Þjóðviljinn - 14.03.1962, Blaðsíða 12
plÓÐVIUINN
Miðvikudagur 14. marz 1962 — 27. árgangur —. 60. tölublað
Beðið eftir friði
Ný verksmiðja
ó Siglufirði
EINS OG skýrt var frá í j
sunnudagsblaði Þjóðviljans, I
var niðuriagningarverksmiðja :
S.R. á Siglufirði tekin í not- ■
kun í síðustu viku. Myndirn- :
ar voru teknar í verksmiðj- ■
unni á fimmtudaginn var, er :
hún var sýnd fréttamönnum. ■
Á STÆRRI myndinni sést j
dósum raðað á færiband, sem :
■
flytur þær að lokunarvélinni, ■
en á hinni myndinni sést j
Norðmaðurinn Bernt T. j
Björnsson kenna stúlkunum j
rétt handbrögð við flökunina. ■
Norðmaðurinn annast einnig j
samsetningu á dósunum sem i
síldin er Iögð í og aðstoðar j
við að leysa byrjunarörðug- :
leika í verksmiðjurekstrinum. j
(Ejósm. Þjóðv. Hanncs Bald- :
vinsson).
■
■
■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
EVIAN 13/3. Umræðum Frakka og
Serkja um frið í Alsír var hald-
ið áfram í dag. Er þetta sjöundi
dagur umræðnanna og telja þeir
,sem gerzt vita að þeim muni
nú senn Ijúka. Sú skoðun styrkt-
ist þegar tilkynnt var að umræð-
um yrði haldið áfram fram á
kvöld.'
Nú er því helzt spáð að samn-
ingarnir verði undirritaðir á
morgun eða fimmtudag. Fullyrð-
ingum svissneskra blaða í gær
um að samkomulag myndi örugg-
lega nást í dag, var tekið mjög
illa af serknesku fulltrúunum sem
túlkuðu þær sem tilraun frönsku
fuiltrúanna til að auka þrýsting-
inn á hinn aðiljann. Þó er eng-
in ástæða til að ætla að samn-
ingar hafi strandað á óyfirstíg-
anlegum erfiðleikum.
Samkvæmt serkneskum heim-
jldum er enn eftir að semja uni
á hvern hátt vopnahléi verður
lýst yfir. Frakkar krefjast að það
Globkemynd-
in út á land
Sýningum er nú lokið á þýzku
myndinni um Globke hér í
Reykjavík, en myndin verður
send út á land á næstunni og
sýnd eins víða og við verður
komið.
Óhætt er að fullyrða að mynd-
in hefur vakið mikla athygli og
umtal og eru móðursýkisskrif
Vísis ljósast dæmi um það.
Ætla peir að fella frumvarpið um
290 pús. kr. dónarbœtur sjómanna
verði gert með samhljóða yfir-
lýsingum sem birtar verði sam-
tímis í París og Tunis.
Aðrar heimildir herma að um-
ræðurnar snúist nú einkum um
samsetningu þeirrar stofnunar
sem fara mun með framkvæmda-
valdið í Alsír þar til landið verð-
ur fullvalda ríki, svo og. um
nákvæma tímaáætlun fyrir brótt-
för franska hersins á þriggja ára
tímabilinu eftir þjóðarkosningar
í Alsír.
Eitt þeirra vandamála sem eft-
ir er að leysa er það hvenrig
haga beri lausn þeirra Serkja
sem í haldi eru í Frakklandi.
Frakkar háfa heitið því að láta
lausan Ben Bella og aðra ráð-
herra úr Serkjastjórn sem þeir
hafa á valdi sínu, strax og vopna-
hléi hefur verið lýst yfir. Nú hef-
ur Ben Bella lýst því yfir að
hann muni ekki þiggja frelsis-
veitinguna nema öllum' Serkjum
verði sleppt úr frönskum fang-
elsum.
Valra er hugsanlegt að nokkurt
þessara atriða sé það veigamikið
að samningar strandi á því.
PARÍS 13/3. — öryggisviðbún-
aðurinn í París var í dag elfdur
verulega enda virðist sú stund nálg
ast mjög að samið verði um frið í
Alsír. Liðsveitir úr hernum, lög-
reglunni og slökkviliðinu eru
reiðubúnar að láta til sín taka ef
OAS-samtökin skyldu reyna að
hrifsa völdin.
