Þjóðviljinn - 22.05.1962, Page 14
Till&ga Alþýðubandalagsins í borgarstjórn:
íhaldið og Magnús XI. vísuðu tiilögunni írá
Alfreö Gíslason flutíi á síðasta
fundi borgarstjórnar tillögu um
að „gerðar verði í tíma sérstakar
ráðstai'anir til að útvega Reykja-
víkurbörnum sumardvöl í sveit á
komandi sumri.“
„Auður vor aJIí,a“ yarð til J),ess
að mæla gegn tillögunni serii
Fiskimál
Framhaid aí 4. .síðu
eru árstekjur togaraháseta
hjá Findus sem nefndar eru
hér að frainan fengnar meö
‘'að! togarhir lán'dá 611-
• um ' ársáflánum í heimáhö’fii
' til viníislu. Þessu mega menn
ekki gleyma þegar borið er
saman.
HvaS er að
hjá okkur?
í þættinum hér að framan
hef ég reynt að gefa dálitla
fnnsýn í árstekjur íslenzkra
og norskra togarasjómanna.
Ég hef í höndum tölur yfir
árskaup íslenzkra togarahá-
Seta allt niður undir ikr. 50
þús., en þá hefur ekki verið
um heils árs úthald að ræða.
svo ég sleppti þeim tölum úr
upptalningunni hér að fram-
an. Þá hef ég líka vitneskju
um, að árstekjur á litlu skut-
togurunum norsku eru mikið
hærri en á þeim norsku tog-
urum sem ég hef vitnað til.
Mundu meðaltekjur norskra
togaraháseta stórum hækka ef
skuttogararnir væru teknir
með. Hinsvegar tel ég- vel
sambærilegt að bera saman
íslenzka og norska síðutogara.
Þá er rétt að það komi fram,
að flestir togararnir sem
Findus heldur úti eru með
gufuvélum.
Skýrslan frá Findus, yfir
árstekjur norskra togarahá-
seta hjá félaginu sannar, að
það er hægt að leggja aflann
á land til vinnslu þó afla-
magn hjá skipunum sé ekki
meira en verið hefur á s.l.
tveimur árum, og veita þó
sjómönnunum lífvænlegar
tekjur. Þó er vitað að kaup
við fiskvinnsluna í landi er
talsvert hærra í Noregi held-
ur en hér, svo ekki byggjast
hærri árslaun norskra togara-
háseta á lægri vinnslukostn-
aði í landi. Það sem þarf að
gera, er að veita íslenzkri
togaraútgerð svipuð rekstrar-
skilyrði og þeirri norsku. En
þá verður líka að gera þá
kröfu jafnframt að íslenzkir
sjómehn béri ekki minna úr
býtum heldur en stéttarbræð-
ur þeirra í Noregi. og að
verkafólk sem að vinnslunni
vinnur hafi sambærileg kjör
við norskt verkafólk. Þetta
á að vera hægt þegar um
samskonar framleiðslu er að
ræða, sem seld er á sömu
mörkuðum.
„óþarfa“ og samþykkti íhaldið
— og Magnús XI. að vísa tillögu
Alfreðs frá.
Tillaga Alfreös var svohljóð-
andi.
„Borgarstjórnin te’iir,. pauð-
sjp. til þfis^ beijfy a,ð gcrð^r ayeir^r
í tíma sérstakar ráðstafanir, tíl
að útvega Reykjavíkurbörnuin
sumardvöl í sveit á komandi
sumri.
í þessu skyni telur borgar-
stjórnin hvort tvcggja nauðsyn-
legt, að auka aðstöðu til sumar-
dvalar þeirra aldurflokka barna,
er Rauði Kross fslands og Vor-
boðinn hafa með höndum, en
gcta ekki fullnægt, og að skapa
möguleika til sumardvalar barna
á aldrinum 7—11 ára.
Telur borgarstjórnin vel koma
tii greina að hafa samvinnu við
ofangreinda aðila um lausn máls-
ins og rekstur sumardvalarstarf-
scminnar.
Borgárstjórnin felur borgár-
ráði og borgarstjóra.framkvæmd-
ir í þessu efni 6g heimilar að
tekið verði á leigu nauðsynlegt
húsnæði, t.d. heimavistarskólar
úti á landi, ef fáanlegir eru. Þá
heimilar borgarstjórnin einnig
nauðsynlegar greiðslur úr borg-
arsjóði til þess að auðvelda
tekjulágum og barnmörgum fjöl-
skyldum afnot sumardvalarinn-
ar“.
Alfreð kvað þessa tillögu sína
ekki nýmæli, svipaðar tillögur
hefðu fulltrúar Alþýðubanda-
lagsins flutt á hverju vori. Þörf-
in fyrir sérstakar ráðstafanir
hefði þó aldrei verið jafnbrýn og
Nýir
hjólbarðar
á fólks- og vörubíla af öll-
um stærðum f nylon og
rayon
CONTlNENTAIi
FIRESTONE
ENGLEBERT
BARUM
o« fleiri íegundir.
Sendum um allt land.
Gúmmí-
vinnustofan h.f.
