Þjóðviljinn - 20.06.1962, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 20.06.1962, Blaðsíða 9
þótt Tékkarnir „ættu“ meira miðju vallarins brotnaði margt áhlaupið á þeim íélögum. Skúli Ágústsson, innherjinn frá Akureyri, tók oft skemmti- legan þátt í vörninni og var einnig virkur í sókninni. Kári Sjálfsmark Tckka a síðustu mínútu Ieiksins. frá Akureyri í stöðu hægri inn- herja átti einnig mjög góöan leik með auga fyrir staðsetn- ingum og sendingum, en hann má vara sig á að nota olnbog- ana þar sem strangur dómari væri. Grétar Sigurðsson ógnaöi mjög með hraða sínum og haíði miðvörðurinn stundum fullt 1 fangi með að hindra hann. Útherjarnir voru veikustu hlekkir liðsins, þeir Gunnar Felixson og Þórður Jónsson. I þær slöður er raunar ekki um auðugan garð að gresja. I heild féll liðið heldur vei saman og betur en búast mátti við. Vafalaust verður þetta kjam- inn í liði því sem teflt verður á móti Norðmönnum 7. júlí n.k. LEIKUR TÉKKA EKKI EINS ÁRANGURSRÍKUK OG ÁÐUR Leikur Tékkanna var ekki eins árangursríkur og í hinum leikjunum, og er að sjálfsögöu að finna skýringuna í því, aö mótstaðan var meiri. Vörnin, sem þeir voru að reyna að brjótast í gegnum, var hraðari og fljótari að hindra en þeir voru vannir. Þeir höfðu ekki eins mikið næði til að átta sig. Eigi að síður er ieikur þeirra og leikni þannig, að af því má mikið læra, og þessi litli mun- ur á mörkum í þessum leik má ekki verða til þess, að við getum slegið því föstu, að okk- ar knattspyrna sé í rauninni n'æstum því eins góð og þeirrai Og þó því sé haldið fram, að mörkin segi til um getu liðanna, þá er það ekki sannleikanum samkvSemt. Og ef við viljum vera sanngjarnir þá getum við eins sagt að 'knattspyrna sú sem þessir gest- ir okkar sýna er nokkrum „klössum" betri en það sem við höfum uppá að bjóða. Það er því vonandi, að knatt- spyrnumenn okkar skilji það og taki þá sér til fyrirmyndar um leikni og samleik. Dómari var Haukur Óskars- son. Framhald á 10. síðu. Dick Richardson liggur í roti á segldúknum eftir hnefahögg Ingemars Johanssons í keppni þeirra í Gautaborg á sunnudaginn. Ingcmar vann Evrópumcistaratitilinn mcð hægri handar höggi í átt- undu lotu. |«&> ©v tapaði aðeins 3:2 fyrir Tékkum Satt að segja stóð landsliðið sem kalla verður tilraunalands- lið. sig betur en búizt var við i leiknu.m við Tékkana. Eins marks munur er ekki mikið í leik við svo sterka menn sem þetta tékkneska lið er. Hitt er svo annað mál, að munur liðanna hvað tækni snertir er miklu meiri en mörk- in sýna. Sóknarstyrkur Tékk- anna var mun meiri og leikur þeirra allur betri, þótt þeim tækist ekki að skora oftar. Það var þó greinilegt, að þeir urðu varir við mun meiri mót- stöðu en í leikjunum undanfar- ið, og landsliðinu tókst að ógna svo marki Tékka, að þeir urðu hvað eftir annað að leggja sig fram til varnar. Það setti nokkurn skugga á leik Tékkanna, að þeir notuðu hendurnar til að stöðva knött- inn, og það stundum í tilvik- um þar sem hefði annars ef til vill getað orðið mark. Eins leyfði miðframvörðurinn sér að grípa í framherja. sem kominn var innfyrir, og hindra hann í að koma-st áfram. Svo gott