Þjóðviljinn - 14.11.1962, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 14.11.1962, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 14. nóvember 1962 ÞJÓÐYILJINN SIÐA 5 Þingmenn Alþýðubandalagsins leggjatil Bótagreiðslur trygginganna færðar í réttiátara horf Örorkubætur samræmdar í greinargerð fyrir frumvarp- inu er gerð nánari grein fyrir þessum beytingum. Er á það bent, að í því felst mikið ó- samræmi og óréttlæti, að ekki gilda sömu reglur um greiðslu lífeyris öryrkja og er farið eftir því, hvort örorkan stafar af slysförum eða veikindum. Stafi örorkan af slysi á við- komandi rétt á lífeyri, ef hún er metin 50% eða meira, en sé örorkan af völdum sjúk- dóms á öryrki ekki lagaleg- an rétt á lífeyri nema örork- an sé 75°/f og þar yfir. Alfreð Gíslason, læknir, og Björn Jónsson hafa lagt fram frumvarp til laga um breytingar á almanna- tryggingunum. Meginatriði frumvarpsins eru þessi: 1. — Sami örorkulifeyrir skal greiddur fyrir sömu ör- orku, ef hún er 50% eða meiri, án tillits til þess. hvort sjúkdómur eða slys hefur valdið henni. 2. — FjölskyldubcBtur skulu greiddar með öllum börn- um innan 16 ára án undantekningar. 3. — Fjölskyldubætur geta farið saman með hvers kon- ar öðrum tryggingabótum. 4. — Allar bótagreiðslufjárhœðir almanriatrygginga skulu vísitölutryggðar. 5. — Landið skal vera eitt verðlagssvœði og bætur í í samræmi við ákvæði um 1. verðlagssvœði. ÞINGSIÁ ÞIÓÐVILJANS Börn einstæðra mæðra Þá er ákvæði um að bæta úr því misrétti, að fjölskyldu- bætur eru ekki greiddar með öllum börnum, þannig að ein- stæðar mæður fá t. d. engar bætur með sínum börnum, hvernig sem fjárhag þeirra er farið. Flutningsmenn telja eðli- legast, að bætur séu greiddar með hverju barni og njóti heimilið, sem annast barnið. það. Dómsmálaráðherra vórn fyrir Kitler Á fundi neðri deildar var enn rætt uni almannavarnir og töluðu i því máli Einar OI- geirsson og Bjarni Benedikts- son dómsmálaráðherra, en síðan var umræðunni frcstað, þar sem ráðherra hafði ekki lokið máli sínu. Einar Olgeirsson (Alþ.banda- lag) vék fyrst að ræðu Gísla Jónssonar. Varaði hann við þeim hugsunarhætti, sem þar hefði gætt, þ.e. hinni skefja- lausu sefjun andkommúnism- ans. Undir yfirskini baráttunn- SægfljPar gegn |/:if kommúnisma ynni t.d. Suð- ur-Afríku- stjóm ofbeid- isverk sín. Bandalag öx- ulveldanna hefði á sínum tíma verið kallað banda- iagið gegn kommúnismanum. á sama hátt og Atlanzhafsbanda- laginu væri nú ætlað það hlut- verk. í>á vék Einar að ræðu dómsmálaráðherra. og þeirri fullyrðingu hans að það væri fyrst og fremst lega landsins sem skapaði hina hernaðarlegu þýðingu bess. En ekki væri til sá staður á hnettinum, sem Bandaríkjamenn reyndu ekki að ko.ma fyrir herstöðvum sín- um á Þær væru i nálægari Austurlöndum, Vestur-Evrópu- löndum. Græn’.andi og á Kar- abiskahafinu Það væri því sama hvar ísland væri stað- sett hvað þetta snerti. En aðal- atriðið er það sagði Einar, að mannvirki. sem unnt er að nota í hernaði. auka á hættuna og því meir þvj betur sem þau eru búin vopnum og herliði. Aukning hernaðargildisins þýð- ir um leið aukna hættu. og þar með meiri hættu fyrir lif þjóð- arinnar. t— Því væri það skoð- un A’þýðubandalagsins, að draga ætti úr hernaðargildi landi;~'‘- -.