Þjóðviljinn - 01.03.1962, Page 5
Kona dr. John Lilly í viðræðum við höfrung. Þeir tala líkt og Donald-Duck í kvikmyndum.
Arangurinn er stórfurðulegur: Eftir áralangar
■tilraunir tókst bandaríska líffræðingnum dr. J.
Lilly að kenna tveim höfrungum mennsk mál,
og að tala við þá. Dr. John Lilly hefur nú skýrt
opinberlega frá tilraunum sínum.
Það er alkunna að höfrung-
ar eru á margan hátt sérkenni-
legar skepnur. Þeir eru víða er-
lendjs hafðir í stórum vatna-
búrum og tamdir þar og þjálf-
aðir til þess að leika ýmsar
kúnstir ferðamönnum og öðrum
áhorfendum til augnayndis.
Þyk'r það furðulegt hversu
þessir þunglamalegu hvalir geta
verið' gsefir og fimir.
Og nú hafa höfrungarnir
orðið tilefni ejnhverrar mestu
furðufréttar síðari tíma. Það
hefur veríð talið líffræðilega
útilokað að komast yfir mál-
þröskuldjnn, sem skilur milli
manns og skepnU. En nú hefur
dr. John Lilly og samstarfs-
mönnurn hans tekizt að kenna
höfrungum mannamál og m.a.s.
samræðukúnst. Það mun hafa
verið æsilegt augnablik og
sennilega , skelfilegt fyrir höfr-
unginn „Elvar“, þegar hann
heyrði skyndilega sína eigin
rödd með málhreimi mannsins,
sem lengi hafði verið að stríða
við að kenna honum að tala.
Höfrupgarnir „Elvar“ „Lizzie“
og .,Babv“ hafa sannað, að þeir
geta ekki aðeins hermt eftir
rödd mannsins, — ekkj aðeins
lært að bera fram ejnstök orð;
heldur gátu þeir einnig átt
samræður við menn!
Námfúsar skepnur
Dr. Lilly hefur tilraunastöð
í St. Thomas á Virginíueyjum.
Hann hefur nú boðið vísinda-
mönnum að kynna sér árangur-
inn, og hann hefur tekið upp
he'lmikjð af orðaræðum höfr-
unga á segulband. Hann komst
fljótlega að því að höfrung-
arnir gátu gefið frá sér svo
háa tóna, að mannseyrað
greindi þá ekki. En höfrung-
arnir voru óðfúsir að skiptast
á hijóðum við manninn, og
virtust hafa mikla skemmtun
af því að svara blístrj og öðr-
um hljóðum manrisins. Hljóð
höfrungs'ns voru tekin á seg-
ulband niðri í vatninu. Síðan
las dr. Lilly. inn á segulband
svipuð hljóð. en bætti alltaf
við hljóðum er líktust meira
mannlegu máli. Þannig hélt
hann áfram og liktj alltaf meir
og meir eft'r mannamáli. Höfr-
ungarnir brugðust vel við, voru
námfúsir og lærðU að lokum
málið. Þegar höfrungarnir tala
mannamál, tala þeir í talsvert
hærri tóntegund og hraðar en
menn gera. Líkist mál þeirra
einna mest máli Donalds Duck,
andarinnar góðkunnu í kvik-
myndum Dlsneys.
Þessi tungumálakennsla kost-
aði mikla vinnu og kostgæfni.
Síðan 1958 hefur dr. Lilly
kennf þeim á hverjum einasta
degi alla sjö daga vikunnar.
Það er einn af leyndardómum
náttúrunnar hversvegna höfr-
ungar gerast svo hændir að
mönnum sem raun ber vitni
um. Þeir hafa geysilega næmt
taugakerfi. Eftir að þeir voru
orðnir öruggir í sínu „Donald-
Duck-máli“ var hægt að gefa
þeim fyrirskipun um þetta og
hitt, þeir svöruðu þegar á þá
var kallað og skiptast óhikað
á orðum við vjni sína í mann-
heimum. ■
Er þessi náms- og málhæfi-
leiki höfrunganna skýranlegur?
