Þjóðviljinn - 22.05.1962, Page 7
sRjigstíli;' g gtf.
y:; riyátígli:--
smnj
mann
Rithöfundar víta gerðir meirihluta úthlutunarne fndar listamannalauna
Russell nírceður:
Kærir sig kollóttan um hótun stjórnar Verkamannaflokksins
um að reka hann úr flokknum fyrir að mælameð þátttöku
í friðarþingi í Moskvu.
XONDON — Bertrand Russeil brá út af venju
sinni á níræðisafmælinu og ræddi við hlaðamenn
i íbúð sinni í London. Hann vár hress og lék á als
oddi þrátt fyrir háan aldur; en notaði tækifærið
ftil að koma enn ^
að tortíming vofi yfir
ur tekið í taumana.
Honum höíðu borizt margar
kveðjur iá afmælinu, m.a. írá
Krústjoíf forsætisráðherra, U
Thant, framkvæmdastjóra SÞ,
og Albert Sohweitzer.
Russel sagði bjaðamönnum að
hann þakkaði það kirtlum sín-
um að 'hann he|ði lifað svo lengi.
A.m.k. hlyti starfsemi þeirra að
yera með ágætum. „Ég er mik-
iil reykingamaður“, sagði hann
og kveikti sér í pípu. „Ég hef
xeykt þessi síðustu ár, það er að
segja í sjötíu ár. Eftir sjö ára-
ituga reykingar hef ég ekki í
byggju að hætta, enda er brezkt
jtóbak einhver bezta allra meina
bót í heiminum“.
Það er ekki mikill íburður á
beimili hans 05 skínandi viskí-
íiaska á svörtu mahoníborði
setti sviþ á herbergið. „Mér þyk-
5r líka gott að fá mér í staup-
inu, en þar er læknirinn mér
ekki sammála“. Hann kvaðst
iítið finna fyrir ellinni. „Mér líð-
ur alveg eins: og þegar ég var
áttræður, en ég verð þó að játa
að ég var sprækari þegar ég var
sextugur og gat þá farið í iang-
r gönguferðir. Nú verð ég fljótt
þreyttur“.
En umræðurnar snerust brátt
að öðru en heilsu hans og lífs-
yenjum. Hinn aidni heimspek-
íngur vijdi tala um pólitík. „Ég
yerð stöðugt uppreisnargjarn-
ari“, sagði hann, enda ekki
nema nokkrir mánuðir síðan
hann var dæmdur í fangelsi
fyrir að taka þátt í mótmælum
gegn kjarnorkuvigbúnaðinum.
Hann var harðorður í garð
þeirra sem hafa örlög heimsins
i höndum sér og lét í ljós þung-
ar áhyggjur af því að „mann
kynið væri á hraðri leið til al-
gerðrar glötunar“. „En meðan
ég má mín nokkurs mun ég
berjast gegn þessum tortíming-
aröflum“, sagði hann og bætti
við fordæmingu á öllum tilraun-
um með kjamorkuvopn, hverjir
sem þær gera.
„Mér virðist sem enginn hafj
lengur tíma til að hugsa. Það
er svo sem ekkert nýtt um
stjórnmálamenn. En hver maður
sem getur gefið sér tíma til
þess hlýtur að koma auga á
þá voðalegu haettu sem ógn-
ar mannkyninu: allsherjar tor-
tímingu. Fólk vill ekki horfast
í augu við þetta. Það verður
að vekja lýðinn og það ætla ég
mér að gera“.
Sem áður segir fékk Russel
m.a. skeyti frá Krústjoff. For-
sætisráðherra Sovétrkjanna ósk-
aði til hamingju „hinum ótrauða
liðsmanni friðarins sem barizt
hefur gegn kjarnorkuvopnum og
notkun þeirra, liðsmanni í bar-
áttunni fyrir því að kom;ð verði
í veg fyrir ógurlegar afleiðingar
tortímingarstríðs. Leyfið mér að
láta í ljós við yður þá persónu-
legu skqðun mína að málstaður
isá sem iþér hafið barizt svo
dyggilega fyrir muni ganga með
sigur af hólmi“, sagði Krústj-
off.
Kærir sig kollóttan um
hótun um brottrekstur
Tveim dögum' fyrir afmæli
Russels tUkynnti framkvæmda-
stjórn brezka Verkamanna-
flokksins að honum, Collins
kanúka og Chorley lávarði yrð;
vikjð úr flokknum ef þeir tækjr
ekki aftur meðmæli sín mef
þátttöku í alþjóðlegri friðarráð-
stefnu sem halda á í Moskvu
út eftirfarand:
„Russell lávárður kærlr sþ
kollóttan um hvað Verkamanna-
flokkurinn gerir varðandi hann
Hann tekur ekki aftur stuðninj
sjnn við afvopnun. Hann álítur
að áframhaldandi tilvera mann-
kyns skipti meira máli en þátt-
taka í Verkamannaflokknum".
Ilinn skeleggi baráttumaður gegn múgmorðsvopnum og fyrir friðí,
Bertrand Russel, er nú kominn á tíræöisaldurinn. Myndin er
tekin af honum á útifundi í London fyrir skömmu.
Kortsnoj og
Geller efstir
1 11. umferð áskorendamótsins
í Curacao vann Geller Filip en
Kortsnoj og Benkö, Keres og
Petrosjan gerðu jafntefli. Bið-
skák varð hjá Fischer og Tal.
Þá vann Geller biðskák sfna úr
9. umferð við Fischer en biðskák
þeirra Fischers og Filips úr 10.
umferð varð jafntefli.
Að loknum 11 umferðum er
staðan þessi: 1.—2. Kortsnoj og
Geller 7 vinninga, 3.—4. Keres
og Petrosjan 6l/2, 5. Benkö 5, 6.
