Þjóðviljinn - 27.09.1962, Blaðsíða 9
Heimsmeistarakeppnin í hnefaleik:
„Svarti sauðurinn"
sigraði meistarann
• Sonny Ljston, svarti sauðurinn \ hjörð
bandarískra hnefaleikakappa, vann heimsmeist-
arann í þungavigt, Floyd Patterson, á rothöggi
í fyrstu lotu, er 2,06 mínútur voru af leik þeirra
um heimsmeistaratitilinn, sem fram fór í Chic-
ago í fyrrinótt. Þetta er í annað sinn sem Patt-
erson tapar titlinum, en hann er eini heims-
meistarinn í þungavigt, sem hefur unnið titil-
inn tvisvar.
Áhorfendur að kappleiknum
voru 35 þúsund og í þeirra
hópi voru ekki færri en 5 fyrr-
verandi heimsmeistarar í þunga-
vigt, þeir Joe Louis, Jack
Dempsey, Rocky Marciano,
Ingemar Johansson og James
Bradoock. Áhorfendur tóku
Liston með þögn, er hann gekk
inn í hringinn, en fögnuðu
Patterson ákaft.
Liston hóf lotuna strax með
mikilli örás og reyndi að koma
vinstrihandarhöggum á kjálka
Pattersons en árangurslaust,
hins vegar aflaði hann s.ér stiga
með höggum þeim er hann kom
á búk Pattersons í byrjun lot-
unnar og þau gerðu Patterson
greinilega óöruggan. Notfærði
Liston sér þetta öi*yggisleysi
heimsmeistarans vel, er hann
kom miklum vinstrihandar krók
á höku Pattersons, er hann ein-
beitti sér að því að verja lík-
amann höggum frá andstæð-
ingnum. Patterson reikaði við
og Liston fylgdi eftir með hægri-
handarkrók og síðan enn vinstri
handarkrók til þess að full-
komna verkið, og heimsmeist-
arinn Já í gólfinu. Patterson
reyndi árangurslaust að standa
á fætur en seig aftur saman
með uppgjafarsvip á andlitinu.
Hann var búinn að tapa titlin-
um á skemmri tíma en um
getur áður í sögu hnefaleik-
anna. Bætti Liston met það, er
Tommy Burns setti 1908, er
hann sló Jem Roche niður í
fyrstu lotu, um 38 sekúndur.
Þessi úrslit urðu öllum þeim
mikil vonbrigði, sem höfðu von-
að, að ágæt tækni Pattersons,
hraði hans og keppnisskap
myndu ráða úrslitum í viður-
eigninni við Liston. En Liston
hafði staðið við það sem hann
hafði hótað, er hnefaleikararn-
ir gengu út úr búningsklefun-
um: Floyd skal fá að sjá eftir
þeim Ijótu ummælum, sem hann
hefur viðhaft um mig, hann
skal fljótt fá að sjá eftir þeim.
Ummæli Listons
eftir leikinn
Eftir leikinn sagði Liston: Ef
BALLETSKÖLINN
LAUGAYEGI 31 (áð-
ur Tjarnargötu 4). —
Kennsla hefst í byrjun
október. Barnaflokk-
ar fyrir og eftir há-
degi. Eftirmiðdags- og
kvöldtímar fyrir kon-
ur.
Upplýsingar og innrit-
un daglega kl. 3—6 í
síma 24934.
Dansskóli Elly Þorláksson tekur til starfa
í október í Keflavík og Hafnarfirði. —
Kennslugreinar: Ballet- og akrobatik fyr-
ir börn og unglinga. Plastik fyrir konur.
Upp^ýsingar í síma 18952 daglega kl. 12—3.
áhorfendur vilja viðurkenna
mig, skal ég heita því að verða
góður heimsmeistari. Um sjálf-
an leikinn sagði hann: Ég hitti
hann með vinstrihandarkrók.
Hringdómarinn skildi okkur að
eftir að Patterson hafði hengt
sig á mig. Ég fann, að Patterson
var ruglaður og fylgdi éftir með
hægri og síðan vinstri aftur.
Það var allt og sumt.
Liston var sp-urður, hvort
Patterson hefði komið höggi á
hann. Þetta gekk allt svo fljótt
fyrir sig, svaraði Liston, að ég
a. m. k. veitti því enga athygli.
