Þjóðviljinn - 10.08.1962, Blaðsíða 6
þlðÐVIUINN
Útgefandi Sameiningarfiokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. —
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Magnús Torfi Ölafsson, Sigurð-
ur Guðmundsson (áb.) — Fréttaritstjórar: Ivar H. Jónsson, Jón
Bjamason. — Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson. — Rit-
stjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 55.00 á mánuði.
Dómur reynslunnar
„Ðeynslan er ólýgnasti dómarinn“, segir íslenzkt mál-
tæki og munu flestir geta verið sammála um að
svo sé. En hinu er ekki að leyna, að sá dómur sem
reynslan kveður upp getur verið harla dýrtkeyptur.
Islendingar hafa rekið sig ó'þyrmilega á þessa stað-
reynd á iþví tímabili, sem „viðreisnarstjórnin“ svo-
iiefnda hefur farið með völd í landinu. Báðir flokkarn-
ir, sem að þessari stjórnarstefnu standa, sögðu fólk-
inu, að með henni væri lagður grundvöllur að batn-
andi lífskjörum og afkomuöryggi atvinnuveganna í
landinu. Reynslan mundi skera úr um það, að þessi
stefna væri rétt. „Leiðin til bættra lífskjara11 væri
fólgin í „viðreisninni“ sjálfri.
fjað kom þó ýmsum undarlega fyrir sjónir, að fyrsta
skrefið á þessari leið var að skerða kjör vinnandi
fólks í landinu stórlega. Sú aðferð hefur nefnilega
aldrei verið í hávegum höfð að byrja á þvií að stela
af fólki til þess að geta síðar sagt, ‘að nú væru lífs-
kjörin að batna, þegar fólkið krefst aftur réttar síns.
En menn biðu samt rólegir átekta og vildu sjá, hvern-
,,viðreisnarleiðin“ til bættra lífskjara gæfist. Og
stjórnahblöðin ikepptust við að lýsa því yfir að „við-
reisnin“ væri að takast. Þá fannst vinnandi fólki loks
tíminn kominn til þess að það uppskæri nolkkuð af
áfangrinum. Verkalýðshreyfingin knúði fram kjara-
bætur í fyrra sumar, en ,þá kom allt í einu annað hljóð
í „viðreisnarstrofekinn“. Stjórnarblöðin heimtuðu taf-
arlausar ráðstafanir til þess að skerða kaupgetu al-
rþennings á ný.
/^engisfellingin í fyrra sumar var næsta skref „við-
i reisnarinnar“ til bættra lífskjara almennings. Og
stjórnarblöðin tóku gleði sína á ný: Það var alveg
áfeiðanlegt, „viðreisnin“ var að takast. Þessar raddir
í stj órnafherbúðunum hafa gerzt því háýlýþéif f sém
léngra hefur liðið á þetta ár, enda hefur nvert „við-
reisnarafrekið" rekið annað undanfarið:j':SfQ|yua/;tog-
araflotans, stöðvun síldveiðiflotans í upphaftó veftSðar,
framleiðslutafir og framleiðsluibönn. En hæst hefur þó
þþtið í „viðreisnarskjánum“, þegar sjávarútvegsmála-
ráðherra hefur gengið í lið atvinnurekendö : til 'þess að
Mekka hlut sjómanna. Þá hefur ekki éíhungfk yvið-
réisninni11 verið bjargað, heldur beinlínis þjó.ð
j.óðinni
7T
Camt sem áður eru blikur á lofti að því er sérfræð-
■ mgar stjórnarinnar segja. Það hefur enn sýnt sig
á þessu ári, að almenningur er ekki ánægður nieð það,
að „viðreisnarstjórnin“ hefur rýrt kaupgetuna um 33%
gagnvart nauðsynlegustu neyzluvörum frá því hún tók
við völdum. Vinnandi stéttir hafa enn knúið fram
kjarabætur. Og þrátt fyrir gerðardóminn virðast síld-
veiðisjómenn ætla að fá óvenju góða vertíð. Það veið-
ist svo mikil síld! Þess vegna fórna nú sérfræðingar
stjórnarinnar höndum og segja: Kaupgetan er að verða
allt of mikil. „Viðreisnin“ verður að stíga sitt næsta
spor, ef efcki á illa að fara.
