Þjóðviljinn - 27.09.1962, Page 5
VESTUR-EVRÓPA
STOFNI EICIN
KIARNORKUHER
48 BJÖBeUNST - 28 FÖRBST
er bandaríska flugvélin nauð-
lenti á Atlanzhafi á sunnudags-
kvöldið. 300 menn tóku þátt í björgunarstarfinu og notuðu bæði flugvélar og skip. Þeir sem björg-
uðust voru fyrst fluttir í svissneska vöruflutningaskipið Cclerina. Þeir sem harðast höfðu orðið úti
og mest voru særöir voru síðan fluttir um borð i kanadíska flugmóðurskipið Bonaventure en þar
voru læknar og sjúkraklefar til reiðu. Myndin sýnir kopta flytja hina særðu milli skipanna.
Hættulegt efni í matvælnm
börn
loðin og öpum lík
• Bandaríkjamenn sendu útsæðishveiti til
Tyrklands og var það blandað efni einu til að
verja það skemmdum. Hungrað fólkið bakaði
brauð úr korninu og gaf börnum sínum með
þeim afleiðingum að þau urðu loðin og öpum
lík. Vitað er um fimmþúsund slík börn í Tyrk-
landi.
• Slíkt getur endurtekið sig þó aðrar vörur
og önnur efni eigi í hlut. Strangara eftirlits með
efnaiðnaðinum hlýtur að verða krafizt.
12. alþjóðaþing húðsjúkdóma-
fræðiniga er um þessar mundir
háð í Washington. Á einum
fundanna skýrði prófessor Geof-
frey Dean frá því, hversu hræði-
iegar afleiðingar ógætileg með-
íerð efnablöndu einnar hefði
haft fyrir fjölda tyrkneskra
barna.
Mál þetta minnir að ýmsu
leyti á thalidomide-harmileikinn.
Það hófst fyrir mörgum árurn,
en er fyrst nú dregið fram í
dagsljósið.
Dr. Dean gerði sér ferð til
Tyrklands til að kanna málið.
Honum segist svo frá að frá
árinu 1955 hafi Bandarikjamenn
sent miklar birgðir hveitis til
Tyrklands og hafi það verið
blandað efnablöndunni hexa-
ehlorobenzene til að verja það
Kúba
erð fyrir
i toaara
HAVANA 25/9 — Sovétríkip og
Kúba hafa undirritað samning
Eem heimilar að gerð verði höfn
á Kúbu fyrir sovézk fiskiskip.
Sovétríkin munu leggja fram fé
tii hafnargerðarinnar, en Kúbu-
menn annast framkvæmdir.
Castro forsætisráðherra skýrði
frá samningunum í útvarps- og
sjónvarpsræðu sem hann hélt
eftir að hann hafði undirritað
samninginn ásamt sjávarút-
vegsmálaráðherra So.vé'tríkjanna,
Alexander Isjkoff. Hafnargerðin
er áætluð munu kosta um 270
Sovétríkin munu kosta hafn-
argerðina með lánveitingu, en
höfnin verður eign Kúbumanna
og undir þeirra stjórn. 1 höfninni
verður slippur svo að sovézk
fiskiskip við sertndur Ameríku.
þurfi ekki að leita alla leið til
Sovétríkjanna til viðgerða. Sov-
étríkin fá samkvæmt samningn-
um afnot af höfninni i tíu ár,
en munu í staðinn senda Kúbu-
mönnum aukin matvæli.
★
Ekki var þess getið hvar þessi
nýja höfn myndi gerð.
Til brauðgerðar máttj alls .ekki
nota það.
En fjölmargar tyrkneskar fjöl-
skyldur voru svo aðþrengdar af
sulti að þær freistuðust til að
mala kornið og baka úr því
brauð. Afleiðingin var sú að
þúsundir barna urðu loðin. Löng
hár uxu um allt andlitið, liand-
leggi og fætur. Börnin urðu
samkvæmt frásögn dr. Deans,
„lík öpum í útliti“. Reynt var
að raka börnin en þjáningar
þeirra versnuðu aðeins. við það.
