Þjóðviljinn - 14.11.1962, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 14.11.1962, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 14. nóvember 1962 27. árgangur 249. tölublað Lækna- deilan leyst Seint i gærkvöld barst Þjóðviljanum svofelld fréttatilkynning frá ríkis- stjórninni um lausn lækna- deiiunnar: „Læknadeilan svokallaða hefur nú verið til lykta leidd á grundvelli tilboðs ríkisstjórnarinnar frá 10. nóvember með þeirri breyt- ingu. að væntanlegar kjara- breytingar skuli reiknast frá 1. ágúst s.l., enda hef- ur stjórn B.S.R.B. lýst yf- ir, að það mun ekki gera kröfur fyrir hönd annarra starfsmanna þótt rikis- stjómin samþykki að greiða sjúkrahúslæknum fyrr en öðrum laun sam- kvæmt væntanlegum kjara- samningi eða dómi. oa samkomulag tekist um nokkur framkvæmdaatriði lausnarinnar." Þjóðviljinn sneri sér til Arinbjarnar Kolbeinssonar formanns Læknafélags Reykjavíkur og spurði hann um álit hans á lausn málsins. Sagði hann að málið hefði fengið fljóta lausn eftir að farið var að snúa sér að því fyrir alvöru að leysa það. Til- laga ríkisstjórnarinnar hefði verið skynsamleg að mörgu leyti og læknamir sýnt mikinn samkomulags- vilja. Væru aliir ánægðir yfir að deilan væri leyst, þótt læknarnir hefðu að visu kosið að fá meiru af kröfum sínum framgengt. Sagði hann ennfremur. að samkomulag hefði náðst um flestallar þser breyt- ingar, er læknarnir óskuðu eftir á málamiðlunartil- lögu ríkisstjórnarinnar. Læknarnir hefja störf að nýju í dag. 30 vistmenn á Elliheimili Akureyrar AKUREYRI — Elliheimilið á Akureyri er nú tekið til starfa. Fyrstu átta vistmennirnir fluttu þangað inn á laugardaginn var, en í þeim áfanga byggingar heimilisins, sem nú er senn full- gerður, verður alls rúm fyrir 30 vistmenn. Mjög miikil eftirsókn er eftir rúmi á Elliheimilinu, miklu fleiri en hægt er að taka á móti að svo komnu, vilja kom- ast þangað. Verður því væntan- lega hraðað framkvæmdum við næsta áfanga. Ofsafengin skrif AlþýSublaðsins: Hótar að AJþýðusambandið Kennir litu- Jóhanncs Sigurðsson yfir- matsmaður kennir upprenn- andi fiskmatsmönnum fitu- mælingar á síld. Myndin var tekin í fyrrakvöld á fiskiðnaðarnámskeiði sem sagt er frá á öðrum stað í blaðinu. (Ljm. Þjv. G. O.) Sjá síðu O0 Þjóðviljinn sagði í gær að hinn naumi meirihluti í Félagsdómi hefði kveðið upp pólitískan dóm „og tilgangurinn er sá að reyna að vekja sem mestar deálur og sundurlyndi innan verklýðshreyf- ingarinnar”. I gær staðfestir Alþýðublaðið þetta sjónarmið; það fylgir niðurstöðu þremenninganna úr hlaði með forustugrein þar sem haft er í ofsalegum hótunum um að kljúfa Alþýðusamband Islands. Alþýðublaðið segir: „Ef kommúnistar hyggjast nú að hafa dóm Félagsdóms að engn og neita LÍV um upptöku í ASÍ þrátt fyrir dóminn eru þeir vísvitandi að kljúfa verklýðshreyfinguna. Lýðræðissinnar munu aldrei sætta sig við slík bolabrögð komm- únista. Nú reynir því á það, hvort unnt er að starfa með kommúnistum í verklýðshreyfing- unni áfram eða ekki.“ Hótanirnar um klofning koma þannig umsvifalaust, þegar á fyrsta degi. Alþýðublaðið hefur auðsjáanlega aðeins beðið eftir tilefninu og fagnar því að fá það. Gegn lýðræðislegum ákvörðunum Niðurstaða hins nauma meirihluta í Félagsdómi verður auðvitað lögð fyrir Alþýðusambandsþing, og þingfulltrúar munu taka á- kvörðun um hvemig við skuli bmgðizt. Það mál verður afgreitt á Iýðræðislegan hátt ctins og önnur, samkvæmt ákvörðunum meiri- hlutans. En Alþýðublaðið hótar því að Alþýðusambandið skuli klofið ef ákvarðanir meirihlutans verða ekki í samræmi við vilja blaðsins, kjömir fulltrúar verklýðshreyfingarinnar á íslandi eiga að gera svo vel að hlýða aðilum utan samtakanna! Ekki hvort heldur hvenær Að