Þjóðviljinn - 24.03.1962, Blaðsíða 6
Iíiúðviúinn
ffr*«fftndl: BAra«lnlnffarfloklnir »n>f9« — Bdsíallstaflokknrlnn. — Rltatlórari
Uagnús KJartansson (áb.), Masnús Torfl Olafsson, SlgurOur GuBmundsson. —
FréttarltstJórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýslngastjórl: GuOgatr
Magnússon. — RltstJórn, afgrelSsla. auglýsingar, DrentsmiSJa: SkólavðrSust. 19.
17-500 (5 línur). AskriftarverS kr. 55.00 á mán. — LausasöluverS kr. 3.00.
FrantsmlSJa ÞJóBvUJans bJL
Ætla þeir að níðast á sjómanna-
fjölskyldunum?
þegar þetta er skrifað eru mestar líkur til þess, að
þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins
ætli að vinna sér það til frægðar, að vísa enn á ný frá
frumvarpi Geirs Gunnarssonar og Hannibals Valdi-
marssonar um lögfestingu 200.000 króna aukatrygg-
ingar allra íslenzkra sjómanna, og hindra þannig ann-
að þingið í röð framgang þess réttlætismáls. Loks eft-
ir langa mæðu hafa fulltrúar Alþýðufiokksins og Sjálf-
stæðisflokksins í heilbrigðis- og félagsmálanefnd neðri
deildar Alþingis hert sig upp og skilað nefndaráliti,
þar sem þeir leggja til að frumvarpi þeirra Geirs og
Hannibals verði vísað frá Alþingi. Málið var tekið fyr-
ir á síðdegisfundi í gær og virðist ekkert lát á stjórn-
arflokkunum að fylgja fram þessari smánarlegu af-
greiðslu.
J|annibal Valdimarsson lagði á það sérstaka áherzlu
í ræðu sinni við 2. umræðu málsins í gær, að fyrir
heilbrigðis- og félagsmálanefnd hefðu legið umsagnir
bæði frá verkalýðshreyfingunni og samtökum vinnu-
veitenda og eru allar á eina leið. Það mun reyndar
vera einsdæmi, að fyrir Alþingi liggi eindregin með-
mæli frá Vinnuveitendasambandi íslands, Alþýðusam-
bandi íslands, Landssambandi íslenzkra útvegsmanna
og Sjómannasambandi íslands um samþykkt frumvarps
sem þessa. Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkur-
inn eru einhuga um framgang málsins. En þingmenn
Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins þvælast fyrir
málinu og virðast enn ætla að hindra framgang þess
með vífilengjum og undanbrögðum, og verða þess vald-
andi, að sama ranglætið og misréttið viðgangist enn
um hríð varðandi dánarbætur og örorkubætur íslenzkra
sjómanna.
það voru þingmenn þessara tveggja flokka, sem hindr-
uðu afgreiðslu málsins á þinginu í fyrra og þeir
virðast enn ekkert hafa lært. Þeir kjósa að taka á sig
ábyrgð á því misrétti, að sumar sjómannafjölskyldur
sem missa fyrirvinnu sína fá aðeins 90 þúsund króna
dánarbætur en aðrar njóta nú þegar 290 þúsund króna
tryggingar. Og þetta getur farið eftir því hvar sjó-
maðurinn á heima, hve bátur hans er stór, og jafnvel
því hvort útgerðarmaður hafi staðið við gerða samn-
inga um aukatrygginguna. Hannibal benti á ákveðin
dæmi á Alþingi í gær af slysum nú síðustu árin, og
hvemig reynt væri að bæta eitthvað úr þegar í Ijós
kæmi að fjölskyldur drukknaðra sjómanna ættu ekki
að fá nema lágmarkstrygginguna, 90 þúsund krónur,
með því að settar væru af stað almennar fjársafnanir
og jafnvel auglýst bingó í mörgum samkomuhúsum.
Þetta væri virðingarvert og gert af góðum hug en
hitt væri drengilegra að samþykkja hina almennu
kröfu sjómanna, sem felst í framvarpi Alþýðubanda-
lagsins, og tryggði 290.000 kr. greiðslur sem dánar-
bætur og bætur fyrir algjöra örorku við sjómanns-
störf, og það fyrir alla íslenzka sjómenn, hvar á land-
inu sem er og hvernig sem bátar þeirra eru.
ymræðu um málið varð ekki lokið á þeásum síðdegis-
fundi Alþingis í gær. En fái meirihluti heilbrigðis-
og félagsmálanefndar neðri deildar vilja sínum fram-
gengt, verður málinu vísað frá Alþingi við eina at-
kvæðagreiðslu á þingfundi einhvern næstu daga. Að
óreyndu skal ekki fullyrt að allir þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins og Alþýðuflokksins vilji níðast svo á sjó-
mannaf jölskyldum og gert væri með því að vísa þessu
réttlætismáli enn frá Alþingi og hindra lögfestingu
290.000 kr. dánar- og örorkubóta fyrir alla íslenzka
sjómenn. Varla hefur nokkur þingmanna þessara
flokka verið kosinn á þing til að vinna slík óhæfu-
verk. — s.
