Þjóðviljinn - 17.02.1962, Side 6
SMÓÐVHJlNlf
Úttefandl: Bamelnlngarflokknr alþýBn — Bósfallstaflokkurlnn. — RltstJóraii
lfagnús KJartansson (áb.), Magnús Torfl Ólafsson, Blgurður Guðmundsson. —
FréttaritstJórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgelr
Magnússon. — RltstJórn, afgreiðsla, auglýslngar, prentsmiðja: Skólavörðust. 10.
Bíml 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 55.00 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00,
PrentsmiðJa ÞJóðvilJans h.f.
Stuðningur við ofbeldið
jyjorgunblaðið í gær skýrir frá því á forsíðu að dag-
inn áður hafi stjórnmálanefnd Sameinuðu þjóð-
‘anna fj'allað um tillögu „þar sem Bandaríkjamenn eru
hvattir til að hætta afskiptum af innanríkismálum
Kúbu“. Var tillagan felld, og bætir Morgunblaðið við:
„Meðal þeirra sem greiddu atkvæði gegn tillögunni
var fulltrúi íslands". íslenzka ríkisstjórnin virðist þann-
ig vera mjög samþykk því að Bandaríkin skipti sér af
innanlandsmálum Kúbu.
P’ramkoma Bandaríkjanna við Kúbu er sönnun þess
hver sannindi felast í skrúðyrðum stórveldisins um
fullveldi og frelsi og sjálfsákvörðunarrétt smáþjóðanna.
Annað mesta herveldi heims reynir með öllum ráðum
að kúga smáþjóð til undirgefni, og ástæðan er sú ein
að Kúbubúar hafa tekið í sínar hendur stóreignir sem
bandarísk auðfélög höfðu sölsað undir sig á eyjunni.
Allt fram að þeim tíma er Kúbubúar gerðust þannig
efnahagslegir húsbændur í landi sínu höfðu bandarísk
stjórnarvöld þótzt vera hlynnt byltingunni á Kúbu og
• tóku undir áfellisdómana um þá gerspilltu grimmdar-
stjórn sem verið hafði í landinu. Var augljóst að Banda-
ríkin gerðu sér vonir um að byltingin á Kúbu væri
hliðstæð umskiptum þeim sem mest tíðkast í rómönsku
Ameríku, þegar ein klíban tekur við af annarri, án
þess að stjórnarfarið breytist. En þegar í ljós kom að
byltingarmönnunum á Kúbu var alvara, þegar þeir
tóku að framkvæma loforð sín og hnekktu valdi banda-
rískra auðhringa, umturnaðist afstaða bandarísku
stjórnarinnar. Það sannaðist enn einu sinni að þegar
á reynir ráða auðfélögin öllu sem þau vilja í banda-
rískum stjórnmálum.
gandaríkin reyndu fyrst að svelta Kúbubúa til hlýðni
með því að neita að kaupa af þeim sykur, en sykur
hefur verið helzta útflutningsvara landsmanna, og
höfðu bandarískir auðhringar áður ráðið lögum og
lofum í þeirri atvinnugrein. Hefði sú hefndarráðstöfún
skjótlega borið árangur ef sósíalistísku ríkin hefðu ekki
komið til og keypt sykurinn. Var þetta hliðstætt fyr-
irbæri og þegar Bretar settu löndunarbann á íslend-
inga 1952 til þess að kúga okkur til uppgjafar í land-
helgismálinu en íslenzk stjórnarvöld svöruðu með því
að tryggja sér markaði í sósíalistísku löndunum. Hefur
hin efnahagslega herferð Bandaríkjanna gegn Kúbu
ekki borið tilætlaðan árangur, þótt auðvitað sé það erf-
itt fyrir Kúbumenn að þurfa að flytja afurðir sínár
yfir hálfan hnöttinn í stað þess að geta hagnýtt nær-
tækustu markaði. En það er tií marks um heilindin í
áróðrinum að hin miklu viðskipti við sósíalistísku
ríkin eru síðan talin sönnun fyrir slæmu innræti Kúbu-
stjórnar, og hefur sá áróður bergmálað 1 hernámsblöðun-
um hér á landi! Þegar efnahagsstyrjöldin bar ekki árang-
ur skipulögðu Bandaríkin á síðasta ári vopnaða innrás
í Kúbu og ætluðu að leggja landið undir sig með her-
valdi. Þá sannaðist á eftirminnilegasta hátt að Kúbubú-
ar standa einhuga að baki stjórn sinni; innrásinni var
hrundið gersamlega á þremur sólarhringum og hafa
Bandaríkin naumast öðru sinni farið þvílíka sneypu-
för. En í stað þess að læra af reynslunni halda Banda-
ríkin enn áfram að skipuleggja ofsóknarverk gegn
Kúbu, herða viðskiptahömlurnar og þjálfia málaliða
til nýrrar árásar.
