Þjóðviljinn - 17.02.1962, Side 3
f FYRRADAG, íimmtudag, var
leikrit Sigurðar A. Magnús-
sonar blaðamanns og rithöf-
undar, „Gestagangur“, frum-
sýnt í Þjóðleikhúsinu. Var
leiknum ágætlega tekið af
frumsýningargcstum og höf-
undur, leikstjóri og IeSkend-
ur kallaðlr fram á sviðið i
leikslok hvað eftir annað.
SVO SEM AÐER hefur verið
skýrt frá í fréttum, hefur
Benedikt Árnason haft leik-
stjórniná með höndum, en
„Gestagangi
tekið
Ff
0
sýningu
Ieiktjöldin málaði Gunnar
Bjarnason. Lcikendur eru 5
talsins: Herdis Þorvaldsdóttir,
Kristbjörg Kjeld, Gísli AI-
freðsson, Gunnar Eyjólfsson
og Róbert Arnfinnson.
GlSLI KEMUR nú í fyrsta
skipti fram á Iciksviði Þjóð-
leikhússins, en hann er ungur
Keflvíkingur sem Iagt hefur
stund á Ieiklistarnám í Mun-
chen í Vestur-Þýzkalandi und-
anfarin ár. Sést Gísli Alfreðs-
son hér fyrir ofan í hlutverki
sínu í „Gestagangi", ásamt
Kristbjörgu Kjeld.
„GESXAGANGUR“ verður næst
sýndur annað kvöld, sunnu-
dag; eftir helgina mun birt-
ast leikdómur Ásgeirs Hjart-
arsonar hér í blaðinu.
Tannlæknar leggja til-
lögu fyrir borgarstjóra
Vegna fyrirspumar borgarstjór-
ans í Reykjavík dags. fimmtu-
daginn 15. febrúar 1962 og frá
var skýrt hér á síðunni í gær,
óskar stjórn Tanniæknafélags
Islands að taka fram eftirfarandi.
Á fundi sem fyrirhugaður er
með borgarstjóra á mánudag 19.
febrúar verður lögð fyrir hann
tillaga varðandi skólatannlækn-
ingar, sem stjórn Tannlæknafé-
lags Islands mælir með.
Helge Ingstad
væntanlegur til
Reykjavíkur
Norski landkönnuðurinn og rit-
höfundurinn Helge Ingstad mun
koma til Reykjavíkur á mánu-
dag'nn kemur. Með honum er
kona hans, fornleifafræðingurinn
Anne Stine Ingstad. Eins og
kunnugt er telur Ingstad að þau
hjón hafi fundið v.'stir no.rrænna
miðaldamanna á norðurodda Ný-
fundnalands. Þau hjón munu
dveljast hér á landi nokkra daga,
hafa tal af íslenzkum fræðimönn-
um og kynna sér þær íslenzkar
rannsóknir, sem varpað gætu ein-
hverju ljósj á það sem fram hef-
Ur komið á Nýfundnalandi.
(Frétt frá Þjóðminjasafninu)
40 gráðu hita-
mismunur
OSLO 16/2. — Hitamismunur
frá nyrsta odda Noregs til þess
syðsta var í' morgun yfir 40 stig.
1 Karasjók ;var 43 stiga frost,' en
7 stiga hiti var i Kristiansand.
Rætt um undir-
skriftasöfnun
rithöfunda
Á fundi Rithöfundafélags
fslands sl. miðvikudags-
kvöld var m.a. rætt um
undirskriftasöfnun að mót-
mælum rithöfunda gcgn
stækkun sjónvarpsstöðvar
bandaríska hernámsliðsins á
Keflavíkurflugvelli.
Einnig fóru fram umræð-
ur um rétt höfunda og var
í því efni samþykt tillaga
þar sem lýst er algerri sam-
stöðu með stjórn Rithöf-
undasambands fslands
vegna aðgerða hcnnar gegn
Tímanum.
