Þjóðviljinn - 24.03.1962, Blaðsíða 11
Kristján. „Mér finnst svo gam-
an að horfa á bátana“.
Ég varð að svara því neit-
andi. Ég vissi, að við urðum að
sitja inn; og að ég yrði kannski
líka að loka gluggunum til þess
að engir aðrir en við gætu heyrt
segulbandið sem ég hafði náð í.
Hann varð dálítið undrandi
á svipinn, en hann settist i>ó í
stól í stofunni. Rétt á eftir kom
Eiríkur.
Svo sátum við þarna, við þrír
sem höfðum verið nágrannar og
vjnir frá því að við vo.rum litl-
ir og faðir Sveins og Eiríks
hafði keypt næsta bæ við
Bakka, — með húsgögnum og
öllu tilheyrandi, — til þess að
Sveinn og Eiríkur fengju „und-
irstöðu".
Sveinn og Eiríkur höfðu ekki
haft mikið vit á „undirstöðunni“.
Því að þegar þeir komust til
vits og ára, létu þeir koma fyrir
vínstúku í anddyrinu og sund-
höll í garðinum. Móðir min
hnussaði með hefðarsvip, og
iýsti því yfir að hún myndi
ekki stíga þangað fæti framar.
En hún fór nú samt þangað,
þegar Sveinn eða Eiríkur köll-
uðu á hana.
Og hér sátum við þrír og
hugsuðum um hið sama: að
Svein vantaði.
Ég sótti flösku og glös, það
var hið eina sem ég gat gert.
Þá kom Karl-Jörgen. Hann heils-
aði og nokkrar mínútur sátu
þeír Kristján og töluðu um
gamla daga, um námstímann
og hve langt væri síðan þeir
hefðu sézt.
„Fáið ykkur siálfir í glösin“,
sagði ég, þegar ég var búinn að
taka upp flöskurnar.
12.55 Óskalög sjúklinga (Bryndís
14.30 Lawgardagslögin. — (15.00
fréttir).
15.20 Skákþáttur (Guðm. Arn-
laugsson).
16.00 Veðunfregnir. — Bridgeþátt-
ur (Stefán Guðjohnsen).
16.30 Danfkennsla (Heiðar Á,slt-
vaidsson).
17.00 Fréttir. — Þetta vil ég
heyra: Guðrún Þorsteins-
dóttir kennari velulr sér
hljómp’ötur.
17.40 Vikan framundlan: Kynning
á dagskrárefni útvarpsins.
18.00 Otvarpssaga barnanna:
„Leitin að loftsteininum"
eftir Berha.rd Stokke; IV.
(Sigurður Gunnarsson).
18.20 Veðurfregnir.
18.30 Tómstundabáttur harna og
„ unglinga (Jón Pálmon). ^0j
18.55 'Söngvar í léttum tón.' —
- 19.10 Tilkýnningar.
19.30 Fréttir.
20.00 „KvöM í Vinarborg": Fil-
harmoníusveit -borgarinnar
, leikur undir .stjórn Rudolfs
Kempe.
E0.3Ö Leikrit: ,Mýs og menn“ eft-
ir John Steinbeck, í býðingu
Ólafs Jóhanns Sigurðssonar.
Leikstjóri: Lárua Pálsson.
Leikendur: Þorsteinn ö.
Stephensen, Lárus PáKdsnn,
Steindór Hjörleifsson. Gísli
Haiidórsson, Árni Tryggva-
son, Kristbjörg Kjeld, Rúrik
Haraldsson, Erlingur Gí.sla-
son, Jón Sigurbjörnsson og
Valdimar Lárusson.
22.00 Fréttir og veðurregnir. —
22.10 Pas'áiusálmar, Í29).
22.20. Danslög. — 24.00 Dagskrár-
lok.
Kristján og Karl-Jörgen tóku
sér svo sem fingurbjörg af gini
í stórt glas og mikið af gosi.
„Það eru engir læknar í bæn-
um“, sagði kristján afsakandi.