Jslenzk stjórnarvöld vilja ekki mótmæla því að Kúbu-
búar séu beittir viðskiptalegu og hernaðarlegu of-
beldi. En verður þeim ekki einnig gert að taka virkan
þátt í ofbeldinu? Morgunblaðið sagði frá því fyrir
nokkrum dögum að Bandaríkin myndu nú reyna að
knýja öll NATO-ríki til að slíta viðskiptum við Kúbu.
Gerist það ekki næst að íslendingar neiti að selja
Kúbubúum saltfisk? Skyldu því vera nokkur takmörk
sett (hversu lágt íslenzkir hemámssinnar geta lotið í
þjónustu sinni við Bandaríkin? — m.
— ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 17. íebrúar 1962
Átðk fasisma og lýð-
rœðis í Frakklandi
„Það er eins og maður sé 1
Algeirsborg", á góður borgari
að hafa sagt, þegar hann sá
tugþúsundir alsírskra verka-
manna og kvenna fara fylktu
iiði um göturnar í miðri París
s.l. október, öldungis óforvar-
andis. Hann var ekki vanur að
sjá þessa ,,borgarbúa“ úthverf-
anna voga sér inn í fínu hverf-
in hjá Óperunni, veifandi kröfu-
spjöldum sínum. Eitthvað þessu
líkt hefur margur hugsað eftir
kröfugönguna á fimmtudags-
kvöldið í síðustu viku, sem
vinstri flokkarnir og verkalýðs-
félögin í París efndu til ásamt
stúdentasambandinu til að mót-
mæla hryðjuverkum fasistanna
í OAS. Hún kostaði átta manns
h'fið á stundinni og síðan hafa
tveir eða þrír dáið af áverkum,
sem þeir hlutu í viðureigninni
við lögregluna. Meira en 200
manns báru sár eftir hana að
sögn blaðanna, sumir alvarleg.
Þetta mannfall hefði sjálfsagt
þótt lélegur blaðamatur, ef það
hefði orðið í þeim hluta ríkis-
ins, sem liggur sunnan Mið-
jarðarhafsins. Manndráp þykja
naumast fréttnæm í landi þar
sem bau hafa fverið drýgð
daglega í meira en sjö ár. En
þegar þau gerast í miðri París,
í kringum Bastillutorgið, þá
gegnir nokkuð öðru máli. Menn
eiga ekki að venjast svona at-
burðum í höfuðborginni. Vinstri
sinnaðir kröfugöngumenn hafa
raunar sjaidan notið sérstakrar
verndar stjómarvaldhafanna og
lögregluliðs þeirra, allra sízt
það sem af er 5. lýðveldinu.
19. desember sl. gengu margir
heim eftir kröfugönguna með
blóðug og þrútin andlit. En
það er alllangt síðan valur
hefur legið eftir. Fróðir menn
segia, að þetta sé blóðugasta
kröfuganga í sögu borgarinnar
síðan í febrúar 1934, á hveiti-
brauðsdögum fasismans, að und-
anskildum morðunum á Serkj-
um í október.