Um nýjan leik milli þeirra
Pattersons sagði Liston, að hann
vildi fá hann fyrr en seinna,
því að það verður heldur ekki
neinn eiginlegur hnefaleika-
kappleikur. En þá ætla ég að
fara í gufubað fyrst, svo að ég
fái tækifæri til að svitna, bætti
hann við.
Ummæli Pattersons
Patterson var mjög miður sín
eftir leikinn en algerlega ó-
meiddur. Er fréttamenn ræddu
við hann var hann rólegur og
hæglátur að venju.
Það er léleg afsökun að segja,
að ég hafi ekki séð högg List-
ons, sagði hann, en þannig var
það í raun og veru. Þau komu
svo ört, að ég fékk ekki tíma
til neinnar umhugsunar fyrr en
ég lá eins og sveskja á gólfinu.
Hér var ekki um neitt óheið-
arlegt að ræða. Hann var of
sterkur fyrir mig.
Ummæli Ingimars
Ég varð fyrir miklum von-
brigðum með Floyd, sagði Ingi-
mar Johansson eftir leikinn. Ég
hafði vonað, að heimsmeistar-
inn myndi halda titlinum, en
ég vissi strax að það myndi
fara illa, þegar ég sá, hve hik-
andi og óöruggt hann byrjaði
keppnina. Það var heimsku-
legt af Floyd að hætta sér í
návígi við Liston. Floyd færði
Sonny í rauninni titilinn á fati,
þegar hann hljóp upp í fangið
á honum. Meistai'inn var eins
og brúða í höndunum á risan-
um.
Ég verð að segja, að úrslitin
eru hagstæð fyrir mig, þótt ég
hefði alla samúð með Patterson.
Nú vona ég' að fá að keppa
við Liston, þegar síðari leik
þeirra Pattersons er lokið. I
hreinskilni sagt, held ég, að
ég geti unnið Sonny Liston,
sagði Ingimar að lokum.
Samkvæmt samningunum við
Liston á Patterson rétt á ann-
arri keppni við hann og. skal
hún fara fram fyrir 30. sept-
ember 1963. Tekjur Pattersons
af þessum kappleik munu vera
nálægt tveim milljónum doll-
ara og hann hefur einnig ti’yggt
sér fyrirfram helminginn af
tekjunum af síðari keppninni.
Holland og Danmörk
gerðu jafntefli í unglinga-
landsleik í kn»ttspyrnu í
Hollandi í fyrradag. Dan-
mörk haíði i'orustuna með 2
mörkum gegn 1 í liálfleik, en
úrslitin urðu 2:2.
íþróttir
Beneficia skoraði mark á meðan
liðsmenn Santos voru að falmast
Sigurvegarinn í Evrópu-bik-
arkepninni, portúgalska liðið
Benefica, er um þessar mundir
á ferð í Brasilíu og lék þar
við Suður-Ameríkumeistarana
Santos frá Rio de Janero, í
keppninni um það hvort lið-
anna sé bezta knattspyrnulið í
heimi. Leiknum lauk með sigri
Santos 3:2.
Brasilíumennirnir undir for-
ustu Pele höfðu fyrri hálfleik-
inn í hendi sinni og höfðu 1:0
í hálfleik. Benefica lék varlega
og virtist vera taugaóstyrkt í
fyrri hálfleik, en sótti sig mjög
í síðari hálfleik og gerði vörn
Santos mjög erfitt fyrir hvað
eftir annað.
Það var Pele sem skoraði
fyrsta markið fyrir Santos eft-
ir frábæran samleik á 31. mín.
ECFR gcfur út
myndarlegt
afmælisrit
Körfuknattleiksfélag Reykja-
víkur 10 ára nefnist blað, sem
Körfuknattleik-sfélag Reykjavík-
ur hefur gefið út í tilefni af
afmæli sínu. Hafa þeir Ari Guð-
mundsson, Guðmundur Árna-
son, Guðmundui' Georgsson og
Ingi Þorsteinsson séð um út-
gáfuna. Ritið hefst á ávörpum
frá forseta ISl, Benedikt G.