„Ég get átt á hættu að verða
kallaður til sjúklings hvenær
sem er“.
,,Og ég get átt á hættu að
verða kallaður hvert sem er og
hvenær sem er“, sagði *Karl-
Jörgen.
Eiríkur blandaði' sér dökk-
brúnan drykk og ég vissj ekki
almennilega hvað ég átti -að
gera sjálfur.
,,Þú ert taugaóstyrkur", sagði
Kristján með læknisrödd sinni.
„Fáðu þér sterkan whiský“.
Ég gerði eins og hann sagði.
Svo sátum við þama allir og
það var augljóst að þeir biðu
eftir því að ég leysti frá skjóð-
unni. Kristján og Karl-Jörgen
sátu og voru ímynd óendanlegr-
ar þo.linmæði lsékna og lögfræð-
inga. Eiríkur sat og einblíndi
niður í glasið sitt. hann sneri
því í sífellu millj fingranna.
,,Þú manst eftir sporvagnsfar-
miðanum“, sagði ég við Karl-
Jörgen. „Þessum sem dait upp
úr vasa Sveins?"
,,Já“, svaraði hann og brosti.
„Við spurðumst fyrir hjá Spor-
vagnaskrifstofunni. Hann hafði
verið seldur á Ein.'bakka að
kvöldi hjns 8. ágúst. Það var
auðvelt að komast að því. En
maðurinn sem veitti okkur upp-
lýsingarnar var dálítið móðgað-
ur, — hann sagði að þetta væri
í annað skipti á nokkrum
klukkutímanum, að komið væri
með sama farmiðann“.
„Gerðirðu nokkuð meira í
sambandi við hann?“
„Já, ég sendi manri upp að
Einibakka. Hann er alveg í hin-
um enda borgarinnar. Sveinn
hiýtur að hafa hirt hann af ein-
skærri reglusemi sem ykkur
golfleikurunum er innrætt“.
„En ef það he.fði verið Sveinn
sjálfur sem fór með sporvagn-
inum“.
Karl Jörgen yppti öxlum.
„Þú verður að viðurkenna það.
Marteinn, að þótt hægt sé að
ákvarða stað og stund á spor-
vagnsfarmiða, er ekki þar með
sagt, að hægt sé að komast að
því hvert sá hefur farið sem
keypti miðann".
'.,Jú“, sagði ég. „í Sveins til-
í'elli var það ekki mjög erfitt.
Hann vildi bara sýnast nafnlaus
maður á leið burt frá bænum.
LP0 þá datt mér í hug, að hann
gerði þetta vegna þess að hann
bjóst við að einhver skyggndist
á eftir honum útum glugga. Og
það eru bara fimm eða sex
leíguhús, sem hafa glugga, sem
snúa út að stæðinu á Eini-
bakka“.
„Og þú hefur talið víst, að
Sveinn hefði heimsótt einhvern
í þes§um húsum og hann hefði
viljað leyna nafrii sínu?“
„Hann heimsótti mann í einu
af þessum húsum“, sagði ég.
„Hvers vegna hann vildi leyna
nafni sínu, veit ég ekki ennþá.
En ég býst við að við eigum
líka eftir að komast að því“.
Ég var farinn að finna dá-
lítið til min. En ég sagði þeim
ekki frá því að ég hefði setið
í þrjá daga á bekkjum borgar-
innar með töskuna á hnjánum.
Ég skelltj mér beint í það.
„Sveinn heimsótti mann sem
heitir P. M. Horge“, sagði ég.
„Hann rekur einhvers konar
fyrirtæki sem gefur ráð og upp-
lýsingar“.
„Hvers vegna í . . .“ sagði Ei-
ríkur. „Við höfum prýðilega
löðfræðinga í fyrirtækinu“.
Mér sýndist hann verða bæði
þungbúiúnn og vandræðalegur.
„Ég veit það ekki“, sagðj ég.