Ógnaröld
Þessi kröfuganga var einn
liður í baráttu vinstri aflanna
gegn þeim vágesti, sem hefur
smám saman verið að færa sig
upp á skaftið síðan í sumar
sem leið og gengur undir nafn-
inu OAS (Organisation armée
secréte). Hann óx úr grasi eft-
ir hina misheppnuðu uppreisn
hershöfðingjanna í Alsír í apríl
í fyrra. Fasistarnir í Alsír (og
,,móðurlandinu“) drógu þann
lærdóm af hrakförunum, að
þeir yrðu að taka upp nýjar
baráttuaðferðir til að ná mark-
miðum sínum: fella de Gaulle
og halda Alsír áfram undir
franskri stjóm. Þeir yrðu að
mynda nýja, sjálfstæða leyni-
hreyfingu er væri tiltölulega ó-
bundin hernum og gæti starfað
upp á eigin spýtur; fylkt Evr-
ópubúunum í Alsír undir merki
sitt, eitrað andrúmsloftið þar
með morðum og hermdarver-
um gegn Serkjum og með því
að gera frönsku yfirvöldunum
með því að færa út kvíarnar
yfir til ,,móðurlandsins“, hefja
sprengjuherferð móti skæðustu
óvinum sínum og saklausum
borgurum, ægja almenningsálit-
inu, raska öryggistilfinningu
smáborgaranna, terrorisera
fólkið: þetta eru gamalkunnar
bardagaaðferðir vanmátta fas-
ista. Með þessu hugðust þeir
þreyta ríkisstjórnina sveigja veik-
geðja ráðherra hennar, ýta
undir kröfu gamla nýlenduauð-
valdsins um myndun þjóð-
stjórnar, er teldi ekki eftir sér
að stríða áfram móti sjálfstæð-
ishreyfingunni, eða skipta Al-
sír í tvennt, ef ekki væri ann-
ars kostur: eigna Evrópubú-
unum Algeirsborg og búsældar-
þeim í framkvæmd. Það er bezt
að segja það eins og er: ár-
angurinn er ekki sem verstur,
frá bæjardyrum þeirra séð. öll-
um vitnisburðum ber saman um
að allur þorri Evrópubúanna í
stærstu borgunum í Alsír sé
leynt og ljóst á bandi OAS.
að lögreglu- og herliðið, sem
er geysifjölmennt, eigi fullt í
fangi — og sé raunar oft um
megn að halda stormsveitum
þeirra í skefjum. Enda þarf
naumast vitnanna við: það rík-
ir greinilega skálmöld í bæjun-
um, tugir plastsprengja verða
daglega mörgum að bana, ólm-
ur lýðurinn gengur af Serkjum
dauðum, hvenær sem færi gefst.
Ætlunarverk hers og lögreglu
Sartre, sömuleiðis mörgum há-
skólaprófessorum, er láta bar-
áttuna til sín taka, blaðamönn-
um og ritstjóra vikublaðsins
France Observateur, miðstjórn-
armönnum kommúnistaflokks-
ins og þar fram eftir götun-
um. Stundum grípa þeir til
meinlausari ráða, sem vekja þó
einatt meiri athygli, svo sem
þegar þeir rændu einum þing-
manni gaullista einn góðan
veðurdag og héldu honum
föngnum í nokkra klukkutíma
unz lögreglan hafði hendur í
hári ræningjanna, og nú ný-
skeð syni Schwarts stærðfræði-
prófessors og sósíalista við há-
skólann. En margir eiga þeg-
ar um sárt að binda eftir að-
Átta menn voru drepnir og hundruð særðust í París, þegar lögreglan
réðst á mótmælagöngu gegn hermdarverkum OAS.
— Morð og sprengjutilrœði eru daglegt brauð. Ef fólk vill ekki láta sér það lynda og
hefur í frammi mótmæli, er okkar hlutverk að berja þá upppreisnarseggi niður.
