Þjóðviljinn - 24.11.1962, Blaðsíða 12
Framsökn andvág
aðild og aukaaðild
Á fundi sameinaðs Alþingis
í gær var haldið áfram um-
ræðum um Efnahagsbandalags-
málið og fluttar tvær ræður sem
tóku allan fundartímann. Ey-
steinn Jónsson og Bjami Bene-
diktsson voru ræðumennimir.
Eysteinn kynnti þá afstöðu
Framsóknarflokksins, að einu
tengslin við Efnahagsbandalag
Evrópu sem til mála kæmu
væru tolla- og viðskiptasamn-
ingur. Taldi hann mikils virði
að nú þegar yrði tekin ákvörð-
un um það efni, en ekki haldið
áfram að þvæla við erlenda
valdamenn án þess að Islend-
ingar hefðu mótað sína skoðun
um málið.
Bjami Benediktsson varði
mestum hluta ræðu sinnar til
að afsaka þá afstöðu, sem fram
kom í mágögnum og samþykkt-
um Sjálfstæðisflokksins í fyrra
sumar, þegar það átti að vera
sáluhjálparatriði að sækja um
aðild að Efnahagsbandalaginu.
Reyndi hann að gera eins lítið
úr aðildaráróðri flokksins og
Fiskirí stunda —
en
ríkisstjórnarinnar og frekast var
unnt, en taldi fráleitt að „úti-
loka nokkra leið sem fær kann
að verða“. Hins vegar kvaðst
hann ekki taka til greina yfir-
lýsingu Eysteins um afstöðu
Framsóknar. Framsókn talaði
svo margt óskynsamlegt rétt fyr-
ir kosningar, en gerði margt
skynsamlegt eftir kosningar, ef
hún ætti þess kost að komast
í ríkisstjórn.
Umræðunni var frestað.
Hafnarfjörður
Spilakvöld Alþýðubandalagsins
hefst kl. 8,30 í Góðtemplarahús-
inu í Hafnarfirði. Kaffi. Kvöld-
verðlaun.
Laugardagur 24. nóvember 1962 — 27. árgangur — 258. tölublað.
I
Happdrœttishesturinn ó
mynd frá Atia 10 ára
Hann Atli, 10 ára gamall snáði, sendi Öskastund Þjóð-
viljans þessa ágætu teikningu á dögunum. Við birtum
hana hér til að minna á tvennt: 1) Óskastundina, barna-
lesbókina á 9. síðu blaðsins í dag, og 2) Skyndihappdrætti
Þjóðviljans. Atla þökkum við kærlega fyrir myndina.
Sveinn Björnsson
sýnir í Bogasal
Eskifirði 18/11. — Ágætis veður
hefur verið hér undanfarið. Bát-
amir hafa fiskað vel. Héðan róa
núna fjórir bátar, einn 18 tonn,
en hinir um 60. Auk þeirra er
Vattarnes að fiska í sig til að
sigla með aflann og Guðrún
Þorkelsdóttir er á leið heim úr
söluferð til Þýzkalands. Hún fer
á síld, þegar heim kemur, en
einn bátur, Seley, er þegar kom-
inn á síldveiðar.
Hér á Eskifirði vantar alveg
tilfinnanlega íþróttahús. Leik-
fimi hefur ekki verið kennd böm-
um í herrans mörg ár, þangað
til í vetur.
1 vetur hefur félagsheimihð
verið notað til íþróttaiðkana.
Mikill áhugi er fyrir því, að |
byggt verði íþróttahús t.d. í|
tengslum við sundlaug, sem er!
í smíðum. JK.
SlÐDEGIS í gær var slökkviliðið
kvatt að húsinu nr. 1 við Álf-
hólsveg í Kópavogi. Þar hafði
kviknað lítilsháttar í út frá
olíukyndingartæki, en eldur-
inn hafði verið slökktur þegar
slökkviliðið kom á vettvang. I
Sveinn Björnsson Iistmálari opn-
ar í dag kl. 16 sýningu í Boga-
sal Þjóðminjasafnsins.
