Þjóðviljinn - 17.02.1962, Side 5
Verður hœtt við
að senda Glenn?
KANAVERALHÖFÐA 16/2 — Ferðalagi Glenn majors í
geimskipi umhverfis jörðina var frestað í 10. sinn í dag.
Sagt er að það sé vegna veðurs.
Þekktur bandarískur sérfræð-
ingur Constantíne Generales að
nafni, sagði í gær, að stjórnendur
tilraunarinnar ættu að velja nýj-
an mann til fararinnar, þar eð
hin langa bið gæti hafa haft
þau áhrif á Glenn að hann gerði
einhverjar vitleysur, sem hann
annars hefði ekki gert.
Sjálfur tók Glenn fréttinni með
mestu ró, bjóst enda við henni.
Einn af læknum Glenns sagði
í dag, að sér virtist ekki ástæða
til að skipta um mann í tilraun-
Lagðist á blið-
ina í reynsluför
KIEL 16/2. — Er sovézka hval-
veiðiskipið Vladivostok var að
leggja af stáð í reynsluför, lagð-
ist það skyndilega á hliðina. Um
300 manns voru að vinnu í skip-
inu er óhappið varð og lokuðust
nokkrir þeirra inni. öllum tókst
þó að bjarga, en 30 manns
meiddust.
inni, þar sem majorinn sýndi
engin merki þess, að frestandrn-
ar hefðu haft slæm áhrif á hann.
Liðsflutningar í
Nepal-ríki
KATMANDU 10/2 — Stjómin í
Neapal hefur í miklu skyndi sent
herlið með flugvélum og bílum
til Bharatpur-svæðisins í suður-
hluta landsins, þar sem upp-
reisn mun hafa brotizt út.
Ekki hafa borizt nákvæmar
fréttir -af þessum atburðum; en
fréttir að austan herma að upp-
reisnin sé alvarlegasta ógnunin,
sem stjórn Mahendra konungs
hefur orð:'ð fyrir síðan óeirðir
urðu í landinu í árslok 1960.
Fregnir frá Bharatpur benda til
þess að snarpir bardagar séu
háðir milli uppreisnarmanna og
herliðs stjórnarinnar.
LONDON 12/2 — Levin O’Brien
sigraði í Twistkeppnínni miklu,
dansaði í 33 klst. Hann var
hinn hressasti eftir þessa þrek-
raun og fékk sér nokkra snún-
inga af rokki eftir að hann
hafði verið útskrifaður sigur-
vegari.
Einstæð rödd á
Portágals-þingi
LISSABON 10/2. — Dr. Victor
Barros, þingmaður fyrir Angóla,
stóð upp í portúgalska þinginu
og gerði tillögur um víðtækar
þjóðfélagslegar og efnahagslegar
umbætur í nýlendunni, sem
myndu þýða miklar lífskjara-
bætur fyrir hina innfæddu. Barr-
os sagði ennfremur, að öll ný-
lendupólitík Portúgala yrði að
endurskoðast og .slaka yrði á
stjórnartaumunum þar.
Þjóðir Afríku sættu sig ekki
lengur við yfirráð hinna hvitu
og ógnarstjórnin í Angóla kynd-
ir að mun undir óánægju blökku.
manna með nýlendupóljtík Vest-
ur-Evrópuríkjanna, sagði Barr-
os. -
Meðan á ræðu hans stóð, voru
sífelld frammíköll úr salnum og
klerkur nokkur, Pinto Carneiron,
sem fékk orðið á eftir Barros,
lýsti því yfir m.a. að hann, sem
Portúgali, katólikki og föður-
landsv'nur mótmælti harðlega
öllum breytingum á núverandi
ástandi, sem gætu leitt af sér
að nýjar öldur uppreisnar og ó-
róa flæddu yfir nýlenduna.
Handrft Heming-
ways finnast
KEY WEST 9/2. Allmörg hand-
rit Nóbelsverðlaunahafans Ern-
est Hemingways hafa fundizt
í Sloppy Joes bar í Key West
í Fórída, þar sem þau hafa leg-
ið í yfir 2o ár.
Eigandi krárinnar er Joe Russ-
el, en hann fór oft í fiskiróður
með Hemingway heitnum. Með-
al handritanna er skáldsagan
Einn gegn öllum (To have and
have! not).
Ekkja Hemingsways vinnur
nú að því að rannsaka handritin,
en ekki er vitað hvort þarna
leynist verk, sem ekki hafa verið
gefin út.
Glenn major.
Kúbubúar hafa undanfarið batrizt harðri og hetjulcgri baráttu við
ölæsið sem þeir tóku í arf frá einræðisstjórn Batista. 100.000
sjálfboðaliðar hafa farið um eyjuna og kennt fólki lestur og skrift
og árangurinn hefur orðið mjög góður. Hér á myndinni ar Castro
að þakka sjálfboðaliiðum vel unnið starf.
