Þjóðviljinn - 24.11.1962, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 24.11.1962, Blaðsíða 10
10 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN laTiigardagUT 24. nóvember 1962 CHARLOTTE ARMSTRONG: GEGGJUN fajá símanum og sleppti henni eins og hún vseri rauðglóandi. — Ég þarf alls ekki að laum- ast burt, sagði hann beizklega. — Ég get farið þegar mér sýn- ist. En það get ©g sagt þér, að ég ætla ekki að vera hér kyrr og hlusta á þetta. — Ef hún hættir að gráta.... ætlarðu þá að vera kyrr? — Ég efast um það. Hún tók glasið í vinstri hönd og neri þá hægri eins og hún væri stirð og köld. Augun í henni voru alltof blá. — Mundu það, að þetta kem- trr mér ekkert við, sagði Jed og bandaði út hendinni. — Það kemur mér alls ekkert við. En— af hverju reynirðu ekki að vera svolítið góð? — Góð.... — Þú þarft ekki að smjaðra fyrir mér. Góð við barnið þarna inni. Ertu svona einföld, eða hvað? Af hverju ætti ég að sóa tímanum.... ■— Þú vildir fá mig með þér út, sagði hún. — Þú spurðir mig.... En Jed var að hugsa um hvað telpan hlyti að vera orðin aum í hálsinum. Hann var sjálfur orðin sár í kverkunum. Hann umlaði: — Sjáðu um að hún verði róleg...að hún komist aft- ur í gott skap.... af stað með þig. — Ef ég geri það.... — Ef þú gerir það, sagði harrn í örvílnun, — já.... þá getum við kannski fengið okkur drykk saman áður en ég fer. Stúlkan sneri sér við, setti frá sér glasið, gekk að lyrunum og opnaði þær í skyndi. Hún hiýddi. Hún hvarf inn í myrkrið. — Herra Towers hefur víst farið út, sagði Lyn. — Það svar- ar enginn í símann hjá honum. — Ég veit bara, að ég hef ekki séð hann fara. Maðurinn við afgreiðsluborðið í hótel Maje- stic var ekki sérlega áhugasam- ur. — En þér sáuð hann koma inn rétt áðan, var ekki svo? — Jú, reyndar. Hann sendi henni umburðaraugnaráð. — Jæja.... Hún tvísté hikandi. — Á ég að taka skilaboð? sagði hann kurteislega. Hún var falleg stúlka, snotur og álitleg í skærbláu kápunni með messing- hnöppunum. Og hún virtist/vera ósköp óhamingjusöm. — Já, ég gæti skrifað bréf til hans. Hann benti með blýanti að skrifborði sem stóð í anddyrinu milli súlu og pálma. — Þakka yður fyrir. Lyn settist við skrifbo.rðið og setti töskuna undir vinstri hand- legginn. Hún færði stóiinn ör- lítið til, svo að hún gæti gef- ið auga öllum þeim sem kæmu inn í hótel Majestic frá göt- unni. Hún hugsaði með sér, að hann hlyti að hafa farið út aftur, ef til vill gegnum barinn. Hún von- aði, að hann hringdi ekki heim til hennar og gerði foreldra hennar kvíðafulla. Þún þorði ekki sjálf að hringja heim og spyrja. Það var bezt þau vissu ekki að hún væri alein úti. Þau myndu fá tilfelli, hugsaði hún. Það var leitt ef þau yrðu tauga- óstyrk, en hún átti í rauninni ekkert á hættu og þau myndu fyrirgefa henni og treysta henni kannski nægilega vel.til áð hafa ekki mjög miklar áhyggjur. Þessu varð hún sjálf að ráða fram úr. FoTeldrum hennar hætti til að vera ævinlega á hennar bandi. Maður sem var svo skyni skroppinn að rifast við þeirra elskulegu dóttur. var ekki verðugur þess, að hún reyndi að gera gott úr þvi aft- ur. En kannski hef ég rangt fyrir mér. hugsaði hún og var gráti nær. Nei, hún gat ekki farið heim til sín strax. Hún ætlaði að bíða stundarkom, áður en hún færi heim, — svo að hún kæmi ekki heim óeðlilega snemma. Hún vissi að þetta var þýðingarmik- ið. Það var erfitt að skiigrena hvemig og hvers vegna — það var óþægilegt — kannski ó- mögulegt. En hún varð að ráða fram úl þessu ein. Hún hélt að minnsta kosti ekki, að Jed færi heim til henn- ar. Það væri uppgjöf og hann var ekki af þeirri manngerð. Hann var stoltur. En vaT hún þá ein af þeim stúlkum, sem hljóp á eftir karl- mönnum? Já, mér stendur alveg á sama, hugsaði hún þrjózk, ég vil ekki vera ein af þessum móðguðu konum. sem sitja heima og bíða þess að maðurinn komi skriðandi með hattinn í hend- inni, hvort sem þær hafa rétt fyrir sér eða ekki — rétt eins og þessar héralegu kvenhetjur í gömlu ástarsögunum, sem biðu sármóðgaðar til æviloka. Æ. það var alls ekki' hægt að tala um manngerðir. Þau voru Jed og Lyn og það varð að hugsa um þetta út frá þeirri forsendu að þau voru lifandi mannverur, einstaklingar, og það þurfti að ráða fram úr þessu strax. Á mo.rgun myndi