Dr. Lilly skýrir það m.a. með
því að heili höfrunganna sé
miklu fullkomnarj en allra
annarra skepna, og þykist hann
hafa sannað það á rannsókn-
arstofu sinni. Heilaþungi skyn-
samasta simpansa er 375
grömm. Barn, sem er að byrja
að læra málið, hefur 1000 gr.
heila. Heili höfrungs er hjnsveg-
ar 1700 grömm, og er þannig
þyngri en heili fullvax'ns
manns, sem er um 1450 grömm.
Höfruhgar eru því miklu næm.
ari og skynsamari en aðrar
skepnur segir doktorinn
janr |
J
Ótrúlegir framtíðar-
möguleikar
Dr. Lilly seair að nú opn-
ist nýir möauleikar til rann-
sókna í höfum með aðstoð
þessara sjávardýra. Það verði
áre'ðanlega hægt að nota
höfrunga til ,að leita að flug-
vélum sem hrapað hafa í sjó,
og að skipum sem so.kkið hafa.
Hægt verður að nota þá sem
lífvörð manna til að verjast
■gráðugum hákörlum, sem eru
baðgestum víða stórhættulegir.
Þá muni einnig koma sér vel
fyrir Bandarikjamenn að hafa
þá til að finna geimför, sem
lenda á sjónum, gn höfruiigar
eru fljótari í förum í sjó en
nokkurt farartæki. Þá muni
þeir einnig geta orðið nytsam-
ir í könnun fiskigangna, —
þeir ættu að geta leiðbeint
fiskiskipum á fiskitorfur, og
yfirleitt hjálpað til að upplýsa
margar óráðnar gátur hafdjúp-
. anna. Dr. Lilly er bjartsýnn,
en tilraunir hans og kenningar
vekja óskipta athygli.
Styrkfarsjóður verkatýðsfé-
lags Akraness stofnaður
Framhald af 12. síðu.
sérstaklega til þess að reynt yrði
að fá atvinnurekendur til að
borga 1% til styrktarsjóðsins og
þá ekki nema 3% til verkafólks,
þegar kaup á að.haakka-um 4°/c!.
samkvæmt samningum, frá 1.
júní n.k. Gerði Hálfdán ráð fyr-
ir þeim aukna þroska hjá at-
vinnuveitendum- frá því í fyrra,
að þetta yrði auðsótt mál nú, þó
að því væri hafnað þá. Mun hann
þá væntanlega sem bæjarstjóri
verða fyrstur til að mæta þess-
ari sjálfsögðu kröfú f.h. Akra-
nesbæjar, enda hlýtur hver bæj-
arstjórn að styðja þessa kröfu
um aukið öryggi í slysa- og
veikindatilfellum, þar sem aðeins
er deilt um hvert nefnd upphæð
skuli greidd launþeganum sjálf-
um í viðkomandi sjóð launþeg-
anum til öryggis.
Framhald af 1. síðu.
ráðfæra s:g frekar v;ð byltingar-
ráðið. Heimildir herma þó, að
enn eigi samningsaðilar eftir að
koma sér saman um fáein atriði
áður en vopnahlé geti kom'zt á.
Fregn þessari var tekið með
mlklum fögnuði bak við tjöldin
í París. — 28. febrúar 1962 verð-
ur talinn merkisdagur — ekki
aðeins í sögu Frakklands — held-
ur allri veraldarsögunni — sögðu
opmberir aðilar í einkasamtölum
í dag.
Á yf.'rborðinu tók þó franska
stjórnin fregninni með ró. Louis
Joxe Alsírmálaráðherra sagði,
að stjórnin biðt nákvæmari upp-
lýsinga frá Serkjastjóm.
í Paris var sagt í gærkvöld, að
um leið og Serkjastjórn óskaði
að hefja lokaumræður um samn-
inga yrði komið á ráðstefnu um
það hvenær það verður, telja
menn að undirritunin muni fara
fram innan viku. Menn þykjast
vissir Um að Serkjastjórn muni
hraða samningum eftir megni.
Franskjr stjórnmálamenn gera
nú ráð fyrir að verða kallaðir til
aukaþings innan tólf daga. Á
því þingi mun ríkisstjórnin gera
grein fyrir friðarsamningunum
— og væntanlega þeim hagnaði
sem Frakkar hafa haft af að
heyja þetta stríð í sjö ár.
