Þjóðviljinn - 07.04.1962, Blaðsíða 5
Nefnd sérfræðinga frá 10 löndum, sem Sam-
einuðu þjóðirnar skipuðu á sínum tíma til að
rannsaka efnahagslegar og félagslegar afleiðingar
afvopnunar, hefur orðið samdóma um þá niður-
stoðu, að „almenn og fullkomin afvopnun mundi
vera tvímælalaus blessun fyrir mannkynið í heild“.
í skýrslu sem birt var 11.
marz. sl. lýsir nefndin því yfir
sem t.,eindreginni skoðun“ sinni,
að öll vandamál, sem upp kunni
að koma í sambandi við almenna
afvopnun, sé hægt að leysa með
viðeigandi aðgerðum, bæði í ein-
stökum löndum og á alþjóðavett-
vangi. Bendir 'hún á, að hægt sé
að nota orku og þær vélar, sem
nú eru í þjónustu vophafram-
leiðslunnar, í þágu friðarins við
framleiðslu verðmæta, sem
mundu verða öllum þjóðum til
hagsældar og bæta efnahag og
félagsleg kjör manna víða um
heim.
ir af Dag Hammarskjöld. Nefnd-
in er án efa ein hin bezt valda
þeirra sérfræðinganefnda sem
fjallað hafa um mál, er heyra
undir Efnahags- og félagsmála-
ráðið. Sem formaður nefndarinn-
ar langar mig að láta í ljós sér-
staka viðurkenningu á þeim anda
samvinnu cg eindrægni, sem ein-
kennt hefur fundi hennar.
í störfum sínum hefur nefnd-
in lagt áherzlu á tvö atriði. 1
fyrsta lagi hefur okkur verið
ljóst, að almenningsálitið í heim-
inum hefur eftir öllu að dæma
hneigzt mjög að þeirri skoðun, að
afvopnun kynni að leiða af sér
afturkipp í efnahagslífinu sem
Framhald á 10. síðu
Peron rœðir um
útlagastjórn
Afvopnun mundi þar á ofan
auka möguleika á víðtækari sam-
vinnu um ýmis aðkallandi verk-
efni, svo sem nýtingu kjarnork-
unnar í friðsamlegum tilgangi,
geimrannsóknir, rannsóknir á
norður- og suðurpólssvæðunum óg
aðgerðum í því skyni að bæta
loftslag í stórum hlutum heims-
ins. ____
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var í sambandi við birtingu
skýrslunnar sagði forstjóri þeirr-
ar deildar S.Þ., sem annast rann-
sóknir á efnahagsmálum, Jcaob
L. Mosak, sem verið 'hefur for-
maður sérfræðinganefndarinnar,
m.a.:
— Meðlimir nefndarinnar, sem
rannsakað hefur efnahagslegar og
félagslegar afleiðingar afvopnun-
ar, voru á sínum tíma tilnefnd-
BUENOS AIRES 5/4_ Þeir fram-
bjóðendur Peronista sem sigruðu
við kosningarnar til þjóðþingsins
i Argentínu 18. marz síðastlið-
inn' hafa neitað að taka þátt í
störfum þingsins þar sem níu
Peronistuni sem kjörnir voru
fylkisstjórar liefur verið meinað
að taka við embættum.
Flokkur Peronista, Réttar-
hreyfingin, hélt í dag fund og
gerði samþykkt þar sem krafizt
er að ríkisstjórnin dragi til baka
tilskipun sína um að fulltrúar
ríkisvaldsins taki við fylkis-
stjóraembættunum í stað hinna
kjörnu Peronista.
Fulltrúj allra hinna Peronist-
ísku verklýðssambanda í Argen-
tínu, Roberto Garria, hefur hót-
að allsherjarverkfalli ef hinum
réttkjörnu Peronistum verður
neitað um sæti á þjóðþjnginu.