„Ég veit það ekki ennþá. En
þessi náungi, P. M. Horge, hafði
tekið upp samtölin við Stein
á segulband".
„Það var athyglisvert“, sagði
Karl-Jörgen. „Ég veit að það
eru til fáeinir svona skíthælar
hér : borg, en ég hafði ekki
heyrt getið um þennan fyrr“.
Hann hellti meira gosi í þunn-
an drykkinn sinn.
„Hvemig komstu annars að
þessu með segulbandið?“
Ég sagði frá skrifborðinu,
sem minntj á kennaraborðið mitt
og lampanum með grænu hlíf-
inni, sem hafði verið fyrir mér.
Og svo sagði ég frá augunum
í P. M. Horge sem höfðu verið
límd föst við lampann, og inn-
byggða hljóðnemanum og dró
yfirleitt enga dul á það, hve
snjall ég hafði verið.
„Og segulbandsspólurnar“?
sagði Karl-Jörgen. „Iivað er
Sveinn nð tala um?“
Nú var mesta loft’ð úr mér.
Ég var eins og blaðra sem gat
hafði verið stungið á.
„Ég veit það ekki“, sagði ég
bljúgur. ,,Ég treysti mér ekki til
að hlusta á það einn. Þess vegna
bað ég ykkur að koma“.
Ég fór og lokaði gluggunum
og dyrunum. Ég áttj heima á
efstu hæð og fjölskyldan í
næstu íbúð var enn í sumar-
leyfj, en samt sem áður — ég
var dauðhræddur um að ein-
hverjir aðrir heyrðu rödd
Sveins.
„Það gerir kannski ekkert til
þótt við Kristján . . .“
„Það gerir ekkert til“, sagði
Karl-Jörgen. „Settu tækið af
stað“.
Ég íór og kveiktj á tækinu.
Það kviknaði á græna lampan-
um. Svo opnaði ég skrifborðið
með lykli og tók upp brúnu
skjalatöskuna. Ég tók upp seg-
ulbandsspóluna sem ég hafði
Játa me$ þögninni
Framhald af 1. síðu.
ur ekki nú við 2. umræðu hafi
verið reynt að rökstyðja það að
„brýna nauðsyn" hafi borið til
þess að afhenda .Seðlabankanum
gengisskráningarvaldið einmitt í
ágúst sl. Það mál kæmi þvi ekki
við hvort ríkisstjórnin teldi sér
nauðsynlegt að lækka gengið.
Alþingi á að hafa
genciskráningarvalð
f ýtarlegri ræðu lýsti Lúðvík
þei.rri afstöðu sinni, að hann
væri andvígur efnisatriði frum-
varpsins. Valdið yfir gengj.sskrán-
ingunni væri betur komið i hönd-
um Albingis en í höndum Seðla-
bankast.iöranna.
Valdið sem felst í þeim rétti
að í'áða skráningu gengisins er
mikið. Með slíku valdi er hægt
að gera að engu eða að litlu ým-
is samningsbundin réttindi eða
bein verðmæti þióðfélagsþegn-
anna. Með gengisbreytingu er
hægt á svipstundu að ógilda t.d.
efnahagsráðstafanir, sem Alþingi
hefur samþykkt. Slíkt vald á Al-
þingi eitt að hafa.
Umræðunni lauk á síðdegis-
fundi neðri deildar f gær, en at-
kvæðagreiðslu var frestað.
Erfðu 35 milljarða, sem
voru fýndfr í rúm 58 ár
ETIENNE — Bláfátækur grískur
verkamaður, kona hans og tvær
systúr hcnnar bíða nú eftir að
taka á móti arfi er nemur um
35 milljörðum ísl. króna.
Jean Criticos hefur aðallega
fengizt við að líma upp auglýs-
ingar, en áður fyrr náði hann
nokkuð góðum árangri sem á-
hugamaður í hnefaleikum.
Það hefur tekið 40 ára könnun
Skrifstofufólkið
fer í fiskinn
AKRANESI 22/3. — í gær öfluðu
18 Akranesbátar 250 tonn. Haestir
voru Heimaskagi með 30 og Sig-
urður með 27.5 tonn.
