Þjóðviljinn - 09.12.1962, Side 10

Þjóðviljinn - 09.12.1962, Side 10
Júníregn Framhald af 9. síðu. Hafði hann efni á þessu? Efni! Hélt hún kannaki liann hefði stolið þessu? Nei. Jæja, hvað þá. Hún kyssti hann framaní börnunum, sem einnig voru dösuð yfir gjöfum hans. 4. Og júnídagarnir liðu grænir og sólríkir og anganfullir. Heyskapurinn hafði gengið íádæma vel. Hlaðan var full upp í mæni og hey í stakki úti. Túnið var aftur orðið loðið. Það var nú meiri grózkan i jörðinni. Dag og dag skrapp hann á £lot. Það voru að vísu engir hafróðrar, en þau þraut sjald- an soðningu. Svo kom bréf. Það var frá manninum. Hann átti að ganga undir ttppskurð. Það var hættulegur upp- íkurður, en óhjákvæmilegur. Henni sást ekki bregða. Þetta var ekki annað og meira hún hafði búizt við. Það varð að taka því. Kannski tekst þetta vel. Þeir voru svo fjandi klárir með hnífinn fyrir sunnan. Hann verður aldrei sami og áður. Það var kannski skömm frá að segja, hún hafði stund- um hugsað sæUa væri að deyja en lifa við örkuml. Um nóttina kom hún til hans. Hann varð feginn komu hennar, var svefns vamað. Það lagði svo sterka angan af jörðinni inn um opinn gluggan. Gróandinn var í algleymi. Það hafði verið h'kt ástatt með hcina. Hann hliðraði til fyrir henni. Hún var í náttkjól einum áttta. A efUr lágu þau hljóð í mjúku rökkrinu með söng •feturlnnar í hlustunum. 5. Sumarið hélt áfram að ríkja og hlíðin uppundan bænum blánaði af berjum. Það Skiptust á skin og skúr- lr, á milli þess var loftið blátt og tært. Þetta var einstök tíð, berin fuUþroskuð í júlí og ungviði á hverjum kvisti. Um ’.eigar kom kaupstaða- fólkið á bílum með koppa og kirnur, sparibúið og háleitt. Þetta var ungt fólk, piltar og stúlkur. Þá ómaði hlíðin af hlátrum og vegurinn rauk í þurrkin- um. Það sótti á hann óeirð. Hann varð hyskinn við sláttinn, studdist oft og lengi fram á orfið, flenntum nösum, og svaraði út í hött ef hún yrti á hann. En þegar helgarnar voru liönar, varð hann aftur eins og hann átti að sér að vera. Nú væri ekki amaiegt að korna í berjamó. Þá skruppu þau upp f hlíð- ina með bömin, lögðust fyr- ir í lynginu, tíndu í sig og urðu berjabiá. Þetta voru góö kvöld, ang- anfull og söngur í náttúrunni. Þá iétu þau börnin um sig sjálf, völdu sér djúpa laut og elskuðust undir angandi kjarrinu. Við erum eins og dýrin á mörkinni, sagði hún stundum þegar atlot þeirra voru villt- ust. Guð ef bömin kæmu nú að okkúr. En það var engin hætta, berin voru svo sæt og þrosk- uð. Stundum brugðu þau á leik, eltu hvort annað með hríslu á lofti og bárnseðlið sem hafði blundað í þeim var vak- ið. Þá fengu börnin að vera með og þessi fjögur böm hlupu og ærsluðust í lynginu. Þetta voru dásamlegir dag- ar. En svo kom Vtur bréf að sunnan. Hann fylgdist með lestri hennar út um gluggann og sá ekki betur það þyrmdi yf- ir hana. Hafði hún fengið slæmar fréttir? Hún leit upp úr lestrinum. Uppskurðurinn hafði heppnazt. Vildi hann lesa? Þetta var ósköp venjulegt bréf, handstirt og dálítið hljóðvillt, þrungið heimþrá, ásamt kvörtunum, stuttum bréfum og fáum í seinni tíð. Hún brenndi bréfið. Hún hélt ekki upp á bréf, það söfnuðust bara að þeim pöddur og ryk. Nei, hann var ekki slopp- inn. Heilsuhælið, það yrði ár, minnsta kosti ár. 6. Það rigndi nokkur dægur og háin spratt úr sér. Svo kom aftur sólskin og bjartviðri. Þá tóku þau til óspiltra mála við heyskapinn. Hún var hreinasta ham- hleypa með orfið, sló hann hvað eftir annað í hólma og ljáirnir hvissuðu og grasið