Skipbolti 35, Reykjavík
Sími 18955.
félogslíf
Gagnfræðingar 1947 frá GA.
Munið fagnaðinn í Silfurtunglinu
n.k. fimmtudag klukkan 21.00.
nú, bæði vegna sívaxandi barna-
fjölda í bænum og aukinna ’ erf-
iðleika á að koma börnum til
sumardvalar í sveitum landsins.
Ég tel, sagði Alfreð, að bær-
ínnr.öigr- að’styrkja mannúðarfé-
tóg sem ád! þéssú ' Vinnaj en auk
þéSS jþarf 'Reykjavíkurborg að
takast sjálf á hendur slíka starf-
semi.
Auður Auðuns varð fyrir svör-
um af hálfu íhaldsins. Kvað hún
9—10 félagasamtök hafa unnið
að þessum málum undanfarið og
ekki væri vitað hve þau mundu
auka starfsemi sína mikið í sum-
ar, en gaf í skyn að þau myndu
fullnægja "eftirspurn. Árið 1960
hefðu 1900 börn komizt í sveit.
Auður varð margorð um kostn-
aðinn sem væri því samfara að
koma börnum í sveit og sagði:
„Ég tel ekki tímabært, meðan
ckki er viðað nema eftirspurn-
inni verði fullnægt, áð slá því
föstu að ráðast í þarin tilkostn-
að“, Iágði húri til ,að vísa tillögu
Alfreðs til borgarráðs og fela
borgarstjóra áð fylgjast fheð
þessu ’máli.
Alfreð Gíslason kvaðst ekki
véfengja !þá tölu er Auður nefndi
— að árið 1960 hefði 1900 börn
komizt í sveit, en það segir ekki
allt, sagði Alfreð. Sum þeirra
fengu aðeins skamma dvöl og
sumardvöl í 1—2 vikur er raun-
ar ekki nema nafnið eitt.
Þótt ekki sé vitað um cftir-
spurnina brcytir það engu um
tillögu mína sagði Alfreð. Borg-
arstjóri léti þegar í stað auglýsa
almenningi að sækja um dvöl
fyrir börn í sveit — þá fyrst yrði
vitað um þörfina. Slík könnun
væri upphafið á framkvæmd til-
lögu minnar. Síðan þyrfti að
kanna hjá mannúðarfélögum
hve mörgum börnum þau gætu
tekið á móti. Sýni það sig að
eftirspurnin sé meiri en félögin
anna tel ég það skyldu borgar-
stjórnar Reykjavíkur að koma
upp sinni eigin stofnun til að
geta veitt sem flestum börnum
sumardvöl í sveit.
Auður Auðuns kvað fleiri börn
en þessi 1900 á vegum mannúð-
arfélaga hafa komizt í sveit, því
allstór hópur í Reykjavík á sum-
arbústaði, sagði hún. Andmælti
hún eindregið að kannað væri
hve margir vildu koma börnum
sínum í sveit, slík auglýsing
gæti orðið til þess að ekki væri
hægt að fullnægja eftirspurninni,
sagði hún. Betur gat hún vart
túlkað þá sannfæringu sína að
þörfinni væri ekki fullnægt.
Ihaldssálirnar 10 og Magnús
XI. réttu svo upp hendur með
því að vísa tillögu Alfreðs til
borgarráðs.
Á að afhenda auðmönnum
fyrirfceki Reykvíkinga?
V0
Framhald af 1. síðu.
haldi fýrir kröfuný vinstrimanna
— því allur ' bæjarrekstur,
hverju nafni sem hann nefnist,
stríðir gegn stefnu Sjálfstæðis-
flokksins. Að undaníornu hafa
einnig verlð háværar raddir um
það innan Sjálfstæðisflokksins
að einstaklingum skyldu afhent
öll fyrirtæki borgarinnar. Hefur
Eyjólfur Konráð Jónsson, rit-
stjóri Morgunblaðsins, haft for-
ustu fyrir hessari sókn. Hefur
hann lagt til að stofnuð verði
svokölluð „almenningshlutafélög“
sem taki við þessum fyrirtækj-
um, en með því fyrirkomulagi
á að reyna að fá almenning til
að leggja fram fé til kaupa á
eignum borgarinnar, en síðan
eiga einstakir gróðamenn að
ráða lögum og lofum og hirða
arðinn — e:ns og menn þekkja
frá »,almenningshlutafélaginu“
Eimskipafélag íslands.
Þefta áhugamál var rætt á
fundi í Varðarfélaginu fyrir
skömmu, og þar risu gróðamenn
Sjálfstæðisflokksins upp einn af
öðrum og lýstu því ,hvaða fyr-
irtækjum þeir hefðu ágirnd á.
f sambandi við þær viðræður
lýsti Jóhannes Zoega, þáverandi
framkvæmdastjóri Landssmiðj-
unnar^ t;d. yfir' því að sjálfsagt
værj að gera > hana að einkafyr-
irtæki. Hann hefur síðan verið
settur yfir hitaveifuna og hefur
efiaust sömu viðhorf til hennar.
