Þjóðviljinn - 14.03.1962, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 14.03.1962, Blaðsíða 5
ísinn á suðurskautinu fer stöðugt vaxandi Yfir 90 hundraðshlutar þeirra svæða heimsins, sem alltaf eru ísi þakin, eru við suðurheimskautið, segir í grein í síðasta hefti „UN- ESCO Courier“, sem er mánaðarrit Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Það er forseti deildarinnar, er á hendi hefur rannsóknir víð suðurskautið, Georges Laclavere, sem skrifar umrædda grein. Segir hann, að ís.inn við suður- skautið virðist vera í stöðugum vexti, og kom það fram í sam- bandi við rannsóknir alþjóðlega jarðeðlisfræðiársins. Þrátt fyrir þetta er sjálft íshafssvæðið að skreppa saman. I greininni er m.a. að finna eftirtaldar upplýsingar: Ishafssvæðið við suðurpólinn er 1295 milljónir hektara að flatarmáli og því af svipaðri stærð og Evrópa og Bandaríkin, tekin sem heild. Loftslagið við suðurpólinn er Gefa íit í Frakklandí fil að losna undan ritskoðun Nýlega var stofnsett í Frakk- landi spænsk bókaútgáfa, „Ruedo Ibcrico“. Ungir spænskir rithöf- undar hafa mikinn áhuga á fyr- írtækinu því að það skapar tnögulcika á að komast hjá trit- skoðuninni. Útgáfufyrirtækið hefur stofnað til bókmenntaverðlauna og kall- ar þau eftir spænska skáldínu Antonio Machado. Verðlaun þessi skuli veitt ár hvert í borginni Colliour nálægt spænsku landamærunum við Miðjarðarhaf. Á iþeim stað lézt Machado í febrúar 1939, á flótta undan Francofasistunum sem þá höfðu náð yfirhöndinni á Spáni. Verðlaunin eru veitt í tvennu lagi, annarsvegar fyrir skáldsögu (10.000 nýfrankar) og hinsvegar fyrir ljóðasafn (2.500 nýfrankar). Verk þessi verða síðan gefin út í Frakklandi — á spænsku. Machadoverðlaununum hefur einu sinni verið úthlutað og hlutu þau tveir ungir rithöfund- ar frá Madrid. Hinn 33 ára gamli Armando López Salinas vann til þeirra með skáldsögunni „Ano tras ano“ (Ár eftir ár) og hinn 36 ára gamli González Mén- dez hlaut þau fyrir ljóðasafnið „Grado elemental" (Byrjunar- stjg). Brennuvargs leitað af frönsku lögreglunni PARlS — Lögreglan í Rúðubörg hefur lengi leitað brennuvargs Bem hvað eftir annað hcfur reynt að kveikja í dómhöll borgarinn- ar og hefur nú fundið hann: Brcnnuvargurinn reyndist vcira virðulegur dðmari við yfirréttinn f borginni, Alain Dugué að nafni. Hann var handtekinn í skrif- stofu sinni í dómhöllinni, eftir að hafa verið staðinn að verki nóttina áður. Sem áður segir hefur lögreglan í borginni lengi leitað brennu- vargsins, sem fjórum sinnum hafði reynt að kveikja í dóm höllinni. Taldi hún líklegast að þar hefði verið að verki einhver sökudólgur ' sem hefði verið dæmdur í dómhöllinni og vildi þannig hefna sín. Fyrst kviknaði í álmu hallarinnar sem var í við- gerð. Var þá talið að umrenn ingur hefði valdið eldsvoðanum. En skömmu síðar komu upp þrír eldar í byggingunni og jafnframt var kveikt í bíi réttar- forsetans, Honoré dómara, sem hafði embættisbústað í höllinni. Komst hann og fjölskylda hans við illan leik úr höllinni og miklar skemmdir urðu áður en eldurinn var slökktur. Tvívegis enn var reynt að kveikja í höll- inni, en það mistókst. öflugur vörður var settur um bygginguna og þannig tókst loks að hafa upp á brennuvarginum, Dugué dómara, sem staðinn var að verki þegar hann bar eld í húsið í fimmta sinn. Þetta kom mjög á óvart, því að dómarinn hafði mjög gott orð á sér, maður hámenntaður og lögfróður með afbrigðum. kaldara en á nokkrum öðrum 'tað á hnettinum. Mesti kuldi -h 88,3 • gráður undir frostmarki á Celsíus, mældist á vísindastöð So.vétríkjanna, Vostok, sem ligg- um kringum 1280 kílómetra frá ströndinni og 4000 metra yfir sjávarmál. Af kolalögum é svæðínu má sjá, að loftslagið við suðurpól- inn hefur verið hlýtt og rakt á fyrri skeiðum jarðsögunnar. Hin raunverulegu auðæfi við suðurheimskautið eru fólgin í hinum lifandi auðlindum hafs’ns umhverfis það. Það er engan veginn fjarstæð tilgáta, að þetta geysimikla jurtahvítumagn muni einhvem tíma í náinni fram- ,tíð gegna mikilvægu hlutverki, þegar leysa skal matvælavanda- mál jarðarinnar. Konur hafa ejnnig farið til suðurpólssvæðanna og nokkrar þeirra hafa haft þar vetursetu. Búast má við sívaxandi hópi kvenna þangað suður eftir, annað hvort í fylgd með eigin- mönnum sínum eða til að starfa þar að rannsóknum. Eldsvoðar á afskekktum stöðv- um eru ef til vill stærstu hætt- urnar sem steðja að vísinda- mönnunum við