sjálfsögðu verður Alþýðusambandsþing að fjalla um ýms vandamál sem hljótast af dómi þremenninganna. Jafnvel þótt ein- hvcrjir vildu beygja sig fyrir dómnum, enda þótt hann gangi í berhögg við yfirlýstan vilja löggjafans, styðjist ekki við neinar lagagreinar, og stríði gegn anda og tilgangi stjórnarskrárinnar — em til að mynda engin tímatakmörk í dóminum. Alþýðusam- bandsþing hefur aldrei neitað Verzlunarmannasambandinu endan- lega um inngöngu, aðeins hafnað umsókn þess meðan skipulags- málin eru i deiglunni. Eiga hinar ofsalegu hótanir Alþýðublaðs- ins einnig við, ef Alþýðusambandsþing vill enn sem fyrr ákveða HVENÆR umsókn Verzlunarmannasambandsins sé tímabær? Síldveiðideilan Skátar fengu hús og lóð í afmælisgjöf AKUREYRI — Skátar á Akur- eyri minntust 50 ára starfsaf- mælis skátahreyfingarinnar hér á landi með samsæti í Lónl föstudaginn 2. nóvember. Við það tækifæri afhenti bæjarstjóri Ak- ureyrarskátum að gjöf frá Akur- eyrarbæ gamla amtmanns- og sýslumannshúsið við Hafnarstr. 49 (sjá mynd) ásamt hvamminum upp af húsinu, sem löngum hef- ur gengið undir nafninu Sýslu- mannsgil. Á mynd á 12. síðu sjást Magnús E. Guðjónsson bæj- arstjóri og Tryggvi Þorsteinsson skátaforingi, er veitti gjöfinnl móttöku fyrir hönd skáta. Skátar á Akureyri eru mjög ánægðir með þá gjöf, sem þeim þama hefur hlotnazt og telja þennan stað cinhvern hinn ákjósanleg- asta, sem nokkurs staðar værf völ á fyrir skátastarf. Þrír seldu er- lendis í fyrradag Þrír íslenzkir togarar seldu afla sinn erlendis í fyrradag. Ingólf- ur Amarson seldi í Grimsby 119,3 lestir fyrir 9833 sterlings- pund. Sléttbakur seldi í Cuxhav- en 94,7 lestir fyrir 90.697 mörk og Egill Skallagrímsson seldi í Bremerhaven um 75 lestir fyrir 72 þúsund mörk. Akranesbátar farnir á veiðar Akranesi 13/11 — Klukkan sex £ kvöld voru allir stóru bátamir farnir út á síldveiðar og margir af hinum smærri að tínast út líka. Veðurstofan spáir norðaust- iri kalda og eru því miklar líkur til að fyrsta síldin á þessu hausti veiðist í nótt. — GMJ in and- víg Akranessamningum Samninganefnd sjómannasamtakanna innan Alþýðusam- bands íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu, þar sem heitið er á öll þau félög, sem síldveiðideilan tekur til að standa fast saman þar til sameiginlegur samningur hefur verið gerður fyrir félögin öll. Fréttatilkynningin, sem samn- inganefndin sendi frá sér þessa efnis í gær, var svohljóðandi: Samninganefnd sjómanna í deilunni um síldveiðikjörin vill ákveðið taka fram, að samningur sá, er stjórn sjómannadeildar V erkalýðsfélags Akraness hefur gert við útvegsmenn þar, um kaup og kjör á sildveiðum, er gerður og undirritaður án vit- undar og án samráðs við samn- inganefndina og vill nefndin taka það ákvcðið fram að hún var ekki og er ekki reiðubúin aó gera samninga á þeim grund- velii er gcrt var á Akranesi. Samningancfndin heitir ein- dregið á öil félög, sem síldveiði- deilan tekur til, að standa fast saman þar til samciginlegur samningur hefur vcriið gerður fyrir félögin öll. Spellvirki og morð undirbúin meðan verið var að semja Sjá síðu 0 Engin ákvörðun enn um Fœreyjaflug F.l. Morgunblaðiið skýrði frá því í gær undir aðalfyrirsögn á forsíðu, að Flugfélag Islands myndl hefja regiubundnar áætlunarferðir til Færeyja í aprílmánuði n.k. Ekki mun þessi frétt Moggans fullkom- Iega tímabær; að þessum mál- um er cnn unnið að sögn Flugfélagsmanna og engin endanleg ákvörðun lsefur ver- ið tekin. Verði ákveðið að hefja áætlunarfiug til Fær- eyja munu Dakotavélar vænt- anlega verða notaðar til ferð- anna fyrst um sinn a. m. k. en á myndinnl sést einmitt cin af vélunum af þessari gerð. 4 i t

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.