(Bidstrup teiknaði).
legustu héruðin, ásamt gangi
inn í Sahara, undú’ olíuleiðsl-
urnar. Ef ríkisstjórnin þrjózk-
aðist við allt að einu og semdi
frið við FLN, að egna þá til
uppreisnar í Alsír og Oran í
trausti þess að herinn sæti hjá,
að hann „skyti ekki á bræður
,sína“, og einhver hluti hans
legði sér lið. Þá væri ekki að
vita nema sumar herdeildirn-
ar í móðurlandinu, fallhlífa-
herdeildir Massu í Metz og
skriðdrekasveitir í Þýzkalandi,
færu á stúfana og legðu til at-
lögu gegn París.
TilrœSi v/ð
vinstri menn
Þetta eru ekki nein smá-
ræðis áform og ekki á færi
neinna smákalla að hrinda
hefur snúizt undarlega við: að
halda þessum fyrrverandi engla-
börnum sínum í skefjum. —
En í Frakklandi sjálfu? Al-
sírstríðið hefur að vissu leyti
færzt yfir á franska grund,
staðreyndir þess hafa orðið á-
þreifanlegri fyrir almenning
eftir að OAS hóf sprengjuher-
ferðina í haust. Einkum hafa
þrælarnir einbeitt sér að París.
Síðustu mánuðina hafa ósjald-
an sprungið tí.u plastsprengjur
hingað og þangað um borgina.
Fyrst í stað bitnuðu þær ekki
síður á fylgismönnum stjórnar-
innar, þingmönnum gaullista,
en vinstri mönnum, en eftir
áramótin hafa fasistarnir greini-
lega lagt megináherzlu á að
koma hinum síðarhefndu fyrir
kattarnef, eftir því sem and-
staða þeirra og samfylking,
hefur eflzt: tvisvar sinnum hafa
þeir reynt að kálá Jean-Paul
farir þeirra: allmargir hafa
beðið bana af völdum spreng-
inganna. fjögurra ára telpa
missti sjónina í Lille um dag-
inn af sprengjubrotum.
Vaxandi
eining
Þessi löðurmannlegu hryðju-
verk hafa samt áreiðanlega
ekki borið þann árangur sem
til var ætlazt: allur þorri
Frakka fordæmir þau í orði
eða á borði. Og þau hafa átt
sinn þátt í að fylkja vinstri
öflunum fastar saman. Menn
verða að gera sér ljóst, að það
er hægara sagt en gert, því að
samfylkingarspillirinn í liði
vinstri flokkanna, foringjar sós-
íaldemókrata með Guy Mollet í
broddi fylkingar, eru ávallt við
Tvöfeldni
de Gaulle
Samtök kennara og stúdenta i Frakklandi hafa tekið höndum
saman við verkalýðshreyfinguna f baráttunni gegn OAS. Denis
Forestier, eSnn af foringjum kennarasambandsins (Ijósklæddur)
sést hér lýsa yfír að hann, sem áður hafi alltaf ilagzt gegn þátt-
töku í kröfugöngum og fjöldafundum, telji Blíkar aðgerðir nú
óhjákvæmilegar til að fylkja almenningi til baráttu gegn fas-
istahættunni.
sama heygarðshornið: allt frem-
ur en samstarf við kommún-
ista. Þessir óþurftarmenn hafa
komið mörgu illu til leiðar, en
þeir geta samt ekki hindrað ó-
breytta flokksmenn sína í að
taka höndum saman við sjálf-
sagða bandamenn á hættutím-
um. Víðs vegar um landið
hefur því tekizt samstarf með
fulltrúum verkalýðssamband-
anna þriggja í andfasistanefnd-
um, ásamt fulltrúum ýmissa
annarra stéttarfélaga, einkan-
lega stúdenta. Það má segja
stúdentasambandinu, l’UNEF,
það til hróss, að það er hvað
skeleggast í baráttunni móti
OAS, hefur oft átt frumkvæðið
að kröfugöngum og ýmsum
demonstrasjónum. I hverri deild
háskólans í París eru starfandi
nefndir andfasista, sem hafa
sig mjög í frammi, svara til-
ræðum OAS tafarlaust með
gagnráðstöfunum. Er þetta mjög
f samræmi við lýðræðiserfð há-
skólans og stúdenta hans, sem
telja sér ekki hæfa að loka
sig inni, fjarri stjómmálabar-
áttu líðandi stundar. Á föstu-
daginn í síðu.stu viku var verk-
fall í Sorbonne eftir hádegi
í mótmælaskyni við athæfi lög-
reglunnar kvöldið áður.
