Þjóðviljinn - 10.02.1962, Page 12

Þjóðviljinn - 10.02.1962, Page 12
ru sinni fyrr Samkvæmt upplýsingum Mjólkureftirlits ríkisins nam heildarmjólkurmagn samlaganna á síðasta ári 81.545.343 kg., sem er 5.878.142 kg meira magn en 1960 eöa 7,77% aukning. í 1. og 2. flokk fóru 97,81%, í 3. flokk 2.06%j og í 4. flokk 0,12%. Hjá mjólkurstöðinni í Reykja- vík reyndist innvegin mjólk á síðasta ári 6.869.637 kg sem er 1,21% minna magn en 1960. Hjá Mjólkurstöð Kaupfélags Suður-Borgfirðinga, Akranesi, — jókst innvegið mjólkurmagn um 6,97",'o, hjá Mjólkursamlagi Borg- firðinga, Borgarnesi, nam aukn- ingin 10,20%, hjá Mjólkurstöð Kaupféiags Isfirðinga, Isafirði, 5,75%, hjá Mjólkursamlagi Kaup- — TJ Flugstöðvarhús q Reykjaví ku rveí I i Nýrri flugstöðvarbyggingu á Reykjavíkurflugvelli, íburðar- lausri en þokkalegri, er ætlað að skapa aðstöðu til mun betri af- greiðsluþjónustu við þá 120— 130 þúsund farþcga sem árlega fara um flugvöllinn en nú cr unnt að Iáta í té í þeim skúrum sem bæði flugfélögin verða að notast við. Eitthvað á þessa leið mælti Ágnar Kofoed-Hansen flugmála- Stjóri í stuttu viðtali við Þjóð- viljann í gærkvöldi, er blaðið hafði samband við hana í tilefni af samþykkt borgarráðs Reykja- víkur í gærdag, þar sem flug- málastjórninni var heimilið að reisa flugstöðvarbygginguna eftir fyrirliggjandi teikningum. Flugmálastjóri sagði, að hafist yrði handa um byggingarfram- kvæmdir þegar í vor, en gangur framkvæmda færi að sjálfsögðu fyrst og fremst eftir fjárveiting- um til þeirra. Aðspurður, hvort rétt væri að Loftleiðir hefðu hoðið flugmálastjórninni lán til hyggingaframkvæmdanna, sagði flugmálastjóri að þeir Loftleiða- menn hefðu ymprað á slíku en skrifiegt boð lægi ekkert fyrir. Hinsvegar teldi hann ugglaust að bæði flugfélögin myndu styðja þetta mál sem bezt mættu, eins og þeir aðilar aðrir sem um það hefðu þurft að fjalla: flugmála- ráðherra, ríkisstjóm, borgarstjóri og borgarráð. Kvaðst flugmála- stjóri þessum aðilum öllum afar- þakklátur fyrir ágætan skilning á málinu. Flugstöðvarbyggingin nýja verð- ur reist norð-vestur af ílugturn- inum nýja, áföst við hann. Þetta verður tveggja hæða hús. Grunn- flötur neðri hæðar um 1200 fer- metrar en efri hæðar rúmir 700 fermetrar. Teikingar að húsinu liggja þegar fyrir, en nefnd vinn- ur nú að nokkurri endurskoðun þeirra, jafnframt því sem unnið er að öðrum nauðsynlegum und- irbúningi hússmíðarinnar. Flugmálastjóri kvaðst að lok- um vilja taka það fram, að smíði flugstöðvarbyggingarinnar myndi á engan hátt binda flugvöllinn við núverandi stað. Húsið yrði þannig úr garði gert, að það myndi falla inn í hverfisskipu- lagið, ef ákveðið yrði að leggja flugvöllinn þarna niður og reisa annan á öðrum stað. félags Vestur-Húnvetninga og Kaupfélagi Hrútfirðinga. Hvamms tanga, 19,07%, hjá Mjólkursam- lagi Húnvetninga, Biönduósi, 4,73%, hjá Mjólkursamlagi Skag- fi.rðinga, Sauðárkróki, 4.24" „, hjá Mjólkursamlagi Kaupfélags Ól- afsfjarðar, Ólafsfirði, 2,95%, hjá Mjólkursamlagi KEA, Akureyri, 5,57%, hjá Mjólkursamlagi Þing- eyinga, Húsavík, 8,92%, hjá Mjólku.rsamlagi K.M.B. Egilsstöð- um 66,37%, hjá Mjólkurbúi Kaup- félagsins Fram, Neskaupstað, 3,37%, hjá Mjólkurbúi. Kaupfé- lags Austur-Skaftfellinga. Höfn í Hornafirði 16,14% og hjá Mjólk- urbúi Flóamanna, Selfossi, nam aukningin á árinu 9.08%. Innvegið mjólkurmagn hefur bví aukizt hjá öllum mjólkur- búum og samlögum landsins á síðasta ári nema hér í Reykja- vík. Þess má geta, að fyrsta starfsár Mjólkurstöðvarinnar í Reykjavík árið 1920, var mjólk- urmagnið um 1.700.000 kg,. en nú — á síðasta ári — 6.869.637 kg eins og áður var sagt. Mjólkur- magn þriggja samlaga á landinu varð meira á árinu en hér í Reykjavík. Við Jangmestu magni tók Mjólkurbú Flóamanna á Sel- fossi eða 32.800.450 kg, þá kemur Mjólkursamlag KEA á Akureyri með 15.098.062 lftra og í þriðja sæti Mjólkursamlag Borgfirðinga, Borgarnesi, með 7.759.804 kg. Franco-Spánn í Efnahags- bandalagið RÍADRID 9/2 — Fasistaríkið Spánn hefur nú formlega farið fram á viðræður um .aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu. Var þetta tilkynnt samtímis.