Þjóðviljinn - 24.03.1962, Blaðsíða 1
11 stöðvsðir og j
enginn fundsir I
• Togararnir cru smám- j
saman aö tínast inn og er •
þeim lagt jafnóðum. Þrír j
eru nýkomnir, þeir Egill ■
Skallagrímsson, Fylkir og j
Ingóifur Arnarson sem :
landaði hér í fyrradag ■
um 200 Iestum af fiski. Jón j
forseti kom hér við í gær, ■
en geröi stuttan stanz, j
sigldi tii Englands með afla ■
sinn, sem var rýr, skömmu j
eftir hádegið.
• Alls liafa nú stöðvazt j
11 togarar hér í Reykjavík j
af völdum vcrkfallsins auk
þeirra scm lágu fyrir.
• Engir samningafundir j
hafa verið í deilunni síðan j
9. marz og ekki er búizt ■
við neinum fundum í hráð. j
fx-Vx-:;'
;
Um 20. marz útskrifuðust
tólf nýjar hjúkrunarkonur og
einn hjúkrunarmaður úr
Iljúkrunarkvennaskóla Is-
lands. Myndin er af unga
hjúkrunarfólkinu. Fremri röð
frá vinstri: Hreindís Guð-
mundsdóttir frá Akureyri,
Ingibjörg Pétursdóttir frá
Grafarnesi í Grundarfirði,
12 NYJAR HJUKRUNAR-
KONUR OG EINN
HJÚKRUNARMAÐUR
Óskar Ilarry Jónsson frá Rvík, Gísladóttir frá Sigtúnum í
Minnie Gunnlaug Leósdótlir Skagafirði og Aðalheiður Rósa
frá Siglufirði, Guðrún Alda Gunnarsdótlir frá Vestmanna-
eyjum. Aftari röð f.v. Sigrún j
Kristín Þorsteinsdóttir frá
Neskaupstað, Sigrún Skafta-
dóttir frá Rvík Guðrún Sig-
urðard. frá Rvík, Guðrún
ína Wessman frá Rvík, Sess-
clja G. J. Halldórsdóttir frá
Isafirði, Sigríður Antonsdóttir
frá Hofsósi og Guðrún Alda
Halldórsdóttir frá Reykjavík.
(Ljósrn. Vigfús Sigurgeirsson).
Vísvitandi stjórnarskrdrbrot
jdtað með þögn rdðherra
Þingmenn beggja stjórnarandstööuflokkanna, Lúövík
Jósepsson formaöur þingflokks Alþýöubandalagsins og
Skúli Guömundsson, sökuöu ríkisstjórnina í gær um
vísvitandi stjórnarskrárbrot vegna útgáfu bráöabirgöa-
laganna um að afhenda Seölabankanum vald til aö skrá
gengi íslenzkrar krónu. Lögðu báöir til aö frumvarpið
um staðfestingu bráðabirgöalaganna veröi fellt.
Að minnsta kosti hálf ríkis-
stjórnin, Ólafur Thórs forsætis-
ráðherra, Gylfi Þ. Gísiason
menntamálaráðherra og Gunnar
Thoroddsen f jármálaráðherra sátu
undir þessum ásökunum án þess
að treysta sér til þess að bera af
sér sakir, og var heldur ekki
reynt af öðrurn stfórnarþing-
mönnum að andmæla hinum
þungu og rökstuddu ásökunum
þeirra Lúðviks og Skúia.
Frumvarpið um Seðlabankann
var tekið til 2. umræðu í neðri
deild í gær, og flutti Birgir Kjar-
an framsöguræðu af hálfu meiri-
hluta stjórnarflokkanna í fjár-
hagsnefnd, sem leggur til að frv.
verði samþykkt, og bætt við
rýmri heimild til lántöku en nú
er í Seðlabankalögunum.
Skúli Guðmundsson flutti ýtar-
lega ræðu og rökstuddi þá álykt-
un að setning bráðabirgðalag-
anna væri stjórnarskrárbrot, og
gengislækkunin sem á eftir fylgdi
óþörf og skaðleg.