suðurpólinn. Eldsvoðar koma að jafnaðj upp þegár kaldast er í veðri eða hvassast. Alþjóðasáttmálinn um suður- pólssvæðið, sem nú hefur ver- ið undirritaður af 12 ríkjum (Argentínu, Ástralíu, Bandaríkj- unum, Belgíu, Bretlandi, Chile, Frakklandi, Japan, Noregi, Nýja Sjálandi, Sovétríkjunum o.g Suð- ur-Afríku), hefur m.a. að mark- m:ði að koma í veg fyrir póli- tisk afskiptj af rannsóknunum þar syðra. f sáttmálanum er vísindarannsóknunum tryggt 30 ára frelsi. Ríkin, sem hafa und- irritað sáttmólann, skuldbinda sig til að nýta svæðið, sem tak- markast af 60. breiddargráðu, í friðsamlegum tilgangi, þau heita að framkvæma þar ekk.i tilraun- ir með kjarnavopn og nota það ekki fyrir geislavirk úrgangs- efni, og þau lo.fa að skiptast á upplýsingum um rannsóknará- ætlanir sínar og niðurstöður þeirra. (Frá upplýsingaskrlfstofu SÞ). Gátur ritmáls Mayanna ráðnar austur í Síberíu ■ t Þrír ungir sovézkir vísinda- menn við stærðfræðistofnunina í Novosibirsk í Síberíu hafa með aðstoð rafeindaheila Ieyst gátur ritmáls Maya-indíánanna. Frá þessu er sagt í tímariti UNESCO, Courrier. Margir hafa spreytt sig á að ráða þessar gátur á undanförnum öldum. Menn hafa haft nokkra vitneskju um talmál Mayanna, en engum hefur tekizt fyrr en nú að lesa myndletur þeirra sem skráð er bæði á stein- töflur í musterum þeirra í Mið- Ameríku og einnig hefur varð- veitzt á nokkrum leturströngum, Með aðstoð rafeindaheila tókst sovézku vísindamönnunum að lesa úr letrinu á'tveimur ströng- unum. Þeir byggðu á þeirri til- gátu enn eins sovézks fræðimanns að leturmyndirnar gætu bæði táknað einstök hljóð, samstöfur og jafnvel heilar setningar. Myndletrið var “þýtt” á tákn- mál okkar tíma, gatakort rat, eindaheilans og hann leysti einfl erfiðustu gátu málvísindanna ú 40 klukkustundum. Umræddip textar reyndust vera spádómsJ tímatöl Maya-prestanna og vaff þar að finna lýsingar á athöfnunsj guðanna alla daga ársins. Vísindamennirnir þrír, Évreinö off, Kossaroff og Ústinoff, erfj nú að vinna að þriggja binda rifrl verki um rannsóknir sínar. f fyrsta bindinu verða textarnir $ handritunum tveimur, á málfj Mayanna og í þýðingum á rússú nesku og spænsku, í öðru tæm? andi skrá um táknin og í þvil þriðja gatakortin og niðurstöðuúj hinna stærðfræðilegu útreiknings,- Það má búast við fleiri tíðinóú u.m í málvísindum frá stærS fræðistofnuninni í NovosibirsBíj því að Courrier skýrir frá því aH hafnar séu þar rannsóknir á hin^, um svokölluðu Rongo-Rongo«j textum frá Páskaeynni. tekin af fóstrum í móðurlífl NEW YORK — Bandarískur vísindamaður hefur skýrt frá því að hann hafi fundið aðfcrð til að taka rafhjartarit (elektró- kordíógrömm) af börnum með- an þau eru enn í móðurlífi. Vísindamaðurinn, prófessor Saul Larks við Marquette-há- skólann í Millwaukee, segist hafa á síðustu tveimur árum tekið rafhjartarit af um fjög- ur þúsund ófæddum börnum og hafi hann komizt að því að með þeim hætti megi m.a. öðl- ast vitneskju um þróun arf- gengra hjartabilana. Rafskautin eru fest við kvið móðurinnar og er hægt að fá fullkomin rafhjartarit fósturs- ins án nokkurra truflana frá rafstraumnum í hjartavöðvum móðurinnar. Prófessor Larks segir að með þessari aðferð megi flokka hin- ar ýmsu hjartabilanir eftir því, á hvaða fósturstigi þær koma til sögunnar. Þeirra verður vart þegar í tíu vikna gömlum fóstrum. Þá geta slík rafhjarta- rit komið að miklu gagni við fæðinguna. Snemma er hægt að komast að því hvort um fleir- bura er að ræða og einnig hvort barnið muni fæðast andvana. Gallaðar innkaupatöskur verða seldar með hagstæðu verði í dag og næstu daga. T A S K A N , Ingólfsstræti 6. Skrifstofuhúsnæði til leigu á góðum stað í miðbænum. Upplýsingar í síma 22973. Bifreiðaeigendur athugið Höfum opnað nýtt hjólbarðaverkstæði undir nafninu „Millan“ á horni Þverholts og Stakkholts. Opið frá kl. 8 f.h. til 23 e.h. alla daga vikunnar. Einnig er tekið á móti gúmmískófatnaði til viðgerðar. Millan, / Þverholt / Stakkholt. fyrir Seltjarnarneshrepp til sveitarstjórnakosninga 27. maí n.k. verður lögð fram á skrifstofu Seltjarnarneshrepps 27. þ.m. Kærufrestur er til laugardagsins 5. maí og skulu skrif- legar kærur hafa borist skrifstofu hreppsins fyrir kl. 12 á hádegi þann dag. Seltjarnamesi, 13. marz 1962, SVEITARSTJÓRI SELTJARNARNESHREPPS. Miðvikudagur 14. marz 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (51

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.