,,¥ íklegast til árangurs virðist vera að auka aðhald
,í útlánum bankanna og draga úr eftirspurn með
fjármálalegum aðgerðum ríkissjóðs“, segir Jóhannes
Nerdal bankastjóri. Að draga úr eftirspurn með fjár-
málalegum aðgerðum, þýðir á mæltu máli að lækka
kaupgetu almennings á ný með aukinni dýrtíð. Þann-
ig fcveður reynslan upp sinn ótviræða dóm yfir „við-
reisnarkerfinu": Aukin kaupgeta og bætt lífskjör eru
ósamrýmanleg núverandi stjórnarstefnu. Þá staðreynd
þurfa kjósendur að hafa í huga, næst þegar þeir ganga
að kjörborðinu. — b.
Rœtt við BJARNA ÞÓRÐARSON BÆJARSTJÓRA í NESKAUPSTAÐ
Það rennur ótrúlegur fjöldi lækja niður
hlíðina. Vafalaust eru þeir fallegir á að líta,
þegar þeir fossa í vorsól, en þeir eiga það
til að byltast áfram með aurleðju og grjót
yfir hvað sem á vegi þeirra verður, lóðir
jafnt og götur; ógna jafnvel húsum, þegar
Bjarni Þórðarson, bæjarstjóri í Neskaupstað.
verstl gállinn er á þeim. Svo hjaðna þeir á
sumrin, verða meinlausir, þorna margir upp.
Bærinn er byggöur meðfram sjónum og
nokkuð upp í bratta hlíðina. Bæjarstæðið
er því fallegt, og sólríkt í húsunum, en eitt
hið erfiðasta sem gerist. Og kostnaöurinn
og fyrirhöfnin við að steypa yfir lárétta
lækinn úr tjörn höfuðstaöarins er barna-
leikur hjá því aö loka öllum þessum lækjum.
Margir þeirra hafa þegar verið lokaðir inni
í steyptum rennum, en margir eru óhamdir
enn. Út með firðinum, þaðan sem yztu hús-
in standa nú, er gott landsvæði meö mátu-
legum halla, bæjarstæði framtíðarinnar;
enda kvaö Guðmundur Hannesson hafa
komið auga á þaö sem slíkt þegar 1912.
JÓN BJARNASON
skrifar frd
NESKAUPSTAÐ
SOLRIKUR BÆR A
BRATTR STROND
Við skulum nú fræðast ofur- .
lítið um verk og verkefni bæj-
arins og stjórnenda hans af
Bjarna Þórðarsyni bæjarstjóra
í Neskaupstað.
— Er Neskaupstaður að vaxa,
Bjami?
—' íbúatala bæjarins hafði
staðið í stað í mörg ár þar til
fyrir 4 árum, að íbúum tók að
fjölga nokkuð, og nú ber tals-
vert á því að fólk vilji flytja
hingað, en .það er ekki hlaupið
að því vegna þess að húsnæð-
isekla er mikil, það hefur orð-
ið stöðnun í húsabyggingum,
og tel ég að það standi bænum
fyrir þrifum.
Það er ljóst að gera verður
ráðstafanir til að bæta úr hús-
næðisvandræðunum, en það
verður naumast gert nema
bæjarstjórnin taki að sér veru-
lega forastu í þeim málum og
veiti margháttaða fyrirgreiðslu
við húsbyggingar, jafnvel að
bærinn byggi siálfur. — Nokkr-
ar umræður hafa verið um
hvernig hægt væri að koma
þessum málum bezt fyrir, en
þeim málum er ekki það langt
komið að neitt sé hægt frá
þeim að skýra.
— Hvað um framkvæmdir
bæjárins?
— Á undanfömum árum hef-
ur bærinn haft með höndum
rúverulegar framkvæmdir.
Nefna má að fyrir 5 árum var
lokið við að reisa hér sjúkra-
hús, sem hefur reynzt hin þarf-
asta stofnun.
— Hvað er það stórt?
— Þar era 37 sjúkrarúm, auk
ellideildar fyrir 12.
1 fyrra var byggt hús fyrir
yfirlækni sjúkrahússins.
Um nokkurra ára skeið hefur
staðið yfir bygging gagnfræða-
skóla cg var hluti byggingar-
innar tekinn í notkun í fyrra-
haust.