I stjórn styrktarsjóðsins voru
kosin: Guðmundur Kr. Ólafsson,
Herdís Ólafsdóttir og Jóhann S.
Jóhannsson.
í Verkalýðsfélagi Akraness eru
nú 357 karlar og 85 konur, sam-
tals 443- félagsmenn. Á aðalfund-
inum mættu 18 kariar o.c 5 kon-
ur þegar flest var, en aðeins 17
á fundi þegar kosið var í stjórn
styrktarsjóðs í fundarlok.
Ifjróttir
Framhald af 9: síðu
leikjum um lengri eða skemmri
tíma.
Stjórnarkosning fór þannig að
formaður var kjörinn Guð-
mundur Guðmundsson, og með-
stjórnendur voru kosnir Baldur
Þórðarson, Jón Baldvinsson,
Sveinbjörn Guðbjamason; Guð-
jón Einarsson (yngri). Varast.i.:
Einar Hjartarson og Haraldur
Baldvinsson, og endurskoðandi
Páll Guðnason.
Ákveðið var að efna til al-
menns.fundar í api'íl n.k. þar
sem Hannes Sigurðsson mun
flytja erindi um för sína á
dómaranámskeiðið í Flórence,
sem haldið var á vegu.m FIFA,
en þar kom marat fram sem
dómarar þurfa að kvnnast. Þar
munu og verða almennar- um-
ræður og fl. Á íundinum mættu
formaðu.r KRR Einar Biöms-
son og varaformaður Jón Guð-
.iónsson, og þökkuðu dómarafé-
laainu störfin og undirstrikuðu
miki.lvægi beirra fyrir knatt-
spyrnuna í bænum og landinu.
Fundarstióri var Einar Hiart-
arson og fundarritari Haraldur
Baldvinsson.
Frímann.
irszka þingið
: 1
Frá og með 1. marz 1962 breytist af-
greiðslutími Verzlunarbanka íslands., h.fv,
þannig, að eftir hádegi er afgreiðsla bank-
ans eftirleiðis opnuð kl. 13.30 í stað kl.
14, eins og verið hefur, en að öðru leyti
er afgreiðslutími bankans óbreyttur.
Afgreiðslutími bankans
er því: JkL 143^12.. SU.jog,.
13.30—16; kl. 18—19
fyrir innlánsviðskipti
eingöngu. Laugardaga
kl. 10—12.30.
Verzlunarbanki Islands hi.
Bankastræti 5. Sími 2-21-90.
Framhald af 12. síðu.
um, 15 Afríkumönnum og- 15
þjóðfulltrúum sem kosnir verða
af báðum þjóðarbrotunum. Stjórn-
in vill breyta uppkastinu þannig
að hver frambjóðandi þurfi að
hljóta minnst 10% atkvæða hins
kynstofnsins til að ná kosningu.
Denis Heeley, sem lýsti sig
samþykkan breytingum stjórnar-
innar, kvaðst samt ekki sjá að
þetta nýjasta uppkast uppfyllti
kröfuna um stjórnmálalegt jafn-
rétti. Á meðan íhaldsmenn
reyndu að hrópa hann niður,
sagði hann að stjórnin yrði að
standa einbeitt gegn Sir Roy
ef brezka samveldið ætti að lifa
af í Afríku.
Öánægðir með
Macmillan
NEW YORK 28/2 — í dag, seg-
ir blaðið New York T mes, að
sy^r iMacmillans til Krústjoffs,
varðandi tillögur hans um leið-
togafund, sé litið óhýru auga í
Washingtoh.
í frétt frá Washington er sagt
að Macmillan hafi í rauninni
lofað leiðtög'afundi í vor, ekki
aðeins ef eitthvað þokaðist í átt-
ina á afvopnunarþmginu í Genf,
eins og Bandaríkjamenn hafa
gert að skilyrði, heldur jafnvel
þótt samningar stöðvist.
Blaðið segir ennfremur að vak-
ið hafi undrun í Washington að
brezki utanríkisráðherrann Home
lávarður hafí boðið viðurkenn-
ingu á austur-þýzku stjórninni
gegn því að réttur th samningai
tib Berlínar verði tryggður.
Fimmtudagur 1. marz 1962 — ÞJÓÐVILJINN
(X