Húðin undir loðnunni var svo
skemmd að „betra“ var fyrir
börnin að láta hárin í friði
vegna ofnæmi hennar.
Yfirvöldin
skelfingu lostin
Tyrknesku yfirvöldin urðu
skelfingu lostin vegna fjölda
hinna loðnu barna, enda hafa
fimm þúsund slík verið skráð til
þessa. Stjórnarvöldin gengust
fyrir sérstökum rannsóknum
varðandi mál þetta og kom
fljótlega í ljós að öll loðnu börn-
in komu frá heimilum sem not-
að höfðu bandaríska hveitið í
brauð. Tyrkneskir og bandarísk-
ir sérfræðingar hófu þá efna-
fræðilegar rannsóknir og kom-
ust að þeirri niðurstöðu að
hexaohlorobenzenið í korninu
væri orsök sjúkdómsins.
Harmleikurinn
gerist enn
Eftir að málið var upplýst
vöruðu tyrknesk yfirvöld við ó-
happakorninu og mikið dró úr
fjölgun hinna loðnu barna. Samt
sem áður er harmleikur nn enn
að gerast og undanfarna mánuði
hafa.fregnir borizt af nokkrum
nýjum loðnum börnum. Samt
sem áður er talin góð von til
þess að unnt sé að koma í veg
fyrir að ihinum óhamingjusömu
börnum fjölgi verulega frá því
sem nú er.
Noltkur barnanna létust af
Framhald á 10. síðu.
— Evrópuríkin verða að koma
sér upp sínum eigin kjarnorku-
her ef Bandaríkin neita að leysa
málið með því að taka þátt í
að stofnsetia kjarnorkuher
handá ACanzhafsbandalaginu.
Þetta er niðurstaðan í skýrslu
sem stjórnmálanefnd Evrópu-
ráðsins lagði fyrir ráðgjafaþing-
ið í Strassborg síðastliðinn
mánudag. Pierre Pflimlin, fyrr-
verandi forsætisváðherra Frakk-
lands, hafði framsögu.
I skýrslu nefndaxúnnar s,egir
að öryggi Evrópu geti ekki
framvegis oltið einvörðungu á
getu Bandax-ikjanna til að fæla
óvininn frá. Telur nefndin æski-
legast að Atlanzhafsbandalagið
fái eigin kjarnorkuher. Ef
rikin hinsvegar neita að .taka
þátt í slíkum vígbúnaði þá eru
Evrópuríkin nauðbeygð til að
koma sér upp sínum eigin kjai’n-
orku'her.
Eínnig stjórnmálasamcining
í skýrslunni er skorað á
Efnahagsbandalagsríkin og
Bretastjórn að hefja hið skjót-
asta á ný samninga um inngöngu
Bretlands í bandalagið.
Nefndin telur, að það vandámál,
sem einkum háir stjórnmála-
legri sameiningu Evi-ópu sé
samningur sá er gera mun form-
le.ga út um rnálið. Nefnin leggur
áherzlu á að samningaviðræðum
sé haldið áfram og mikilvægt
sé að þær takist vel. í skýrsl-
unni er lagt til að svipuðum að-
ferðum sé beitt og þegar efna-
hagssamvinnunni var komið á
laggirnar.
í
Sambúð Afríkuríkjanna (
Kongo (Brazzaville) og Gab-'
on hefur versnað að miklum 1
mun eftir að þau háðu með ,
sér landsleik í knattspyrnu
fyrir skömmu.
Le'kur þessi fór fram í'
Brazzaville. Kongóliðið vann (
með þrem mörkum gegn«
einu, en gei’ði rnikið uppi-'
stand á vellinum vegna þess
að dómarinn neitaði að við-
arkenna fjórða mark liðsins.
