Þjóðviljinn - 30.12.1962, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 30.12.1962, Blaðsíða 16
m m Frumleg veiðiaðferð Sandey reynir í fyrradag var gerð frumleg tilraun til að veiða síld í Faxaflóa. Dæluskipið Sandey, eign Björgun- ar h.f., sem hingað til hefur eingöngu verið not- að til að dæla sandi, hélt á aðfaranótt föstudagsins út á síldarmiðin. Var ætlunin að freista þess að soga síldina innbyrðis með þeim mikla krafti, sem dælur skipsins ráða yfir. Það var álit fiskifróðra manna, að þetta mætti e. t. v. takast, þegar síldin Væri í þéttum og stórum 'torfum. Sandey kom til hafnar afturi sagðist svo frá, að Sandey hefði í gær án þess að hafa fengið i verið í flotanum 22—3 mílur nokkra síld. Fréttamaður Þjóð- suð-suðvestur af Hafnarfirði. viljans átt i gaer stutt viðtal við Kristin Guðbrandsson fram- kvæmdastjóra Björgunar, en hann var með í ferðinni. Honum -Við sáum síldina ekki vel á dýptarmælinn. Þó fundum við þarna nokkrar torfur, en síldin var svo stygg, að þegar við fór- Níðrit um sjómenn gefið út í nafni féiags þeirra Landliðsmennirnir og gerðar- dómshetjurnar í stjórn Sjó- mannafélags Reykjavíkur virðast famlr að óttast um völd sín í félaginu, eftlir þeim baráttuað- ferðum sem þeir eru teknir að beita. Nú íyrir helgina gáfu þeir út á kostnað Sjómannafélagsins blaðsnepil, sem að mestu leyti er níðrit um þá menn úr hópi starfandi sjómanna, sem gengið hafa fram fyrir skjöldu til að Áramóta- fagnaður Æ. F. R. Áramótafagnaður Æskulýðs- fylkingarinnar í Reykjavík verð- ur haldinn annað kvöld í félags- heimili Kópavogs (uppi) og hefst kl. 11. Aðgöngumiðar eru af- hcntir í skrifstofu ÆFR, Tjarnar- götu 20, í dag og á morgun. reyna að gera Sjómannafélagið að félagi sjómanna eingöngu, svo það geti á ný aflað sér þess álits og virðingar er það eitt sinn naut sem forystufélag. I níðrit þetta skrifar m.a. í- haldsþingmaðurinn og íhaldsút- sendarinn Pétur Sigurðsson eina sóðalegustu grein sem sézt hefur í íslenzku blaði, rætnasta níð og atvinnuróg um nafngreinda fé- lagsmenn Sjómannafélags Rvik- ur. Mun það algert einsdæmi að misnotað sé fé verkalýðsfélags til að gefa út önnur eins ó- þverra- og óþokkaskrif um með- limi félagsins, er virðist gert í þeim tilgangi að æsa til atvinnu- ofsókna gegn tilteknum félags- mönnum. Níðrit þetta er ekki líklegt til að bæta málstað landliðsins og gerðardómsmannanna í Sjó- mannafélaginu, heldur mun það vekja réttmæta andstyggð starf- andi sjómanna á mönnum sem leggjast svo lágt í að níða fé- laga sína, og láta sameiginlegan sjóð sjómanna kosta útgáfu níð- ritsins. um yfir sitaðinn aftur, voru þær komnar niður. Bátarnir fara yf- ir þær og taka þær svo með asdikinu, en við höfðum ekki as- diktæki. Það er varla hægt að segja, að við höfum gert tiiralun, við fundum aldrei neinar torfur til að setja sogrörið niður í, þær voru allar horfnar, áður en við komum að þeim aftur. — Er ekki hætt við að síldin styggist, þegar sogrörinu yrði hleypt niður í torfuna? — Jú. það er hætt við þvi. En það er einmitt þetta, sem maður vildi athuga. En til þess þyrftum við að hafa asdik-tæki til að sjá, hvernig hún hagar sér, þegar rörið kemur niður. — Hafið þið hug á að reyna aftur seinna? — Það er ómögulegt að segja. Það er vitað máJ, að þetta er