Eitt erfiðasta viðfangsefni í
sambandi við framkvæmdir
bæjarins eru vegamálin. Bær-
inn sendur í miklum halla,
lækir mjög margir og ákaflega
erfitt að halda vegum í viðun-
andi horfi og aðkallandi að
gera þá úr varanlegu efni.
1 fyrra var vegarkafli steypt-
ur í bænum og ákveðið er að
steypa meira í sumar. Þær
framkvæmdir eru illviðráðan-
legar vegna kostnaðar, og nauð-
synlegt, ef hægt á að vera að
sinna þeim málum sem skyldi,
að stór lán fáist til langs tíma
með hagkvæmum vöxtum, eða
að sveitarfélögin fái nýja tekju-
stofna til að standa undir
kostnaðnum af varanlegri vega-
gerð.
— Hvað steyptuð þið langa
götu?
— Við steyptum 150 m. (um
20C0 m2).
— Það mun samsvara því að
Reykjavík hefði steypt 8 km
langa götu.
— Það mun vera. Þá hefur
talsvert verið unnið að holræsa-
lögnum og allmikið að endur-
bótum og nýlagningum.
Unnið hefur verið við íþrótta—
vallargerð, fyrst og fremst í
sambandi við unglingavinnuna
og er þeirri framkvæmd ekki
lokið.
Bærinn hefur á undanförnum
árum lagt mikið fé í byggingu
félagsheimilis og var hlúti þess
tekinn til afnota í vor og ger-
breyttist við það aðstaða til
samkomuhalds og kvikmynda-
sýninga. Það hefur líka leyst
mikið vandamál í sambándi við
greiðasölu fyrir ferðamenn og
einnig er þar matsala fyrir
ve.rkafólk.
Félagsheimilisbyggingúnni er
ætlað að leysa fleiri vandamál,
t.d. í sambandi við tómstunda-
starfsemi, og komið hefur fram
sú hugmynd að hafa þar sum-
argistihús, en það er mjög að-
kallandi að hefja slíka starf-
semi hér.
— Afskipti bæjarins af at-
vinnumálum?
— Bæjarstjórnin hefur jafn-
an lagt mikið kapp á að halda
uppi stöðugri atvinnu.í bænum
en yfir vetrarmánuðina >er stór
hætta á atyinnpleysi. 1 mörg
ár leysti togaraútgerðin þenna
Félagsheimilið nýja í Neskaupstað.
vanda, en nú er engin togara-
útgerð rekin hér, en til þess að
reyna að bæta það tjón hefur
bærinn gerzt frumkvöðull vetr-
arútgerðar stórra vélbáta, og er
bærinn nú aðaleigandi tveggja
báta, 150 og 250 lesta, og lögðu
þeir hér á iand afla sinn í vet-^.
ur og má heita að það hafi ver- I
ið eini aflinn sem hingað barst
á þeim tíma.
Ljóst er að tveir bátar nægja
ekki til að bægja burt hætt-
unni af vetraratvinnuleysi og
er nauðsynlegt að efla þessa
útgerð og fjölga bátum.
— Hvað um samgöngumál —
hafið þið ekki flugvöll?
— Á undanförnum áram hef-
ur verið unnið hér að flugvall-
argerð og vantar nú ekki nema
herzlumuninn á að hann sé
fullgerður. Ekkert hefur verið
unnið að framkvæmdum við
hann á þessu ári og eru bæj-
arbúar mjög óánægðir með það.
Fyrir fáum dögum talaði flug-
máiaráðherra við mig og skýrði
mér frá því að afráðið væri að
hefja framkvæmdir að nýju um
miðjan ágúst, og taldi að flug-
völiurinn myndi verða ncthæf-
ur fyrir venjulegt innanlands-
flug fyrir haustið-
Flu.gvöllur er mjög þýðingar-
mikill fyrir samgöngur við bæ-
inn, því þær eru mjög lélegar
að vetrinum, og eingöngu með
strandferðaskipunum — og þau
eru hér svona á hálfsmánaðar-
fresti. Fá byggðarlög munu því
eins illa sett með samgöngur
að vetrinum og Norðfjörður,
þess vegna hugsum við gott til
glóðarinnar þegar flugvöllurinn
kemur að gagni.