Garcia er nú staddur í Madrid
ásamt fjórum öðrum Peronista-
fori’ngjum og ræða þeir stjórn-
málaástandið í Argentínu við
Juan Peron fyrrverandi forseta
landsins sem nú er landflótta á
Spáni. Ekki er talið ólíklegt að
þeir ræði möguleika á að mynda
Peronistastjórn fyrir Argentínu
sem hafi aðsetur • sitt erlendis.
Heimildarmenn herma að sú
stjórn muni ekki dveljast á
Spáni.
Enn hefur ekkert ríki viður-
kennt stjórn Guidos í Argen-
tínu og er það talið baka hon-
um og fylgismönnum hans mikl-
ar áhyggjur.
Líkan af nýtízkulegri flugstöð eftiir finnskættaða arkitekinn Sarinen. Byggingin verður reist á Idel-
i I wiide-flugvellinum við Nelw York. | (
Biðsalir á hjól-
um I framtiðinni
( ^ « «i » )» ! ÍTJ) » f.Æ t'ia *’•*
Flutningur flugfarþega frá flug-
stöðinni á flugveilinum til sjálfr-
ar flugvélarinnar verður æ
flóknara og trfiðara vandamál
cftir því sem flugsamgöngur
aukast, flugvélar stækka og
þurfa lengri flugbrautir, og lend-
ingar og flugtök verða örari.
Fingrakerfið — þ.e.a.s. langir
gangar út frá sjálfri flugstöðv-
arbyggingunni sem liggja beint
til flugvélarinnar — er ein lausn.
Kerfið hefur þó þann ókost, að
<1 11 (Q | A. I A ' A > « I «
farþegárnir verða að ganga lang-
ar vegalengdir þangað til þeir
koma að hinum réttu dyrum, þar
sem flugvélin bíður.
Frá Bandaríkjunum er nú kom-
in fram tillaga um nýja tilhög-
un á þessu, og er hún fólgin í
jhreyfanlegum biðsölum“. Far-
þegamir fara inn í flugstöðina og
halda síðan rakleitt í biðsalinn,
sem dreginn er út að flugvélinni
rétt fyrir flugtak. Alþjóðaflug-
málastofnunin (ICAO) gefur ýtar-
lega lýsingu á þessum hreyfan-
legu biðsölum í síðasta hefti af
tímariti sínu.
Það verður hinn nýi alþjóðlegi
Dulles-flugvöllur í Washington,
sem gerir fyrstu tilraun með
þessa biðsali, en hann verður
opnaður í haust. Verða þá tekn-
'ir í notkun fyrstu hreyfanlegu
biðsalirnir, en endanlega er ráð-
gert að þeir verði 20 talsins. Með
þessu fyrirkomulagi þurfa far-
þegarnir aðeins að ganga um 50
metra, þ.e.a.s. frá miða- og vega-
bréfsskoðuninni til biðsalarins.
Þessir biðsalir eða vagnar verða
hver um sig 16.5 metra langir,
4.9 metra breiðir og 5.3 metra
háir. I báðum endum þeirra
verða stýrishús, vélarnar verða
samtals 172 hestöfl, og er hægt
að nota þær báðar í senn, ef
þörf krefur.
(Frá upplýsingaþjónustu SÞ).
Bárlzfr fýrlr husnæði
l Nato- og Efnahagsbandalagslandinu ftalíu er húsnæðisskorturinn ,
brýnni cn víðast hvar annars staðar. Og til að vega það upp hafa ,
binir húsnæðislausu tckið upp raunhæfari baráttuaðferðir. Myndiu •
er tekin í úthverfi Rómaborgar, þar sem yfirvöldin hafa bannaö
þcim fátækustu að halda áfram að búa í hinum ræfiislegu kofum
si;m þeir höiðu komið sér upp úr ryðguðu bárujárni og öðru álíka
byggingarefn-. Nýlega Iét ítalska stjórnin reisa nýtízku íbúðastór-
hýsi á einum þessara staða — en án þess að gera fátæklingununr
1 járhagslega ldeift að búa í þcim. Þá tóku áttatíu húsnæðiislausar
fjölskyldur sig til og fluttu umsvifalaust í nýju íbúðirnar. Yfir-
völdin siguðu lögreglunni á fólkið og einangraði það síðan frá
rafmagni, vatnii og Ioks frá lífsnauðsynjunum. En allar tilraunii
til að hreltja hina nýjju íbúcndur burtu hafa fa(rið út um þúfur
enda hafa þeir notið tryggrar hjálpar nágrannanna. Á myndinnl!