Bandarískir studentar
sýna í Þjóðleikhúsinu
Um miðja næstu viku er
væntanlegur hingað til lands leik-
flokkur frá háskólanum í Suður-
Illinoisriki i Bandaríkjunum og
hcldur hann hcr eina leiksýn-
ingu í Þjóðleikhúsinu á vegum
íslenzk-ameríska félagsins. Flokk-
urinn sýnir bandaríska gaman-
leikinn „Fædd í gaar“ eftir Garson
Kanin. Þessi leiksýning fer fram
fimmtudaginn 22. febrúar n.k.,
og hefst kl. 8,30 e. h.
Leikflokkur sá, sem hér um
ræðir, nefnist The Southern
Players. Hefur hann sýnt þennan
vinsæla gamanleik, ásamt öðrum
leikhúsverkum, víða um Banda-
ríkin og hlotið miklar vinsældir
fyrir. Flokkinn skipa aðallega
nemendur í Southern Illinois Uni-
versity, sem eru komnir að því
að ljúka háskólaprófi í leiklist og
leikhúsfræðum, en þær fræði-
greinar eru kenndar við flesta há-
skóla í Bandaríkjunum. Aðal-
hlutverkin eru í höndum þeirra
Susan Pennington, sem leikur
BiIIie Dawn, ungu unnustu skran-
salans Harry Brock, en það hlut-
verk er í höndum Alan Roth-
mans.
Blaðamanninn, Paul Verrall, sem
sér of vel um menntun unnust-
unnar, leikur Joseph Ridér. Leik-
stjóri er Archibald McLeod.
Þessi gamanleikur hefur not-
ið feykimikilla vinsælda og var
á sínum tíma sýndur meir en
1.600 sinnum samfleytt á Broad-
way. Lék þá Judy Holliday að-
alhlutverkið, og síðar einnig í
kvikmyndinni, sem gerð var eft-
ir leikritinu. Hlaut hún mikla
frægð fyrir og Óscar-verðlaunin
fyrir leik sinn í hlutverki Billie
Dawns.
Einnig hefur þetta leikrit not-
ið vinsælda hér, en fyrir nokkr-
um árum var það sýnt í Þjóð-
leikhúsinu. Aðalhlutverkin voru
þá í höndum þeirra Vals Gísla-
sonar, Þóru Friðriksdóttur og
Benedikts Árnasonar. Leikstjóri
var Indriði Waage.
Verð á aðgöngumiðum að þess-
ari einu sýningu hefur verið í
hóf stillt, og kosta þeir kr. 60,—,
kr. 40,— og kr. 25,—. Forsala hef-
ur staðið yfir á aðgöngumiðum
fyrir meðlimi íslenzk-ameríska
félagsins, en frá og með mánu-
deginum 19. þ. m. verðg aðgörigu-
miðar seldir í Þjóðletíhúsinu.
Athygli skal vakin á því að
leiksýníngin hefst kl. 8,30, en
ekki kl. 8, eins og venja er með
leiksýningar Þjóðleikhússins.
(Fréttatilkynning frá Islenzk-
ameríska félaginu.)
Rafveita ísafjarðar 25 ára
ÍSAFIRÐI 14/2 — Rafveita
Isafjarðar og Eyrarhrepps varð
25 ára 13. febr. sl. og var afmæl-
isins minnzt með hófi þá um
kvöldið. Þar voru haldnar ræður
og elzti starfsmaður veitunnar
Guðmupdur G. Kristjánsson,
heiðraður með 10.000 kr. heiðurs-
gjöf fyrir frábæra þjónustu, en
hann hefur unnið við veituna
frá upphafi. Einnig var hann
verkstjóri við fyrstu stíflugerðina
árið 1928.
, Fyrsta árið sem veitan starfaði
var orkuframleiðslan 405.000
kwst. Fyrsta árið nam orkusalan
53.500 kr. en 1960 3.7 millj. króna.
Bókfærður byggingarkostnaður
við fyrstu virkjunina var 806.600
kr. en árið 1938 var kostnaðurinn
kominn uppí rúma milljón. 1
árslok 1960 var stofnkostnaður
allra stöðvanna 9.5 millj.
Rafveiturnar á Isafirði og á
Bolungavík hafa nú verið sam-
einaðar Mjólkárvirkjuninni.