Afli hefur verið góður undan-
farið, og þegar svona mikið berst
að er unnið dag og nótt við nýt-
ingu aflans. Hefur vei’ið skortur
á fólki til starfa við fiskvinnsl-
una, bæði vegna þess hve vel
hefur aflazt og sökum fjarvistar
starfsfólks af völdum veikinda.
Hefur margt fastlaunafólk,
svo sem starfsfólk í skrifstofum
og verzlunum, hlaupið í skarð-
ið og farið í fiskvinnu í frítíma
sínum frá daglegum störfum.
banka og lögfræðinga að hafí'
upp á þessum ríkulega arfi. Þann.
ig er mál með vexti, að afi frí
Criticos flluttist til Alaska uní
síðustu aldamót. Þar gerðist hanflS
hótelrekandi og síðar námueig*
andi og safnaði miklum auði. Sv«s
dó hann árið 1910 án þess aíf
hafa gert neinar ráðstafanir varð«
andi auðæfin sem hann lét eftiS
sig. Hvergi fundust í fórum auðtí
kýfingsins upplýsingar um þaS
hvar hann geymdi fé sitt. Alla®
heimildir hafði hann falið sv(®
vel að enginn fann þær. Ekkjí!
hans reyndi eftir mætti að kom«í
ast til botns í málinu. Hún dS
1940 og virtist þá úti um það aÖ
erfðaféð fyndist.
Tíu árum síðar tókst þýzkunS
banka að hafa upp á fjárfúlgunS
gamla mannsins, og nú er lögð
fræðingur Criticos-fjölskyldunnat?
að ganga frá málunum í Kan-
ada. Criticos, sem býr í Etienné
í Frakklandi, undirbýr nú miklS
veizlu fyrir vini sína og kunn*
ingja. En verst þykir honum a3
hann hafði ráðið sig hjá harðJ
svíruðum atvinnurekanda í vissá
an tíma. Og nú verður þessi nýá
ríki margmilljóner að halda
fram að líma upp auglýsingaí
spjöld í nokkra mánuði þar tií
ráðningartíminn er á enda*
vegna þess að atvinnurekandinflí
krefst þess að hann standi vií§
gerða samninga. t I
Bazar og kaffisala
Styrktarfélags
vaEgefinna í
Sjálfstæðishúsinu
Konur í Styrktarfélagi vangefinna halda bazar og kaffi-
sölu í Sjálfstæðishúsinu á morgun, sunnudaginn 25. marz.
Mikið af góðum og ódýrum vörum.
Bazarinn verður opinn frá kl. 1.30 til 5 síðdegis. ’ *
BAZAUNEFNDIN. 1 ' ” i‘■'r?
Yantarvana :;-:j
aðgeiðarmenn
Mara __ 1 ;!
Sænsk íslenzka frystihúsið hf.
Miðdalskot, .Laugardalshreppi, Árnessýslu,
Þjótattdi, Villingahöltshreppi, Árnessýslu,
Ilátun, Skriðdalshreppi, S.-Múlasýslu,
Svínafcll, Hjaltastaðahreppi, N.-MúlasýSlu,
Hjaltastaöir I, Hjaltastaðahreppi, N.-Múlasýslu,
Torfastaöir I og Tórfastaðir II, Fljótshh'ðarhreppi,
Rangárvallasýslu,
Ilofakur, Hvammshreppi, Dalasýslu,
Nýrækt, Holtshreppi, Skagafjarðarsýslu, og
Selárdalur, Ketildalahreppi, Barðastrandarsýslu,
eru m. a. lausar til ábúðar í næstu fardögum.
Upplýsingar gefa hreppstjórar í viðkomandi hreppum
og Jarðeignadeild ríkisins, Ingólfsstræti 5.
Laugardagur 24. marz 1962 — ÞJÖÐVILJINN — (J jJ