-n-'h hmttfiutningi her- liðsin=. Þá taldi Einar líkumar ekki haía minnkað á kjarnorku- stríði. eins og dómsmálaráð- herra hefði viljað fullyrða og minnti á \ þvi sambandi, að kosningabaráttan í Bandaríkj- unum nú fyrir skemmstu hefði leitt heiminn fram á barm kjarnorkustríðs. Ekki væru lík- ur á, að við þyrftum að óttast árás af hálfu hinna sósialísku ríkja. eins o.g dómsmálaráð- herra vildi vera láta. Feril' hinna svokölluðu „lýðræðis- ríkja”. nýlenduveldanna gömlu. benti hins vegar í allt áðra átt. Þau berðust með hnúum og hnefum gegn því. að ný- lenduþjóðimar heimtu efna- hagsleg yfirráð yfir löndum sínum. eftir að nýlendurnar hafa öðlazt stiórnarfarslegt sjálfstæði. Styrjaldarhættan i heiminum ætti að verulegu leyti rætur sínar að rekja til þeirra átaka. sem þannig færu fram milli nýfrjálsu landanna og gömlu nýlenduveldanna. Um þá fullyrðingú ráðherr- ans. að hlutleysi væri einskis virði og úrelt orðið, sagði Ein- ar, að hann viðurkenndi fús- lega. að unnt væri að gera hlutleysi landa einskis virði En það þýddi ekki um leið. að hlutleysi væri úrelt. Á það mætti benda að Austurríki hefði nýlega fengið hlutleysi sitt staðfest af stórveldunum. Hann hefði bent á það 1938. að hlutleysi íslands stafaði hætta af nazismanum og lagt til að ríkisstjórnin fengi stór- veldin til þess að taka ábyrgð á hlutleysi landsins. Þá sakaði Siálfstæðisflokkurinn mig um að ég vildi fá herstöðvar, sagði Einar og auðvitað. að með þessu gengi ég erinda Rússa. Og það voru landráð þá. i aug- um Sjálfstæðisflokksins að vara við fyrirætlunum nazism- ans. En ábyrgð á hlutleysi er allt annað en krafa um her- stöðvar. Það eru herstöðvarnar sem draga að tortímingarhætt- una. Þess vegna verðum við að fá aðra vörn en vopnavernd Niðurstaðan yrði því enn sem fjmr: Almannavarnir og her- varnir eru með öllu ósamrým- anlegar, þar sem hervarnirnar draga að sér eyðingarhættuna. ií Benediktssoh, dóms- málaráðherra sagði að megin- skoðanamunur sinn o.g E. O kæmi ef til vill bezt í ljós i afstöðu þeirra til þess hverjir hefðu komið af stað síðustu heimsstyrjöld Einar Olgeirs- son segði. að það hefðu verið nazistar En þetta væri ekki rétt. Að vísu vildi hann ekki gera of lítið úr sök Hitlers. en Sovétríkin bæru höfuðsök- ina að sínum dómi, Og það hefði verið bandalag nazista og kommúnista, sem hratt styrjöld. inni af stað! Almennar bóta- greiðslur 1 þriðja lagi leggja flutn- ingsmenn til, að fjölskyldu- bætur megi greiða með hvers- konar bótum öðrum, en samkv. gildandi lögum mega þær ekki fara með öðrum bótum en dag- peningum. „Yrði sú breyting gerð“, segja flutningsmenn, . mundu fjölskyldubætur falla j hlut einstæðra mæðra, ekkna, mæðra ófeðrara barna og fæðra ófeðraðra barna og barnalífeyri, auk elli- og ör- orkulífeyrisþega, sem barnalíf- eyri fá. Þessi breyting er sjálf- sögð. ef fallizt