Þjóðviljinn - 14.07.1962, Page 9
4) — ÓSKASTUNDIN
ULFABROÐIR
Eítir Rudyard Kipling
Eða er það ekki rétt
hjá mér, að þetta standd
í Lögmálinu?
— Gott og vel, sögðu
yngstu úlfarnir, sem allt-
áf voru svangir. Við
skulum hlusta á Bag-
heera. Það er leyfilegt að
borga lausnargjald fyrir
hvolpinn. Það stendur í
Lögmálinu.
— Með því ,að ég ve’if
að ég hef engan rétt til
■að taka hér til máls, þá
bið ég ykkur hér með um
leyfi til þess, sagði Bag-
heera.
— Tala þú, sögðu tutt-
ugu úlfar einum rómi.
— Það er níðingsverk
að drepa hárlausan
hvo.lp. Þar að auki verð-
ur meiri fengur í honum
þegar hann er orðinn
fullorðinn. Baloo hefur
mself með honum. Við
það, sem Baloo sagði,
skal ég nú bæta spik-
feltum vísundi, sem ég
er nýbúinn að drepa, og
hann liggur hérna rótt
fyrir neðan. En þá verð-
ið þíð að taka manns-
hvolpínn inn í úlfastóðið
á löglegan hátt. Víljið
þið ganga að þessu?
En úlfamir æptu hver
1 kapp við annan: — Já,
því ekki það? Hann
króknar hvort eð er þeg-
ar veturinn og rigninga-
tíminn kemur, eða hann
stiknar í sólarhitanum.
Og hvað ætti hárlaus
froskur svo sem að geta
gert okkur? Hleypum
honum strax í stóðið.
Hvar er nautið, Bag-
heera? Við samþykkjum
að veita hvo.lpinum við-
töku.
Og enn kvað við hln
dimma úlfsrödd ofan af
'stóra steininum: — Úlf-
ar, takið vel eftir úlfar.
En Mowgli var ennþá
með allan hugann við
smásfeinana sína. Úlf-
arnir komu til hans, hver
á fætur öðrum, og virtu
hann fyrir sér, en hann
veitti þvi enga athygli.
Að lokum fóru þeir allir
niður af hæðinni, til að
gera sér gott af villinaut-
inu. Eftir urðu aðeins
Bagheera, Baloo og úlfa-
fjölskyldan sem tekið
hafði Mowgli að sér. Ut-
an úr naeturkyrrðinni
heyrðust ennþá öskrin í
Shere Khan, því hann
var bálreiður útaf því að
úlfarnir skyldu ekki hafa
selt Mowgli á vald hans.
— Já, þér er óhætt að
öskra, muldraði Bag-
heera í kampinn, því sá
timi mun koma, að þessi
hárlausi vesalingur jafn-
ar um þig, svo framar-
lega sem ég þekki menn-
ina rétt.
—- Hér hefur verið
unnið gotrt verk, sagði
Akela. Mennirnir og af-
kvæmi þeirra eru full af
vizku. Það getur ein-
hvern firna orðið Hð að
ho.num.
— Sá tími mun áreið-
anlega koma, að þörf
verði á liðveizlu hans.
Enginn getur ráðið fyrir
úlfastóðinu til eilífðar,
sagði Bagheera. Við þessu
þagði Akela. Hann var
að hugsa um það, sem
sérhver úlfahöfðingi
verður eínhvern tíma að
reyna, þegar kraftar
Framhald á 3. síðu.
FJOLSKYLDUMYNDIN
EFTIR GERTRUDE CRAMTON
Jóns-fjölskyldan er
bezta fólk. Bæði
herra Jón og frú Jóna,
börnin þeirra tvö, Siggi
og Sigga, og svo hund-
urinn, hann heitir Snati.
Það var bara þetfa, að
þau voru öll .svo. fljót-
fær. Þess vegna fór sem
fór, þegar myndasmiður-
inn kom. Myndasmiður-
inn var mjög gamall, og
myndavélin hans var
eins þung og hún var
gömul. Þegar mynda-
smiðurinn sá Jóns-fjöl-
skylduna úti á túni að
raka kallaði hann:
— Ég er gamall og
þreyttur, vegurinn ryk-
ugur og myndavélin er
þung. Viljið þið vera svo
góð að gefa mér vatn að
drekka áður en ég held
áfram ferð minni inn í
borgina?
— Vertu velkominn og
gakktu í bæinn, sagði
Jón.
— Já, þó það værl nú,
sagði Jóna, bjóðið mann-
inum inn í eldhús svo
ég geti gefið honum
mjólkurglas.
Það var mikið fum og
fát á fólkinu. Siggi skar
niður brauð og skar sig
auðvitað í fingurinn um
leið. Sigga tók fram ný-
bakaða köku, Jón náði í
ost, Jóna hellti mjólk í
glas, en Snati sat bara
og dinglaði rófunni.
— Jæja, sagði gamli
maðurinn o.g tók til mat-
ar síns. Þegar hann var
búinn að gera sér gott
af þessum ágæta mat,
sagði hann; — Nú vil
ég endurgjalda ykkur
gestrisnina með því að
taka af ykkur mynd,
fallega fjölskyldumynd.
Allir í fjölskyldunni
urðu yfir sig hrifnir að
heyra þetta, og það var
skvaldrað og kvakað eins
og í fuglabjargi.
— Dásamlegt, stórkost.
legt, hrópuðu þa-u öll.
Svo fóru þau að bolla-
leggja hverjum þau setl-
uðu að senda myndir,
Dísu frænku, Þóru og
afa gamla, jæja það
Framhald á 2. síðu.