Waage, og frá forseta KKl, Boga
Þorsteinssyni. Guðmundur Ge-
orgsson ritar greinina KFR 10
ára, Valdimar Sveinbjörnsson
greinina Körfuknattléikur, Ingi
Þorsteinsson greinarnar Mót og
kappleikir í 10 ár, Kappleikir
og ferðalög innanlands og önn-
ur Iandsliðsferðin, Ingólfur örn-
ólfsson skrifar greinina Fyrsti
landsleikur íslendinga í körfu-
knattleik og Einar Matthíasson
greinina Bob Cousy, „litli ris-
inn”. Má sjá af þessu yfirliti
um efni ritsins, að þarna eru
samankomnar ágætar heimildir
um sögu körfuknattleiksins hér
á landi á þessu 10 ára árabili.
Ennfremur er í ritinu fjöldi
mynda frá leikjum og mótum.
Dauðvooa eftir
hnefaleik
LOS ANGELES 24/9. Argen-
tínski þungavigtarhnefaleikarinn
Alejandro Lavorante liggur
mieðvitundarlaus í Kaliforníu-
sjúkrahúsinu í Los Angeles.
Meðvitundina missti hann við
rothögg er hann hlaut í sjöttu
lotu á hnefaleikakeppni við
Jhonny Riggings fyrir þrem
dögurn, og er óttazt um lif hans.
Seint í gærkvöldi gekkst hann
undir heilaskurð í annað sinn á
tveim dögum, en ekki heppnað-
ist skurðlæknunum að koma
honum til meðvitundar. Upp-
skurðinn varð að gera með
miklum hraða þar spm æxlj
myndaðist skyndilega á heila
Lavorante.
Santana jafnaði fyrir Benefica
á 13. mín. í síðari hálfleik. Sex
mín. síðar tók Santos aftur
forustuna og hét sá Countinho
sem skoraði, og fáeinum mín.
síðar skoraði Pele þriðja mark-
ið.
Við þetta urðu Santosmenn
svo glaðir að þeir tóku að
faðma hvern annan og voru
ekki hætti því, þegar leikur
hófst að nýju, og því ekki til-
búnir til varnar.
Benefica-menn noluðu sér
tækifærið og skoruðu, á með-
an mótherjarnir stóðu i faðm-
lögum úti á vellinum hér og
þar!
Áhorfendur voru um 86 þús-
und eða eins og þeir geta ver-
ið flestir og verð miðanna í
hærra lagi því tekjur voru
meiri en nokkru sinni af-leik
á vellinum sem leikið vav á
eða sem svarar rúmilega þrem
milljónum króna!
Síðari leikur liðanna í keppn-
inni um titilinn bezta kna.tt-
spyrnulið heims fer fram í
Lissabon.
sitt af hverju
Terry Dovvnes, Bretlandi,
sigraði bandaríska linefaleik-
arann heimskunna, Sugar
Ray Robinson á stigum í 10.
lotu í London í fyrradag.
Báðir hafa þeir Robinson og
Dovvnes verið’ heimsmeistarar
í millivigt.
Danska knattspyrnuliðið
Esbjerg hefur tryggt sér að
leika í annari umferð Evrópu-
bikarkeppninnar. Það lék við
írska liðið Linfield frá Dubl-
in og fóru leikar þannig í
síðari leik félaganna sem
fram fór í Esbjerg að jafn-,
tefli varð 0:0. í fyrri leiknum
sem fram fór í Dublin fóru
leikar þannig að Esbjerg
vann 2:1.
utcm úr heimi
Séra Sigtryggur
Framhald af 7. síðu.
Við kennslu námsgreina
gætti allstaðar hins sama —
að skilja efnið til hhtar en láta
ekki sýndarmennsku eða slembi-
lukku trufla raunhæfa ígrund-
un, og prófstein á manngildi
nemenda hygg ég hann hafi
sett ofar öllum prófum.
; Með þessum, fátæklegu orð-
um mínum er 100 ára afmæl-
is séra Sigtryggs engan veg-
inn minnzt svo sém ég vildi
b.g vert væri, en mig langaði
að þakka minn hlut og í tilefni
þessa afmælis óska þess að
hans hugsjónir rætist, —
kennimenn og menntastofnanir
taki upp merki hans með
manngi'dið að fyrsta boðorði,
þá el ég þá von og vissu að
íslenzk þjóð verði liin ham-
ingjusamasta meðal þjóða.
Halldóra Ó. Guðmundsdóttir
frá Mosvöllum.
Fimmtudagur 27. september 1962 — ÞJÓÐVILJINN . — (Q