sést hvar kona ein hcfur ruðst gcgnum lögregluvörðinn og kast-
ar pakka með matvælum upp til eins hinna „ólöglcgu" íbúa hússins.
Dýrt ai f á samband vii
verur á öðrum hnöffum
WASHINGTON — Vísinda- og1
geimfcrðanefnd fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings hefur kallað vís-
indamcnn á sinn fund til að
ræða möguleika á að koma á
radíósambandi við verur á öðr-
um hnöttum. Niðurstaðan varð
sú að ólíklegt væri að slíkt sam-
band kæmist á þar cð löggjafar
á öðrum hnöttum myndu ckkert
fúsari til að láta af hendi rakna
þær miklu fjárfúlgur sem til
slíkra fjarskipta þarf heldur en
kollcgar þcirra á jörðinni.
Fyrir nokkrum árum hefði
sjálfsagt þótt fáránlegt að ræða
slíkt mál, en nú er öldin önnur.
Margir kunnir vísindamenn
mættu fyrir þingnefndinni, þeirra
á hife'ðál-dtrUBéfmtefrtá bcreWr#
Jodrell Bank og Harrison—S.
Brown frá Tækniháskóla Kali-
fo.rníu.
Lovel sagði nefndinni að frá
sjónarmiði stjömufræðinnar væru
miklar líkur á því að vitsmuna-
verur fyndust á öðrum hnöttum,
þar eð a.m.k. 5 prósent hinnar
miklu stjörnumergðar í geimnum
hlytu að hafa plánetur þar sem
líf gæti þróazt. Þetta væri fyrst
og fr-emst viðfangsefni fyrir líf-
fræðinga og minntist í því sam-
bandi á að líffræðingar hafa ný-
lega fundið lífræn efnasambönd
í loftsteinum sem komið hafa til
jarðar utan úr gemnum. FrekarS
vitneskja myndi fást þegar hægfe
yrði að gera athuganir á Marx
og Venus.
Dr. Lovel sagði að handahófs-
tilraunir eins og þær sem gerð-’
ar voru af bandarískum vísinda-
mönnum í Green Bank árið 1960.
til að hlusta eftir radíóboðum ut- .
an úr geimnum svöruðu ekktl
kóstnaði. Ef nokkur von ætti aS
vera um árangur yrði að komai.
upp mörgum öflugum radíókíkj-
um og hlusta að staðaldri í lang-
an tíma. Hann efaðist um aS
nokkur þjóð myndi fús til aO
leggja í þann mikla kostnað seml
það myndi hafa í för með séfii
Þetta yrði kannski hægt ef úr aí-
vopnun yrði, því að þá mæt*t
'é.t.v. nota i þeSsu skyni hin öfl-;
trgu radíótæki- sem stórveldini
hafa komið upp.
Dr. Brow sagði þáð sína skoð-
un að lífið væri mjög algenglti’
fyrirbæri í alheiminum. En hanní
taldi líka litlar vonir til þess aði’.
hægt yrði að komast í samband!
við vitsmunaverur á öðrumt
hnöttum. Hann sagðist telja ólík--
legt að löggjafar í öðrum sólkerf--
um myndu hafa fengizt til aðl':
veita fé til þeirra öflugu sendi-
tækja sem þyrftu til að sendaL
radíóboð um óravíddir geimsinsfc,
og eiga ekki von á svari fyrr eot,
eftir milljónir ára. f
Laugardagur 7. apríl 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (Jj •