er á réttmæti þess, að f jölskyldubætur séu ^reiddar með hverju barni í bióðfélaginu". Verðtrygging bótagreiðslna Þá gerir frumvarpið ráð fyr- ir verðtryggingu allra bóta almannatrygginga og skulu bæturnar bi-eytast mánaðar- lega í samræmi við vísitölu framfærslukostnaðar. Bent er á að lífeyrir almanna- trygginga hefur aldrei náð því að svara til þurftartekna og með vaxandi dýrtíð fjarlægist hann það enn meira. Loks er lagt til að afnumin verði skipt- ing landsins í verðlagssvæði og bætur verði hvarvetna hin- ar sömu. ■ ■ • * > ft* Þróun trygginganna nauðsynleg Þingmenn Alþýðubandaíags- ins hafa áður flutt svipaðar breytingartillögur við lögin um almannatryggingar og eru nið- urlagsorð greinargerðarinnar þessi: „Það skal fram tekið að lok- um, að flutningsmenn sjá þörf fl. endurbóta á lögunum um al- mannatryggingar en hér eru raktar. Fáist þessar samþykkt- ar, verður auðveldara um fram- haldið, sem fela verður í sér stöðuga framþróun á sviði al- mannatrygginga sem og ann- arra félagsmála“. Þingfundir í gær Fundir voru í gær í báðum deildum Alþingis. 1 neðri deild var enn á dagskrá frumvarp til laga um almannavarnir og var umræðunni enn frestað að ósk Bjarna Benediktssonar, sem var að tala, er fundartími deildarinnar var lokið. önnur mál voru tekin út af dagskrá. 1 efri deild voru þrjú mál á dagskrá, gerðardómslögin (at- kvæðagreiðsla), frumvarp til laga um breyting á lögum um almannatryggingar, og 3ja um- ræða um öryggisráðstafanir gegn geislavirkum efnum. Atkvæðagreiðsla um gerðardóminn Atkvæðagreiðsla fór fram í gær á fundi efri deildar um gerðardómslögin frá því í sumar. Var viðhaft nafnakall og guldu allir þingmenn stjórn- arflokkanna lögunum jáyrði sitt, en þingmenn Alþýðu- bandalagsins og Framsóknar greiddu atkvæði gegn frum- varpinu. Ástæða er til þess að vekja athygli á því, að Bjöm Jóns- son hafði lýst því yfir í um- ræðum um málið, að hann liti svo á, að í atkvæðagreiðslunni létu þingmenn jafnframt í ljósi álit sitt á úrskurði gerðardóms- ins, þar sem þessi tvö atriði yrðu ekki með réttu skilin hvort frá öðru, eins og málum var háttað. Af þessum sökum óskaði hann einnig eftir nafna- kalli um málið. Þingmenn stjórnarflokk- anna létu þessu ómótmælt og voru þeir því ekki einungis að leggja blessun sína yfir gerðardómslögin heldur elnn- ig úrskurð gerðardómsins. Meðal þingmanna stjórnar- liðsins í efri deild, sem greiddu þessu atkvæði sitt, var Eggert Þorsteinsson, helzti foringi Alþýðuflokks- ins í verkalýðshreyfingunni. Breyting á almanna- tryggingnnum Alfreð Gíslason (Alþýðu- bandalag) mælti fyrir frum- varpi, sem hann og Bjöm Jónsson flytja. um breyting á lögum um almannatryggingar. Málinu var vísað til annarrar umræðu og nefndar. — Nánar er sagt frá frumvarpi þessu á öðrum stað hér á síðunni. Öryggisráðstafanir Frumvarp til laga um örygg- isráðstafapir gegn geislavirkum efnum var afgreitt með sara- hljóða atkvæ&um til neðri deildar. Ctgefandi: Ritstjórar: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk- urinn. — Magnús Kjartansson. Magnús Torfi Olafsson. Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttaritstjórar: tvar H Jónsson. Jón Bjamason. Ritstjóm. afgreiðsla auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. Simi 17-500 (5 linur) Askriftarverð kr 65.00 á mánuði. Pólitískur dcmur J^ómur þremenninganna í Félagsdómi er mjög alvarlegur atburður og hættulegur fyrir alla þjóðfélagsþróun á íslandi. Með dómi þessum er ráðizt gegn þegnréttindum sem tryggð eru í sjálfri stjórnarskránni, og verði slík niðurstaða talin endanleg kunna að vera opnaðar flóðgáttir fyrir enn alvarlegri atburðum. Margt bendir einn- ig til þess að af stjórnarvaldanna hálfu sé þessi dómur hugsaður sem upphaf að þróun sem eigi að takmarka rétt og sjálfstæði almennings, eink- anlega í hagsmunabaráttunni; tónninn í stjórn- arblöðunum hefur að undanförnu sýnt ljóslega hvað valdamönnunum er efst í huga. £Jómur þremenninganna er til orðinn undir slíku pólitísku fargi; hann flokkast ekki und- ir lögfræði heldur stjórnmál. Hverjum sæmilega læsum manni verður þegar ljóst af forsendum þremenninganna sjálfra, að þeir geta ekki vitnað í eina einustu lagagrein til stuðnings niðurstöðu sinni. Þess í stað beita þeir svokallaðri lögjöfn- un og álykta sem svo, að þar sem lög mæli svo fyrir að einstök verklýðsfélög skuli vera opin öllu verkáíólki* skúli Alþýðusambandið einnig vera sjálfkrafa opið öllum stéttarfélögum. En þessi samanburður s’tenzt ekki. Ákvæðið um verklýðsfélögin er sett til þess að tryggja hags- muni einstakra verkamanna, en engin rök hafa verið leidd að því að Landssambandi verzlunar- manna sé það starfslegt hagsmunamál að kom- ast í Alþýðusamband íslands. Þvert á móti hef- ur Félagsdómur áður vísað málskoti LÍV frá — með samþykkt þremenninganna — með svofelld- um rökum: „Eigi er fram komið, að stefnandi hafi þá starfslegu hagsmuni af inngöngu í Alþýðu- sambandið, sem fyrirmæli 2. gr. laga nr. 80/1938 taka til og miðast við“. Þremenningarnir hafa þannig skipt um skoðun á fáeinum mánuðum, og skoðanaskipti þeirra eru ekki lögfræðilegs eðlis. Hefði maður þó mátt vænta þess að þre- menningarnir yrðu varkárari í skoðanaskiptum sínum þegar tveir félagar þeirra í dómnum lýsa yfir því berum orðum að niðurstaðan sé „ekki lagarök“. Og maður hefði mátt vænta þeim mun meiri varkárni sem dómurinn fjallar beinlínis um stjórnarskráratriði, og vönduðum lögfræð- ingum ber að sjálfsögðu hverju sinni að úrskurða vafaatriði í samræmi við anda stjórnarskrárinn- ar. ^Hir verklýðssinnar hljóta að líta þennan dóm mjög alvarlegum augum, jafnvel þótt þá kunni að greina á um mál Verzlunarmannasam- bandsins. Nú er sjálft sjálfstæði alþýðusamtak- anna í húfi. Þeim háska verða menn að mæta á sama hátt og átökum í vinnudeilum. með því að meta hagsmuni heildarinnar meira en hvers- kyns minniháttar ágreiningsmál. Réttarstaða alþýðusamtakanna er forsenda kjarabaráttunn- ar, láti verklýðssamtökin traðka á augljósum rétti sínum er kjörunum hættara en nokkru sinni fyrr. — m. 4 i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.