lið sem þetta barf ekki að notn svona aðferðir í leik sínum. Vörn þeirra leikur svo pvert. að snöggir framher.iar eins og ,.t.ríóið“ var í landsliðinu getn skotizt innfyrir óvænt, og það var það sem skeði í þessum leik. GANGUR UEIKSINS: markmaðurinn var „ekki heima“. Aðeins 2 mínútum síðar skor- ar miðherjinn eftir að hafa stöðvað knöttinn eða orðið fyr- ir honum er annar skaut. Þó Tékkar væru meira í sókn gerðu íslendingar við og við áhlaup á Tékka, og eftir eitt áhlaupið var Kári frír og fékk knöttinn en skotið fór langt yf- ir. Þannig lauk hálfleiknum 2:1 fyrir Tékka. Þegar á 4. mínútu síðari hálfleiks eiga Tékkar eitt af sínum skemmtilegu áhlaupum með hraða skiptingu. Vinstrj útherjinn er kominn inn á miðju og skorar þaðan með óvæntu skoti, sem Heimir réði ekki við. Á 25. mínútu kemst Grétar innfyrir en skot hans var langt yfir. Kári er líka-í færi á 40 mínútu en markmaður Tékka varði m.iög vel. Undir leikslok sækja íslendngar og verður þröng við mark Tékka og hrekkr.r knötturinn í mark af varnarmanni. Eins og fyrr segir voru Tékk- ar mikið meira í sókn en þeir léku mjög þröngt, er upp að marki kom, og lokaði vörn landsliðsins oft vel. Þeir skutu [fka hvað eftir annað af löngu færi en allt kom fyrir ekki og yfirleitt voru skotin alltof há. VÖRN UANDSLIDSINS STERK D ER DRAUMUR VERA MEÐ DÁTA F.kki var leikurinn nema 5 mínútna gamall, þegar fyrsta markið kom, og var það inn- herjinn hægri, sem það skor- nði, eftir sendingu utanaf kant,- inum vinstra megin. Skoraði hann viðstöðulaust, svo að það leit. út fyrir að þeir mundu halda uppteknum hætti að skora mörg mörk. Það fór þó svo, að landsliðið jafnaði, og kom það 6 mínútum síðar eftir aukaspyrnu, sem snerti varnar- mann svo markvörður náði ekki til knattarins, sem hrökk til Þórðar Jónssrnar, sem not- aði tteláfærið ' að skors- þegar I þessu tilraunalandsliði veit- ir maður því fyrst athyóii, að vörnin stóð sig mjög vel, og átti hún þó í höggi við mjög leikna menn og hraða. Árni Njálsson var bezti maður varn- arinnar og lék bezta leik sinn á sumrinu. Sama er að segja um þá bræður Hörð og Bjarna Felixsyni. Bjarni bjargar oft á síðustu stundu, en hann mætti taka meira þátt í samleik en hann gerir. Heimir í markinu hefur ekki átt betri leik í vor. Framherjarnir Ormar og Sveinn stóðu vel fyrir rfmr; og- Það hefur borið við alltaf öðru hverju, þegar erlend herskip hafa verið í höfn, að hér hefur myndazt ofurlítið ,.ástand“. íslenzkar stúlkur hafa brugðið sér í ofurlítið ævintýri með dátunum. Þær hafa sézt leiða þá um Austurstræt: og faðma þá í Hljómskálagarðinum. í Nýjasta FÁLKA eru birtar nokkrar myndir af slíkum ævintýrum, teknar þegar franskt herskip. var hér í höfn fyrir nokkru. UPPLAG p á | ifiiiil FÁLKANS li fl | |E | |H M EYKST MEÐ HVERJU BLAÐI 1 n 1% 1 1■ 1 ■ V 1 K U B L A Ð Vegna stöðugrar aðsóknar, verður sýningin BÆKUR OG VÖRU SÝNÍSHORN í Snorrasal íramlengd í 2 daga. Bækurnar fást nú keyptar, og pantanir FRÁ SOVÉTRlKJUNUM afgieiddar. SNORRASALUR. Miðvikudagur 20. júní 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (9]

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.