sinni: þess vegna er það veikt
í baráttunni við fasistana, en
sterkt í andstöðu sinni við lýð-
ræðisöflin. Þess vegna stafar
miklu meiri hætta af morðingj-
unum en menn kynnu að ætla.
Það hyggst berjast á tvennum
vígstöðvum í einu. Almenningur
heimtar, að það sýni morðingj-
unum enga vægð, fer í kröfu-
göngu til að sýna þeim sam-
heldni sina og mátt: Hershöfð-
inginn bannar kröfugönguna og
skipar lögreglu sinni að berja
á almenningi. Lögreglan verður
þess valdandi með hrottaskap
sínum að 10 manns láta lífið
og hundruð særast; og nóttina
áður kváðu við 10 fasistaspreng-
ingar í bbrginni. Þetta er speg-
ilmynd af tvíræðni Hershöfð-
ingjans og ríkisvalds hans.
Dregur til
urslita
Næstu vikurnar kann að
draga til úrslita. Loksins, eftir
meir en sjö ára nýlendustríð,
eru góðar horfur á að samning-
ar takist milli FLN, stjórnar
Serkja, og frönsku stjórnar-
innar. Látum liggja milli hluta
hverjum það er að þakka; að-
alatriðið er, að Alsír öðlast
sjálfstæði, kannski ekki nema
stjórnmálalegt fyrst í stað:
efnahagsbyltingin kemur örugg-
lega síðar. Hvernig mun OAS
bregðast við fyrirsjáanlegri
samningagerð? Og hvernig mun
herinn taka henni? Þetta eru
þær spurningar, sem allt velt-
ur á, en erfitt er að svara að
svo stöddu. Það er vel hugsan-
legt, að OAS geri uppreisn í
Algeirsborg og Oran, þar sem
Evrópubúar eru í meiri hluta,
og nái þar undirtökunum.
Mundi herinn þá hlýða skipun-
um um að leggja til atlögu við
þá, mundi hann ekki neita að
skjóta á „samlanda" sína? Það
veltur fyrst og fremst á af-
stöðu liðsforingjanna, því hafi
verið skipt um marga æðstu
hershöfðingjana eftir uppreisn-
ina í apríl í fyrra, þá eru
flestir liðsforingjarnir þeir sömu
og vitað er að þeir eru margir
hverjir ótryggir. Það er því
sennilegt, að nokkur hluti þeirra
mundi snúast á sveif með OAS.
Hins ber að gæta, að þeir
mundu ekki frekar fá hina ó-
breyttu hermenn til liðs við sig
en í uppreisnartilrauninni í
fyrra. Þá er einnig óvíst, hvern-
ig sumar hersveitirnar, sem
staðsettar eru í Frakklandi eða
V-Þýzkalandi mundu bregðast
við þessari hugsanlegu upp-
reisnartilraun í Alsír. Það er
vert að minnast þess, jafn ó-
trúlegt sem það kann að virð-
ast, að svikahrappurinn Massu
fær að sitja hinn rólegasti í
stöðu herstjóra í A-Frakklandi
og er það aðeins eitt dæmi af
mörgum um þá ósvífnu linkind,
sem ^ s|jórnarvöldin hafa sýnt
ijfirlystum eða leynilegum fas-
istum í hemum, lögreglunni og
landstjórninni, þrátt fyrir bitra
reynslu síðustu ára. Sum-
ir af erindrekum OAS, sem
hafa verið handteknir, eru
gamlir sökudólgar, sem herdóm-
stóllinn náðaði eftir þátttöku
þeirra í hinu svonefnda París-
arsamsæri í fyrra. Það eru
þessir menn og þessi samsekt
stjórnarvaldanna, sem fasistarn-
ir reiða sig á til að koma á-
formum sínum til leiðar. Þeir
vita líka, að svartasta aftur-
haldið í borgaraflokkunum, sem
hefur blöðin l’Aurore og le
Parisien Liberé að málgögnum,
mundi verða þeim liðtækt, ef
í odda skærist.
