyrir framan hann tautaði Franklinn eitthvað sem hann gat ekki greint og hann ho.rfði á þrekna, lotlega manninn og átt- aði sig á því að enn leyndist líf í honum þrátt fyrir allt. Friðrik tapsði gerði jafntefii fyrir Petrosjan, við Geðier Franklinn hlunkaðist áfram og irðu um það? Við skulum koma horfði niður íyrir sig eins og aftur og setjast í helgan stein, hann væri að leita að einhverju. þegar þú ert hrettur.“ Hann gat ekki lengur hent reið- ur á hugsunum sínum. Þær ultu í allar áttir eins og kúlur á leik- borði, runnu burt og skullu sam- an. Það sem gerðist í heila hans virtist ekki standa í neinu sam- bandi við líkamann. Fæturnir þokuðust áfram fyrir eigin til- verknað. Hann sá auðnina þok- ast framhjá, heyrði suðið fyrir eyrunum, fann fyrir þunga stang. anna, fann bragð af söltum svita í munnvikunum, fann ramman þef frá kreósótrunnunum. En Þó var hugur hans annars staðar, á eirðarlausu flakki fram og aft- ur, ýmist í fortíð eða framtíð. Stundum var Hilda þar, brosti til hans úr hinu rúminu, kallaði úr eldhúsinu (Ert það þú, Henry?), veifaði af stéttinni. Tom var þar líka uppdubbaður í nýjan einkennisbúning daginn áður en hann sigldi (Þú ert glæsilegur, sonur. Það er svei mér horfandi á þig). Og Glen.i var þar líka (Hvað segirðu um notalega ferð út að ströndinni í lokin, ha?) Andlit og raddir komu og fóru eins og í draumi. Skaðbrenndur líkami flugfreyj- unnar var þarna líka og hann villtist á honum og Tom eftir að japanska eldsprengjan hafði far- ið með hann. Og eitt sinn var Nýja England þarna. grænt og heillandi, eins og það hafði ver- ið í Vermont fyrir fjörutíu árum og Hilda sagði: „Við skulum koma aftur Henry.: Hvað seg- Hann þreifaði með tungunni eftir horfnu 'tönnunum. Og allt í einu birti svolítið til í kollinum á honum og hann fór að hugsa um Boog og það sem hafði kom- ið fyrir og hvers vegna hann væri hér og hvað hann yrði að gera. Og samtímis, langt niðri undir mörgum og þykkum þreytulögum, andmælti veiklu- leg rödd. „Of gamall,“ sagði röddin. „Of gamall og sljór .. . Boog var orðinn þreyttur á að hrella hann. Þeir gengu lang- ar leiðir þegjandi, og þegar hann talaði þá beindi hann ill- kvittni sinni að Hayden. Hvíti þverflibbinn virtist gera honum gramt í geði. „Þú hefur vænti ég ekki sofið hjá kvenmanni, lagsi? Nei, auð- vitað ekki. Það mætti segja mér að þú hafir ekki kynnzt því nema af afspurn, þegar píurnar koma i skriftastólinn hjá þér og segja þér frá öllu saman og rekja raunir sínar. Er það ekki satt?“ Fastir liðir eins og venjuiega. 13.00 Við vinnuna: Tónlei'kar. 17.40 Framburðarkennsla í dönisku og ensku. 18.00 Otvarpssaga, barnanna: — Nýia heimiiið. 18.30 ÞÖ!r leikin á mismunandi hl.ióðfæri. 20.00 Varnaðarorð: Gísli Sigurðs- son tala.r um notkun raf- magns við byggingarfram- kvæmdir. 20.05 Sigaunaástríður: André Kostelanetz og hliómeveit. 20.20 Kvöldvaika: a) Lestur forn- rita,: Eyrbvggja saga; VIII. b) Lög eftir. vmis is'enzk tónskáld. c) Séra Jón Kr. ísfeld flytur frásög)j|bátt: — Margt ‘hefur ?keð á Esiki- fiarðarheiði. d) Jóhannes skáld úr Kötlum les úr Þióð- sögum Jóns Árna.sonar. e) Dr. Símon Jóh. Ágústsson kveður stemmur af Strönd- um. 21.45 Islenz.kt mál (Dr. Jakob Benediktsson). 22.10 Veráldarsaga Sveins frá Mælifel'sá; II. lsetur (Haftiði Jónisson garðvrkjustióri). 22.30 Næturhl.iómleikar: Frá tón- leikum Sinfómuhliómsvaitar íslands i Háskóiabíói 25. þ. m. Stiómla.ndi: Jindrich Ro- han. Symphonie Fanta- stique eftir Hector Berlioz. 23.20 Dagskrárlok. Hayden sagði ekkert. „Við hvað no.tastu í staðinn? Svona, segðu okkur frá því. Hverrig eyðið þið tímanum þess- ir séra jónar þegar þið eruð lokaðir inni saman? Ætlarðu kannski að halda því fram að þú liggir á hnjánum í tuttugu og fjóra tíma á sólarhring?