Þjóðviljinn - 11.04.1962, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 11.04.1962, Blaðsíða 6
PIÓÐVILJINN Etcoímdl: Bamtlnlnffsrflotkcr alMBt - Bðol&Ustafloklrarmn. - Rltstlór&ri ■C&KHós KJartaDoson (Ab.), Magnúa Torfl Ólafsson, StaurBur QuBmundsson. — Frítt«rttstjórar: ívar E. Jónsson. Jón BJarnason. — Augiýslngastjðrl: QuBgtir Efegnússon. — BJtstJóm, afgrelBsia, auglýslngar, prentsmlBJa: SkólaTðrSust. 19. Blal 17-600 (6 linux). AskrlftarTerS kr. 55.00 & mán. — LausasfiiuverS kr. 3.00. PrtntomlBJa PJóBTtUans bJL Samstaða vinstrimanna gvo mæla börn sem vilja. Alla tíð síðan Alþýðu- bandalagið var stofnað hafa hernámsblöðin flutt þær fréttir með reglulegu millibili að bandalagið væri að gliðna í sundur, þar væri harður ágreiningur um menn og málefni og þar fram eftir götunum. Svo er 'að sjá sem ritstjórar blaðanna hafi meira að segja stundum talið sjálfum sér trú um sannleiksgildi frá- sagna sinna, og þeim mun meiri hafa sárindi þeirra orðið þegar umtalið reyndist óskhyggja ein. Þannig hafa heraámsblöðin auglýst viðkvæmni sína mjög eftirminnilega eftir þá ágætu landsráðstefnu sem Ál- þýðubandalagið fhélt fyrir skemmstu, en þar fjölluðu fulltrúar úr öllum kjördæmum um vandamálin og komust að sameiginlegum niðurstöðum í hvívetna. • • • • /\skir afturhaldsflokkanna um sundrung Alþýðu- bandalagsins rætast ekki, vegna þess að stofnun bandalagsins var rökrétt nauðsyn í íslenzkum lands- málum, og sú hugmynd mun halda áfram að þróast og eflast á ókomnum árum. Ekkert er nauðsynlegra í ís- lenzkum stjórnmálum en að vinstrimönnum lærist að þoka sér saman. Hin nærtæku viðfangsefni — aft- urhaldsstefna stjórnarflokkanna, hernám landsins, hætt- an á innlimun íslands í Efnahagsbandalagið — eru svo brýn, að ágreiningur um ýms fjarlægari verkefni verða að þoka ef ekki á illa að fara. Verði ísland t.d. gert að útkjálkahreppi í þýzku risaveldi er verið að binda endi á hugmyndir allra vinstrimanna um ís- , lenzka samfélagsþróun, hvar sem menn hafa talið sig í flokki. Slíkum hættum eiga menn að mæta í sam- eiginlegri baráttu, og það er þeim mun sjálfsagðara sem afturhaldsöflin eru nú samgrónari en þau hafa ' nokkru sinni fyrr verið á íslandi. Alþýðubandalagið var stofnað sem tæki til þess að stuðla að slíkri sam- vinnu vinstrimanna um brýnustu og nærtækustu þjóð- mál, þannig thefur það alltaf starfað og á þeirri braut mun það þróast framvegis. • • • • C|kilmngur almennings á nauðsyn þess að vinstrimenn þoki sér saman hefur farið mjög vaxandi á und- anförnum árum, síðan stjórnarflokkarnir tóku upp ihina óbilgjörnu afturhaldsstefnu sína. Þessi vilji hef- ur birzt á fjölmörgum sviðum, i ikjarabaráttunni og í baráttunni gegn hernámsstefnunni. Víða um land mun þessi vilji einkenna bæjarstjórnarkosningar þær sem nú eru framundan. Fyrsti framboðslistinn sem birtur hefur verið, listi Alþýðubandalagsins á Akureyri, sýn- ir t.d. fulla samstöðu Alþýðubandalagsmanna og Þjóð- varnarmanna þar í bæ, og enginn efi er á því að vinstrimenn munu mjög almennt fylkja sér um þann lista til þess að stuðla að þeirri þróun sem nú er nauð- synlegust í íslenzkum þjóðmálum. Hins er ekki að dyljast áð áhuginn á vinstrisamvinhu er ríkastur með- al óbreyttra kjósénda; ýmsir forustumenn í Fram- sóknarflokknum og Þjóðvarnarflokknum eru staðnað- ir í úreltum hugmyndum og gera sér ekki grein fyrir því að viðhorfin eru breytt, auk þess sem persónuleg framasýki og metnaður einkenna suma þeirra í allt of ríkum mæli. Kjósendur þurfa að hafa vit fyrir þess- ium forustumönnum sínum og sanna þeim að hug- myndin um nána samstöðu vinstrimanna verður ekki kveðin niður; þar sem einstakir forustumenn standa í vegi fyrir eðlilegri þróun þurfa óbrevttir kjósendur að tryggja hanía engu að síður. — m. Sendifulltrúi Tékkóslóvakíu á fslandi Karel Franc og Jaros- lava Francova kona hans eru nú á förum héðan, en þau hafa gegnt hér störfum síðan í des- ember 1959 Tekur Franc sendi- fulitrúi nú við störfum í