Flugvöllurinn myndi koma
1700 manna byggðarlagi að not-
um, sem er Neskaupstaður,
Norðfjarðarhreppur og Mjói-
fjörður, — auk þess sem hann
er nokkru hentugri fyrir Esk-
firðinga að sumrinu en Egils-
staðaflugvöllur.
— Stendur bærinn ekki að
fleiri framkvæmdum en þú hef-
ur nefnt?
— Jú, bærinn er aðili að þýð-
ingarmiklum fyrirtækjum í
bænum. Hann er t.d. lang-
stærsti hluthafinn í Dráttar-
brautinni h.f., sem starfrækir
dráttarbraut, vélaverkstæði og
skipasmíðastöð, bæði til ný-
smíða og viðgerða og ennfrem-
ur bifreiðaverkstæði.
Þá á bærinn tíunda hlutann
í Síldarverksmiðjunni, en lang-
stærsti hluthafinn er SÚN, sem
á 60% og Dráttarbrautin á 10%.
— Verkefni framundan?
— Stærsta verkefni okkar á
næstu árum er hafnargerð. Efn-
ið í fyrsta áfangann er komið
á staðinn cg verður verkið unn-
ið næsta sumar.
Þá hefur verið ákveðið að
reisa stórt og vandað íþrótta-
hús og er gert ráð fyrir að und-
irbúningi verði lokið á þessu
ári.
Allt frá 1950 hefur bærinn
rekið dagheimili fj'rir börn yf-
ir sumarmánuðina við mikla og
vaxandi aðsókn, t.d. munu vera
þar 70 bcrn í sumar. Aðstaðan
til að reka þessa starfsemi í
barnaskólanum er fjarri því að
vera góð, og hefur verið ákveð-
ið að ráðast í byggingu sérstaks
húss fyrir þessa starfsemi til að
búa barnaheimilinu sem bezt
skilyrði og lengja starfstíma
þess, en nú byrjar það daginn
eftir að skólar hætta og lýkur
ekki fyrr en daginn áður en
skólarnir taka til starfa.
Þá tel ég reynsluna hafa sýnt
að aðkallandi sé að stækka
sjúkrahúsið á næstu árum því
aðsókn að því er svo mikil að
það er oftast yfirfullt.
Heilsuverndarstöð tók til
starfa í vetu.r sem leið og er
henni mjög þröngur stakkur
skorinn meðan ekki er hægt að
av.ka við það húsnæði sem hún
hefu.r til afnota og úr því verð-
ur ekki bætt nema með ný-
byggingu. J. B.
Gagnfræðaskólinn í smíðum.
1 síðasta blaði var frá því
skýrt, að Síldarútvegsnefnd
hefði tilkynmt saltendum, að
lokið væri söltun upp í gerða
samninga og að áframhaldandi
söltun væri algjörlega á ábyrgð
saltenda. Jafnframt var svo
að orði komizt, að venjulega
fylgdi slíkri tilkynningu önn-
ur, sem legði blátt bann við
allri söltun.
Og þessi tilkynning lét ekki
á sér standa. Strax daginn eft-
ir lagði Síldarútvegsnefnd al-
gjört bann við frekari söltun
og hótaði peim, sem það bann
dirfðust að brjóta, að þeir yrðu
ilátnir sæta ábyrgð og beittir
f jársektum.
Eftir var þó að salta all-
mikið magn af sérverkaðri síld.
1 sambandi við þá söltun á
sér stað miíkill klíkuskapur og
aðeins nokkrir útvaldir salt-
endur fá að salta þá síld. Þeir
salita cutsíld af kappi, meðan
leyft er og láta sérverkunina
biða unz söltunarbannið er
skollið á. Þannig geta þær
stöðvar haldið söltun áfram
eftir að aðrar hafa neyð-st til
að hætta.
Söltu.narbannið mælist mjög
illa fyrir meðal almennings,
en þó sérstaklega meðal þeirra.
sem það bitnar sárast á, sjó-
manna, útgerðarmanna, salt-
enda, og síldarverkunarfólks.
Bann við síldarsöltun á
miðri vertíð er orðið jafn ár-
víst og krían. Það verður að
hætta að framleiða fyrsta
flokks matvöru, sem er eftir-
sótt, af fjölda þjóða, fyrst og
fremst vegna rangrar og þjóð-
hættulegrar viðskiptastefnu.