ekki hægt nema við sérstök skil- yrði. Síldin þarf að koma ná- lægt sogrörinu til að sogkraft- urinn nái henni. En þetta er styggur fiskur og forðast annað minna. Eg held, að óhætt sé að full- 3’rða, að þetta er ekki framtíðar- veiðiaðferð — það er bara gam- an að prófa þetta, af því að maður er búinn að láta sér detta þetta í hug. Og við skilyrði, sem stundum hafa myndazt hér við Suðvesturlanlið. að síldin stend- ur í botn og upp á 5—6 faðma, þá væri kannski ekki útilokað að ná einhverju. FTH \ Svipbrígðin \ \ mismunandi \ hj Þau voru mismunandi svip- k ™ brigðin á börnunum sem ® k tóku á móti Hurðaskellii á | " barnflesta heimilinu í bæn- J g um nú um jólin. Sum fagna ■ J ákaflega en önnur eru hlé- J | drægari og ekki alveg viss I um hvernig þau eiga að j taka þessum skrítna karli. | ^ Fleiri myndir cru á 11. síðu í 1| (Ljósm. Þjóðv. A.K.). ^ Sunnudagur 30. desember 1962 — 27. árgangur — 285. tölublað. Forstjórahópurínn í Sjómannafélagínu Núverandi valdamenn í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur, Jón Sligurðsson „klofningur“, og Pét- ur Sigurðsson íhaidsþingmaður og útsendari, hafa komizt þar í stjórn og vonast til að halda henni með fylgi sjöhundruð manna landliðs, manna sem ekki ættu að vera í sjómannaJélagi nema þá sem aukafélagar án at- kvæðisréttar. Hér í blaðinu hef- ur undanfarið verið minnt á nokkra hópa þessara manna, manna sem ár og áratugi hafa starfað á allt öðrum verksvið- um en þcim sem fullgildum fé- lagsmönnum í sjómannafélagi er ætlað að starfa á. Hér skal minnt á enn einn hóp- inn, og er sá ekki óvirðulegastur! Það er sem sé forstjórahópurinn, og er þar komið það hátt í met- orðastiganum að einn forstjórinn er líka hafður til að halda heitu bankastjórasæti fyrir gerðar- dómsráðherrann Emil Jónsson, formann Alþýðuflokksins, og á hlýjan á bakhlutanum á hlutað- eigandi fullgildum félaga í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur að end- ast til að verma sætið þangað til gerðardómsráðherrann hrökkl- ast úr ráðherraembætti, svo hann komi mjúkt niður og þurfi ekki að fara til sjós. En hlutaðeigandi getur skroppið úr bankastjóra- sætinu til að velja stjóm í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur! Hér eru fimm nöfn úr for- sljórahópnum í Sjómannafélagi Reykjavxkur. Þeir eru allir í full- um félagsréttindum þar og á kjörskrá félagsins. Jón Axel Pétursson, forstjóri Bæjarútgerðar Reykjavíkur frá stofndegi, nú settur bankastjóri fyrir gerðardómsráðherrann Em- il Jónsson, formann Alþýðu- flokksins. Sæmundur E. Ólafsson, for- stjóri Kexverksmiðjunnar Esju. Árni Ólason, Sólvallagötu 27, heildsali með meiru. Friðsteinn Jónsson, forstjóri Gildaskálans, Aðalstræti 9 og sumarhótelstjóri að Búðum á Snæfellsnesi. Agnar Ólafsson, forstjóri Raf- tækni h.f. Laugavegi 168. Starfandi sjómenn! Látið ekki atkvasði ykkar vanta til þess að hrinda valdi landliðs og gerðar- dómsmanna í Sjómannafélagi Reykjavíkur. Listi starfandi sjó- manna er B-listi. Kosið í dag kl. 2—9. Jólavaka Kvenfélags sósíalista verður haldin í Tjamargötu 20 n.k. föstudag, 4. janúar. Seyðisfirði 29/12 — Réttarhöldum var enn haldið áfram í dag vegna andláts mannsins í fanga- geymslu lögreglunnar á dögun- um, en búizt við að þeim yrði að fullu lokið í