Lúðvík Jósepsson lagði áherzlu
á, að formlega væri efni þessa
frumvarps einungis það eina at- I
riði, að færa gengisskráningar-1
valdið úr höndum Alþingis i
hendur bankastjóra Seðlabankans. I
Benti Lúðvík á að enginn efi I
léki á því, að setning bráða-
birgðalaga um þetta efni væri
stjórnarskrárbrot. Hvorki í grein-
argerð bráðabirgðalaganna, né
við 1. umræðu málsins og held-
Framhald á ll.-síðu.
ALGEIRSBORG — PARÍS
23/3 — í kvöld lágu urn
það bil 80 franskir her-
menn ýrnist dauðir eða
særðir í hverfinu Bab-el-
Oued í Algeirsborg. Allir
voru þeir fórnarlömb í or-
ustu þeirri sem brauzt út
í morgun. Það voru
franskar öryggis- og
gæzluliðssveitir annars-
vegar og OAS-menn hins-
vegar sem áttust við. —
Bardagarnir fóru fram í
hverfi því sem OAS-sam-
tökin eiga hvað mestu
fylgi að fagna — Bab-el-
Oued.
Skothríð úr hríðskotabyssum og
fallbyssum glumdi um hverfið t
allan dag meðan hermennirnir
börðust við að halda hcrmdar-
verkamönnunum i skcfjum og
hindra þá í að spilla fyrir
vopnahléssamningnum sem gekk
í gildi um síðustu helgi.
Á sama tíma sat De Gaulle á
stjórnarfundi og lýsti yfir að upp-
lausnaröflin í Alsír yrðu barin
niður í eitt skipti fyrir öll. Hann
sagði að ríkisstjórnin ætti að gera
þetta án nokkurrar miskunnar og
beita til þess öllum tiltækilegúm
ráðum.
Það voru OAS-menn sem hófu
skothríðina á öryggissveitarmenn
á meðan þeir voru í óða önn að
setja upp gaddavírsgirðingar yf-
ir göturnar í Bab el Oued. Her-
mennirnir svöruðu skothríðinni
en OAS-menn tóku sér stöðu
hingað _og þangað um hverfið
með sprengjuvörpur og skrið-
Framhald á 10. síðu.
Flokkurinn
DEILDARFUNDIR verða n.k.
mánudag, FORMANNAFUND-
UR í dag, laugardag, kl. 6
síðdegis. —
Sósíalistafélag Rcykjavíkup
Alþýðublaðsmenn kærðu útvarpsstöð
• Fjórir ungir menn komu á
fund blaðamanna Þjóðviljans í
gærkvöld og sögðu sínar farir
ekki sléttar. Þeir kváðust hafa
í heilt ár unnið að því að koma
sér upp smá-útvarpsstöð og fyrir
um það bil hálfum mánuði var
hún tilbúin. Hófu þeir þá þegar
að senda út tónlist, íslenzka og
erlenda. Til stöðvarinnar náðist
um alla Reykjavík. Stöðin sendi
á bylgju mjög nálægt Keflavík-
urstöðinni og rakst þannig fólk
á sendingar hennar og fullyrða
piitarnir að hún hafi á skömm-
um tíma orðið mjög vinsæl, eink-
um meðal unga fólksins.
• En Adam var ekki lengi í
Paradís.. I gærkvöldi komu
menn frá lögreglunni og lands-
símanum á fund piltanna og
skipuðu þeim að hætta sending-
um. Það fylgdi sögunni að menn
úr starfsliði Alþýðublaðsins hefðu
kært stöðina .en ljósmyndari
blaðsins var á vakki í nágrenn-
inu er þetta gerðist.
• Stöð piltanna sendi ein-
vörðungu út létta tónlist á bylgju
nærri Keflavíkurútvai-pinu. Sýni-
lega hefur þeim Alþýðublaðs-
mönnum sárnað hvað þeir veittu
kananum harða samkeppni, enda
virðast verndararnir hafa einka-
leyfi á rekstri ólöglegrar út-*
varpsstöðvar hér á landi. j