1 sambandi við söltunarbann-
ið minnast menn enn þess, sem
gerðist, þegar vinstri stjórnin
tók við völdum í júlílok 1956.
Þá var ástandið svipað og nú
í þessum málum. Söltun hafði
verið stöðvuð af sömu ástæðu
og nú.
Viðskipta- og sjávarútvegs-
málaráðherra vinstri stjórnar-
innar, Lúðvík Jósepsson, lét
það verða sitt fvrsta ráðherra-
verk, að fyrirskipa Síldarút-
vegsnefnd að afturkalla söltun-
arbannið. Jafnframt voru gerð-
ar ráðstafanir, sem gerðu salt-
endum f járhagslega kleift að
ihalda söltun áfram, án þess
að eiga á hættu gialdbrot
vegna óseljanlegra saitsíldar-
birgða.
Með þessu. móti tókst að
bjarga miklum verðmætum
fyrir þjóðarbúið sumarið 1956.
Jafnframt . þsÝ' Sém Síldarút-
vegsnefnd vap;, fypirskipað að
afturkalla söltunarþannið, var
hafizt handá um sölu fram-
leiðslunnar. O'g þ'að tókst að
selja hana alla — ekki bar á
öðru. Salan tókst fyrst og
fremst vegna þess, að tekin
var upp þjóðholl viðskipta-
stefna.
En nú er öldin önnur.
Síldarsaltendur leituðu ásjár
ríkisstjórnarinnar og fóru fram
á að hún tryggði að söltun
gæti haldið áfram, en þar var
talað fyrir dauíum eyrum.
R'jkisstjórnin neitaði með öllu
að gera mokkuð í rnálir>u.
Framléiðslu.bann var það eina,
sem hún hafði áhuga á.
Hvernig nú er komið er auð-
v.i.tað að kenna aumingjaskap
níikisstjórnarinnar og alrangri
stefnu í utanríkisviðskiptum.
Þar eru hagsmunir og geðþótti
braskara og kay.pahéðna settir
ofar hagsmunum þjöðarinnar.
Þeim er fengið váld til að á-
kveða hvað skuli flutt til lands-'
ins og hvaðan. Þjóðerniskennd
og þegnskapur þes-sa lýðs er
ekki á marga fiska. Þeir flytja
fyrst og fremst inn vörur, serri
þeir geta grætt mest á, en
hagsmunir þjóðarinnar varða
iþá litlu.
Þessi viðskiptastefna hefur
orðið til þe-ss, að stórlega hefur
dregið úr viðskiptum ckkar við
sósíalistísku löndin. Þannig
getum við ekki hagnýtt okkur
aillveralegan saltsíldarmarkað
í Austur-Þýzkalandi. Og afl
sömu ástæðum hefur síldar- ,
salan til Sovétríkjanna stór-
ilega dregizt saman, þó þar sé
í rauninni nær óþrjótandi
markaður fyrir saltsíld, aðeins
ef við höguðum viðskiptastefnu
okkar þannig, að við gætum
notfært okkur hana.
Það ber við að menn heyr-
ist bölva Rússum fyrir að vilja
ekki kaupa saltsíldina. Það er
auðvitað allt í lagi að bölva
Rússum, ef menn finna ein-
hverja hugsvölun í því. En
þeir, sem telja að það sé Rúss-
um að kenna hvernig viðskipt-
um þjóðarinnar er nú komið,
fylgjast ekki með því, sem er
að gerast í landinu. Það eru
Islendingar en ekki Rússar,
■sem eru að eyðileggja hin þýð-
ingarmiklu viðskiptatengsl, sem
kcmið hefur verið á miili þjóð-
anna. Allir, sem vilja, vita ofur
vel, að stefrva stjórn.arinnar er
að draga eins mikið úr við-
skiptunum v;ð sós’'al'st'.>ku rik-
in og þá fyrst cg fremst Sov-
étríkin, eins og framast er
unnt. Þess í stað viTl hún beina
sem mestum hluta viðskipt-
anna til Nato-landa, bar sem
næstum enginn markaður er
Framhald á 10. siðú.
•Wi>
g) — ÞJÖÐVILJINN — Föstudagur 10. ágúst 1962
Föstudagur 10. ágúst 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (7 f