Frá fyrstu árum Alsírstríðsins. Franskir hermenn taka serkneska skæruliða til fanga í hellum í
Aurés-f jöllum. • , ;
VOPNAHLÉ SAMIÐ.
LOKAORUSTA EFTIR
Um þessi atriði var í rauninni
samkomulag fyrir alllöngu.
iÞað sem tafði samningana und-
ir lokin var fyrirsjáanlegt fram-
hald blóðsúthellinga þótt
franska stjórnin og sú serk-
neska lýstu yfir vopnahléi.
Samningamenn Serkja gengu
ihart eftir því að svo yrði búið
um hnútana að bráðabirgðayfir-
völd Alsír hefðu aðstöðu til að
theyja óhjákvæmilega baráttu
við leynisamtökin OAS, sem
ihafa sagt sjálfstæðis'hreyfingu
Alsír og ríkisstjórn de Gaulle
stríð á hendur. Herforingjar
sem telja að de Gaulle hafi
svikið heit við sig, franskir fas-
istar og auðmenn sem hafa
rakað saman fé á undirokun
Serkja hafa sett sér -það mark
að gera Frakklan.d og Alsír að
fasistaríki. I þjónustu sinni haía
þeir nokkur hundruð leigumorð-
ingja sem dag eftir dag, viku
eftir viku og mánuð eftir mán- Gaulle heldur eina af mergum ræðum sínum um Alsír.
arárása • á evrópska landnema.
Til þess eru refirnir skornir að
í hart slái milli Serkja og
franska hersins, sem ekki myndi
horfa á það aðgerðalaus að
Serkir éku landnemana svipað
og OAS hefur ieikið Serki, þótt
hann hafi ekki skipt sér af að-
förum hermdarverkamanna
leynisamtakanna. Á þennan hátt
hyggst OAS gera vopnahlés-
samninginn að engu og fá
franska herinn f heild á sitt
iband. Hermdarverkin síðustu
daga eru framhald á þessari
viðieitni. Fulltrúum út-laga-
stjórnar Serkja hefur tekizt að
halda í hemilinn á löndum sín-
um svo iþeir hafa ekki leitað
hefnda á landnemunum. Franski
herinn er iþví ennþá óþekkt
stærð í, rei'kningsdæminu sem
skráð er með blóði á götur Al-
-geirsborgar og Oran.
C*vo getur ekki staðið öllu leng-
^ ur. Or því að vopnahlés-
samningur er kominn á verður
X Topnahlé gekk í gildi í Alsír
* á mánudaginn, en vopnavið-
skipti halda áfram af sömu
heift og áður ef ekki meiri. Sjö
ára og hálfs fimmta mánaðar
styrjöld hefur fært ríkisstjórn
de Gaulle í París heim sanninn
um að hálfrar milljónar manna
franskur her megnar ekki að
bæla niður sjálfstæðisbaráttu
Serkja, og útlagastjórn þeirra
gerir sér Ijóst að skæruher
sjálfstæðishreyfingarinnar hefur
ekki bolmagn til að hrekja
frönsku hersveitimar í sjóinn.
Hvorugur aðili getur vænzt al-
gers sigurs, og leiðin út úr
sjálfheidunni er vopnahléssamn-
ingurinn sem Louis Joxe og
Belkacem Krim undirrituðu í
Evian. Franska stjómin fellst á
að viðurkenna sjálfsákvörðunar-
rétt og fullveldi Alsírbúa, en
Serkir heita að þrengja í engu
kosti franskra landnema og
veita frönsku fjármagni hlut-
deild í hagnýtingu náttúrugæða
Alsír, sérstaklega olíunnar í
Sahara.
uð hafa brytjað fólk niður á
götum stórborganna Oran og
Algeirsborgar án þess að
frönsku yfirvöldin hafi aðhafzt
neitt sem að gagni kemur til að
stemma stigu við hermdarverk-
unum. Með fagurgala og hótun-
um jöfnum höndum hefur OAS
afLað sér stuðnings meirihluta
imilljón evrópskra landnema í
strandhéruðum Alsír. Salan
hershöfðingi, foringi OAS, sendi
almennt herútboð.til landnem-
anna 4. janúar. Einkennisbún-
ingum og vopnum er rænt í
stómm stíl frá franska hernum,
síðast 100 tonnum í einu úr
.vopnabúrinu í Oran sama dag-
inn og vopnahléssamningurínn
'gekk í gildi.
Enn hefur OAS ekki látið til
skarar skríða. Frá áramót-
um hafa Salan og kumpánar
hans unnið markvisst að því
tneð sprengjukasti, brennum og
rnorðum að egna serkneskan al-
imenning í borgunum til hefnd-
|£) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 24. marz 1962