! - ■ - ^
Öfugmœli
Það stoðar lítt að spá um
óorðna hluti, en svo mikið er
víst, að það getur oltið á ýmsu
um atburði næstu vikna. Hers-
höfðinginn, sem er maður kald-
hæðinn, sagði raunar í sjón-
varpsræðu 5. febrúar, að langt
væri síðan jafn mikil kyrrð
hefði ríkt í þjóðlífinui en flest-
ir þegnar hans munu vera á
öðru máli. Hvað OAS áhrærir,
sagði hann: „Ég hef þegar gert,
og ég mun framvegis gera, allar
nauðsynlegar ráðstafanir til að
stemma stigu við illræðismönn-
unum.“ Alþýðan í París veit,
að þetta hefur hann einmitt ekki
gert, þess vegna leggur hún
undir sig göturnar eins og í
gamla daga, hvort sem lög-
reglustjóranum Papon líkar bet-
ur eða verr. Hún hefur gildar
ástæður til að tortryggja and-
fasisma þeirra ráðherra, sem
svifust einskis fyrir 1958 til að
murka lífið úr 4. lýðveldinu.
Hún veit af gamalli reynslu, að
í baráttunni við afturgöngur
íasismans hefur hún ekki við
annað að styðjast en sinneig-
in mátt. ’r|j
f-----------------------------------------
Gizenga fluttur í kastalafangelsi
Af því sem að framan grein-
ir mætti ráða í fljótu bragði,
að vígstaða OAS á Frskklandi
sjálfu sé ekki sigurstrangleg,
fyrst ríkisstjómin og Hershöfð-
inginn hafa mikinn meiri hluta
þjóðarinnar að styðjast við í
baráttunni gegn illræðismönn-
unum. OAS: fámennur en harð-
snúinn hópur morðingja á móti
(því sem menn héldu vera)
sterku ríkísvaldi 5. lýðveldisins
og milljónum óbreyttra borg-
ara. En málið er því miður
ekki svona einfalt; þetta ríkis-
vald, með Hershöfðingjann í
forsetastóli, er orðið til fyrir
samsæri þeirra manna, sem það
á nú í höggi við, samsæri fas-
istanna í Alsír og Frakklandi í
maímánuði 1958. Þetta ríkisvald
hefur ekki losnað við erfða-
syndina, það er orðið til fyrir
skipbrot hins borgaralega þing-
ræðis auðvaldsskipulagsins í
landinu, það er ólýðræðislegt í
eðli sínu og það hefur margan
svartan sauðinn í þjónustu
Antoine Gizenga, varaforsætisráðherra Kongó og forsætisráðherra í stjórn Suðaustnrfylkisins, er nú
í haldi |í virki á cyju við mynni Kongófljótsins. Adoula forsætisráðhcrra neitar að Gizenga hafi ver-
ið hnepptur í fangelsi og 'heldur því fram að hann hafi verið fluttur i vlrkiið til að forða honum
undan óvinum sem sótzt hafi eftir lífi hans. Fréttamenn í Leopoldville segja að Adoula sé í vand-
ræðum með Gizenga vegna fylgis þess sem hann nýtur sem arftaki Lúmúmba. Myndin var tekin
þegar flugvél SÞ flutti Gizenga til Leopoldville. Fremst ganga herlögreglumenn úr liði SÞ og milli
þeirra sést Gizenga (með þverslaufu). ;
Laugardagur 17. febrúar 1962 — ÞJÓÐVIL.IINN —