Vitað er að innan Sjálfstæðis-
flokksins hefur verið verulegur
ágreiningur um þessa stefnu,
ýmsir varkárari framámenn
fiokksins hafa talið óskynsam-
legt að eignir Reykvíkinga yrðu
þannig afhentar einstökum fjár-
plógsmönnum. Þessi ágreiningur
var ein helzta ástæðan til þess
hvernig hreinsað var til á fram-
Vísað úr landi
Framhaid af 16. síðu.
vegna kaupa á tékkneskri flug-
vél, en þeir Sigurður hafi verið
kunnugir frá fyrrj árum er
Stochl starfaði vð verzlunar-
dejld tékkneska sendiráðsins ,í
Reykjavík á árunum 1956—1961.
Eru í vitnaieiðsium raktir
fundir þeirra Sigurðar og Stochl,
framburður Sigurðar sem um
getur í fréttatilkynningu ráðu-
neytisins, „og neitar kærði því
að hafa beðið Sigurð um að afla
nokkurra upplýsinga um gerð-
ir og flugvélategundir varnar-
iiðsins á Keflavíkurflugvelii,
eða nokkuð slíkt hafi borizt í
tal“, segir í endurritinu.
í framhaidi rannsóknarinnar
héldu bæði Sigurður og Stochl
fast við framburð sinn, en dóms-
máiaráðuneytið hefur nú sem
fyrr segir visað Tékkanum taf-
arlaust úr landi.
I dag verður sextugur Sig-
tryggur Björnsson bóndi á
Seyðisfirði.
boðslista Sjálfstæðisflokksins,
Ilinum gætnari miirsinum var þar
umsvifalaust vikið til hliðar, en
gróðamennirnir röðuðu sér allt
niður í neðstu sæti. Það voru
einmitt Eyjólfur Konráð Jóns-
son, Birgir Iíjaran og aðrir slík-
ir sem stóðu fyrir þessari lneins-
un, og' þeir virðast hafa haft
það sjónarmið að gera vist á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins að einskonar aðgöngumiða að
eigum bæjarbúa.
Það er þannig full ástæða til
að ætla að íhaldið hyggi á stór-
felldar, breytingar, ef það tap-
ar ekki fýlgi í kasningum á
sunnudaginn, og að nsesta skref-
ið eigi að verða það iað afhenda
auðmönnunum opinskátt eignir
þær sem þeir hafa misnotað í
laumi í sína þágu á undanförn-
um árum og áratugum.
KRogFram
Framhald af 13. síðu.
hann gerði á sínum tíma. Jón
Sigurðsson gerði margt
skemmtilegt, og eins Sigurþór,
en það var of lítið leikið á
hann. Ellert ;má líka muna sinn
fífil fegri. Framverðir KR voru
beztu menn, liðsins og þá sér-
staklega þeir Garðar og Sveinn,
og í heild var vörnin betri
helmingur liðsins. Þó var eins
og sókn Fram ylli oft óró og
svolitiu öryggisleysi í vörn KR.
Framarar líflegri
og hættulegri.
Þrátt fyrir það að Fram tæk-
ist ekki að skora í leiknum, er
ekki að efa, að hið nýja „blóð“
í framlínu Fr^m, Þeir Ásgeir
og Hallgrímur, hafa gért fram-
línu liðsins í heild virkari og
hættulegri. Ásgeir hefur ekki
enn náð þeim hraða sem nauð-
synlegur er, en hann kemur,
það bætir hann riokkuð upp
upp með leikni sinni.
Hann hefur líka enn of mikla
tilhneigingu til að vera þar
sem knötturinn er og verður
við það of „laus“ í leik sínum.
Grétar er orðinn einn skársti
miðherji okkar, er hreyfanlegur
og vinnur mikið. Guðmundur
fær ekki enn það út sem mað-
ur hefur eiginlega alltaf verið
að bíða eftir. Baldur Scheving
er sambland af slöku og góðu,
og virðist engin breyting á því,
og á meðan verður hann ekki
útherji af „klassa“.
Það var nokkuð sameiginiegt
hjá báðum, að vera seinir að
átta sig á að senda knöttinn,
og töpuðu þeir honum oft af
þeím sökum. Stafar þetta
mest af því að menn hafa ekki
yfirsýn yfir leikstöðuna, og
eins af hinu, að þeirýsem ekki
eru með knöttinn hafa rétta
skynjun á því hvað staðsetning
er, og hvaða þýðingu hún hef-
Ur fyrir þann sem er með
knöttinn, og þá um leið fram-
vindu samieiksins.
Þetta stafar einnig af því, að
leiknin er ekki í nógu góðu
lagi, athyglin beinist um of að
knettinum, glíman við hann er
ekki ósjáifráð hreyfing, eins
og það þyrfti að vera, þar sem
aðalhugsunin (ef menn hugsa
þá) ætti að beinast að sam-
herjunum, stöðu þeirra og
möguleikum til frekari áfram-
halds í leik og sókn?
Þetta er ef til vill höfuðljóð-
úrinn á knattspyrnunni hér í
dag.
Dómari var Magnús Péturs-
son og dæmdi vel.
Frímann
[£4) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagurinn 22. maí 1962