Þjóðviljinn - 30.12.1962, Blaðsíða 1
Gleðilegt nýtt ár!
Sunnudagur 30. desember 1962 — 27. árgangur — 285. tölublað.
Síldveiðin í gœr
50 þúsund
af stóru
f fyrrinótt var enn dágóð síldveiði, þriðja sólar-
hringinn í röð. Munu 56 skip hafa fengið hátt í
50 þús. tunnur. Veiðin var misjöfn, sumir voru
með ágætan afla. Skipin voru á stóru svæði, sum
á svipuðum slóðum og áður, önnur norður undir
Jökultungu, í Jökuldjúpi og Kolluál. Sjómenn
kvarta undan miklum straumi, hafa nokkrir rifið
nætur sínar af hans völdum.
Til Reykjavíkur komu í gær
20 bátar með nær 19 þús. tunnur.
Gjafar 1450, Reynir 1100, Ólafur
Magnússon EA 1300, Þorlákur
200, Hallveig Fróðadóttir 1800,
Sigurður Bjarnason 2000, Guð-
mundur Þórðarson 800, Ásgeir
650, Sæfari BA 1150, Hafþór 600,
Akraborg 1200, Halldór Jónsson
1150, Jón á Stapa 700, Hafrún
1100, Sólrún 600, Svanur 400,
Marz 350, Björn Jónsson 1100,
Helgi Flóventsson 600, Stein-
grímur trölli 1000, Guðbjörg
landaði í Kópavogi 500 tunnum.
Á Akrancsi lönduðu 10 bátar:
Skírnir 1800, Haraldur 900, Nátt-
fari 500, Keilir 650, Fiskaskagi
350, Höfrungur 350, Sigrún 450,
Ólafur Magnússon AK 300, Sæ-
fari AK 250, Anna 350.
I Hafnarfirði var Þjóðviljanum
kunnugt um, að lönduðu 5 bát-
ar í gær: Eldborg 2000, Auðunn
2000, Fákur 1000, Héðinn 500,
Álftanes 500, Ingiber Ólafsson
1400.
Til Keflavíkur komu í gær
11 bátar: Ámi Þorkelsson 550,
Árni Geir 250, Bergvík 180, Eldey §|
1000, Guðfinnur 800, Hildur 550,
Jón Finnsson 800, Jón Guð-
mundsson 800, Kópur 800, Manni
700, Jónas Jónatansson 400, Von-
in var með 1600 tunnur og fór
með aflann til Vestmannaeyja.
Auk þessa var Þjóðvfiljanum
kunnugt um afla þessara Suður-
nesjabáta: Freyja 100, Hrafn
Sveinbjarnarson 800, Sigfús
Bergmann 450, Þorbjöm 700.
I Keflavík má heita löndunar-
stopp í bræðslu; ekki teknar
nema 150 tunnur af bát.
A fundi borgarráðs Reykja-
víkur í fyrradag, var endanlega
gengið frá úthlutun borgaríbúða
við Alftamýri. Varð niðurstaðan
sú, að þrjú sambýlishús, sem
þar eru í smíðum með samtals
96 ibúðum, voru tekin til út-
hlutunar í stað þess að áform-
að var að úthluta 2 húsum með
64 íbúðum. Fjórða húsinu, sem
er með 32 íbúðum og skcmmst
á veg komið var hinsvegar ekki
úthlutað.
Eins og Þjóðviljinn hefur áður
skýrt frá sóttu samtals 380 fjöl-
skyldur um þessar borgaríbúðir
við Álftamýri. íbúðirnar eru
byggðar til að útrýma heilsu-
spillandi húsnæði og fylgir 220
þús. kr. lán hverri 2ja herbergja
íbúð og 240 þús. kr. lán 3ja
herbergja íbúð. Útborgun í 2ja
55 banaslys
á liðnu árí
Á árinu sem er að líða urðu banaslys hér á
landi alls 55, íimm færri en árið 1961.
Flest slysin urðu á sjó, alls
drukknuðu 35. Þar af fórust 17
með skipum, 8 féllu útbyrðis og
10 drukknuðu við land eða í ám
og vötnum.
Banaslys af völdum umferðar
urðu 11 talsins. Flugslys varð
einum manni að bana, þrír létust
af völdum þruna og tvö dauða-
slys urðu á vinnustað.
herbergja íbúðunum er 58 þús
kr. en í 3ja herbergja íbúðun-
um 98 þús. kr. Stærri íbúðirn-
ar eru 72 talsins, en þær minni
24. íbúðimar eru seldar til-
búnar undir tréverk.