Sveinn hefur fram til þessa
aðallega málað landslag, sjávar-
myndir, skip, en að þessu sinni
hefur hann ákveðið að hvíia sig
á slíkum hlutum og kafar í
sjóinn niður. Það umhverfi gef-
ur mikla möguleika til að
fantaséra segir Sveinn. Þarna
leikur hann sér semsagt að und-
arlegum fiskum. „Gleði fiskanna“
heitir ein myndin, „Ástarlíf“
fiskanna" önnur, „Frjálst er í
Mararsal" hin þriðja, „Rauður
fiskur“ hin fjórða; nöfnin tala
sínu máli. Og ekki verður það
I nýútkomnum Hagtíðindum
er skrá yfir mannfjölda á Is-
landi eins og hann var 1. des.
1961. Þá var mannfjöldi á öliu
landinu 180.058 og voru konur
heldur í minniihiuta 89.073, en
karlar 90.985, fjölgun frá fyrra
ári var 2766.
Brottfluttir af landinu umfram
aðflutta voru 562 og er það
versta hlutfall í þau 6 ár, sem
taflan nær yfir.
Gluggaútstilling
Nú um helgina verður útstill-
ing í gluggum Álafoss í Banka-
stræti á munum, sem verða á
bazar kvenfélagsins Hringsins
2. desember n.k. Munimir eru
unnir af konum í félaginu en
allur ágóði af bazarnum rennur
til barnaspítalasjóðs Hringsins.
Kvikmynd um Öskjugos
Fréttamönnum var í gær sýnd
kvikmynd sem Osvald Knudsen
hefur gert um öskjugosiið í
fyrravetur.
Gosið hófst 27. október, og
var Osvald kominn á staðinn
þann 5. nóvember, þegar farið
var að draga úr gosinu. En svo
heppilega vildi til að um þessar
mundir magnaðist eldurinn; var
hraunið mjög þunnt og rann
hratt (allt að 3—4 m á sekúndu)
en einmitt af slíku rennsli
myndast helluhraun. Slíkt
rennsli er sjaldgæft fyrirbæri,
Kúbumyndin
sýnd í Stjörnu-
bíói í dag
Vegna fjölda áskorana verður
hin margumtalaða Kúbumynd
„Eyjan logar“ sýnd í Stjörnu-
bíði kl. 3 í dag. Myndin
var sýnd á hinum geysifjöl-
menna fundi um Kúbumálið
í Háskólabíói fyrir skömmu
og hlaut óskipt lof fundarmanna.
Þetta er heimildarkvikmynd
gerð af hinum fræga kvik-
myndagerðarmanni Karmen. —
ÆFR.
þekkist helzt hér og á Havæ —
og nú gafst í fyrsta skipti tæki-
færi til að festa slíkar aðfarir
á filmu.
Sýningartími þessarar myndar
er um fimmtán mínútur. Sigurð-
ur Þórarinsson hefur tekið sam-
an skilmerkilegan texta við
myndina. Hún er þannig byggð
að fyrst segir nokkuð frá öskju
og hegðun hennar í fortíð og nú-
tíð. Síðan er gosinu lýst.
Þetta er mjög fallegt gos og Os-
valdi Knudsen tekst líka ágæt-
lega að koma því til skila. Það
er margt líkt með eldgosum og
nútímamyndlist.
Magnús Blöndal Jóhannsson
hefur samið tónlist við myndina.
Hann flokkar hana undir konkret
músík og nefndi hvað til hennar
þurfti. Hún kemur og ágætlega
heim við þessar glæsilegu nátt-
úruhamfarir sem myndin lýsir,
túlkar skemmtilega bæði öskur
jarðarinnar og fjörugan púka-
dans eldsins. Eldgos virðast
þannig ekki aðeins náskyld nú-
tímamyndlist heldur og tónlist
ungra manna.
Allir þeir sem að mjmdinni
standa hafa vandað sig og geta
verið ánægðir með árangurinn.
Myndin verður sýnd næstkom-
andi þriðjudag á fundi Ferðafé-
lagsins, sem haldinn verður í til-
efni 35 ára afmælis félagsins.
Óráðið er um ,aðrar sýningar.