flug- vélin.... Hvar sem hann var nú niður- kominn, myndi hann koma hing- að aftur. Hann var ekki alfar- inn Þetta var allt svo barna- legt.... það gæti hún að minnsta kosti sagt. — Kæri Jed, skrifaði hún. Þetta var allt svo bamalegt.... Hún horfði á karl og konu sem gengu yfir anddyrið. — Og ég vil ógjarnan að þú farir vestur i þeirri trú„ að ég.... Af/éttara taa; 1 ZZÍÍJlSniZ—IZÍlZr (//, (^iirnmL ‘>cgEA uvdor L-iyn sat íengi Qg íet hendumar hvíla á skrifborðinu. ‘ Hún íhugaði þetta. Það var satt. Hún var ástfangin af Jed Tow- ers.... nógu ástfangin til að1 hvæsa á hann, verða ofsareið | út í hann, vegna þess að svo mikið var í húfi. Hún hafði haldið, að hann myndi kannski biðja hana að giftast sér í kvöld. Þau ætluðu að vera saman í kvöld. en svo kom gamli maðurinn og eyði- lagði það allt saman. Og hún hefði sagt „Já“. Hún , hefði verið himinlifandi yfir að' fá tækifæri til að segja „já“. Já, hvort sem hann hafði rétt fyr- ir sér eða rangt. Já. Aðeins vegna þess að það var hann sem átti í hlut. Og svo höfðu þau farið að rífast. En það var ekki satt að hún áliti hann kaldrifjaðan ómerk-, ing. Hann var svo.... varkár. Já, það var hánn. Og hann var kaldhæðinn í tali. Sumpart var hann kröfuharður.... um allt sem hann heyrði og sá. Sumpart var betta sjálfsvöm.... eða eitthvað í þá átt. En þetta var bara talsmáti. fttr get verið hörð, hugsaði hun. Ef ég trúi á eitt- hvað, verð ég líka að breyta samkvæmt þvi.... annars væri það bara talsmáti. Þannig saf Lyn og íhugaði vandamálið. þótt hún tæki það nærri sér. Það var líka satt, að hvort þeirra sem hafði byrj- að, og hvemig svo sem rifrild- ið gekk fyrir sig, þá var það hún sem hafði farið leiðar sinn- ar og skorið á þráðinn — 0g Það var heimskulegt; það hafði henni að minnsta kosti alltaf fundizt til þeSsa. Hún neri saman höndunum. Það var sv0 mikils virði. Hún gæti aldrei hætt að hugsa um þetta meðan hún lifði. Og þá var tilgangslaust að sitj-a kyrr með sært stolt. , En hvaó gæti hún látið í ljós á pappírsblaði? Bara að hann kæmi. Fólk var á eilifu randi gegnum anddyrið, en hann kom ekki, Á morgun færi hann.... en kannski myndi hann hringja til hennar. Nei. flugvélin fór svo snemma. Hún gæti beðið hann um það í bréfinu. Allar hugs- anir hennar urðu sundurlaus brot. Það var alltaf svo kalt í dögun. Hún tók pennann. „Kæri Jed. Ég get ekki sleppt þér....“ En þú getur ekki haldið í hann, Lyn. Hann er ekki sú manngerð. Kannski var hann aðeins spenn- andi, heillandi tímabil í lífi þínu og þú færð aldrei að vita, hvers virði þú varst honum þessa svipstund. Þú hefðir getað kom- izt að því. hvort eitthvað dýpra lægi þarna bakvið — en ekki núna, nú er það um seinan. „Misskilningur.... skrifaði hún örvílnuð. Það var orðið of seint. Nýja Oreol ljósaperan er fyllt með Krypton og gefur því um 30% meira ljósmagn út en eldri gerðir af Ijósaperum. Þrátt fyrir hið stóraukna Ijósmagn nota hinar nýju Oreol Krypton sama straum og eldri gerðir. Oreol Krypton eru einnig með nýju lagi og taka minna pláss, þær komast því í flestar gerðir af lömpum. Heildsölublrgðir: Mars Trading Company Klapparstíg 20 —‘ Sími 17373. m$m reskið fólk óskast strax til blaðburðar um Leifsgötn Kársnes 1 Skjólin Blöðunum ekið heim —Góð blaðburðarlaun! Talið strax við aíareiðsluna — sími 17500. Þjóðviljinn Sendisveinar óskast strax. — Vionutími tyrtr hádegl. Þurfa að hafa bjóL Þjóðviifsnn Geri ég þetta af hégómaskap, | hugsaði hún.... — í þeirri trú að ég.... hvað þá? Hvers vegna fóru öll þessi bituryrði á milli | þeirra? Vegna þess að hún hafði ' verið svo eftirvæntingarful-1 og hafði svo snögglega hrapað nið- ur á jörðina aftur? Ef til vill hafði hann -alls ekki gert sér neinar sérstakar hugmyndir um þetta síðasta kvöld. Nei, nei. Svona myndi móðgaður kven- maður hugsa, — hún væri hrædd um að sýn-ast hégómleg. Hún hafði vitað að Jed þótti vænt um hana. Hún hafði haft ástæðu til að ætla, að hann segði henni það — og meira en það. Hún reif sundur blaðið og byrj- aði -aftur; — Kæri Jed. Ég hef reynt að hafa uppá þér, vegna þess.... Tár féll á pappírinn, blekið leystist upp og hún hugs- aði: — Nei.... þetta er of mikið af þvi góða. Nú væri Jed skemmt! Nt OREOL 30% MEIRA LJÓS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.