utan- ríkisráðun. í Prag. t>au hjón íhafa eignazt mar.ga v*.ni hér á landi og reynzt hinir beztu full- tniar þjóðar sinnar. Þjóðviljinn átti stutt viðtal við Franc sendifulltrúa fyrir nokkrum dögum og spurði hann um vistina hér og samskipti fslands og Tékkóslóvakíu. — Mér hefur falfið vel að dvelja á íslandi, sagði Franc sendifulltrúi, og ég hef eignazt hér marga góða vini. Ég vil biðja Þjóðviljann að færa þess- um vinum mínum beztu kveðj- ur og þakkir, og einnig vil ég iþakka íslenzkum embættis- mönnum, sem ég hef haft sam- skipti við, ágæta viðkynningu. ísland er mjög fagurt land og við hjónum höfum notið þess í ríkum mæli að ferðast um landið, sjá minnisstæða staði og veiða lax. fslendingar hafa reynzt okkur mjög alúðlegir og igestrisnir; iþað hefur oft ‘komið fyrir þegar við höfum verið að ferðast út um sveitir að bænd- ur hafa boðið okkur heim á baei sína, og ég he£ undrazt hversu miikið fólk hefur vitað um Tékkóslóvakíu. Ég er einnig ikunnugur annarstaðar á Norð- urlöndum, en ég hef hvergi átí að mæta jafn almennri gest- risni og hér. — Og meamingarsamskipti ís- lands og Tékkóslóvakíu eni sí- fellt að aukast — Já, mér er það mikið á- nægjuefni hversu fjölþætt menningarsamvinna landanna hefur verið síðustu tvö árin. Óperan í Prag hefur gist Þjóð- leikhúsið. Tékkneskir hljóm- sveitarstjórar hafa unnið með sinfóníuhljómsveitinni, fyrst Smetacek og nú Jindrich Rohan, ig eru ágæt samskipti milli há- skóla landsins, og Hanka vara- rektor háskólans í Prag kom hingað í fyrra á vegum Há- skóla íslands. Á undanförnum árum hafa íslenzk börn farið i kynnisferðir til Tékkóslóvakíu, í ár munu t.d. fara 12 börn, og i og í sveitinni sjálfri leika þrír fyrra komu 5 tékkn'esk börn tékkneskir hljómsveitarmenn; til íslands. 7—8 fslendingar eru Sendifullfrúahjónfn Jaroslava Francova og Karel Franc, einnig lék seilóleikarinn Smet- ana hér í vetur. Ágætt samband hefur tekizt milli tónlistarskól- ans í Prag og tónlistarskólans hér; þannig fóru Björn Jóns- son og Ámi Kristjánsson £ kyrmisför til Prag í fyrra , á vegum itónlistarháskólans. Einn- nú við nám í Tékkóslóvakíu Við . höfum- haft hér sýningu á eftirprentunum listaverka, í- þróttasamskipti- hafa í tekizt og þannig ' mætti . lengi telja. Ég tel þessi menningarsamskipti mjög ánægjuleg og hagkvæm báðum aðilum, þessi kynni hafa Matareitrun, kaupníi kanaglamur á Álafo Heiðruðu lesendur. Þegar ég las grein vikublaðs- ins Fálkans um goðann á Ála- fcssi(. Ásbjörn Sigurjónsson, fylltist ég gremju yfir því að aðeins var talað við goðann sjálfan og hann látinn hæla sér og verksmiðjunni, en ekki litið við verkafólki staðarins. ’ Þess- vegna vil ég svara grein Jökuls fyrir þess hönd. Þar eð goðinn hefur gert sjálfum sér svo góð skil í Fálkanum, sný ég mér að verksmiðjunni og aðbúnaði þar, en honum var mikið hælt, einnig fæðinu. Matseðillinn er ekki skipu- lagður og goðinn sér um inn- kaupin, enda ekki þorandi að sýna matseðil þar sem gert er ráð fyrir fiski í hádeginu sex daga vikunnar en á sunnudög- um eru svo hakkaðar hrossa- kjötsbolur, þær hafa verið alla þá sunnudaga sem ég hef borð- iað þar. Öll kvöld er svo fiskur, eða leifar af sunnudagshestin- um. Kaffibrauðið er ásamt heircrabakkelsi, franskbrauð, mjólkurkex og fjögurra ára gamlar kringlur. Ásbjörn gum- ar mikið af fjölbreytni - matar- ins, menn viti aldrei 'hvað þeir fái að borða fyrr en komið er í matinn. Alltaf er. hægt að ganga að fiskinum vísumj. en hitt er rétt að stundum vita menn ekki hvað í honum h'efur leynzt fyrr en eftir, á, þegar menn eru komnir í rúmið með matareitrun. Yfirleitt byrja' menn vist sína á staðnum með fþví að liggja rúmfastir f"viku. Minnzt er á sundhöllina frægu á Álafossi með- Ölíum sínum böðum og hugsanlegum hreinlætistækjum. - Nokkrum vikum áður en greinin í Fálk- anum- birtist var henni breytt í teppasaumastofu og nú eru g) — ÞJÖÐVILJINN — Miðvikudagur 11 apríl. 1962

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.