Hjónavígslur voru 1337 árið
1961, aðeins einni fleiri en árið
1956, hinsvegar fer lögskilnuðum
stöðugt fjölgandi, urðu 167 á ár-
inu.
Alls fæddust á árinu 4647 börn
(þar af 71 andvana), 1171 þess-
ara barna voru óskilgetin, eða
nærri f jórðungur. Þetta er lægsta
fæðingartala þessara 6 ára
(1956—1961).
1248 dauðsföll urðu á fullorðnu
fólki eða stálpuðu, en 89 böm
dóu á 1. aldursári.
Árið 1961 taldi Reykjavíkur-
borg 73,388 íbúa, síðan koma
kaupstaðirnir Akureyri með
8957, Hafnarfjörður með 7310,
Kópavogur með 6681 og Kefla-
vík með 4852. 1 þrem kaupstöð-
um hefur íbúum fækkað frá ár-
inu 1960, Isafirði, Siglufirði og
Seyðisfirði, sem er eins og áður
minnsti kaupstaðurinn með að-
eins 742 íbúa. Alls bjuggu 121,124
í kaupstöðunum.
I sýslunum var mannfjöldinn
58,934 og hafði fjölgað um rúml.
600 frá fyrra ári. Mannflest var
Árnessýsla með 6985 íbúa, þá
Gullbringusýsla með 5536 en
samanlagður mannfjöldi í Gull-
bringu- og Kjósarsýslum var
8216, Suður-Múlasýsla er 3. í
röðinni með 4426 íbúa. Heldur
hefur fækkað í nokkrum sýsl-
anna en óverulega og fjölgunin
dreifist á margar sýslur, lítið á
hverja.
luðunniéhannes-
son form. Sósíal-
istafél. Kópavofs
Aðalfundur Sósíalistafélags
Kópavogs var haldinn í Þing-
hól 8. nóv. sl. í stjórn voru
kosnir Auðunn Jóhannesson for-
maður, Ingjaldur Rögnvaldsson
varaformaður, Björn Kristjáns-
son gjaldkeri, Böðvar Guð-
laugsson ritari, Olafur Jónsson
vararitari. Varamenn voru kosn-
ir Karl Einarsson og Karl Sæ-
mundsson.
1 kauptúnum og þorpum með
200 íbúa og þar yfir bjuggu
24,304. Flestir á Selfossi 1810,
1434 á Seltjamamesi og 1318 í
Njarðvíkum. Þorlákshöfn var
með slétta 200 og hafði fjölgað
þar frá fyrra ári um 30.
1 Reykjavík eru konur í
nokkrum meirihluta, í öðrum
kaupstöðum í naumum minni-
hluta, en í sýslunum eru kon-
ur 3348 færri en karlmenn. Veld-
ur þar líklega mestu kven-
mannsleysið í sveitunum. i
sagt um Svein Bjömsson a8
hann sé feiminn við að nota
liti í þessum neðansjávarfanta-
síum. Alls ekki.
Sveinn sýndi síðast í Lista-
mannaskálanum árið 1960, en
síðan hefur hann stundum fest
upp myndir á Mokka. Annars
sakar ekki að rifja það upp að
hann var togarasjómaður þeg-
ar það kom allt í einu jrfir hann
árið 1949 að mála myndir, Svo
málaði hann úti á sjó í þrjú ár,
og fyrstu sýningu sína hélt hann
1954. Árið 1956 hélt hann til
Danmerkur, var þar í eitt ár við
Listaakademíið, brá sér síðan til
Italíu.
Sýningin verður opin daglega
kl. 2—10 a.m.k. alla næstu viku.
Svanur heldur
Sveinn Björnsson.
est viðskipti við
Bretkmd og USA
21/11. — Nýlega er komin
undri þak tveggja hæða stór-
bygging sem Kaupfélag
Vopnfirðinga hefur í smíðum.
Þar á að verða vörugeymsla
á neðri hæð, en mjólkursam-
lag á efri. Gert er ráð fyrir,
að samiagið taki til starfa a
næsta sumri.
Afkoma fjárbænda er mjög
slæm, og hefur „viðreisnin"
komið sérlega hart niður á
þeim.