Dómari þessi er frá Mið-
Afríkulýðveldinu.
Gabonbúar urðu frá sér af
bræði. í höfuðborginni,
Libreville, var allt sett á
annan endann. Mörg hús voru (
b.rennd til kaldra ko) ✓ sex i
hundruð Kongómenn voru1
rekn'r úr landi og ríkis-
stjóx’nirnar skipust á harðvít-
ugum orðsendingum.
Youloui forseti í Bi’azza-1
ville hélt útvarpsræðu til (
þjóðar sinnar af þessu tilefni.
Sagði hann, að ástandið væri
mjög alvarlegt og skoraði á1
landsmenn að sýna stillingu.
Réttarmorðin
settir á eftiriaun
BONN — 149 dómarar og ríkis-
lögnienn í Vestur-Þýzkalandi
ætla að nota sér tilboö stjórnar-
valdanna um að láta af störfum
fyrir 30. júní m.k., og fara þeir
á eftirlaun. A'llir voru þeir starf-
andi í dómsmálakerfi nazista á
valdatímum Hitlers.
Wolfgang Stammberger dóms-
málaráðherra Vestur-Þýzkalands,
mun flytja skýrslu um „nazista-
dómarana“ í sambandsþinginu í
Bonn, en það kernur saman inn-
an skamms.
Allir þesir lögmenn og dóm-
arar fengu að hefja störf aftur
í Vestur-Þýzkalandi eftir heims-
styi-jöldina. 142 þeirra hafa und-
anfarið veiúð dómarar i Vestur-
Þýzkalanai, en hinir hafa starf-
að við ýmsar aðrar greinar
dómsmálastj órnarinnar.
Lög ná ekki
yfir þá
Vestui'þýzk stjórnarvöld hafa
tilkynnt að þessir lögmenn Hitl-
ers verði ekki látnir sæta á-
byrgð fyrir þau afbrot sem þeir
frömdu á tímabilinu 1. sept.
1939 til 9. maí 1945. Margir
þeirra felldu þá dauðadóma yfir
saklausu fólki, og tóku þátt í
ógnarstjói’n nozista og herdóm-
stólum. Lögmenn þessir og dóm-
arar fá nú að draga sig í hlé
þegjandi og hljóðlaust á eftir-
launum. Nöfn þeirra verða ekki
birt opinberlega.
Gerast iðnjöfrar
Margir þessara manna hafa nú
mjög vel launaðar stöður í vest-
urþýzka iðnaðinum. í skýrslu.
sinni mun Stammberger eklci
fjalla um þessa hlið málsins.
Víðkunnasta skopblað Þýzka-
lands, ,,Simplicissimus“ hefur t
þessu tilefni birt skopteikningu.
Sýnir hún konu dómai’a nokkurs
sem ávítar mann sinn fyrir að
hafa ekki fellt a. m. k. eina
ranglátan dauðadóm og vera þar
af leiðandi ekki hæfur til eftir-
launa eða góðrar stöðu í iðn-
aðinum.
Sumir enn
í starfi
Stammberger mun géfa sam-
bandsþirrginu skýrslu úm það
að átta dómarár og fjórir fíikis-
lögmenn, sem tekið hafa þátt
í ómannúðlegum dauðadóm-
um,“ hafa ekki notað sér boð
ríkisstjórnarinnar um að hætta
störfum og fara á eftirlaun. Eru.
þessir nazistalögmenn enn í
fyrri störfum í dómsmálakeríi
Vestur-Þýzkalands.
Sá elzti af þessum dómurum
er 65 ára gamall en sá yngsti
55 ára. í skýrslu dómsmáiaráðu-
neytisins segir, að vera kunnl
að enn fleirir dómarar og lög-
menn, sem frömdu réttai’glæpí
á nazistatímanum, séu ,enn í
gtörfum í Vestur-Þýzkalandi,
Fimmtudagur 27. september 1962
ÞJÖÐVILJINN — (5