4 listeverkabæk-
ur á döfinni hjá ’
Helgafelli 1
Ragnar Jónsson skýrði frétta-
mönnum frá því í gær að nii
væru í prentun fjórar nýjar bæk-
ur í flokknum Listaverkabækur
Helgafells. Bjóst hann við að
þeirra fyrst kæmi út bók með
myndum af verkum Sigurjóns Ól-
afssonar myndhöggvara. Þá kem-
ur út ný bók með verkum Ás-
gríms Jónssonar, en sú fyrri er
uppseld. Tómas Guðmundsson
skrifar um listamanninn. Bók
með myndum af verkum Gunn-
laugs Scheving verður með for-
mála eftir Hörð Ágústsson og
Eggert Stefánsson skrifar formála
fyrir bók með verkum Gunnlaugs
Blöndal.
VOPNAFIRÐI 13/2 — Rekstun
síldarverksmiðjunnar hér gekk
mjög ókjósanlega á órinu. Þessa
dagana er verið að skipa Út síð-
ustu afurðunum. ^■■”T"
Um
mútur
Morgunblaðið kveinkar sér
undan því í gær að Þjóðviij-
inn ta]j um mútur i sambandi
v.’ð samskipti íslands og
Bandaríkjanna. Ekki verður
þó um það deilt að í hvert
einasta skipti sem íslending-
ar hafa tekið stórákvörðun í
utanrík'smálum hefur verið
borið á þá bandarískt fé. Þeg-
iar Bjarná Benediktssyni, Emil
JónsSyni og Eysteini Jónssynj
var steínt utan til þess að
ganga frá þátttöku íslands i
Atianzhafsbandalaginu var ís-
lendingum samdægurs afhent
stórgjöf i dollurum. Þegar fs-
land var hernumið 1951 kom
ný fúlga. Þegar Framsóknar-
flokkurinn og Alþýðuflokkur-
inn sviku loforð sitt um brott-
för hersins haustið 1957 stóð
ekki á nýrri fjárhagsaðstoð
Bandaríkjanna. Þegar íslenzka
stjórnin gerði landhelgis-
samninginn við Breta kom
enn e:tt lán frá Bandáríkjun-
um. Seinast í gær var skýrt
frá því í blöðum að Alþjóða-
bankinn sem Bandarikin
stjórna hefðj nú veitt lán til
hitaveituíramkvæmda og
fylgdi það fréttinni að „þetta
Alþjóðabankalán er h:ð fyrsta
29 nemendur luku
gagnfræðaprófi j
VESTMANNAEYJUM 13/2 —
Fjórða bekk Gagnfræðaskólana
var slitið sl. sunnudag. 29 nem-
endur þreyttu gagnfræðapróf og
stóðust allir. Hæstu einkunn í
bóknámsdeild hlaut Sigríður
Jakobsdóttir, fékk hún bókaverð-
laun frá skólanum og önnur frá
skólastjóra fyrir námsafrek.
Hæstu einkunn í verknáms-
deild hlaut Guðmundur Svein-
bjömsson og hlaut hann einnig
bókaverðlaun frá skólanum fyrir
námsafrek. Sigfríð Konráðsdóttir
hlaut fagran silfurbikar frá Fé-
lagi kaupsýslumanna sem verð-
laun fyrir góða frammistöðu I
bókhaldi og vélritun. Kristíri
Brynjólfsdóttir fékk bókaverð-
laun frá Rotaryklúbbnum fyrir
bezta frammistöðu í íslenzku.
sem bankinn veítir ríkinu eftir
nær 9 ára hlé‘‘. Það er á allra
vitorði að Alþjóðabankinn
neitaði að veita íslendingum
lán vegna þess að hann vildi
knýja landsmenn til að breyta
efnahagskerfi sínu. Viðreisnin
er runnin undan rifjum bank-
ans, og því kemur umbunin
nú í beinhörðum peningum.
Grein Morgunblaðsins um
þetta efni er prentuð á banda-
ríska hraðpressu. Blaðið fékk
vélina á sínum tíma sem Mar-
shallaðstoð, og auðvitað fylgdi
það með í kaupunum að vél-
ina mættj aðeins nota til að
prenta áróður sem Bandaríkin
hafa velþóknun á. — Austri.
Laugardagur 17. febi-úar 1962 — ÞJÓÐVILJINN