Fischer 41/2 og 1 biðskák, 7. Tal
3l/2 og 1 biðskák, 8. Filip 3.
Karlokórlnn Geysír syngur
í Austurbœiarbíéi i
1 kvöld kl. 7 efnir karlakórinn
Geysir á Akureyri til samsöngs í
Austurbæjarbíói. Kórinn hefur
áður sungið í Keflavík, Hafnar-
íirðij Vestmannaeyjum og í gær-
kvöld á Selfoss við ágætar und-
jríektir.
í kómum eru um 40 söng-
omenp. Söngstjóri er Ámi Ingi-
mundsson, undirleikari Guðrún
Kristinsdóttir og einsöngvari Jó-
hann Kcmráðsson.
Á söngskránni eru mest lög af
eldri söngskrám kórsins, þar
sem kórinn varð 40 ára fyrir
skemmstu og efnt til söngfarar-
innar af þeirri ástæðu.
Aðgöngumiðasala er hjá Ey-
mundsson og í Austurbæjai-bíói.
Fjölniennur fundur í Rit-
höfundafélagi Isands hefur
eihróma lýst vanþóknum
sinni á gerðum úthlutunar-
ncfndar listamannalauna.
Mcirihluti nefndarinnar hefur
sýnt pólitíska hluídrægni við
skiptingu Iistamannafjár og
komiö fram af þröngsýni og
skilningsleysi gagnvart lista-
mönnum af yngri kynslóðinni,
segja rithöfundarnir.
Frá fundinum er skýrt á
þessa leið í fréttatilkynningu
frá Rithöfundafélaginu:
Fjölsóttur fundur var hald-
inn í Rithöfundafélagi íslands
sunnudaginn 20. þ.m.
Meðal annars var þar á
dagskrá úthlutun listamanna-
launa. tJthlutunamefnd var
boðið á fundinn en enginn
nefndarmanna þáði boðið. Til
máls tóku ýmsir kunnir rit-
höfundar og deildu á störf
meirihluta nefndarinnar, sem
þeir töldu hafa sýnt óvið-
unandi pólitíska hlutdrægni.
Eftirfarandi tillaga var
samþykkt einróma:
^iFundur haldinn í Rithöf-
undafélagi íslands 20 maí
1962 ályktar:
Félagið lýsir vanþóknun
sinni á störfum úthlutunar-
nefndar listamannalauna 1962.
Meirihluti þeirrar pólitískt
skipuðu nefndar hefur, að
dómi félagsins, ekki reynzt
þeim vanda vaxinn að úthluta
opinbem fé, og skiptir heild-
aruppliæð sú, sem hún hefur
með höndum og er smánar-
lega lág, ekki máli í því sam-
bandi og getur ekki notazt
sem afsökun. Útdeiling nefnd-
arinnar hlýtur að skoðast
hlutdræg og gefa tilefni til að
halda, að listamenn í ýmsum
greinum njóti eða gjaldi póli-
tískrar afstöðu sinnar.
Sömuleiðis lýsir Rithöf-
undafélag íslands yfir van-
þóknun sinni á þröngsýni,
skilningsleysi og óframsýni
meirihluta úthlutunarnefr.d-
ar, hvað snertir afstöðu henn-
ar til yngstu listamanna þ.ióð-
arinnar. Sá listamaður er ekki
til innan þrítugsaldurs, sem
nefndin virðist vita af.
Rithöíundaíélag íslands vít-
ir það eindregið, að tveir af
hverjum þrem listamönnum,
sem nefndinni hefur þóknazt
að strika út með ötlu undan-
farin tvö ár — eru einmitt
rithöfundar og skáld.
Datt í skriðu og
meiádist á höfði
í gær kl. 14.40 var 11 ára
drengur, Birgir Sigurbjörnsson,
Langholtsvegi 140, fluttur frá
sandnáminu í KollafirSi í slysa-
varðstcfuna. Hafði hann dottið
í skriðu í Esjunni og meiddist
talsvert á höfði.
Leiðrétfting
Sú missögn varð í grein
Þjóðviljans í fyrradag um
Sogsvirkjunarstjóm, að sagt
var að ríkisstjórnin hefði
skipað Framsóknarmanninn
Sveinbjöm Frímannsson í
Sogsvirkjunarstjóm, þar átti
að standa Framsóknarmann-
inn Sigti-ygg Klemenzson.
í her Tsho
LEOPOLDVILLE — Cyrille
Adoula, forsætisráðherra Kongó-
stjórnar, sagði s.1. laugardag, að
hann sæi enga ástæðu til að
halða skuldbindingar gagnvart
Tshombe, sem kallar sig forseta
í Katanga.
Tshombe kom til Leopcldville
á föstudag, en ekki er vitað hve-
nær hann verður viðræðuhæfur,
þar sem hann þjáist af lungna-
kvefi.
Hemaðarráðgjafi Sameinuðu
þjóðanna í Kongq. Indvérjinn I.
J. Rikhey, segir að ástandið í
Kongó sé nú að. færast í cðlilegt
horf. Eina alvarlega vandamálið
sé nú Katanga.
Rikhye sagði, að ennþá væru
700 leiguhermenn í Katangu,
þrátt fyrir fyrirmæli S.Þ. og loif-
orð ráðamanna í Kongó um aö
allir erlendir málaliðar skuli
nverfa þaðan á brott. Rikhye
sagði að þessir hermenn væru
stórhættulegir þar sem þeir
vernduðu með ofbeldi hagsmuui
nýlenduaflanna í Katanga og
v'ðhéldu skiptingu Kongó.
Þriðjudag\irmn 22. maí 1962 — ÞJÓÐVILJINN — '
£86í - i . IV i'.1' — ('A