í Madrid og París í dag. Var þess getið að Spánn vildi fyrst aukakaðild með fulla aðild síðar fyrir augum. Umsókn Spánar var send í bréfi frá spánska utanríkisráðherran- um, Castiella, til utanríkisráð- herra Frakklands, Couve de Mur- ville, sem er formaður í ráðherra- nefnd Efnahagsbandalagsins. Laugardagur 10. febrúar 1962 — 27. árgangur — 34. tölublað Nýjung í Fylk- ingarheimilinu Annað kvöld, sunnudag, verður fitjað upp á nýjung í starfi ÆFR í félagsheimil- inu, Tjarnargötu 20. Er ætl- unin að hafa þar, hálfsmán- aðarlega, dagskrá frá ýms- um þjóðum. Fenginn verður fyrirlesari sem dvalizt hefur í viðkomandi landi og kynntir vissir þættir úr bók- menntum og tónlist þjóðar- innar. Fyrsta kynningar- kvöldið veröur helgaö Dan- mörku. Enda þótt íslendingar hafi enn mikil samsk'pti við Dani og skiiji mál þeirra, hefur þekk- ing okkar á dönskum bók- menntum ekki orðið ýkja mikil og ýmsir góðir höfundar þar í landi óþekktir hér. Á kynningar- kvöldinu í Æ.F.R.-salnum verð- ur lesið úr verkum þriggja skálda: Mart'n Andersen Nexö, sem e.t.v. er kunnastur danskra höfunda hér á landi, Hans Kirk sem er alþekktur af a.m.k. fjór- um skáldsögum, sem birzt hafa á íslenzku, og loks Hans Scher- fig. sem er lítt þekktur hér. Hann hefur beitt penna sínum með bitru háði eegn ýmsum meinsemdum þjóðfélags'ns og m.a. skrifað skólaskáldsögu, þar sem hæðst er að úreltum og lífvana aðferðum, sem þó þekkj- ast enn hér sem í Danmörku. Hörður Bergmann mun tala um róttæka danska rithöfunda, og einkum verk þeirra, sem kynntir verða. Fyrirlesari þetta kvöld verður Guðmundur Magnússon, sem tal- ar um Danmörk og íslenzka Hafnarstúdenta. Öllum er heimill aðgangur að þessu kynn'ngarkvöldi og kaffi- veitingar verða að sjálfsögðu á boðstólum. Tala dauðra 315 í Saarbrucken Saarbriicken 9/2 — Tala dauöra í námuslysinu mikla við Saarbrucken fyrr í vik- unni er komin upp í 305. Þetta er eitt stærsta námu- slys, sem orðiö hefur í Evr- ópu. Námuslysið varð sl. þriðjudag, þegar gífurleg gassprenging varð í námunni, þar sem 480 menn voru að vinnu. Síðan hefur' stöð- ugt verði unnið að því að ná upp líkum hinna dauðu og bjarga meira og minna særðum mönn- um. Eftir því sem fleiri lík hafa náðst upp á yfirborðið hafa von- ir fólks um að enn lifi einhverjir niðri í námunni dofnað. I gær- kvöld náðust 15 lík upp úr nám- unni. Um 80 sluppu með meiðsli og nokkrir alveg ómeiddir. Enn er saknað tíu námumanna, og telja flestir öruggt að þeir séu dauðir í námunni. Þannig er lík- legt að þetta hörmulega slys muni kosta 315 mannslíf. Ingemar lék sér að Bygraves ' í gær kepptu þeir í hnefaleik- um Ingemar Johannson og By- graves, blökkumaður frá Jama- ica. Þeir slóust í Gautaborg og urðu úrslit þau, að Ingó vann í 4. lotu á svokölluðu teknísku rothöggi. Bardaginn einkenndist af al- gjörum yfirburðum Svíans, sem lék sér að fórnarlambi sínu, er vafraði ruglaður og blóðugur um hringinn þangað til dómarinn stöðvaði leikinn í 4 lotu, sem fyrr er sagt, og úrskurðaði Ingó sigurvegara.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.