Af þeim sem úthlutun hluvu
eru aðeins 11 fjölskyldur úr
hcrskálum, 24 fjölskyldur cru
úr leiguhúsnæði borgarsjóðs
(Höfðaborg, Bjarnaborg,
Skúlagötuhúsum, Bergþóru-
götuhúsum o.s.frv.) og
61 fjölskylda úr öðru hcilsu-
spillandi húsnæði eða léleg-
um íbúðum eða þá á algerum
hrakhólum með húsnæði.
Hvað fjölskyldustærð snertir
skiptast þeir, er íbúðimar hlutu
þannig: 3 eru með 8 manns í
heimili, 16 með 7 manns, 24
með 6 manns, 30 með 5 manns,
14 með 4 og 9 með 3 í heim-
ili.
Afhendingartími íbúðanna er
áætlaður þannig: Fyrsta húsið
með 32 íbúðum er tilbúið nú
þegar, annað einnig með 32 í-
búðum á að verða tilbúið 1.
febrúar n.k. og það þriðja einnig
með 32 íbúðum er áætlað að
verði til um mánaðamótin marz
apríl.
Á morgun er gamlárs-
dagur og í dag kemur út
síðasta blað Þjóðviljans á
þessu ári. Árið sem nú er
á enda hefur verið merk-
isár í sögu Þjóðviljans,
blaðið hefur stækkað mik-
ið í broti og efni þess
aukizt að fjölbreytni, véla-
kostur prentsmiðjunnar
hefur verið aukinn og
endurnýjaður og húsnæði
hennar bætt. Allar þessar
endurbætur hafa kostað
stórt átak og mikið fé og
hafa lesendur blaðsins og
allir velunnarar veitt því
ómetanlegan stuðning með
framlögum sínum bæði
stórum og smáum. Án
skilnings þeirra og fórn-
fýsi hefði þessu marki
ekki verið náð. Vill Þjóð-
viljinn nota tækifærið á
þessum tímamótum til
þess að færa öllum þeim
sem hafa stutt hann með
ráðum og dáð, bæði nú og
fyrr, alúðarþakkir um leið
og hann óskar þeim og
landsmönnum öllum gleði-
legs nýs árs og farsæld-
ar í framtíðinni.
★
í desember hefur oft
verið umhleypingasamt.
Það hafa skipzt á frost
og hríðar, hlýviðri og
regn, stormar og stillur.
Þessa kuldalegu mynd,
sem fylgir hér með, tók
ljósmyndari Þjóöviljans í
Hljómskálagarðinum eftir
eitt hretið af fannbarinni
höggmynd er þar stendur,
listaverkinu Maður og
kona eftir Tove Ólafsson.
Hún á að minna okkur á,
að oft hefur á undanförn-
um árum og áratugum
nætt svalt um íslenzkan
verkalýð og málsvara
hans í lífsbaráttunni, Þjóð-
viljann. Þrátt fyrir það
skulum við eins og maður-
inn og konan á myndinni
bera höfuðið hátt, horfa
einörð og djörf til nýja
ársins og framtíðarinnar
því að einhugur og órofa
samstaða fólksins, karla og
kvenna, mun vinna sigur
að lokum á öllum þeim
erfiðleikum sem framund-
an bíða. Gleðilegt nýtt ár!
— (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Vinninpar í Skyndihepp-
drættl Þjóðviljans komu á
eftirtalin númer:
55088 — Land-Rover eða
bifreið eftir eigin vali
7557 — Góðhestur með
hnakk og belzli
61833 — Sófasett frá Hús-
gagnaverzl. Austurbæjar
45987 — Normende segul-
bandstæki
8335 — Normendc utvarps-
tæki kr. 4.400
53122 — sama
70704 — sama
70531 — Normende ferða-
tæki kr. 3.600
79670
41644
sama
sama
Vinninganna sé vitjað í
skrifstofu happdrættisins að
Þórsgötu 1, símar 19113 og
22396.
★
Ósóttir aukavinningar eru:
68353 — Vegghúsgögn frá
Axel EyjólfsSyni
76162 — Ferð til Evrópu
með SÍS-skipi.
Þjóðviljinn þakkar öllum
sem stutt hafa að ánægju-
ríkum framgangi þessa
happdrættis og óskar þeim
gleðilegs árs með þökkum
fyrir það sem er að líða.
VINNINGS
NÚMERIN
$