Allt var þó rólegt á yfirþorð-
inu. Sigurboginn virtist að ut-
an alveg eins og venjulega, en
hið innra var hann troðfullur af
vopnuðum hermönnum. Herfor-
ingjaráðshópur var staðsettur á
þakinu. Allra opinberra bygg-
inga var annars gætt að utan
og innan. Sérstaklega öflugur
vörður var úti fyrir forsetahöll-
inni og lögreglan rannsakaði öll
farartæki í nágrenninu. Allir
Framhald á 9. síðu.
>• Eftir umræður á Alþingi í gær um
^ánarbætur sjómanna er ástæða til að ætla
®ð tveir flokkar þingsins, Sjálfstæðisflokk-
'3rinn og Alþýðuflokkurinn, ætli enn að
léiindra eða tefja að allir íslenzkir sjómenn
,3jóti lögbundinnar tryggingar er nemi
390 þús. krónum.
'3 Þetta er þeim mun furðulegra sem
iVinnuveitendasamband íslands, Alþýðu-
Samband íslands og „Sjómannasamband Is-
lands“ hafa mælt með því í bréfum til
Alþingis, að samþykkt verði frumvarp
Geirs Gunnarssonar og Hannibals Valdi-
marssonar, sem tryggir öllum sjómönnum,
jafnt á smáum bátum og stórum skipum,
200 þús. króna aukatryggingu við bana-
slys eða algera örorku, í viðbót við þær
90 þúsund kr. sem nú eru ákveðnar í
tryggingalögunum.
Til umræðu var frumvarp, I
(Jem þingmenn úr Sjálfstæðis- J
jpokknum og Alþýðuflokknum
lllafa lagt fram og fjallar um það
®itt að þeir útgerðarmenn sem
jlægar hafa samið við sjómanna-
*g verkalýðsfélög um 200 þús.
íkr. sértrygginguna, skuli sanna
Wið lögskráningu skipsins að sú
tírygging sé í lagi.
Hannibal Valdimarsson minnti
á að þetta væri nú annað þing-
ið sem þeir Geir Gunnarsson
flytja frumvarp um 200 þús. kr.
sértryggingu til allra sjómanna,
er greiðist við dauðaslys eða
slys sem veldur algjörri örorku.
Meirihluti stjórnarflokkanna í
heilbrigðis- og félagsmálanefnd
hefur neitað að mæla með sam-
þykkt þess frumvarps, en dreg-
ið í hálfan mánuð að gefa út
um það nefndarálit. Minnihluti
nefndarinnar, fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins og Framsóknar
leggja til að frumvarpið verði
samþykkt, og birta í nefndará-
liti sínu bréf frá Alþýðusam-
bandi íslands, Vinnuveitenda-
sambandi fslands og „Sjómanna-
sambandi" fslands, en öll þau
samtök mæla með samþykkt
frumvarpsins.
Pétur Sigurðsson og Birgir
Finnsson héldu margar ræður
um málið, og reyndu með ýmsu
móti að afsaka andstöðu sína
og flokka sinna, Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins, við
frumvarp þeirra Geirs og Hanni-
bals. Var þar ýmislegt furðu
langsótt, þó allt hnigi að því
sama: Að þessir menn og flokk-
ar þeiflra vilja ekki samþykkja
nú frumvarp, sem felur í sér
skilyrðislausan rétt sjómanna til
200 þús. kr. sértryggingar, dán-
arbóta og örorkubóta, auk þeírra
90 þús. króna sem ákveðnar ern
í tryggingalögunum nú.
Lúðvík Jósepsson hrakti í
Framhald á 10. síðu
Félagsfundur
annað kvöld
Sósíalistafélag Reykja-
víkur heldur félagsfund
annað kvöld, fimmtu-
daginn 15. marz, kl. 8.30
í Tjarnargötu 20.
Til umræðu:
1. Félagsmál.
2. Viðhorfin í verka-
lýðsmálum. Framsögu-
maður Eðvarð Sigurðs-
son.
3. Hin nýja stefnuskrá
Ráðstjórnarþjóðanna.
Framsögumaður Eggert
Þorbjarnarson.
5ÍRENTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMIEJA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMIEÍJA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMI.
||®ENTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMIEJA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMIEÍJA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS H.F. PRENTSMI