féll í múga. Þau drukku kaffi í slægj- unni og bömin sem höfðu leikið að skeljum í hlaðvarp- anum kcmu til að fá sér bita með þeim. Það var þennan dag, sem þeir heiðruðu þau með komu sinni, oddvitinn og hrepp- stjórinn. Þeir komu eins og skuggar úr heiðríkjunni, sögðu gúda og voru þungbrýnir og heimt- uðu konuna á eintal. Þeir voru drjúga stund með hana, slógu út höndum og pötuðu, og henni var brugðið að samtalinu loknu. Hvað vildu séffarnir henni? O, sosum ekkeit. Eitthvað hefur það verið. Ég sé það á þér. Var það útaf mér? Já. Ef ég er fyrir þessum pilt- um, get ég farið. Þú ert ekki fyrir neinum. Hvað kom þeim þá þetta við? Þáði hún af hrepp? Einhverju þóttust þeir vera að sletta í mig. Þau luku hánni um kvöldið. Daginn eftir var brakandi þurrkur. Þau risu árla úr rekkju, slógu úr múgunum og nátt- fallið tók fljótt af. Þau höfðu ákveðið að fara í útilegu. Fjallið var svo ríkt af grös- um og öðrum kjarnjurtum og svo voru það berin til sultu og saftgerðar. Það var hreinasti óþarfi að kaupa þetta glundur með allt berjalandið f kring. Haustið var á næstu grös- um. Það gat komið fyrr en varði. Það var í þeim áköf tilhlökk- un. Þau skyldu aldeilis hafa það huggulegt. Lfklegast var bezt að leggjast úr fyrir ai- vöru. O, ætli þeim yrði skota- skuld að nasa okkur uppi. Þeir eru þefvfsir þessir odd- vitar. Við lifum bara af okkar, sagði hún. Það er engum frjálst að leggjast út fyrir alvöru, jafn- vel þó þeir steli ekki. En þú vinur, þú ert nú hálfgerður útilegumaður, sagði hún og glettist með heyvisk. Ekki meðan ég er hjá þér elskan. Þetta var asa þurrkur og töðugjöldin viku síðar. Daginn eftir héldu þau á fjallið með tjald og vistir. Það var glatt í þeim. Þetta skyldi verða útilega í lagi. Hún vissi af ágæcUin tjald- stað, þar var gnægð berja og vatn, sem þau gætu buslað í. Það veitti sannarlega ekki af að skola sig. Þetta hafði verið mesta oúl. Þau tjölduðu um kvöldið. Það voru álftir á vatninu með unga. Þau hringgengu vatnið, fleyttu kerlingar Og gerðu að- súg að álftunum. Það var liðið á nóttu beg- ar þau gengu til náða og bömin löngu sofnuð. Daginn eftir böðuðu þau sig í vatninu og léku sér í lynginu. Það hafði orðið minna af berjatínslunni en til var ætl- azt. Álftahjónin höfðu horfið um nóttina, aðeins nokkrar fjaðrir flutu á vatninu. Um kvöldið tóku þau sam- an tjald og vistir. Útilegunni var lokið. Það var galsi í þeim þegar þau komu heim. Þau hlógu og könkuðust. Þetta 'höfðu verið dásam- legir dagar. Þau sáu ekki ljósið í glugg- anum og urðu einskis vör fyrr en þau opnuðu hurðina. Það sat maður við borðið* fölur maður og veimiltítuleg- ur. Sæl. Galsi hennar hljóðnaði. Þú-þú kominn. Já, það er sem þér sýnist* ég er kominn. Hann stóð hægt á faetur* minntist við hana og bömin. Er þetta pilturinn, sem var hér í sumar? spurði hann. Það var fallega gert af hon- um að hjálpa þér. Sæll góði minn. Þú verður ekki feitur af kaupinu hér. Blessaður vertu, ég þarf ekkert kaup. Hann hafði þvælzt hingað af togaranum. Þetta hafði verið ósköp notalegt sumar, eitt það notalegasta sem hann hafði lifað, nógur matur og aljt í þessu fína. Kaup! Nei, hann skyldl ekki hafa áhyggjur út af því. Hann yrði ekki lengi að koma sér í djobb. Hann gæti meira að segja farið strax. Það leið stuna frá brjósti konunnar. Hún hafði ekkert að leggja tll málanna, sat þama föl og hnípin og blámi augna henn- ar hafði dökknað og kólnað. Magnús Jóhannsson Hafnamesl. 10) — ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.