kvöld. Ekkerf frekar fékkst upplýst í málinu. Launajöfnuður kvenna nær um landið allt Vegna fréttar sem birt var hér íl blaðinu í fyrradag frá Verkakvennafélaginu Framsókn þykir rétt að taka fram, að launajafnaðarnefnd hefur lokið útreikningum sínum fyrir öll verkakvennafélög í Iandinu og þau verkalýðsfélög sem einnig semja um kvennakaupið. Þess má einnig geta, að á nokkrum stöðum hafa verkakon- urnar knúið fram fullt launa- jafnrétti við karlmenn, sömu laun fyrir sömu vinnu, með einni undantekningu er þessu þannig varið á Siglufirði og Húsavík og á Skagaströnd. Verkakonur á þessum stöðum þurfa því ekki að bíða eftir launajafnréttinu í þeim áföng- um sem Alþingi rausnaðist við að skammta það í, þegar sýnt var að ekki yrði lengur staðið gegn má’linu. Sagt var í íréttinni frá Fram- sókn hvernig kvennakaupið breyttist í samningum þess fé- lags. Hér skal tekið annað dæmi, af Verkakvennafélagi Keflavíkur og Njarðvíkur, en það félag hef- ur orðið félögum úti á landi til hvatningar og fyrirmyndar með þvJ að semja við fleiri aðila en líklega nokkurt annað verka- kvennafélag. Hjá þessu félagi hækkar al- menna verkakvennakaupið um 73 aura á klst., verður 22,13 kr. Tímakaup unglingsstúlkna 14— 15 ára verður 17.33 kr. og stúlkna 15—16 ára 19.06 kr. Þessar hækkanir verða á samn- ingi félagsins við Vinnuveitenda- félag Suðurnesja. Samkvæmt samningi félagsins við íslénzka aðalverktaka hækk- ar kaup starfsstúlkna í mötuneyt- um sem hér segir: Á fyrstu þrem mánuðum, hækkun 248,80 kr., verður 4014,80 kr. Næstu níu mánuði 4378,00 kr.; eftir eitt ár; 4426,00 kr. Matráðskonur, lág- markskaup 5500.00 kr. Hækkun samkvæmt samningi um kaup matráðskvenna og að- stoðarstúlkna í verbúðum í Kefla- Stjórn Afþýðusambands fsfands !. I óskar öllum sambandsfélögum og vel- | unnurum verkalýðsins gleðilegs nýárs. I t vík og Njarðvíkum: Lágmarks- kaup matráðskonu á mánuði hækkar um 200.00 kr., í 5150.00 kr. Mánaðarkaup aðstoðarstúlku hækkar um 192.62 kr., í 4239.43 kr. Samkvæmt samningi við Efna- laug Suðumesja: Starfsstúlk- ur fyrstu 12 xrxán- uði, hækkar í 3797,60 kr.; eftir 12 mánuði: í 4270.60 kr.; eftir 24 mánuði: 4387.40 kr.; eftir 36 mánuði: 4503.60 kr.; eftir 48 mánuði; 4621.20 kr. Samkvæmt samningi við Sjúkrahús og eWiheimili Kefla- víkur; Á fyrstu sex mánuðunum hækkar um 235 kr. á mánuði, í 4070.00 kr.; næstu sex mánuði í 4442.00 kr.; eftir eitt ár: í 4514.00 kr.; eftir 2 ár: 4596.10 kr; eftir 4 ár: í 4672.10 kr. Samkvæmt samningi félagsirxs við Aðalstöðina h.f. og Bifreiða- stöð Keflavikur. Lágmarkskaup stúlkna: A. Tvískiptar vaktir. Fyrstu 3 mánuðina: hækkun 557.00 kr. á mánuði, í 4152.00 kr.; næstu 9 mánuði: í 4479.20 kr.; eftir ár: 4724.00 kr.; eftir 2 ár: 4887.00 kr. eftir 3 ár: 5032.80 kr. B. Þrískiptar vaktir. Fyrstu 3 mánuðina: hækkun 647.00 kr. á mánuði, verður 4430.00 kr.; næstu 9 mánuði: 479^0 kr.; eftir ár: 5221.20 kr.; eftir 2 ár: 5374.00 kr.; eftir 3 ár: 5555.60 kr. Samkvæmt samningi félagsins og Matstofunnar Vííkur: Fyrstu sex mánuðina: 3834.80 kr.; nsestu sex mánuði: 4014.80 kr.; eftir ár: 4196.63 kr.; eftir 2 ár: 4279.30 kr. Stúlkur í býtibúri: 4533.70. Lágmarkslaun ráðskonu: fyrstu tvö ár: 4716.40 lcr.; eftir tvö ár: 4806.80 kr.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.