Um helginc
Tveir stórleikir
Vegna landsleiksins og er-
lendra heimsókna heíur verið
nokkurt hlé á leikjum í fyrstu
deild, en nú um þessa helgi
fer „spenningurinn" að segja
til sín aftur hvað snertir bar-
áttuna í fyrstu deild. Mun langt
síðan hún hefur verið eins hörð
og nú, og iná segja að næstum
hver leikur geti haft úrslita-
þýðingu.
Tekst Fram að ná báðum
stigunum á Akranesi?
Leikurinn á Akranesi milli
Fram og Akraness verður vafa-
laust mjög „spennandi“ og fyrir
fram verður ekki annað séð
en að hann verði mjög jafn og
tvísýnn. Akranes hefur sótt sig
ótrúlega eftir að á leið keppnis-
tímabilið en byrjuðu heldur lak-
lega. Varðandi Islandsmótið er
Akranes þó ekki lakara en það
að þeir eru eina liðið í fyrstu
deild sem ekki hafa tapað leik
til þessa.
Þeir hafa gert tvö jafntefli,
og hafa leikið aðeins fjóra leiki.
Hinsvegar hafa Framarar leikið
fimm leiki og eru með hæsta
stigatölu eða sjö stig, en fjögur
næstu lið hafa sex stig og ísa-
fjörður 1. Að vísu hefur Akra-
nes leikið báða leiki sína við
Isafjörð sem telja verður veik-
asta lið'ið:’' ~
Leikir Fram hafa verið all-
misjafnir í sumar, stundum góð-
ir og stundum langt undir þvi
sem þeir geta.
Takist Akranesi hinsvegar að
leika eins vel og á móti SBU
um daginn og takist Ríkharði
að stjórna liði sínu eins vel og
þá, verður erfitt fyrir Fram að
ná í bæði stigin. Vafalaust
munu báðir selja sig eins dýrt
og hægt er og þar stendur Akra-
nes heldur betur að vígi að
leika heima.
Tekst Akureyri að ná sínu
bezta gegn KR?
Leikur þessi er nokkuð óviss
Rafniagnsveitur ríkisins
óskav eftir að ráða R.4ÐSKONU fyrir vinnuflokk úti á
landi.
Upplysingar í síma 17400 kl. 10—12 f.h. á mánudag
16. þ.m.
íbúð óskast til kaups
Vönduð 5 herb. íbúð í Hlíðunum eða Háaleitishverfi
óskast til kaups nú þegar. 1 herb. þyrfti að vera með »
sér inngangi,
JÓN Ó. HJÓRLEIFSSON. viðskiptafræöingur,
Fasteignasala — Umboðssala, Tryggvagötu 8.
Viðtalstími ld. 11—12 f.h. og kl. 5—7 e,h, Sími 20610—
Heimasfmi 32869
á margan hátt, og tvísýnn. KR
hefur ekki náð sér verulega
upp í þessu íslandsmóti til
þessa, þó það sé með sömu
stigatölu og íjögur önnur lið,
eftir fimm leiki. Það er eins og
að það hafi vantað lckaátakið
í sóknina, þó liðið hafi leikið
allsæmilega úti á velli.
Yfirleitt er það álit manna að
Akureyrarliðið hafi ekld enn
náð því fram sem í því býr.
Leikni þeirra og hraði ætti að
gefa því meiri árangur en það;
hefur hingað til náð, þó það sé
í fjögra félaga hópnum með
sín sex stig.
Takist liðinu að ná því bezta
■ fram er ekki að efa að KR mun
eiga fullt í fangi með að sigra
liðið. Einhverntíma kemur að
því að því tekst að ná saman
og fá árangur af kunnáttu
sinni.
Það er því greinilegt að báðir
þessir leikir í fyrstu deild eru
þýðingarmiklir og að með þeim
verður fylgzt af miklum áhuga.
önnur deild:
Um þessa helgi fara fram 2
leikir í annari deild og eru það
Víkingur og Reynir sem eigast
við í Reykjavík. Síðast þegar
liðiri áttust við sigraði Reynir
6:3, og gera má ráð fyrir að
Víkingi reynist erfitt að sigra
þá Suðurnesjamenn , þó heima
sé.
Hinn leikurinn er milli IBH
og Keflavíkur, og þó Hafnfirð-
ingar leiki heima eru allar lík-
ur til þess að Keflvíkingarnir
hafi hug á að ná báðum stig-
unum og þeir ættu að hafa getu
og vilja til þess, því tap getur
þýtt það fyrir þá að þeir kom-
ist ekki upp í íyrstu deild að
þessu sinni en þeir eru jafnir
Þrótti eins og er, og hafa mesta
vinningsmögulika.
Frftriann.
íslandsmétið
í goEfi hcfið
Islandsmót í gqlfi hófst í
Vestmannaeyjum á fimmtudag,
að afloknu þingi Golfsam-
bandsins. Fyrst var keppt í
öldungaflokki, iþ.e. 50 ára og
eldri. Sigurvegari án forgjaf-
ar varð Hafliði Guðmundsson
Akureyri með 86 högg, annar
varð Júlíus Sölvi Snorrason
Vestmannaeyjum með 88 högg.
í keppni með forgjöf: 1. Júl-
íus Sölvi Snorrason 74 högg
(nettó), 2. Stefán Árnason Ak-
ureyri 80 högg. í gær hófst
svo meistaramótið. Eftir fyrsta
daginn eru þessir efstir í meist-
araflokki: Ólafur Bjarki Ragn-
Framhald á 4. síðu.;
Laugardagur 14. júlí 1962
ÞJÓÐVILJINN — (9