“ Hayden lokaði eyrunum fyrir þessu. Hatrið hafði gagntekið hjarta hans og hann óttaðist að einhver vanstilling af hans hálfu myndi tortíma þeim öllum. Það voru margir klukkutímar síðan hann hafði borið það við að biðja, og nú þegar hann reyndi í örvæntingu að þylia Maríu. bænir til að dreifa huganum, fannst honum þær máttlausar og haldlitlar. Hann var gersneyddur allri auðmýkt. eins og hann hefði smitazt af hinu spillta og illa í fari Boogs. Hugur hans dvaldist við hina óhugnanlegu gönguferð; staldr- aði við þegar hann kom að ár- bakkanum. Ef þeir þrír hefðu að- ein'á 'hlaupið 'afð hinúm bákkan- um, þannig að flóðið hefði orðið á milli þeirra og Boogs! Hann hugsaði um þetta nokkra stund, þokaði því síðan úr huga sér, gramur yfir óheþpni þeirra. Hann fór lengra til baka, hugs- aði um stúlkuna sem lá á sess- unum dg í stað rheðaúmkunar fann hann nú til reiði. Það var sama um hvað hann hugsaði, hann fann alltaf til reiði og beiskju. Það var aðeins þegar hann leitaði enn lengra og hugs- aði um sálarstríð og efasemdir undanfarinna vikna, ao ‘ ’reiðin lét á sér standa. Það vakti hreint engar tilfinningar með honum. Landslagið fór að verða óslétt og hallandi. Hæðirnar gnæfðu yfir þá sundurskornar og gilj- óttar, mynztraðar stjörnubirtu og skuggum. „f hina áttina, lögga. Til vinstri... Til vinstri, heyrirðu það?“ Hryggurinn lá nokkurn veginn frá norðxi til-suðurs. Þeir höfðu komið að honum frá norð-austri, og nú beygðu þeir í suður, með- fram rótunum. I austri voru aðr- ar hæðir, á að gizka tíu—tólf mílur í burtu og þær vo.ru eins og löng, svört alda, nokkrir þumlungar á hæð. Boog kærði sig ekki um að fara upp í hæðirnar. Hann var ánægður yfir að hafa þær þama við höndina. Það var á- stæðulaust að leita hælis fyrr en þeir máttu til. Það myndi aðeins tefja fyrir þeim. Þeir gengu orðið helmingi hægar en áður. En hann kvartaði ekki yf- ir því. Þeir höfðu verið á göngu í sjö klukkutíma og hann var af sér genginn af áreynslunni. Aðeins umhugsunin um morgun- inn og hvað hann kynni að færa þeim, hélt honum uppi, rétt eins og sársaukinn í úlnliðnum varð til þess að hann hreytti sí felidum ónotum í hina. Myrkrið hafði veitt honum frest og hann urðu þeir að nota, hvað sem það k-^staði. Það var óslétt og illgengt þarna við ræturnar. Saguaro, kaktusar uxu eins og tótemsúl- ur í brekkunni til hægri og sömuleiðis chollakaktusar, gadda- perur og byssukaktusar innan um saltgresið og tágarnar. Á stöku stað gnæfðu risastórir steinar yfir þá meðan þeir röltu framhjá. Þreyta og torleiði gerðu röðina óreglulega og hlykkjótta. Ýmist voru þeir á hælunum hver á öðrurn eða þeir dreifðust. Dreng- urinn haltraði á eftir Hayden, hélt um þunga stöngina og beið í ofvæni eftir tækifærinu. Hann þorði ekki að líta við, svo að Boog grunaði ekki hvað hann var að ráðgera. En ho.num tókst þó stundum að gjóta til hans augunum útundan sér. Hann var að bíða eftir hentugu umhverfi og um leið þyrfti Boog að drag- ast nokkur skref afturúr, Þetta tvennt yrði að fara saman, ann- ars þyrði hann þetta aldrei. Fimm mínútur liðu. Tíu . . . fimmtán ... Þetta var vaxandi taugaspenna. Maginn á honum var orðinn eins og flögrandi vængir og hjartað barðist eins og stórtrumba. En annaðhvort var umhverfið óheppilegt eða Boog var of nærri og hann fann hvernig hin erfiða bið dró úr éinbeitni hans. Á laugardaginn hófst milli- svæðamótið í skák í Stokkhólmi. Ei’u keppendur 23 að tölu og hljóta 6 þeir efstu rétt til þátt- töku í næsta kandidatamóti. Keppendur eru þessir taldir í töfluröð: 1. Stein, Sovétr. 2. Petrosjan, Sovétr. 3. Geller, Sovétr. 4. Kortsnoj, Sovétr. 5. Filip, Tékkósl. 6. Bolbochan, Argentínu, 7. Bertok, Júgósl-. 8. Uhlmann, A-Þýzkal. 9. Teschner, V-Þýzkal. 10. Benkö, USA. 11. Aaron, Ind- land. 12. Portisch, Ungverjal. 