Svo virðist sem Bretland og
Bandaríidn séu mestu viðskipta-
lönd okkar í dag. Bretland cr
í fyrsta sæti hvað útflutning
snertir, næstir koma Banda-
ríkjamenn, Sovétmenn eru í 3ja
sæti og V-Þjóðverjar í 4. Sví-
þjóð og ftalía koma næst.
Mest er flutt inn frá Banda-
ríkjunum, Bretar eru þar í öðru
sæti, V-Þjóðverjar í 3ja, Sovét-
ríkin í 4. næst koma svo Dan-
mörk og Noregur.
Af einstökum vörutegundum
er mest flutt út af frystum fisk-
flökum næstmest af síldarmjöli,
síldarlýsi er í 3ja sæti, ísfiskur
í f jórða s. en síld er mest að magni
en neðarlega hvað verðmæti
snertir. Saltsíld, saltfiskur og
skreið virðast vera verðmætustu
vörutegundirnar ef freðfiskurinn
er frátalinn.
Mestur innflutningur (miðað
við krónutölu) hefur verið á
eldsneyti, smurolíum og skyld-
um vörum, þá flutningatækjum,
Álnavara er í 3ja sæti og vélar
aðrar en rafmagnsvélar í 4. sæti.
Alls hefur innflutningurinn á
tímabilinu jan, — sept. í ár
numið 2.614,978,0000 krónur. Út-
flutningur á sama tímabili var
kr. 2.513,021,0000.
Lúðrasveitin Svanur fer aðra
skólatónleikaför sína austur fyr-
ir fjall um helgina. Fyrri tón-
leikamir voru haldnir að Hlíð-
ardalsskóla í ölfusi, en að þessu
sinni verða þeir að Laugardals-
skóla á morgun. Hljómsveit-
in mun leitast við að velja verk-
efni við hæfi skólafólksins.
Hljómsveitin hefur nú starfað
í 32 ár. Starfandi meðlimir
hljómsveitarinnar eru nú 25.
Stjómandi hljómsveitarinnar er
Jón G. Þórarinsson.
ara
iifmælis FUK
Æskulýðsfylkingin í Reykja-
vík minnist þess, að 40 ár ero
liðin frá stofnun Félags imgra
kommúnista, með kvöldvöku í
i félagsheimili sínu Tjamargötu 20
í kvöld kl 9.
| Dagskrá:
1. Ræða, Hendrik Ottósson,
fyrsti formaður FUK.
2. Upplestur. Þorsteinn frá
Hamri og Dagur Sig-
urðarson lesa upp úr ljóð-
um sínum. Svavar Gests-
son les ljóð eldri höfunda.
3. Kvikmynd: Beitiskipið
Potemkin.
4. Söngur.
I ÆFR.
Övirðing við verka-
fólk utan af landi
Meðal fulltrúa á Alþýðu-
sambandsþingi er Arnór
Kristjánsson frá Húsavík.
Hann leit inn á ritstjómar-
skrifstofur Þjóðviljans í gær
og sagði að fulltrúarnir utan
af landi væru mjög reiðir
framferði minnihlutans ó
þinginu:
—Við sem komum utan af
landi höfum lagt á okkur
löng ferðalög og ærna fyrir-
höfn til þess að sækja heild-
arþing verklýðssamtakanna
og ræða þar alvarleg vanda-
mál. En þessir menn, sem
virðast vera sendir af ríkis-
stjómarflokkunum til þess að
eyðileggja þingið, eyddu fyrir
okkur fjórum dögum í pex,
persónulegar svívirðingar og
pólitískar langlokur út af
málum sem hægt hefði verið
að afgreiða á einni dagstund.
Við, fulltrúarnir utan af
landi, teljum þessa framkomu
óvirðingu við okkar; það get-
ur verið að Óskar Hallgríms-
son, Pétur Sigurðsson og
Eggert Þorsteinsson hafi ekk-
ert þarfara við tímann að
gera en að koma í veg fyrir
málefnalegar umræður á Al-
þýðusambandsþingi, en okkur,
verkafólki utan af landi, er
tíminn dýrmætur og þau mál-
efni mikilvæg sem Alþýðu-
sambandsþing er kvatt sam-
an til þess að fjalla um.