Spænskð lög-
reglan hsndtek-
nr vinstri menn
MADRID. — Spánska lögreglan
handtók nýlega 4 vinstrisinnaða
stúdentaforingja. Tilgangurinn
mun hafa verið sá að koma í
veg fyrir andfasistíska stúdenta-
hópgöngu, sem undirbúin hafði
verið þann 9. febr. Gönguna átti
að fara til minningar um blóðug-
ar óeirðir sem urðu þann dag
fyrir 6 árum, milli falangista og
andfasistískra stúdenta.
Mikil óánægja hefur ríkt með-
al spánskra stúdenta undanfarið,
einkum við háskólana^ TÖadrid
og Barcelona, er það vegna þess
að stúdentasamtökunum hefur
verið bannað að skipta sér af
stjórnmálum.
Andvígir aðild
Spánar að EBE
BRUSSEL — Hið svokallaða
Samband frjálsra verkalýðsfé-
laga, skoraði á mánudag á Efna-
hagsbandalagið að hafna eindreg-
ið öllum viðræðum við Spán um
aðild að bandalaginu. I áskorun-
unni segir að á Spáni séu bar-
óttumenn fyrir frelsi og lýðræði
hundeltir af miskunnarlausum
einræðisöflum, því megi Spánn
ekki fá nein-skonar aðild að
bandalaginu.
Katangsþing
veitir umboð
ELISABETIIVILLE 16/2. —
Tshombe segir nú að Katanga-
þing hafi gefið sér umboð til að
staðfesta Kitona samninginn, sem
hann gerði við Adoula forsætis-
ráðherra sambandsstjórnarinnar í
Leopoldville. Allir 42 viðstaddir
þingmenn greiddu samkomulag-
inu atkvæði, en 27 voru fjarver-
andi.
Tshombe- var hinn gleiðasti yf-
ir úrslitunum og sagði að þingið
virti stefnu þá|. sem hann hefur
fyigt.
. Konudag/urinn er á morgun
Gleymið ekki að gef a
konunni blóm
Sem túlípana, er hátt sinn bikar ber
mót bjartri himinveig, þar einatt jer,
þú sömu moldar barn, unz tímans tafl
sem tazmdri skál til jarðar hverjir þér.
BLÓMAVERZLUNIN FLÓRA
Austurstræti 8 — Sími 2-40-25
Lít þessa rós! Hve sœl hún er að sjá!
Hún segír: „Veröldin er björt og há,
ég opna í skyndi silkisjóðinn minn
og sóa glöð því bezta sem ég á“.
BLÓMABÚÐIN
KJÖRBLÓMIÐ
Laugavegi 59 — Sími 1-65-13
Ojt jinnst mér rósin rauðust þar um slóð
sem rann til moldar hetjukonungs blóð,
og liljan fegurð fá aj meyjarkinn
sem jyrr á tíð var mjúk og œskurjóð.
BLÓMIÐ
Austurstræti 18 — Sími 2-43-38
Og við sem höjum vinajlokknum bætzt
er vorið angar þar sem jyrr var mœtzt,
við hjöðnum líka í mjúkan blómabeð
og blómgum nýjan, — handa hverjum næst?
ALASKA
Gróðrarstöðin við Miklatorg’’— Simi 22-8-22 og 19-7-75.
Og þar sem skuggsœll blómabaðmur rís,
með brauð og vín og Ijóð ég dvelja kýs
■ við þína hlið, er ómar óður þinn
um auðnar kyrrð, þar finn ég Paradís.
LITLA BLÓMABÚÐIN
Bankastræti 14 — Sími' 1-49-57
Mig dreymdi rödd: „Sjá, rósin rauð og skær
við röðli nýjum opnu blómi hlær“.
Ég reis aj blundi og veikt mér hvíslað var:
„En visnað blómstur aldrei jramar grœr“.
BLÓM OG GRÆNMETI h.f.
Skólavörðust. 3. Sími 1-67-11 1— Langhv. 126. Sími 3-67-11
Lít þetta blóm, sem brosir ungt og jrítt
og bakka straumsins hejur litum prýtt.
Ó, hvíl þar létt! Það læðast kann jrá vör,
sem löngu er gleymt, en eitt sinn brosti hlýtt.
BLÓMASKÁLINN
Kársnesbraut / Nýbýlaveg. — Simi 1-69-90
En iðrun títt ég sór, já satt er það,
en sór ég gáður? — Þá kom vor í hlað
og jeykti minni fölu iðrun burt
og fríða rós lét vaxa í hennar stað.
BLÓM & ÁVEXTIR
Hafnarstræti 5 — Sími 1-27-17
Á þessum morgni þúsund blóma grœr
og þúsund bliknuð hníga er uxu í gær.
Það vov sem kyssir krýnda rós í dag,
hreij Kajkóbaðs og Djemsíðs Ijóma fær.
BLÓMAVERZLUNIN SÓLEY
Strandgötu 17, Hafnarfirði — Sími 5-05-32
Laugardagur 17. febrúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (5,