13. Bilek, Ungverjal. 14. Barcza, Ungverjal. 15. Bisguier, USA. 16. Fischer, USA. 17. Pomer, Spáni. 18. Gligoric, Júgósl. 19. Schweb- er, Argentínu. 20. Yanovsky, Kanada, 21. Chermann, Argent. 22. Cuellar, Kólumbíu. 23. Frið- rik, Xslandi. í fyrstu urnferð vann Petro.sj- an Friðrik, Cuellar vann Geller, Filip vann Yanovsky, Uhlmann Pomar, Benkö Bisguier og Barcza Aaron en jafntefli gerðu Korts- noj og Chermann, Bolbochan og Schweber, Bertok og Gligoric, Teschner og Fischer, Portisch og Bilek. Stein sat hjá. í annarri umferð vann Cuel? ar Kortsnoj, Filip Chermanr> Bolbochan Yanowsky, Schweber Bertok, Pomar Teschner og Bis- guier Aaron. Jafntefli gerðu Stein og Petrosjan, Geller og Friðrik, Uhlmann og Gligoric» Benkö og Fischer, Portisch og Barcza. Bilek sat hjá. LðGFRÆÐI- STðRF endurskoðun og fasteignasala. Ragnar ölaísson hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi, Sími 2-22-93. Nýtízku husgögil Fjölbreytt úrval. Póstsendum. Axel Eyjólísson, Skiphoiti 7. Sími 10117. 1 i Það var þrásetukvöld ( klúbbnum og þeir félagar ó- heppni sérfræðingurinn og Lárus lengrakomni ákváðu að spila fast gegn þeim félögum Villa vonlausa og Hallæris- iHalli. Áður en þeir byrjuðu hafði Lárus tekið sérfræðinginn á eintal til þess að lýsa fyrií honum hvað vörnin væri yfir- leitt slöpp hjá væntanlegum andstæðingum þeirra. „Þeir gets spiiað svolítið úr spilunum, er» vörnin er alveg núll hjá þeim“, hafði hann sagt. Svo kom fyrsta spilið sem var eftirfar- andi: Sérfr.: S: A-K-4 H: 6-3 T: 9-6-5-3 L: D-9-8-6 Hallur: S: 5 H: K-9-8-7-2 T: 10-8-2 L:A-5-4-2 Villi: S: D-10-9-8-3 H: 5 T: K-7-4 L: K-10-7-3 Lárus: S: G-7-6-2 H: A-D-G-10-4 T: A-D-G L: G Tækifæ^ð ^kom allt í einu, þegar þeir gengu framhjá háum steindrangi. Franklinn og Hayd- en vo.ru komnir framhjá. Dreng- Eftir mjög vísindalega sagn- seríu komust Lárus og sérfræð- ingurinn í fjóra spaða, sem voru snarlega doblaðir af Villa. Hallæris-Hallur átti út, og eftir all-langa umhugsun komst hann að þeirri niðurstöðu að lágt lauf undan ásnum myndi vera mjög slungið útspil. Blindur lét áttuna, Villi tíuna og Lárus fékk siaginn á gosann. Nú fór sagnhafi inn á trompás, spilaðí hjarta og svínaði gosanum. Hallur gaf eldsnöggt. Þar eð Lárus hafði opnað á spaða frek- en hjarta, datt Halli ekki í hug, að hann ætti fimm hjörtu, og hugðist hann drepa næst og spila hjarta í þriðia gang til þess að láta Villa trompa. „Fjári sniðugt", hugsaði hann með sjálfum sér. Enn fór sagn- hafi inn á tromp í borði og nú kom legan I Ijós. Þá spilaði sagnhafi hjarta, austur kastaði laufi og suður fékk slaginn á ásinn. „Þetta er nú meiri leg- an“, hugsaði Lárus. „Það kernur sér vel að vörnin er ekki al- veg 100%.“ Nú spilaði hann hjartatíu, vestur gaf, blindur hen-ti tígli og austur trompaðl með níunni. Nú var erfitt urrí útspil hjá austri, því náttúrlega reiknaði hann laufásinn hjá suðri. Hann spilaði því tígli* suður svínaði gosanum og spil-- aði hjartadrottningunni út. Vestur lét kónginn. blinduE- trompaði og austur yfirtromp^ aðL Hann tók síðan drottning- una og spilaði ennþá tígli. Drottningunni var svínað og ás- inn teki.nn. Síðan spilaði Lárus: síðasta trompinu. og Hallur var í töluverðu hallæri. Hann átti hiartaníuna og laufaásinn eftir. „Þetta var víst þrettánda hjart- að, sem ég er með,“ hugsaö'" hann. „hann hlýtur að eigci iaufakónginn eftir“. Hann kast- aði því hiarta nú og sagnhaÞ átti síðasta slaginn á hjarla-- fjarkann. „Þetta hef ég aldref séð áður.“ sagði Lárus og byrgðv niðri í sér hláturinn. „Að láta1' mig vinna þetta spil.“ En Hallur ög Villi heyrðu það ekki. því þeir voru önnum kafnir við a? útskýra sína spilamennsku hvoí fyrir öðrum. 1 i Miðvikudagur 31. janúar 1962 — ÞJÖÐVILJINN — (J R

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.